Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 15

Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 15 Þing kínverskra kommúnista: „hreinsamr44 munu hluta næsta árs Friðsamlegar hefjast síðari Peking, 7. september. AP. HREINSANIR ÞÆR, sem boðaðar hafa verið í kínverska kommúnista- flokknum virðast ætla að verða mun friðsamlegri en þær sem áttu sér stað í menningarbyltingunni á tímum Mao Tse-Tung formanns. „Komist að rótum meinsins til að bjarga sjúklingnum" er kjörorð hreinsananna, sem eru nefndar „réttlætingarbarátta" af flokkn- um sjálfum. Munu þær hefjast síðari hluta næsta árs og standa í þrjú ár að því er heimildir herma. Þá er einnig hermt, að tiltölu- lega fáir muni verða reknir úr flokknum í samanburði við með- limafjölda hans. Alls eru 39 millj- ónir manna flokksbundnar í kommúnistaflokknum. Að fjórum árum liðnum verða allir meðlimir flokksins að sækja um inngöngu í hann á nýjan leik. Þeir, sem ekki standast hinar nýju kröfur, sem til þeirra verða gerðar, fá ekki inngöngu. Hreinsanir þessar þykja bera þess merki að forysta flokksins standi ekki mjög styrkum fótum þessa stundina. Vestrænir frétta- skýrendur líta svo á að ekki séu fyrir dyrum stórfelldar hreinsanir á hörðustu stuðningsmönnum Mao Tse-Tungs heitins eins og Deng Xiaoping vildi alla tíð, heldur sé ætlunin að reyna að vinna þá á band nýja leiðtogans, Hu Yao- bang, með friðsamlegum hætti. Það sem hins vegar veldur leið- togum flokksins áhyggjum eru þeir stuðningsmenn menningar- byltingarinnar, sem enn sitja í valdastólum innan hans. Hafa blöð lýst yfir áhyggjum sínum þess efnis, að baráttunni við fjór- menningaklíkuna sé ekki lokið. Stuðningsmenn hennar leynist í öllum skúmaskotum og biði aðeins færis. Pandabjarnartvíburarnir rétt eftir fæðingu. Eins og sjá má á myndinni eru þeir ekki fyrirferðanniklir. Annar pandabjarnar- tvíburanna dó í gær Madrid, 7. september. AP. ANNAR pandabjarnanna, sem fæddust í dýragarðinum í Madrid á laugardag, lést í nótt. Allar til- raunir til að bjarga unganum, sem vó aðeins 75 grömm við fæðingu, reyndust árangurslausar. Við krufningu á krilinu kom í ljós að það var kvenkyns. Mikl- um efiðleikum er bundið að sjá kyn pandabjarna fyrst eftir fæð- ingu. Dauði bjarnarins olli starfsmönnum dýragarðsins sár- um vonbrigðum þar sem þetta var í fyrsta sinn sem tvíburar þessarar tegundar fæðast í dýra- garði. Hinum tvíburanum, sem vó 110 grömm við fæðingu, heilsast vel og vakir móðirin yfir honum. Það var aðeins fyrir snarræði starfsmanna og lækna dýra- garðsins að tókst að halda lífinu í unganum, sem nú er látinn. Venjan er sú að pandabirnir eignast aðeins eitt afkvæmi. Sá tvíburanna, sem lifir, kom i heiminn á undan hinum og lét móðirin, Shao-Shao, vel að hon- um. Hinn lét hún aftur á móti algerlega afskiptalausan. Hon- um var komið fyrir í hitakassa og þannig tókst að halda í hon- um lifinu þar til í nótt. Shao-Shao varð ólétt eftir að sæði úr karlbirninum Chia-Chia, sem er í dýragarðinum í Lund- únum, var komið fyrir í henni. Var gripið til þess ráðs eftir árangurslausar tilraunir til að fá Chang-Chang, karlbjörninn, sem er í dýragarðinum í Madrid, til að geta afkvæmi með Shao- Shao. Lokadagur kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum í dag: Mynd Fassbinders líklegur sigurvegari — blikur á lofti um framhald hátíðarinnar Keneyjum, 7. september. AP. NÚ, Á NÆSTSÍÐASTA degi hinnar árlegu kvikmyndahátíðar í Feneyjum, Biennalnum, hallast flestir að því að stærstu verðlaunin fari í hendur V-Þjóð- verja. Verðlaunin verða afhent á lokadegi hátíðarinnar á morgun, miðviku- dag. Eftir 13 daga linnulausar kvikmyndasýningar er síðasta myndin, sem Rainer Werner Fass- binder gerði fyrir dauða sinn, „Querelle", talin mjög sigur- strangleg. Ennfremur eru mynd- irnar „The state of things" eftir Wim Wenders og „Imperatif" eftir pólska leikstjórann Krzystof Zan- ussi, sem tók þátt í hátíðinni undir v-þýskum fána, taldar líklegar til verðlauna. Þeir, sem eru taldir líklegastir til að krækja í verðlaun einstakra leikara, eru Italirnir Giuliana de Sio og Michel Placido fyrir hlut- verk þeirra í myndinni „Sciopen" og Sovétmaðurinn Michail Ulj- anov fyrir hlutverk sitt í mynd- inni „Privatie life“, einu mynd Sovétmanna á hátiðinni. Þá hefur nafnið Max von Sydov verið nefnt fyrir hlutverk i myndinni „The eagle flight". Kvikmyndahátíðin í ár hefur átt í miklum fjárhagskröggum og eru jafnvel blikur á lofti um framhald hennar. Rúmlega milljón dala rík- isstyrkur á elleftu stundu gerði kleift að halda hana í ár. Þetta er elsta kvikmyndahátíð í heiminum og helsti keppinautur Cannes- hátíðarinnar, sem einnig er haldin árlega. Framkvæmdastjóri kvik- myndahátíðarinnar, Carlo Lizz- ani, hefur sagt að hann muni ekki koma nálægt henni á næsta ári og er sársvekktur yfir skilningsleysi þvi sem hann segir mæta henni. Páfi frestar för sinni til Spánar Yatikaninu, 7. september. AP. JÓHANNES Páll páfi II hefur ákveðið að fresta för sinni til Spánar þar til kosningarnar þar í landi, sem verða 28. október, eni afstaðnar. Segir svo i opinberri tilkynningu frá Vatikaninu í dag. Verður för páfa frestað þar til í byrjun nóvember og dvelst hann á Spáni í vikutíma. Trúarbrögð leika stórt hlutverk í kosningabar- áttunni á Spáni, sem og víðar í löndum Suður-Evrópu og mun það hafa átt þátt í því að páfi frestaði för sinni. Sophia Loren um fangelsisdvöl sína: „Þetta var hræðileg reynsla, sem ég vildi aldrei upplifa aftur" urlandsins til þess að heim- sækja ættingja sína. Að sögn Sophiu var henni aðeins leyfilegt að hringja tvisvar sinnum á 15 daga fresti. Sagðist hún ekki hafa vitað þetta og notað bæði sím- töl sín sama daginn. „Það versta við þetta allt saman er einmanaleikinn sem heltekur mann. Rimlarnir og járnbenta hurðin auka enn frekar á þá tilfinningu. Þetta var hræði- leg reynsla, sem ég vildi aldrei upplifa aftur," sagði Sophia að lokum. Lundúnum, 7. september. AP. SOPHIA LOREN, kvikmyndaleikkonan heimskunna, segir í viðtali við breskt tímarit, sem kom út í dag, að 17 daga dvöl hennar í fangelsi vegna vangoldinna skatta hafí verið „helvíti líkust og hræðileg reynsla“. Þvert ofan í þær fregnir sem bárust á meðan hún var í haldi, segir Sophia, að hún hafi alls engra forréttinda notið innan fangelsisveggj- anna og hafi hlotið nákvæm- lega sömu meðferð og aðrir . „Það var í einu og öllu farið eftir reglum fangelsisins og hvergi brugðið út af þeim. Ef ég hefði getað gert mér í hug- arlund hversu hræðilegt þetta væri hefði ég aldrei stigið fæti niður á Italíu," segir leikkon- an í viðtalinu. Sophia Loren var ákærð fyrir skattsvik árið 1980 en fór ekki í fangelsi fyrr en hún var handtekin á Leonardo da Vinci-flugvellinum í Róm á leið sinni frá Sviss. Sagðist hún hafa snúið aftur til föð- Alberto Balsam Smukkere hár pá et minut Fallegra hár með Aiberto Balsam. Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: GOOLE: Arnarfell ......... 20/9 Arnarfell ......... 4/10 Arnarfell ........ 18/10 Arnarfell ......... 1/11 ROTTERDAM: Arnarfell ......... 22/9 Arnarfell ......... 6/10 Arnarfell ........ 20/10 Arnarfell.......... 3/11 ANTWERPEN: Arnarfell ......... 9/9 Arnarfell ........ 23/9 Arnarfell ........ 7/10 Arnarfell ....... 21/10 Arnarfell ......... 4/11 HAMBORG: Helgafell ........ 10/9 Helgafell ........ 1/10 Helgafell ....... 22/10 Helgafell ........ 12/11 HELSINKI: Disarfell ........ 13/9 Dísarfell ....... 11/10 Dísarfell ....... 4/11 LARVIK: Hvassafell ....... 13/9 Hvassafell ....... 6/10 Hvassafell ...... 18/10 Hvassafell ....... 1/11 GAUTABORG: Hvassafell ....... 14/9 Hvassafell ....... 5/10 Hvassafell ...... 19/10 Hvassafell ....... 2/11 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ....... 15/9 Hvassafell ........ 4/10 Hvassafell ....... 20/10 Hvassafell ........ 3/11 SVENDBORG: Helgafell ........ 13/9 Hvassafell ....... 27/9 Helgafell ........ 5/10 Dísarfell ....... 15/10 Helgafell ....... 25/10 AARHUS: Helgafell ........ 14/9 Helgafell ........ 6/10 Helgafell ....... 26/10 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell ......... 9/9 Skaftafell ....... 4/10 Skaftafell ....... 2/11 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ....... 6/10 Skaftafell ....... 5/11 m SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.