Morgunblaðið - 08.09.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
31
7. leikurinn gegn A-Þýskalandi:
Einn sigur i sex
KnatLspyrnusam.skipti íslands og
Austur-Þýskalands hófust árið 1973,
er þýska landsliðið kom hingað til
lands og lék tvo landsleiki á Laugar-
dalsvellinum dagana 17. og 19. júlí.
Voru það vináttulandsleikir. fsland
stóð sig mjög vel í leikjunum þrátt
fyrir töp, sérstaklega þó í þeim fyrri
sem endaði 2—1 fyrir Austur-Þjóð-
verja. Ólafur Júlíusson úr Keflavík
skoraði mark íslands. Síðari leikur-
inn endaði 2—0 fyrir Þjóðverja og
voru fslendingar ívið daufari en í
fyrri leiknum.
Naest áttust þjóðirnar við í
Magdeburg 12. október 1974 og
voru þær þá saman í riðli í
Evrópukeppni landsliða. Þýska
liðið var álitið sigurstranglegast í
riðlinum og það skók knattspyrnu-
heiminn verulega er Island tók
stig af knattspyrnustórveldinu,
enda hróður íslenskrar knatt-
spyrnu fjarri því jafn mikill og í
dag. Matthías Hallgrímsson skor-
aði mark íslands. Þessi úrslit voru
aðeins forsmekkurinn að því sem í
vændum var, því hafi jafnteflið
komið knattspyrnuheiminum á
óvart verður viðbrögðunum vart
lýst er liðin áttust við á Laugar-
dalsvellinum 5. júní árið eftir.
2—1 sigur Islands er enn víðfræg-
ur og í minnum hafður. Jóhannes
Eðvaldsson og Asgeir Sigurvinss-
on skoruðu mörk íslenska liðsins
og enn þann dag í dag eru það
Ellert Schram:
leikjum
einhver glæsilegustu mörk sem
skoruð hafa verið í Laugardalnum.
Fimmti landsleikur þjóðanna
var einnig í Evrópukeppni lands-
liða, 4. október 1978, en þá mætt-
ust þær í Halle. Leiknum lauk með
sigri Þýskalands, 3—1, og skoraði
Pétur Pétursson mark íslands.
Heimaleiknum tapaði ísland einn-
ig, 0—3, en hann fór fram í Laug-
ardalnum 12. september 1979.
Leikurinn í kvöld er j>ví sjöundi
landsleikur þjóðanna. Island hefur
unnið einn leik, einum hefur lokið
sem jafntefli, en Austur-Þjóðverj-
ar hafa unnið fjóra leiki. Marka-
talan er 5—12 Þjóðverjum í hag.
— gg-
„Nýir menn fá tækifæri
til að spreyta sig“
„ÞÓ AÐ aðeins leiki einn atvinnu-
maður með íslenska landsliðinu þarf
það ekki að þýða lakari frammistöðu
af Islands hálfu gegn Austur-Þjóð-
verjum,“ sagði Ellert Schram for-
maður KSÍ á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni landsleiksins í
kvöld. Ellert hélt áfram:
„Það að „útlendingarnir" geta
ekki leikið gefur öðrum leik-
mönnum möguleika að spreyta
sig, leikmönnum sem standa við
dyr landsliðsins. Nú fá þeir tæki-
færi til að sýna að þeir eigi heima
í A-landsliðinu. Við eigum nóg af
mannskap til að gera vel, nægir að
benda á „leik undir 21 árs-liðsins“
gegn Hollandi suður í Keflavík um
daginn. Þar var enginn atvinnu-
maður, en engu að síður lék liðið
afar vel og stóð sig frábærlega."
— Nú, en það verður þó einn
atvinnumaður með, Pétur Péturs-
son, og það verður gaman að sjá
hann leika á Laugardalsvellinum
á nýjan leik, en það er orðið tals-
vert langt síðan hann lék þar sið-
ast.“
Ifí'jTMi v\ Fm fr 1
1 m vSf 'v LJm 4 < IJi
• Grjónapungarnir og Riddararnir eftir að golfeinvíginu lauk á föstudag. Allir eru greinilega í sólskinsskapi.
Lýósm. ÞR.
Riddarar hringborðsins biðu
lægri hlut að þessu sinni
• Halldór Einarsson (Henson) varð
sigurvegari f einstaklingskeppninni
lék af hreinni snilld og sigraði ýmsa
þekkta golfleikara eins og Berg
Guðnason, sem þarna á eitthvað
ósagt við Halldór sem situr í stóln-
um og slappar af eftir erfíðan hring.
SÍÐASTLIÐINN fostudag fór fram
á Nesvellinum merkileg golfkeppni.
Þá leiddu saman hesta sína félagar
úr FÍGP og hinir svokölluðu Riddar-
ar hringborðins frá Akureyri. En í
þessum tveimur hópum eru vaskir
garpar sem hittast daglega í hádeg-
inu og ræða landsins gagn og nauð-
synjar. í fyrrasumar skoruðu norð-
anmenn á sunnanmennina í golf-
keppni og fór hún fram á Akureyri,
og þá unnu norðanmenn frækilegan
sigur á sunnanmönnum.
Að þessu sinni fór keppnin fram
sunnanlands og þá var ekki að
sökum að spyrja, félagar úr FÍGP
sigruðu af öryggi, enda á heima-
velli. Það var glatt á hjalla á
Nesvellinum á föstudag og greini-
legt var að ánægjan sat í fyrir-
rúmi.
Á myndinni hér að ofan má sjá
félagana úr hópnum sem tók þátt í
keppninni, og eru í honum mörg
kunnugleg andlit íþróttamanna
sem gert hafa garðinn frægan í
hinum ýmsu íþróttagreinum gegn-
um árin. Og ekki var annað að sjá
í golfkeppninni en að flestir þeirra
hefðu náð góðum tökum á golf-
kylfunum. Enda margir þeirra
orðnir kunnir golfleikarar. Eftir
að keppni lauk var Riddurunum
boðið til mikils fagnaðar þar sem
fram fór verðlaunaafhending o.fl.
— ÞR.
Forsala
Forsala aðgöngumiða á landsleik
íslands og Austur-Þýskalands hefst i
dag í Austurstræti og í Laugardaln-
um klukkan 10.00. Fólk getur sparað
sér að standa i biðröðum í kvöld
með þvi að nýta þjónustuna.
• Pétur Pétursson, eini atvinnumaðurinn í islenska liðinu.
Pétur Pétursson
í hópnum
sem mætir
A-Þjóóverjum
ÍSLAND og Austur-Þýskaland leika
landsleik í knattspyrnu á Laugar-
dalsvellinum i kvöld kl. 18.30, en
þjóðirnar hafa löngum eldað grátt
silfur saman á knattspyrnuvellinum.
Hafa fslendingar furðu oft gert þeim
þýsku skráveifur og er skemmst að
minnast er landinn tók þrjú stig af
Austur-Þýskalandi í Evrópukeppni
landsliða um árið. Er mörgum enn í
fersku minni 2—1-sigurinn á Laug-
ardalsvellinum og 1—1-jafnteflið í
Magdeburg. Jóhannes Atlason
landsliðsþjálfari hefur valið lands-
liðshóp fyrir átökin, en hann er
skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK
Guðmundur Baldursson, Fram
Örn Óskarsson, ÍBV
Trausti Haraldsson, Fram
Viðar Halldórsson, FH
Sigurður Lárusson, ÍA
Marteinn Geirsson, Fram
Ólafur Björnsson, UBK
Ómar Torfason, Vikingi
Gunnar Gislason, KA
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
Árni Sveinsson, ÍA
Ragnar Margeirsson, ÍBK
Sigurður Grétarsson, UBK
Pétur Pétursson, Antverp.
Sigurjón Kristjánsson, UBK
Eins og sjá má, er aðeins einn úr
hópi „útlendinganna" með að þessu
sinni, Pétur Pétursson, en það er
orðið æði langt siðan hann kom sið-
ast til liðs við landsliðið. Hinir at-
vinnumcnn íslenska liðsins eiga ým-
ist við meiðsli að stríða, eða þeir fá
sig ekki lausa frá félögum sínum. Þá
munu þeir Trausti Haraldsson og
Örn Óskarsson eiga við meiðsli að
stríða og ekki útséð um hvort þeir
geta leikið með eða ekki.
— gg-
Unnu heimsmeistarana
ÁRANGUR Austur-Þjóðverja í
landsleikjum á þessu ári hefur verið
mjög góður það sem af er þessu ári.
Aðeins einum leik hefur liðið tapað
og var það gegn Brasilíu í Brasilíu,
lokatölurnar 1—3. Jafntefli, 2—2,
náði liðið gegn hinu geysisterka liði
Rússa, en þrjá sigra hefur liðið að
baki. Svíar lágu, einnig Grikkir, en
mesta afrekið var 1—0 sigur gegn
Ítalíu, sem skömmu síðar stóð uppi
sem hcimsmeistari. Leikur sá fór
fram mjög skömmu fyrir HM. Það
verður því örugglega þungur róður
hjá íslenska liðinu.
Þýska liðið er blanda af reynd-
um köppum og ungum og upp-
rennandi leikmönnum. Eru Þjóð-
verjarnir að yngja lið sitt upp
hægt og bítandi. Kunnustu leik-
menn liðsins eru Júrgen Pommer-
enke, Hans Júrgen Riediger, Rud-
iger Schuphase og Joachim
Streich, en flestir þeirra léku með
í 2—1 leiknum fræga um árið.