Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 Uni því ekki að sitja undir slíkum áburði af ■* hendi yfirboðara míns — segir prófessor Margrét Guðnadóttir vegna málshöfðunar hennar á hendur Ingvari Gíslasyni, menntamálaráðherra „ÉG UNI því ekki að sitja undir ákæru um óheiðarleik í starfi af hendi yfirboðara míns. bað er mergurinn málsins,“ sagði pró- fessor Margrét Guðnadóttir í til- efni af því að fyrir skömmu var þingfest í bæjarþingi Reykjavík- ur málshöfðun hennar á hendur Ingvari Gíslasyni, menntamála- ráðherra. Margrét fer fram á að umsögn ráðherrans um störf hennar í greinargerð til Jafnrétt- isráðs verði sönnuð ellegar dæmd ómerk. í greinargerðinni ásakar Ingvar Gíslason Mar- gréti m.a. um óheiðarleik og Sýning Errós opnuð í dag trúnaðarbrot í starfi að hennar sögn. Málsatvik eru þau, að fyrir rúmu ári var auglýst staða prófessors í ónæmisfræðum við læknadeild Háskóla ís- lands. Tveir sóttu um, karl og kona. Margrét Guðnadóttir var oddamaður í dómnefnd sem komst að þeirri niður- stöðu að konan væri hæfari Sex ára drengur lærbrotnaði SEX ára gamall drengur lær- brotnaði þegar hann varð fyrir bifreið á Njarðargötu skömmu eft- ir klukkan 15 í gær. Bifreiðinni var ekið suður Njarðargötu og hljóp drengurinn í veg fyrir bif- reiðina, framundan kyrrstæðri bifreið. umsækjendi. í læknadeild fékk konan einnig meirihluta at- kvæða, þó naumur væri. Ingv- ar Gíslason, menntamálaráð- herra, skipar þrátt fyrir þetta karlmanninn í stöðuna, en Kvenréttindafélags íslands kærir skömmu síðar stöðuveit- inguna fyrir Jafnréttisráði. I umfjöllun Jafnréttisráðs er ráðherrann krafinn um greinargerð, sem hann sendir ráðinu fyrst sem trúnaðarmál, en nokkrum mánuðum síðar sendir hann fjölmiðlum grein- argerðina. í henni er farið, að sögn Margrétar, óviðurkvæmi- legum orðum um störf hennar og hún m.a. sökuð um óheið- arleik, trúnaðarbrot o. fl. Mál- ið hefur eins og fyrr segir ver- ið þingfest í bæjarþingi. Lög- maður Margrétar er Ragnar Aðalsteinsson. Mynd Mbl. RAX. DRENGUR varð fyrir bifreið á móts við húsið Kirkjustræti 8 um kl. 17 í fimmtudag. Drengurinn hljóp í veg fyrir bifreiðina. Meiðsli hans reyndust ekki al- varleg. Rannsóknarráð ríkisins: Ingvar veit- ir Stein- grími lausn í NÝJASTA tölublaði Lögbirt- ingablaðsins er tilkynnt, að menntamálaráðuneytið hafi veitt Steingrími Hermannssyni lausn frá stöðu framkvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins frá 1. september 1982 að telja. I auglýsingunni segir að Steingrími sé veitt lausn frá stöðunni að eigin ósk. Vilhjálm- ur Lúðvíksson hefur gegnt þess- ari stöðu Steingríms í ráðherra- tíð hans. Leiðrétting í FRÉTT Mbl. í gær þar sem sagt er frá tónlistarhátíð Ung Nordisk Musik í Reykjavík dagana 19. til 26. september nk. urðu þau mistök að rangt var farið með faðerni Guðmundar Emilssonar sem stjórna mun Sinfóníuhljómsveit íslands á hátíðinni. Guðmundur var ranglega sagður Einarsson. Þá urðu og þau mistök við frágang myndatexta með fréttinni, að Hjálmar Ragnarsson er sagður vera Snorri Sigfús Birgisson. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Fyrirframsala tryggð á 190— 200 þúsund tunnum af saltsíld „Samsvarar þó aðeins rúmlega helmingi væntanlegs vertíðarafla,“ segir Gunnar Flóvenz í DAG verður opnuð I Norræna húsinu sýning á verkum Errós, Guðmundar Guðmundssonar. Erró hefur aflað sér heims- frægðar fyrir myndlist sína og hann hefur sýnt verk sín mjög víða. Síðast sýndi hann hér heima 1978. A sýningunni í Norræna húsinu er verk úr tveimur myndaröðum sem heita 1001 nótt og Geimfarar. Sýning Errós verður opin til 26. september. „FYRRIHLUTA sumars tókust samningar um fyrirframsölu á 190—200 þúsund tunnum til Sov- étríkjanna og Svíþjóðar, en það eru um 10—20 þúsund tunnum meira en saltað var á allri ver- tiðinni í fyrra. Síðan hafa engar viðbótarsölur tekizt. Ástæðurnar eru fyrst og fremst þær að miðað við núverandi kringumstæður hér heima og háa tolla í löndum Efna- hagsbandalagsins er útilokað að framleiða hér saltaða sild fyrir það verð sem keppinautarnir bjóða, auk þess sem markaðurinn fyrir saltaða síld er mjög takmarkaður og langtum minni en t.d. fyrir frysta og ferska síld,“ sagði Gunn- ar Flóvenz, framkvæmdastóri Síldarútvegsnefndar, er Morgun- blaðið ræddi við hann í tilefni fréttar frá Noregi um offramboð og sölutregðu á síld á Evrópu- mörkuðum. Þá spurðist Mbl. fyrir um það hvernig gengi að tryggja sölu á væntanlegum afla á síldarvertíð- inni í haust. „Á síðasta ári voru saltaðar hér á landi 183 þúsund tunnur og vorum við Islendingar þá langstærstu framleiðendurnir, ef Sovétríkin, Pólland og Aust- ur-Þýzkaland eru undanskilin, en framleiðslutölur þessara landa liggja enn ekki fyrir. „Sjávarútvegsráðuneytið hef- ir heimilað veiðar á 50 þúsund lestum á komandi vertíð og er það 12 þúsund lestum meira en veiddist á vertíðinni í fyrra. Það magn af saltaðri síld sem við höfum samið um sölu á svarar til 26—27 þúsund lesta af síld íslenzkt nútímatónverk hlvtur góða dóma í Bandaríkjunum: Var tjáð í menntamálaráðuneytinu að ekki væru til peningar svo ég gæti verið viðstödd — segir höfundurinn, Karólína Eiríksdóttir, en fjarvera hennar við flutning verksins vakti þar athygli og spurningar „ÉG veit nú lítið um hvernig staðið var að vali tónverkanna og af hverju mitt verk, Sonans, varð fyrir valinu. Það sem ég veit um þetta frétti ég á skoLspónum. Það er ekki mitt að svara því af hverju ég var ekki þarna. Þegar ég frétti i sumar að verk mitt yrði þarna hafði ég samband við menntamálaráðuneytið til að athuga, hvort mér yrði ekki boðið að vera viðstödd, en mér var sagt að ekki væru til peningar til slíks,“ sagði Karólína Eiríksdóttir tónsmiður, er Mbl. bar undir hana frétt frá Wash- ington í Mbl. í gær. í fréttinni kemur fram að verk hennar, Sonans, í flutningi kammersveitarinnar New World Players í salarkynnum banda- risku vísindaakademíunnar í Washington hafi vakið mikla athygli, en fjarvera Karólinu sjálfrar hafi ekki vakið minni athygli. í upphafi fréttar Mbl. í gær er hvort flutningur verksins hefði haft eftir stjórnanda hljómsveit- arinnar, Róbert Kleiman: „Hvernig stendur á að Karólína Eiríksdóttir er ekki hér? Hún hefði átt að vera hér. Verk henn- ar hefur aldrei verið flutt á sama hátt og í kvöld og slíkir tónleikar verða ekki haldnir aftur." Karó- lína var spurð í tilefni þessa, verið á óvenjulegur. Hún svar- aði: „Ég veit ekkert um flutning- inn og veit heldur ekki hvað hann á við. Þetta hafa náttúru- lega verið sérstakir tónleikar þar sem flutt var norræn nú- tímatónlist frá öllum Norður- löndunum að viðstöddum þjóð- höfðingjum þeirra." Karólína Eiríkadóttir Karólína samdi verkið Sonans á árunum 1980 til 1981, er hún fékk níu mánaða listamanna- starfslaun. Verkið var frumflutt á íslandi í október 1981. Aðspurð sagði hún að nafnið Sonans væri dregið af seinni hluta margra al- þjóðlegra orða sem hefðu mein- ingu í sambandi við hljóð. Karó- lína hefur nú þegar samið átta nútímatónlistarverk, þar af eitt annað hljómsveitarverk. Þá hef- ur hún og samið verk fyrir leik- hús. Auk tónsmíða kennir hún við Tónlistarskóla Kópavogs. Karólína var að lokum spurð hvað væri á dagskrá hjá henni núna. „Þessa stundina er ég að undirbúa tónlistarhátíð sem verður hér eftir viku. Þá er næst á dagskrá hjá mér að semja verk fyrir Nýju íslenzku hljómsveit- ina eins og hún heitir og verður það flutt í aprílmánuði." upp úr sjó, eða aðeins rúmlega helmings vertíðarkvótans. Eg tel litlar líkur á því að frekari sölur takizt á saltsíld og verður því að leggja stóraukna áherzlu á frystingu þegar í byrjun ver- tíðar ef nýta á allan síldarafl- ann til manneldis, í stað þess að bíða með aðalfrystinguna þar til söltun er lokið, eins og gerðist í fyrra. Vegna aukins kvóta í ár gætu slík vinnubrögð hugsan- lega skapað öngþveiti hjá flot- anum varðandi löndunarmögu- leika síðari hluta vertíðarinnar. Mér er þó ekki kunnugt um að neinar teljandi sölur hafi tekizt ennþá á frystri síld. Þess ber þó að geta að frysta síld er unnt að framleiða án fyrirfram samn- inga, en ég hygg að engum komi til hugar að salta án þess að sal- an sé tryggð fyrirfram. Ástæð- urnar fyrir því eru marg- víslegar, svo sem takmarkað geymsluþol, margskonar verk- unaraðferðir o.fl. Þessar stað- reyndir valda því að sölumál söltuðu síldarinnar eru óvenju flókin. Vegna offramboðs á salt- aðri síld á mörkuðum í sölum til Austur-Evrópulanda en nýjar og vafasamar söluað- ferðir Breta, Norðmanna og Kanadamanna til þessara landa hafa sett alverlegt strik í þann reikning," sagði Gunnar. Hann kvaðst ekki reiðubúinn að tjá sig um það mál, frekar, að sinni. INNLEN-T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.