Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982
21
Geimferjan Ariane
hrapaði í sjóinn eftir
aðeins 13 mínútur
Kourou, Frönsku (lUjana, 10. september. AP.
EVRÓPSKIR vísindamcnn brjóta nú ákaft heilann um hver
skýringin sé á misheppnaðri loftferö gervitunglaferjunnar
Ariane, sem hrapaði niður í Atlantshafið með tvö gervitungl
innanborðs eftir aðeins 13 mínútur á iofti í sinni fyrstu ferð.
Gervitunglaferjan sökk ein-
hvers staðar á Atlantshafinu
snemma í dag. Talið er að hún hafi
komið niður tæpum 5.000 kíló-
metrum frá þeim stað, sem hún
var send af stað frá. Með Ariane
sukku ennfremur allar vonir um
áreiðanleik hennar umfram geim-
skutlunnar, sem tilraunir hefjast
með í nóvember. Er það von ESA
að geta undirboðið geimskutluna
verulega.
Að sögn geimferðastofnunar
Evrópu, ESA, var flugtak ferjunn-
ar á allan hátt eðlilegt og kom
ekkert óvenjulegt í ljós. Það var
ekki fyrr en þriðja þreps flaugin
brást að allt fór úrskeiðis. Náði
ferjan því hvorki tilskilinni hæð
né hraða. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort manna skuli
leiðangur til að leita að ferjunni
undir yfirborði sjávar.
Ariane var smíðuð af 10 Vest-
ur-Evrópuþjóðum sem í samein-
ingu mynda geimferðastofnun
Evrópu. Tilraunin, sem mistókst
svo hrapallega í dag, átti að vera
fyrsta þrepið í þeim áfanga þjóð-
anna að koma 200 gervitunglum
fyrir til að annast sendingu frétta
og veðurfregna auk síma- og
skeytaþjónustu.
Að sögn yfirmanna ESA er ekki
fyrirsjáanlegt hvaða áhrif þetta
áfall kann að hafa. Segjast þeir
vilja bíða niðurstaða úr rannsókn-
um á óhappinu áður en ákveðið
verður um framhald geimferjunn-
ar. Segja þeir ennfremur, að ef í
ljós komi að óhappið hafi verið
þess eðlis að auðveldlega megi lag-
færa það muni áhrifin ekki verða
nein, en öðru máli gegni sé hér um
alvarlegan tæknilegan galla að
ræða.
Kostnaðurinn við tilraunaflugið
í dag er talinn nema um 185 millj-
ónum Bandaríkjadala. Er þá inni-
falinn ýmiss aukakostnaður, sem
ekki tengist tilraunafluginu beint.
Telja forráðamenn ESA að ekki
kosti undir 50 milljónum dala að
senda aðra ferju á loft.
Trudeau færir 5
ráðherra sína til
á milli embætta
OtUwa, Kanada, 10. september. AP.
MARC Lalone, hönnuður orkumálaáætlunar Kanada, var í
dag settur fjármálaráðherra dag þegar Pierre Trudeau,
forsætisráðherra, stokkaði upp í ráðherraembættum sín-
um.
Lalonde tekur við embætti af
Allan Maceachen, sem snýr sér
að utanríkismálefnum að nýju
eftir tveggja og hálfs árs feril í
embætti fjármálaráðherra.
Heldur hann áfram stöðu sinni
sem varaforsætisráðherra.
Jean Chretien, sem í embætti
sínu sem dómsmálaráðherra
barðist ötullegast fyrir nýju
stjórnarskránni, tekur sæti
orkumálaráðherra. Mark
McGuigan færir sig úr embætti
utanríkisráðherra yfir í sæti
dómsmálaráðherra og tekur við
af Chretien. Jack Austin, þing-
maður úr Bresku Kólombíu, var
settur í embætti félagsmála-
ráðherra, sem Chretien hafði
áður á sinni könnu.
Jafnvel hafði verið búist við
enn meiri breytingum að þessu
sinni. Trudeau hafði áður gert
tvær breytingar á ráðherraliði
sínu og hefur sagt að von sé á
enn frekari breytingum á næst-
unni.
Sextán ættingjar
handteknir í
miklu njósnamáli
Seoul, Sudur-Kóreu, 10. septembei \P.
SfTJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu hafa
tilkynnt að upp hafi komist um
norður-kóreanskan njósnahring,
sem starfað hefur í Suður-Kóreu í
aldarfjórðung. Stundaði hann hern-
aðarnjósnir og sendi upplýsingar til
yfirvalda sinna allan þann tíma.
Alls munu 16 manns koma fyrir
rétt vegna þessa máls og eru allir
hlutaðeigandi, ættingjar Song
Chang-Sup, fyrrum háttsetts
manns innan kommúnistaflokks-
ins.
Chang-Sup þessi hélt norður yf-
ir landamærin skömmu áður en
Kóreustríðinu lauk 1953 og varð
yfirmaður stofnunar þar í landi,
sem hafði eftirlit með upplýs-
ingaleka til Suður-Kóreu. Hann
fór síðan suður yfir landamærin á
nýjan leik 1957 og hóf skipulagn-
ingu njósnahrings þar.
Voru kona hans, sem hafði
aldrei farið frá Suður-Kóreu, og
tveir ættingjar hans höfuðpaur-
arnir í þeim hring. Eiginkonan,
sem talið var að hefði verið
Norður-Kóreumönnum innan
handar í stríðinu, gerðist síðan
meðlimur í lýðræðislega repúblik-
anaflokknum, sem fyrrum forseti
landsins Park Chung-Hee var í, og
komst í miðstjórn þess flokks.
Mest fyrir hennar tilstilli komst
njósnahringurinn í alls kyns hern-
aðarskjöl og leyniskýrslur og
sendi upplýsingar sínar með
dulmáli í gegnum útvarpssenda til
Norður-Kóreu, sem loksins nú, 25
árum síðar, hefur tekist að koma í
veg fyrir.
Danmörk:
„Nú verður skemmtilegra
að vera Dani en ádur“
Schliiter afhenti
ráðherralista
sinn í gær
Kaupmannahöfn 10. aept. AP.
POUL Schlúter gekk í dag á fund Margrét-
ar Danadrottningar og afhenti henni ráð-
herralista sinn. SchlUter er fyrsti forsætis-
ráðherra úr flokki íhaldsmanna í áttatíu og
eitt ár. í stjórninni eiga sæti tuttugu og
einn ráðherra úr fjórum flokkum. Utanrík-
isráöherra verður Uffe Ellemann Jensen,
Henning Christophersen verður fjármála-
ráðherra, og efnahagsmálaráðherra verður
Anders Andersen, allir úr Venstre. Meðal
annarra ráöherra má nefna Mimi Jacobsen
úr flokki Miðdemókrata sem verður menn-
ingarmálaráðherra, Erik Ninn Hansen, úr
flokki íhaldsmanna sem veröur dóms-
málaráöherra og félagsmálaráöherra verö-
ur Palle Simonsen úr flokki íhaldsmanna.
Poul Schliiter hét því ettir aö hafa svariö
embættiseið fyrir ríkisstjórnina aö „koma á aö
nýju jafnvægi í dönsku efnahagslifi". Hann nefndi
þrjár meginaöferöir til aö ná þvi marki, aö draga
úr opinberum útgjöldum án þess aö draga úr
framlögum til félagsmála, bætt yröi samkeppnis-
aöstaöa dansks iönaöar og dregið yröi stórlega
úr yfirbyggingu og skriffinsku innan ríkisbáknsins.
Shluter sagöi aö þegar stjórn sín fengi að sýna
hvaö í henni byggi myndi „veröa skemmtilegra og
auöveldara aö vera Dani en undanfarin ár“.
i fréttaskeyti AP er bent á aö Danmörk hafi
þannig oröiö fimmta og síöasta Noröurlandiö til
aö fá hægristjórn, enda þótt skoöanakannanir í
Svíþjóö bendi til aö jafnaöarmenn kæmust þar
aftur til valda ef kosningar væru haldar nú.
Þá segir í fréttaskeyti frá Ib. Björnback, frótta-
ritara Morgunblaösins í Kaupmannahöfn, aö um
tíma hafi veriö á sveimi orörómur um, aö stjórnin
hygöist lækka gengið, en þaö hafi síöan komið
skýrt fram í dag viö embættistöku stjórnarinnar
aö svo væri ekki. Schluter sagöi aö tiltrú á verö-
gildi dönsku krónunnar væri bæöi innanlands og
utan.
Danska þingiö kemur saman þann 5. október
nk. og ríkisstjórnin mun nota tímann aö sögn
forsætisráöherra til aö móta endanlega stefnu
sína, einkum og sér í lagi í efnahagsmálum.
Utanríkisráöherra nýju dönsku ríkisstjórnarinn-
ar, Uffa Ellemann Jensen.
Borðplatan er úr harðplasti í tveimur litum
'hvítu og svörtu, henni má snúa við með einu handtaki.
Glæsileg borð.
Sendum gegn póstkröfu.