Morgunblaðið - 11.09.1982, Side 12
12
--- MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982
----------------------------------------------------
Daihatsu-jeppan-
um reynsluekið
- Tiltölulega kraftmikill
- Ágætir aksturseiginleikar
- Þröngur frammi í
- Virkar vel í torfærum
Ríllinn er knúinn kraftmikilli dísilvél.
LiiLlíl
Sighvatur Blöndahl
JEPPATEGUNDUM fer stöðugt
fjölgandi hér á landi, eftir að
innflutningur þeirra hafði legið
að mestu leyti niðri um árabil.
Hér á landi var nánast ekkert
flutt inn af öðrum jeppum en
amerískum og lítilsháttar af
brezkum og japönskum. Á síð-
ustu árum hefur gengisþróun
Bandaríkjadollars gert það að
verkum að amerískir jeppar eru
svo óheyrilega dýrir, að venju-
legir kaupendur hafa ekki ráð á
að kaupa þá. Það var því fyrir
tveimur til þremur árum, að
veruleg aukning varð á innflutn-
ingi á jeppum og pick-up-bílum
frá Japan og fleiri löndum, bílar
sem voru á mun skaplegra verði
en þeir amerísku, en að vísu ekki
jafn veigamiklir og öflugir. Einn
þessara jeppa er Daihatsu-jepp-
inn, en á dögunum reynsluók ég
slíkum bíl, knúnum dísilvél. Bíll-
inn, sem er af minni gerðinni,
kom að ýmsu leyti á óvart, þá
sérstaklega fyrir þær sakir, að
hann er tiltölulega mjög kraft-
mikill af dísiljeppa að vera og
hefur ágæta aksturseiginleika.
Hurðir
Daihatsu-jeppinn er tveggja
dyra, auk þess sem stór tvískipt
hurð er á afturgafli bílsins. Mjög
gott er að ganga um bílinn að
aftan og er t.d. mjög auðvelt að
flytja ýmiss konar varning í
honum. Hins vegar mættu fram-
hurðirnar vera eilítið stærri, en
þær eru óþarflega þröngar fyrir
stærri menn.
Rými og sæti
Þegar setzt er upp í jeppann
vekur það athygli, að framsætin
eru vönduð af slíkum bíl að vera.
Þau veita góðan bakstuðning og
hliðarstuðningur er þokkalegur.
Sætin eru með upphækkuðu baki
og með ágæta höfuðpúða, sem
skyggja mjög lítið á útsýni úr
bílnum. Hefðbundnar stillingar
eru á sætunum, þ.e. hægt er að
færa þau fram og aftur, auk þess
sem hægt er að stilla bakið af.
Um aftursætin er það að segja,
að þau eru í formi tveggja hlið-
arbekkja, sem eru af einfaldari
gerðinni. í lagi er að sitja í þeim
skemmri vegalengdir, en ef farn-
ar eru lengri ferðir eru þau ekki
vel til þess fallin. Reyndar mætti
alveg hugsa sér að kippa þeim úr
og setja einn góðan þverbekk,
sem myndi gera það að verkum,
að fjórir gætu ferðast við ágætar
aðstæður. Hins vegar hafa hlið-
arbekkirnir ekki eingöngu
ókosti, því t.d. má hugsa sér bíl-
inn í notkun hjá verktökum og
öðrum slíkum, sem flytja vilja
mannskapinn stuttar vegalengd-
ir. Þá geta fjórir fullorðnir
hæglega komið sér fyrir aftur í.
Krammi í er rými þokkalegt
fyrir fætur, bæði hjá ökumanni
og farþega, en hins vegar bíllinn
tiltölulega þröngur til hliðanna,
sem er dálítið pirrandi, sérstak-
lega fyrir ökumann, ef langt er
ekið. Rýmið milli sætanna er
hins vegar gott. Aftur í er rými
fyrir fætur ekki meira en þokka-
legt, en hliðarrými er ágætt.
Varðandi rými hefur bíllinn einn
stóran kost, en það er lofthæðin,
sem er óvenjulega mikil í svona
litlum bíl. Stórir menn komast
hæglega fyrir bæði frammi í og
aftur í, án þess að koma í nám-
unda við loftið.
Mælaborð
Mælaborðið í bílnum er af ein-
faldari gerðinni og ekkert sér-
stakt augnayndi, enda kannski
ekki ætlast til þess. Stýrishjólið
er einfalt, en hins vegar ágæt-
lega staðsett og reyndar er bíll-
inn ágætur í stýri. I mælaborð-
inu er síðan að sjálfsögðu að
finna hraðamæli, sem er á
vinstri væng borðsins. Fyrir
ökumann er hann ágætlega stað-
settur. Síðan er að finna benzín-
mæli, vatnshitamæli, hleðslu-
mæli og klukku. Þá eru almenn
aðvörunarljós fyrir olíu, hleðslu,
handbremsu, svo eitthvað sé
nefnt. Síðan er að finna á hægri
væng borðsins stjórntæki mið-
stöðvarinnar, sem virkar ágæt-
lega, en hún er þriggja hraða.
Loks eru sérstakir rofar fyrir
þurrkur og aðalljós. Þeir mættu
að ósekju vera þægilegar stað-
settir. Hægra megin í stýrishjól-
inu er stefnuljósarofann að
finna og kemur það svolítið
spánskt fyrir sjónir, því yfirleitt
er hann vinstra megin í stýri-
hjólinu.
Pedalalar/skipting
Pedalar bílsins eru vel stað-
settir, ágætlega langt er á milli
þeirra, þannig að ekki skapast
Daihatsu
Gerð: Daihatsu jeppi
Framleiðandi: Daihatsu
Motor Co.
Framleiðsluland: Japan.
Innflytjandi: Brimborg hf.
Verð: 185.000-
Afgreiðslufrestur: Til á lag-
er.
Lengd: 3.550 mm
Breidd: 1.490 kg.
Hæð: 1.870 mm
Hjólhaf: 2.025 mm
Þyngd: I.255 kg.
Buröargeta: 420 kg.
Vél: 4 strokka, 2.530 rúm-
sentimetra, 66 hestafla dís-
ilvél.
Gírskipting: 4ra gíra, hátt og
lágt drif, framdrif.
Bremsur: Boröabremsur.
Fjöðrun: Fjaörir.
Hjólbarðar: 6.00 — 16 —
4PR.
mikil hætta á, að stíga á tvo
þeirra samtímis. Benzíngjöfin er
létt og þægileg, en að ósekju
mætti vera lítilsháttar hliðar-
stuðningur við hana, þegar langt
er ekið. Bremsur virka vel og
kúplingin slítur á góðum stað og
ástigið á hana er tiltölulega létt.
Bíllinn er fjögurra gíra og síðan
að sjálfsögðu með hátt og lágt
drif, auk þess að vera með drif á
öllum hjólum. Gírstöngin er vel
staðsett og mjög létt er að skipta
bílnum, sem er kostur. Skipting-
in er þó ágætlega þétt, þ.e. eng-
inn losarabragur er á henni. Um
drifskiptinguna, þ.e. þegar
skipta á í framdrif og síðan úr
háa í lága, þá er sú stöngin til-
tölulega óþjál. Þar mætti verða
bragarbót á. Bíllinn virkar hins
vegar mjög vel í gírunum og er
reyndar óvenjulega kraftmikill
af dísiljeppa að vera. Innanbæj-
ar er 1. gírinn kannski óþarflega
hægur, en það er líka mikill
kostur, þegar komið er út fyrir
veg í torfærur. Bíllinn vinnur
svo mjög vel í 2., 3., og 4. gír og
er óvenjulega lipur í innanbæj-
arumferðinni, auk þess sem
beygjuradíusinn er alveg þokka-
legur.
Aksturseiginleikar
Á malbikinu hefur bíllinn al-
veg ágæta aksturseiginleika, er
tiltölulega mjúkur og svarar vel.
Tiltölulega auðvelt er að aka
honum rösklega og reyndar kom
það á óvart, hversu hratt er
hægt að aka honum, án þess að
verða tilfinnanlega var við það.
Úti á mölinni er bíllinn alveg
þokkalegur, reyndar kom það á
óvart hversu þýður hann er og
lipur, sé það haft í huga, að um
stuttan jeppa á fjöðrum er að
ræða. Oft hafa þeir tilhneigingu
til að taka völdin af ökumönn-
um, lendi þeir á ósléttum vegum,
en Daihatsuinn er að mestu laus
við þá tilhneigingu, sem er mik-
ill kostur. Þegar komið er út
fyrir veg, virkar bíllinn mjög vel.
Auðvelt er að láta hann malla
rólega yfir torfært land, en eins
og áður sagði vantar kraftinn
ekki.
Niðurstöður
Þegar á heildina er litið, eftir
að hafa reynsluekið Daihatsu-
jeppanum, er ekki hægt að segja
annað en að hann fái bærilega
einkunn. Hann hefur ágæta
aksturseiginleika, virkar vel í
torfærum og er tiltölulega kraft-
mikill, auk þess að hafa gott
loftrými. Gallarnir eru hins veg-
ar þrengsli frammi í og leiðin-
legir hliðarbekki aftur í.
Þægilegt að ganga um afturdyr bílsins.
Mælaborðið er af einfaldari gerðinni.