Morgunblaðið - 11.09.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982
5
JÓN LAXDAL leikari Dytur gesta-
leik sinn Der Weltsanger á fjölum
Þjóðleikhússins á morgun, sunnu-
dag, kl. 20. Þar fer Jón með hlut-
verk heimssöngvarans Valgardo
Herrlico, sem er eina persóna
leiksins.
Leikritið Der Weltsánger var
frumflutt í Þýskalandi í árslok
1979. Síðan hefur það verið leikið
víða í þýskumælandi borgum s.s.
Munchen, Ziirich, Hamborg og
Basel. Segja má að leikritið fjalli
í stuttu máli um dagdrauma,
brostnar vonir og einmanaleik-
ann. Hér er um að ræða örlög
söngvarans Valgardo Herrlico,
sem hefst við á háalofti ríkis-
Jón Laxdal leikari (f.v.) og Sveinn Einarsson Þjóðleikhússtjóri á
blaðamannafundinum i gær.
Jón Laxdal í gestaleik á fjöl-
um Þjóðleikhússins á morgun
óperunnar í smábænum Olten.
Þar rifjar hann upp söngferil
sinn meðan ómur af óperum
Richard Wagners berst til hans
úr leikhúsinu. Valgardo er reiður
út í heiminn og harmar öldungis
gáfna- og hæfiieikaskort manna
á hans dögúm. Einnig furðar
hann sig á því hvers vegna hann
hefði aldrei orðið jafn frægur og
Caruso Gigli og fleiri söngvarar,
sem mennirnir hófu upp til skýj-
anna.
Að dómi Valgardos er það ekki
vanmat á sjálfum sér sem veldur
því að hann gefur sig á vald ein-
verunni, heldur óuppgötvaðir
sönghæfileikar. En auðvitað get-
ur Valgardo ekki leitt rök að
þessum hæfileikum, enda vill
hann það ekki sökum þess að þá
mundi hin mikla von um hann
sjálfan ekki rætast. Þegar líður
á leikinn sekkur Valgardo sífellt
dýpra í eigin hugaróra þangað
til dauðinn frelsar hann undan
hinni miklu áþján sem þessi von
hefur lagt á hann.
A blaðamannafundi, sem efnt
var til í tilefni gestaleiksins,
sagði Jón Laxdal, að kveikjan að
samningu Heimssöngvarans
væri e.t.v. persónan Garðar
Hólm í Brekkukotsannál Hall-
dórs Laxness. En þó voru þeir
Garðar Hólm og Valgardo
Herrlico um flest ólíkir. í raun
ættu þeir það einungis sam-
merkt að spá í gátur heimsins á
háalofti. Jón sagði að líta mætti
á Valgardo sem utangarðsmann
er hefði kannski af nauðsyn tek-
ið þá ákvörðun að hætta að um-
gangast fólk, en á sama hátt
hefði fólk fundið þá þörf að forð-
ast hann. Valgardo væri haldinn
þeirri óbilandi trú að hann
þyrfti að drekka blóðbergste til
að geta starfað. Og meðan hon-
um dytti einhver saga í hug héldi
hann áfram að lifa. Ef hann hins
vegar yrði þurrausinn myndi það
leiða til þess að hann dæi.
Að lokum má geta þess' að
leikritið Der Weltsánger, sem
hefur fengið mjög góða dóma
erlendis, verður aðeins einu
sinni sýnt hér á landi, og fer
túlkun Jóns á einsöngvaranum
fram á þýskri tungu.
Landsþing Sambands ísl. sveitarféiaga:
Held áfram starfi og
stefnu sambandsins
— segir Björn Friðfinnsson, nýkjörinn formaður
„ÉG GAF engin kosningaloforrt. En ég
reikna með aA halda starfi og stefnu
sambandsins m.a. að því að styrkja
sveitarfélögin með auknu fræðslu-
starfi. Sambandið kemur út á við fram
fyrir hönd sveitarfélaganna í landinu í
samstarfi sveitarfélaganna við ríkis-
valdið og aðra aðila," sagði Björn Frið-
finnsson, framkvæmdastjóri fjármála-
deildar Reykjvíkurborgar, í samtali við
Mbl. í gær, en hann var kosinn for-
maður Sambands fsl. sveitarfélaga á
aðalfundi sambandsins sem lauk í gær.
Björn er fæddur á Akureyri 1939,
og er lögfræðingur að mennt. Áður
en hann tók við starfi framkvæmda-
stjóra fjármáladeildar Reykjavík-
urborgar hafði hann stundað ýmis
störf, hann var t.d. bæjarstjóri á
Húsavík 1966—67, framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar við Mývatn
1972—76, og fjármálastjóri Raf-
magnsveitu Reykjavíkur áður en
hann tók við núverandi starfi. Björn
er kvæntur Iðunni Steinsdóttur
kennara og eiga þau 3 börn.
Björn sagði einnig: „Sveitarfélögin
eru grundvallareining í stjórnskip-
uninni, þau eiga sér lengri sögu hér á
landi en ríkisvaldið, þau þurfa hins
vegar auðvitað að aðlagast breyttum
tímum. Verkefni sambandsins á
næstunni verður einmitt að móta þá
þróun og má í því sambandi vitna til
þeirrar endurskoðunar sveitar-
stjórnalaganna sem hafin er og við-
ræður við ríkisvaldið um tilfærslu
verkefna frá ríkinu til sveitarfélag-
anna,“ sagði Björn Friðfinnsson að
lokum.
Björn var kosinn formaður sam-
bandsins í stað Jóns G. Tómassonar,
borgarlögmanns, sem verið hefur
formaður sambandsins sl. fjögur ár.
Aðrir í stjórn voru kosnir: Ingibjörg
Björn Friðriksson
J. Rafnar, borgarfulltrúi í Reykja-
vík, Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, Húnbogi
Þorsteinsson, sveitarstjóri í Borg-
arnesi, Jónas Ólafsson, sveitarstjóri
á Þingeyri, Þórður Skúlason, sveit-
arstjóri á Hvammstanga, Helgi M.
Bergs, bæjarstjóri á Akureyri, Logi
Kristjánsson, bæjarstjóri í Neskaup-
stað og Ölvir Karlsson, oddviti Ása-
hrepps. Sigurgeir Sigurðsson var á
fyrsta stjórnarfundi kosinn varafor-
maður sambandsins. Þá var á lands-
þinginu kosið fulltrúaráð sambands-
ins, en það er skipað 3 fulltrúum úr
hverju kjördæmi nema 4 úr Reykja-
vík, samtals 25 manns auk stjórnar-
innar.
KA
Kópavogsbúar
k\ 14.00 áKópavo-
er sérstaKlega oigranesveg'
srsastf. 8- -
40.00 og 13.00. st.órnin
iídag
HOPFERÐABILAR ALLAR STÆRÐIR.
TEITOR dQNflSSQN H.F. SIMflR s 4Q237 s 7B588
HRAUN
SENDIN AKRYLPLASTMALNING
málninghf
Kópavogsbúar— Breiðabliksfólk
Á morgun sunnudag 12. sept. er fjár-
öflunardagur knattspyrnudeildar
Breiðabliks. Meölimir knattspyrnu-
deildar veróa á feröinni um Kópavog
og selja happadrættismiöa. Vinsam-
legast takið vel á móti sölufólki okkar
og styðjið þannig fjárhagslega við
bakið á okkur í hinu viðamikla starfi
knattspyrnudeildar.
Stjórn knattspyrnudeildar.
ISPAN HR
■ EIN ANGRUN ARGLER ■
SMIOJUVEGt 7 - 200 KÓPAVOGI - PÖSTH. 203
Hjólbarðaviðgerð
KÓpaVOgS skemmuvegi 6
KÓPAVOGI SÍMI 75135
Þar sem
M
erþéróhcett
NÚ FARA ALLIR TIL AMSTERDAM!
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO HF
NÝBÝLAVEGI8 KÓPAVOGI SIMI44144
OFURKRAFTUR— ÓTRÚLEG ENDING
y VARTA