Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 14

Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 Réttindanám við Kennaraháskólann: Nú voru það kennarar sem settust á skólabekk Spjallað við prófessor Þuríði J. Kristjánsdóttur um réttindanámið ÁRIÐ 1979 hófst við Kennaraháskóla íslands svonefnt réttindanám fyrir kennara við grunnskóla landsins sem höfðu verið réttindalausir árið 1978. Með lögum nr. 51/1978 um embættisgengi kennara og skólastjóra var skýrt kveðið á um hvaða skilyrði aðilar þurftu að uppfylla til þess að hljóta skipun í kennarastöðu, en í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um að þeir sem við gildistöku laganna höfðu starfað sem settir kennarar við skyldunámsskóla í fjögur ár eða lengur, en fullnægðu ekki skilyrðum laganna til að hljóta skipun í stöðu, skuli eiga þess kost að Ijúka námi á vegum Kennaraháskóla íslands til að öðlast slík réttindi. Af hálfu menntamálaráðuneytisins var siðan gefin út reglugerð sem hafði að geyma ákvæði um mat á fyrri menntun og starfsreynslu. Eins og fyrr segir var það síðan árið 1979 sem þetta nám hófst við Kennaraháskólann, en það var prófessor Þuríður J. Kristjáns- dóttir sem fengin var til að hafa umsjón með því og skipuleggja það. Blaðamaður Morgunblaðsins fór á fund Þuríðar nú í sumar og átti við hana spjall um réttinda- námið. „Þetta nám fer fram í eitt skipti fyrir ttll. Þeir sem höfðu verið réttindalausir árið 1978 og höfðu verið settir kennarar í fjögur ár eða lengur áttu rétt á að hefja þetta nám. í reglugerðinni sem menntamálaráðuneytið gaf út var gerð undanþága fyir þá sem höfðu verið settir í 14 ár eða lengur og fengu þeir svonefnt gjafabréf án þess að undirgangast neitt nám- skeið. Þeir sem höfðu verið settir skemur en fjögur ár fengu ekki að gangast undir þetta námskeið," sagði Þuríður. Að tilstuðlan menntamálaráðu- neytisins gerði Kennarasamband íslands sér far um að ná til allra þeirra aðila sem höfðu rétt á þessu námi, en að sögn Þuríðar var hér mikið í húfi fyrir fólkið því með lögunum var kveðið skýrt á um að réttindalausir kennara áttu ekki möguleika á því að halda stöðu sinni ef aðili með réttindi sækti um. Það voru alls 126 manns sem hófu námið og af þeim er búið að útskrifa 45, 65 eru enn í námi. Það eru ekki nema 13 sem hafa hætt, en einn nemandi fékk réttindi eft- ir að námið hófst vegna þess að hann hafði verið settur í 13 ár og stundað kennslu við einkaskóla eitt ár að auki. Þuríður var spurð hvernig framkvæmdin á náminu hafi ver- ið. „Þegar námið byrjaði var sam- kvæmt reglugerðinni öllum nem- endunum skipt í fjóra hópa sem áttu að fara í gegnum þetta með mismunandi miklu námi. í fyrsta hópnum voru þeir sem lokið höfðu háskólanámi í grein og þeir sem höfðu lokið stúdentsprófi með níu ára starfsreynslu að auki. Þessir nemendur þurftu að bæta við sig 30 einingum í uppeldisgreinum, en þeir luku þessu í fyrra. í öðrum hópnum voru nemendur sem höfðu lokið stúdentsprófi og höfðu átta ára starfsreynslu að baki eða minna. Þeir þurftu að bæta við sig 30 einingum í uppeldisgreinum og einni valgrein aö auki, sem gat verið hvaða grein grunnskóla sem er. í þriðja hópnum voru þeir sem höfðu einhverja framhaldsskóla- menntun aðra en stúdentspróf, verslunarskólapróf, iðnskólapróf og svo framvegis. Þessir nemend- ur tóku 30 einingar í uppeldis- greinum og tvær valgreinar. í fjórða hópnum voru þeir sem höfðu minni menntun og tóku þeir 30 einingar í uppeldisgreinum, tvær valgreinar og kjarnagrein- arnar, stærðfræði, íslensku, fé- lagsfræði og líffræði. Námið hefur farið þannig fram að kennt hefur verið á haustin í skólanum eina til tvær vikur í senn. Síðan hefur tek- ið við bréfaskóli. Nemendurnir hafa aftur komið í skólann í janú- ar í eina viku, en bréfaskólinn síð- an aftur tekið við. I júní og júlí hefur síðan verið kennt í skólan- um í sex vikur í senn og síðan byrjað aftur um haustið eins og áður og svo koll af kolli." Hvers eðlis eru þau réttindi sem þessir nemendur fá að loknu námi? „Þessir nemendur fá ekki Bach- elor-Education próf eins og nem- endur frá Kennaraháskólanum fá. Það má segja að þessi menntun sé nokkurs konar millistig milli gamla kennaraprófsins og kenn- araprófsins núna. Uppeldisfræði- menntunin í þessu námi gefur mönnum sem hafa réttindi í grein, til dæmis smiður sem vill kenna smíðar á framhaldsskólastigi, full réttindi, en námið eitt dugir þó ekki til kennararéttinda á fram- haldsskólastigi. Þetta fólk fær full réttindi til kennslu á grunnskóla- stigi, en eins og áður sagði dugir uppeldisfræðimenntunin ekki ein sér, en hún sem slík nægir þeim jafnframt réttindum í grein til að kenna hvar sem er og að því leyti standa þau betur að vígi en fólk með gamla kennaraprófið. Það er svolítið sérstakt við þetta nám, að fólkið fær prófskírteinin sín um leið og það skilar inn lokaritgerð. Var sá háttur tekinn upp því hér er nokkuð í húfi fyrir fólkið. Ann- ars vegar verður um að ræða launahækkun þegar réttindin eru fengin og hins vegar á þetta fólk undir högg að sækja því það er réttindalaust þar til það hefur fengið skírteinið í hendurnar. Réttindanáminu lýkur vorið 1983 og eiga þá allir að vera búnir að ljúka náminu. Nú hefur þú haft veg og vanda af því að skipuleggja námið, kennt á því auk þess sem þú starfar sem Hér sitja grunnskólakennarar á skólabekk og leggja stund á kennslufrætti undir handleittslu Hrólfs Kjartanssonar. KÖE. „Það sem virtist torf varð að valllendis- ekrum í höndum frábærra kennara“ - sagði Hulda Sig- mundsdóttir aldurs- forseti í réttinda- náminu „ÞAÐ KK ákaflega ólíkt að hefja nám á því herrans ári 1980 eða 1938 í gjörólíkum skólum, enda mikið vatn runnið til sjávar síðan ég lauk prófi frá Verslunarskóla Islands 1941 ta'pra 18 ára,“ sagði Hulda Sig- mundsdóttir kennari frá Þingeyri er hún var spurð hvernig væri að hefja nám á efri árum eftir langt hlé frá skólagöngu. Hulda er á sextugsaldri og er elst i hópi þeirra nemenda sem réttindanámið hafa stundað. „Þegar ég lauk verslunarskóla- prófinu hélt ég að ég hefði lært eitthvað sem mundi duga mér ævina á enda og kannske hefði það gert það við óbreyttar aðstæður. Árið 1972 varð ég að stokka upp spilin og fara að búa mig undir að verða fær um að sjá mér farborða upp á eigin spýtur. Eftir ýmsar til- raunir endaði ég við kennslu í grunnskóla Þingeyrar ásamt fleiru en réttindalaus. Er þetta nám kom til var full ástæða til að reyna að hefja það vitandi að þetta gæti ver- ið tilraun sem gat runnið út í sand- inn, en sem betur fer óafvitandi um hve mikið og strangt nám beið mín. Mér er efst í huga þakklæti til alls og allra sem gerðu mér fært að tak- ast á við þetta og studdu við bakið á mér með ráðum og dáðum. Vonandi auðnast mér að halda heilsu og Ijúka þessu námi og halda út enda- sprettinn, því það hefur verið ævintýri líkast að eignast á nýjan leik skólasystkini, marga kunningja og nokkra góða vini að ógleymdu undrinu að vera sest aftur á skóla- bekk á mínum aldri. Fannst þér orðin þörf á að setja þessi lög um réttindi kennara og skólastjóra? „Ég tel þessa lagasetningu eiga fullan rétt á sér, þó ég sé ekki búin að sjá að hún ein sér leysi vanda skólanna í dreifbýlinu — svo lengi sem allir vilja búa á Suð-vestur- horni landsins innan Stór-Reykja- víkursvæðisins og kenna þar. Að vísu hefur nokkur hópur fólks kosið að flytja út á landsbyggðina og reyna þar krafta sína við kennslu og annað, en hve lengi situr það kyrrt og hve tíð verða kennara- skiptin? Því er ekki að neita að að- stöðumunur er talsverður milli skóla bæjanna og dreifbýlisins og af augljósum ástæðum. Því þar sem fjöldinn er verður fjármagn til skólamála meira. Einn stóran kost hefur þó sá skóli sem ég þekki best, fram yfir stærri skólana, hve bekk- ir eru fámennari, samskiptin per- sónulegri og nánari kynni milli kennara, foreldra og nemenda. Þrátt fyrir þorpsbraginn sem sumir gera sér tíðrætt um, bæði í ræðu sem riti, þá ríkir stórhugur enn sem fyrr þegar skólar eru byggðir." Hvaða gildi hefur réttindanámið fyrir þig? „Fyrir mig persónulega hefur þetta nám haft mikið gildi og lær- dómsríkt er að hafa fengið tækifæri til að kynnast nýjum og áður óþekktum vinnubrögðum undir handleiðslu úrvals kennara, bæði í íslensku, ungbarnakennslu og upp- eldisgreinum sem ég bjóst aldrei við að yrði skemmtilegt eða áhuga- vert námsefni, en það hefur opnað bæði mér og öðrum innsýn í lítt þekkta heima. Það sem ég hélt að væri torf varð í höndum frábærra kennara að valllendisekrum, sem vonandi kemur okkur að gagni í samskiptum við börn og unglinga." Aðspurð sagði Hulda að þetta hefði verið strangt nám, en fjöl- breytt og skemmtilegt. „Allt nýtt og áður óþekkt námsefni hlýtur að vera erfitt og þá einnig líka hvernig hefur þurft að haga þessu námi — þar á ég við heimanámið á vetrum I’rófessor Þuríður J. Kristjánsdóttir hefur haft umsjón mett og skipulagt réttindanámið. fastur kennari við Kennarahá- skólann. Hefur þetta ekki verið annasamt tímabil? „Jú, enda er þetta nokkuð flók- inn skóli. Þegar ég tók það saman í vetur hvað margir kennarar hafi komið við sögu á þessu námskeiði komst ég að þeirri niðurstöðu, að þeir voru komnir á annað hundr- að. Það eitt sýnir að þetta er viða- mikið fyrirtæki. Það hefur einnig verið nokkurt streð að standa að svona bréfaskóla og hafa samband við fólk í öllum landshlutum. Ég hef stundum orðið svolítið smeyk. Núna í janúar var ég búin að kalla inn allt fólkið frá öllum stöðum af landinu og allt var á kafi í snjó. Ég var hrædd um að fólkið gæti teppst á leiðinni hingað eða þá á leiðinni heim. ALlt fór þó vel að lokum, en í haust ætlum við að stefna að því að auka aðeins við til þess að geta sleppt þessari viku í janúar." Nú eru þarna nemendur á öllum aldri og margt fólk sem er að hefja nám eftir langt hlé ólíkt því sem gerist í venjulegum skóla- bekk. Hvernig hefur sambandið við nemendurna gengið? „Þetta eru sérlega skemmtilegir nemendur enda hef ég eignast þarna stóran kunningjahóp. Þetta eru orðin miklu persónulegri tengsl en eru í venjulegu námi, fólkið áhugasamara og þakklátara fyrir að fá tækifæri til að öðlast þessi réttindi. Ég dáist að því hvað það hefur haldið þetta út því margt af þessu fólki stundar fulla kennsiu með og heimilisstörf að auki,“ sagði Þuríður, en sjálf byrj- aði hún að kenna árið 1948 og hef- ur allar götur síðan verið viðloð- andi menntastofnanir, ýmist sem kennari eða þá sjálf á skólabekk. Þuríður lauk doktorsprófi í uppeldislegri sálarfræði frá há- skóla í Bandaríkjunum. „Það hefur veriö ævintýri líkast að eignast á nýjan leik skólasystkini,“ sagði Hulda Sigmundsdóttir. jafnhliða fullri vinnu. Sest er niður við að lesa eða gripið í það öðru hvoru — síðan rignir yfir mann verkefnum sem leysa skal fyrir ákveðinn tíma og þá dembi ég mér í skriffinnsku — kannski eina helgi eða rúmlega það — síðan hefst kennsla í skólanum og verkefnagerð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.