Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982
31
festar ákvarðanir sexmanna-
nefndar varðandi búvöruverð. í tíð
fyrri ríkisstjórna varð hvað eftir
annað dráttur á slíkri staðfest-
ingu, jafnvel svo vikum skipti og
töpuðu bændur þá ítrekað hundr-
uðum milljóna króna. Útflutn-
ingsbætur hafa verið greiddar eft-
ir því sem reikningar hafa borist
og 10% útflutningsbótarétturinn
hefur sagt til um. Fyrir síðustu
áramót var veitt þýðingarmikil
fyrirgreiðsla með fyrirfram-
greiðslu útflutningsuppbóta af
fjárlögum þessa árs og framleng-
ingu afurðalána í Seðlabankanum.
Uppgjör við bændur á verðlags-
árinu 1980—81 dróst á hinn bóg-
inn fram í apríl vegna þess að 20
millj. kr. lán, sem ákveðið var að
útvega framleiðsluráði, fékkst
ekki fyrr en eftir afgreiðslu láns-
fjárlaga á Alþingi.
Rétt er að það komi hér fram, að
reglur framleiðsluráðs um verð-
skerðingu til einstakra bænda við
þetta uppgjör, voru ekki bornar
undir landbúnaðarráðuneytið.
Á þessu ári eru útflutnings-
uppbætur i fjárlögum 160 millj.
kr. Áætlað er að útflutningsbóta-
rétturinn sé verulega meiri en sem
þessu nemur og verði útflutnings-
uppbætur í heild um 190 til 195
milij. kr. Mér sýnist rökrétt að
áætla, að uppgjör fyrir verðlags-
árið, sem endaði 31. ágúst sl., geti
farið fram nú fyrri hluta vetrar,
þannig að fullt verð fáist greitt, þó
þannig að hluti af því komi úr
kjarnfóðursjóði, sem er eign
bændanna og hefur áður verið af
þeim tekinn.
I áætlunum framleiðsluráðs frá
því snemma á þessu ári var gert
ráð fyrir því að það vantaði 81
millj. kr. til þess að fullt verð næð-
ist á verðlagsárinu. Hinn 8. júlí
áætlar framleiðsluráð að það
vanti hins vegar 2,8 millj. kr. og er
þá búið að reikna inn aukinn út-
flutningsbótarétt. Þá er jafnframt
gert ráð fyrir því að óráðstafað sé
kindakjöti í birgðum, sem svarar
46,2 millj. kr. Kjarnfóðursjóður
virðist eiga að geta látið sem svar-
ar 20—30 millj. kr. í þetta uppgjör
og þegar sala hefur farið fram á
kindakjöti, sem svarar þeim
birgðum, sem eru til í lok verð-
lagsársins, þá ætti þetta uppgjör
að geta farið fram.
Á þessu ári eru því engin efni til
þess að óska eftir því við ríkis-
valdið, að aukin fyrirgreiðsla fáist
vegna vöntunar á útflutnings-
uppbótum, enda eru fjárhæðir frá
fyrri árum farnar að leggjast með
miklum þunga á ríkissjóð. Á síðari
árum hefur hækkun afurðalána
landbúnaðarins yfirleitt verið í
samræmi við verðlagshækkanir.
Rétt er að vekja athygli á því, að
nú er í fyrsta sinn veitt afurðalán
út á hrossakjöt og lífhross til út-
flutnings, sem að sjálfsögðu er
réttlætismál.
Á liðnum árum hefur stundum
orðið misbrestur á því að rekstr-
arlán landbúnaðarins hafi hækkað
til jafns við verðlagshækkanir. Á
árinu 1980 var hækkun rekstrar-
lánanna í samræmi við verð-
lagsbreytingar og á árinu 1981 var
hækkun rekstrarlánanna nokkru
meiri heldur en verðlagshækkanir.
Á þessu ári hefur á hinn bóginn
orðið um verulegar úrbætur að
ræða, þannig að rekstrarlán til
bænda hafa hækkað um 83,5% og
rekstrarlán í heild til landbúnað-
arins úr 137,2 millj. 1981 í 251,6
millj. 1982 eða um 83,3%. Á sama
tíma hefur verðlag búvara hækkað
um 47,7%, þannig að hér er um
verulega hækkun rekstrarlánanna
að ræða.
Forðumst óþarfa svartsýni
Góðir fundarmenn. Árferðis-
sveiflur hafa reynst landbúnaðin-
um þungar í skauti á undanförn-
um árum. Reynt hefur verið að
draga úr áföllum af þeirra völdum
með opinberri aðstoð. Sú aðstoð
mun þó ekki leysa okkur undan
því, að allra veðra er von í okkar
landi. Fjárhagsstaða bænda er
misjöfn og ég tel þýðingarmikið
viðfangsefni bændasamtakanna
og stjórnvalda, að gera sér grein
fyrir því, hvernig á þeim málum
skuli tekið. Við eigum við vanda-
mál að etja í framleiðslu og mark-
aðsmálum. Því ástandi megum við
ekki mæta með því að leggja árar
í bát, heldur með nýrri sókn í sölu-
starfsemi. Við þurfum að nýta
þekkingu, hugkvæmni og dugnað
þeirra, sem starfa í fyrirtækjum
landbúnaðarins og innan samtaka
hans, en einnig einstaklinga, sem
vilja leggja okkur lið. Við þurfum
að beita nýjum vinnsluaðferðum,
nýrri sölutækni. Við þurfum að
sýna nýtt svipmót á markaðsvör-
um okkar. Við höfum á síðustu
vikum stigið nokkur ný skref í
þessu efni, sem vonandi er upphaf
af langri ferð. Við skulum forðast
yfirlýsingar, sem gætu leitt til
óþarfa svartsýni, og enn frekar að
leggja of sterk vopn í hendur
þeirra, sem telja ákjósanlegt að
draga úr aðstöðu og möguleikum
bændastéttarinnar. Við eigum
væntanlega mikla þróunarmögu-
leika í nýjum greinum, sem munu
styrkja stöðu okkar og framtíð.
Þetta eru greinar eins og loðdýra-
ræktv fiskrækt, fiskeldi og nýting
hlunninda. Við eigum einnig ónot-
aða möguleika í garðyrkju og yl-
rækt, þótt um öra þróun hafi verið
að ræða í þeim greinum síðustu
árin.
Við eigum mikla möguleika til
að bæta fóðuröflun okkar og efla
fóðuriðnað. Við þurfum að bæta
skilyrði landbúnaðarins varðandi
opinber gjöld til samræmis við
aðrar atvinnugreinar, en landbún-
aðurinn á nú fulltrúa í nefnd, sem
vinnur að endurskoðun tollskrár.
Við þurfum að starfa eftir heild-
arskipulagi og meginlínum en
forðast ofskipulag, er bindi hend-
ur bænda til athafna og við þurf-
um að beina leiðbeiningarþjónust-
unni í vaxandi mæli að hagfræði-
legum efnum, sem nærri lætur að
hafi verið vanrækt á liðnum árum.
Þrátt fyrir margháttuð vanda-
mál, sem við er að fást í landbún-
aði sem í öðrum atvinnugreinum,
stendur landbúnaðurinn föstum
fótum í íslensku þjóðlífi. Land-
búnaðurinn er kjölfesta byggðar
og athafna um allt strjálbýli
landsins. Framtíð hans og framtíð
þjóðarinnar eiga því ótvírætt
samleið.
Ég þakka forystumönnum stétt-
arsambandsins og starfsmönnum
bændasamtakanna gott samstarf
á þessu ári. Ég flyt fundinum árn-
aðaróskir og vænti þess, að störf
hans megi verða landbúnaðinum
til heilla og þjóð okkar til farsæld-
ar.
frá í ævisögu Alberts er hann reit,
að skírnarfonturinn 1827 hafi verið,
(þýðing H.K.) „ákvarðaður sem gjöf
til feðraeyju hans, til þess Islands,
sem gaf honum það nafn, sem nú er
nefnt með svo mikilli virðingu í ver-
öldinni — skuli líka eiganst eitt af
verkum hans.“
Nafnið sem Island gaf honum var
Albert Thorvaldsen, eins og skírn-
arfonturinn — skírnarsáttmáli Al-
berts vitnar bezt um.
Menn spyrja, af hverju gat
Kristján Eldjárn ekki þessa í sýn-
ingarskránni, fyrst hann var að
hafa umsagnir um Albert eftir J.M.
Thiele?
Öll lífsganga feðganna Gott-
skálks og Alberts einkennist af
ljúfmannlegri framkomu, trúrækni,
látleysi og heiðarleika.
Þeir sem þekktu þá bezt vitna
þetta og báru þeim ennfremur vitn-
isburð um órofa tryggð og vinfestu.
Listaverk Alberts bera honum
fagurt vitni, uppistaðan í mynd-
túlkun hans er ljúfmennska, heið-
arleiki og guðrækni, jafnvel þegar
hann mótar hetjur fornaldarinnar
bera þær hreinleikanum vitni.
Enginn listamaður hefur dáð
veglyndið meira en Albert Thor-
valdsen, enginn hefur náð lengra,
eða gert fleiri listaverk í sambandi
við kristna trú, línur, form og fell-
ingar lýsa upp lífsskoðun friðarins,
veglyndið og mikilvægi þess að
breiða út kenninguna um ást og frið
meðal manna.
I þessum hópi hugsjónamynda
talar Kristsmynd Thorvaldsens
skýrustu máli, en hún túlkar ein-
mitt hvað bezt takmarkalausa ást
Krists til allra manna.
Listsýningin nú á Kjarvalsstöð-
um á verkum Alberts Thorvaldsens
olli mér vonbrigðum, hún var svo
ótrúlega smá í sniðum miðað við
hvað margir stórir aðilar styrktu
hana. Ekki gaf hún heldur rétta
innsýn í líf og starf Alberts Thor-
valdsens hún einkenndist ekki af
hinu sanna eðli veruleikans heldur
af dönsku prjáli.
Ekki bætti úr skák, að sýningar-
skráin var niðurlægjandi fyrir
okkur Islendinga, hún virðist gerð
til að villa um sögulegar íslenzkar
heimildir, einkanlega í sambandi
við skírnarfontana, fæðingarstað,
nafn og erfðaskrá Alberts Thor-
valdsens.
Það virðist ekki hafa verið nein
tilviljun að Bing & Gröndal sýning
var á Kjarvalsstöðum á undan sýn-
ingu á verkum Alberts Thorvald-
sens, og virðist svo sem Thor-
valdsens-sýningin hafi erft ýmsa
muni sína frá þeirri sýningu.
Breiðholtsbúar
í dag opnar Aad Groenweg
(sem áður rak Alaska í Breiðholti)
nýja blómaverslun aö Arnarbakka 2, Breiöholti.
Viö önnumst blómaskreytingar viö öll tækifæri og
leggjum áherslu á góða þjónustu.
Opið alla daga vikunnar frá 9—21.
BREIÐHOLTSBLÓM
ARNARBAKKA 2 SÍMI 79060 PÓSTHÓLF 9092 129 REYKJAVÍK.
Innritun
fer fram sunnudaginn 12. sept. kl. 13.00—14.00 og
þriðjud. 14. sept. kl. 20.00—21.00 í íþróttahúsinu
Ásgaröi s. 53066. Innritað er í yngri og eldri byrj-
endaflokk, framhaldsflokk og Old boys leikfimi.
Karatedeild Stjörnunnar
Kýr óskast!
Uppl. í síma 91-75849.
Nýtt bliw
Bliw er hentug sápa, sem vegna umbúöanna er mjög
hentug í notkun.
Hún er drjúg, þar sem hún liggur ekki á vaskinum og
leysist upp. . _ , _
Heildsölubirgðir: KaUpSel Sf.
Sími 27770.
Vantar ykkur
skjól yflr bátinn?
Viljiö þiö eignast bestu aöstööu á
landinu?
Þetta skýli er til sölu.
Dráttarbraut —
bryflflja -
rafmagnsspil —
2000 lítra olíutankur +
önnur aðstaða.
(Til athugunar aö taka vagn upp í.)
Upplýsingar í síma 52048.
Tónlistarskólinn í Sandgerði
Síöasti innritunardagur veröur mánudaginn 13. sept.
aö Hlíðargötu 20 frá kl. 11 —15. Forskóli veröur fyrir
börn á aldrinum 6—9 ára. ,
Skólastjóri.