Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
Framkvæmdastjóm VMSÍ:
Skorar á málsaðila
að koma í veg fyrir
stöðvun fiskiflotans
„Mótmælir harðlega“ vísitöluskerðingu bráðabirgðalaganna
MORGUNBLAÐINU barst í gær eftir-
farandi frá framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands íslands:
„Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands íslands sem kom
hingað til fundar í dag vekur athygli
á því alvarlega ástandi, sem hlýtur
að skapast ef hótun LÍÚ um stöðvun
fiskiskipaflotans kemur til fram-
kvæmda. Slíkt myndi hafa í för með
sér stórfelldara atvinnuleysi verka-
fólks en hér hefur þekkst um árabil.
Verkamannasamband Islands
skorar því á alla þá aðila, sem málið
snertir, að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg fyrir
að slíkt ástand skapist.
Framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambands íslands mótmælir harð-
lega þeirri vísitöluskerðingu er rík-
isstjórnin fyrirhugar samkvæmt
nýsettum bráðabirgðalögum.
Afskipti ríkisvaldsins af gerðum
kjarasamningum eru ætíð vítaverð
og eru í raun stórhættulcg því þau
minnka traust almennings á heið-
arlegum samskiptareglum og gerð
kjarasamninga.
Bendir fundurinn á að laun verka-
fólks eru ekki orsök þess efnahags-
vanda, sem nú blasir við, heldur
óráðsía, röng fjárfesting og margra
ára óstjórn.
Kaupmáttur launa verkafólks
hefur farið rýrnandi á undanförnum
árum og mun verkafólk ekki þola
enn frekari skerðingu. Því telur
fundurinn nauðsynlegt við lausn
efnahagsvandans að þeir betur settu
verði sóttir til ábyrgðar í stað þess
að ráðast á lífskjör láglaunafólks."
Betri inngangur í Dimmuborgir
Inngangurinn í Dimmuborgir í Mývatnssveit hefur verið lagfærður og m.a. gerðar þar
tröppur, sem sjást til hægri á myndinni. n>ukur snorruon
Varðarfundur
í kvöld ki. 20.30:
Rætt um efna-
hagsráðstafan-
irnar og stjórn-
málaviöhorfið
Land.smálafélagið Vörður heldur
í kvöld fund um efnahagsráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar og
stjórnmálaviðhorfið. Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flytur framsöguræðu, en
að henni lokinni verða umræður.
Fundurinn í kvöld hefst klukk-
an 20.30 og verður í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Arni Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að nú
væri nauðsynlegt að ræða þau
vandamál sem að steðja. Vert
væri að fjalla um hver áhrif
efnahagsstefna ríkisstjórnarinn-
ar hefði og hvort sú stefna væri
likleg til að skila árangri. Eðli-
legt væri að sjálfstæðismenn
ræddu þessa hluti nú.
Steingrímur Hermannsson:
Bankamenn að hefja
samningaviðræður
REIKNAÐ er með að samningavið-
ræður bankastarfsmanna og at-
vinnurekenda þeirra hefjist á ný nú í
vikunni, en í gær kom samninga-
nefnd bankanna, þ.e. atvinnurek-
enda, saman til fundar.
Bankastarfsmenn lögðu fram
kröfugerð sína sl. vor þegar þeir
sögðu upp samningum. I sumar
hafa starfað nefndir á vegum
bankamanna og fjallað um ýmis
sérmál svo sem varðandi hug-
myndir um rétt og aðild starfs-
manna að tæknivæðingu bank-‘
anna og fleira. Þá hafa menn einn-
ig beðið átekta á meðan hin stóru
Benedikt
Gröndal sendi-
herra í Svíþjóð
BENEDIKT Gröndal fyrrverandi
ráðherra og formaður Alþýðuflokks-
ins hefur nú látið af þingmennsku
fyrir Alþýðuflokkinn. Hefur hann
tekið við stöðu sendiherra íslands í
Svíþjóð og afhenti Karli XVI Gustav
konungi Svíþjóðar trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra 2. september síðast-
liðinn.
Varamaður Benedikts á Alþingi
og sá, sem tekur við þingmennsku
af honum, er Jón Baldvin Hanni-
balsson, ritstjóri Alþýðublaðsins.
Þad gengur vel að vinna
að úrlausn fyrir útgerdina
— funda með fulltrúum útgerðarinnar 1 dag
verkalýðssamtök landsins og
stjórnvöld hafa tekist á um launa-
og kjaramálin.
„ÞAÐ gengur vel að vinna að úr-
lausnum fyrir útgerðina, en þvi verð-
ur ekki lokið fyrir 10. september.
Það er útilokað því margir aðilar
þurfa að fjalla um þetta ef gera á
eitthvað meira en áður hefur verið
um talað og það er nú meiningin að
reyna að gera eitthvað meira,“ sagði
sjávarútvegsráðherra, Steingrímur
Hermannsson, er Morgunblaðið
innti hann eftir því í gær hvernig
gengi að leysa vanda útgerðarinnar.
Hve miklar fjárhæðir þarf að
þínu mati til að leysa vandann?
„Ég vil ekkert segja um það, en
með bráðabirgðalögunum voru um
120 milljónir fluttar til útgerðar-
innar. Útgerðin hefur talið sig
þórfa um 500 milljónir en ég vil
ekkert um það segja nú hve mikið
hún þarf að mínu mati. Ég var að
skoða afkomutölur og á árunum
1974, 75 og 76 var útgerðin rekin
með 13, 14 og 12% halla. Það er
því meðal annars þessi uppsafnaði
vandi, sem verið er að stríða við
þegar afli dregst saman. Að öðru
leyti vil ég ekki tjá mig um málið,"
sagði Steingrímur.
Rétt er að geta þess að nú fyrir
hádegi ganga fulltrúar útgerðar-
innar á fund sjávarútvegsráð-
herra og fyrir hádegið kemur
einnig framkvæmdastjórn
Sjómannasambands íslands sam-
an til framhaldsfundar. Hún
fundaði í gær um stöðuna í sjávar-
útveginum en niðurstaða um mál-
ið náðist ekki. Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambandsins,
vildi ekki tjá sig um málið í gær.
Staða fræðslustjóra í Reykjavík:
Afgreiðslu frestað
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur frest-
aði á mánudag að taka afstöðu til
umsækjenda um stöðu fræðslustjóra
Reykjavikur, en tvær tillögur komu
fram í ráðinu, önnur ura Sigurjón
Fjeldsted skólastjóra og hin um Ás-
laugu Brynjólfsdóttur.
Fjórir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í ráðinu gerðu tillögu um
að mælt yrði með Sigurjóni
Fjeldsted, en fulltrúi Framsókn-
arflokksins gerði tillögu um Ás-
laugu Brynjólfsdóttur. Á fundin-
um óskaði fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins eftir leynilegri atkvæða-
greiðslu, en fulltrúi Alþýðuflokks-
ins bað um að málinu yrði frestað
og var það samþykkt. Mál þetta
verður tekið fyrir að nýju næst-
komandi mánudag.
Ekki farið eftir reglu-
gerð um eyðingu máva?
— Liðlega tvö þúsund mávar drápust eftir að eitrað var fyrir þeim í Gufunesi
„ÉG HARMA aft Labradortíkin skuli hafa drepist. Við gerðum tilraun
meft að eitra með phenemali fyrir mávum á öskuhaugunum í Gufunesi.
Við eitruðum tvivegis með þvi að dreifa eitruðu agni. í fyrra sinnið
drápust 816 fuglar og 1277 í seinna skiptið. Reynslan sýnir hins vegar, að
varhugavert er að nota eitrið nærri þéttbýli," sagði Sveinn Einarsson,
veiðistjóri, í samtali við Mbl., en svo sem fram kom í blaðinu i gær,
drapst Labradortík eftir að eigandi hafði farið með hana til æfinga í
Geldinganesi. Hundruð máva iágu þá dauðir, eða voru að drepast eftir að
hafa étið eitraða bita á haugunum, en hrakist til Geldinganess.
Mbl. er kunnugt um, að tveir fræðingur, en hann býr í ná-
hundar veiktust hastarlega í
nágrenni öskuhauganna og lá
annar þeirra í dái í þrjá sólar-
hringa. „Við skiljum vel nauð-
synina að fækka mávum, því
stundum er eins og dragi ský
fyrir sólu þegar mávagerið hefur
sig til flugs. En það sem okkur
finnst ámælisvert er hvernig að
málum var staðið. Ekkert sam-
ráð var haft við íbúa í nágrenn-
inu. Þeir voru ekki látnir vita, að
eitrað hefði verið fyrir mávum,"
sagði Ragnar Tómasson, lög-
grenninu.
Aðspurður sagði Sveinn Ein-
arsson, að hætta stafaði af eitr-
inu ef fuglarnir ældu eitruðum
bitum, eða aðrir vargar rifu þá á
hold, því eitrið væri í iðrum fugl-
anna. Hann sagði, að í einu og
öllu hefði verið farið eftir reglu-
gerðum um útrýmingu svartbaks
og skaðlegra mávategunda.
í reglugerð frá 11. apríl 1973
um eyðingu svartbaks og hrafns
er gert ráð fyrir að tríbrómetan-
ól skuli notað. Sérstakt ákvæði
er um, að notkun phenemals
skuli bönnuð í árslok sama ár.
Þann 12. júní 1981 var gefin út
reglugerð um breytingu á reglu-
gerðinni frá 1973. Veiðistjóra
var heimilað að nota í tilrauna-
skyni phenemal til fækkunar
svartbaki og öðrum skaðlegum
mávategundum.
Skýrt er tekið fram, hvernig
standa skuli að eyðingu svart-
baks í reglugerðinni frá 1973.
Eitra skuli í egg um gat og beri
að gæta ýtrustu varúðar.
Stranglega sé bannað að setja
eitrið í annað en egg. Þá skuli
tafarlaust grafa eða urða fugla,
sem drepast af áti eggja. Þá eru
ákvæði um, að staðir þar sem
eitrað hefur verið skuli auð-
kenndir svo þeim sem kunna að
eiga leið um, sé ljóst, að von sé
eggja eða fugla, sem drepist hafi
af áti þeirra.
Harður
árekstur
Akureyri, 7. Heptember.
AFAR harður árekstur
tveggja fólksbíla varð á mót-
um Hrafnagilsstrætis og Þór-
unnarstrætis um klukkan 17
í dag. Þrennt var flutt á
slysadeild, en meiðsli fólks-
ins eru ekki talin alvarleg.
Bíllinn, sem kom norðan Þór-
unnarstræti, lenti á miðjum
bílnum, sem kom austan
Hrafnagilsstræti, sem er aðal-
braut, þannig að hinn síðar-
nefndi kastaðist út af götunni
og skall flatur á norðurvegg
hússins númer 93 við Hrafna-
gilsstræti. Báðir bílarnir eru
stórskemmdir.
Þessi gatnamót eru mikill
slysastaður þó að engin hús
skyggi á útsýni ökumanna nema
þetta eina, sem fyrr var nefnt.
Það er margra manna mál, að
mikil þörf sé á götuvitum á
þessum hættulega stað, ekki
sízt vegna mikils fjölda skóla-
fólks, sem þar gengur á leiðinni
úr og í skóla. Sv.P.