Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 35

Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 35 Ingileif Auðuns- dóttir - Minning Kædd 14. janúar 1905 Dáin 31. ágúst 1982 I dag verður jarðsungin frá Ak- ureyjarkirkju í Vestur-Landeyjum frú Ingileif Auðunsdóttir, fyrrum húsmóðir að Grímsstöðum í Vestur-Landeyjum, en hún lést í Borgarsjúkrahúsinu þann 31. ág- úst sl. eftir stutta legu þar. Ingileif Auðunsdóttir fæddist 14. jan. 1905 í Hólminum í Aust- ur-Landeyjum, og var því á 78. aldursári þegar hún lést. Foreldr- ar hennar voru Guðrún Gísladótt- ir og Auðunn Jónsson, en þau áttu heima í Hólminum í Austur- Landeyjum og munu hafa flutt búferlum til Vestmannaeyja þegar Ingileif var á 3. ári. En Ingileif komst ekki með þeim strax og var þá til bráðabirgða til heimilis að Arnarhóli í V-Landeyjum, en þar bjó þá föðursystir hennar, Katrín Jónsdóttir, og maður hennar, Jó- hann Tómasson. Það átti síðan að flytja stúlku- barnið frá Landeyjasandi til Eyja. Þrívegis var farið með barnið niður á sanda — til báts er skyldi flytja hana til foreldra sinna í Vestmannaeyjum og jafnoft varð að hætta við það vegna veðurs. Húsmóðirin á Arnarhóli, Katrín, á þá að hafa sagt: „Þetta barn á ekki að fara frá okkur." Ingileif ólst svo upp á Arnarhóli þar til hún var komin yfir tvítugsaldurinn. Systkini Ingileifar voru sjö og var hún sjötta barnið í röðinni en Guðlaug var yngsta systirin og er nú ein systkinanna eftir á lífi. Uppeldissystkini Ingileifar voru fjögur en tvö þeirra eru á lífi, Magnþóra og Sigríður, sem er orð- in háöldruð. Ingileif giftist Sigurjóni Guð- mundssyni frá Hemlu þann 6. júní 1928, og hófu þau búskap það ár að Grímsstöðum, Vestur-Landeyjum. Þau eignuðust fjögur börn: Andrés Guðjón, sem nú býr að Grímsstöð- um, tók við búi eftir foreldra sína; Sverri, sem á heima í Þorlákshöfn og er byggingafulltrúi þar; Katr- ínu, sem á heima í Reykjavík, hús- frú, starfar hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og Ingólf, sem búið hefur á Neskaupstað en er nú fluttur til Reykjavíkur og starf- rækir matvöruverslun. Þau Ingileif og Sigurjón bjuggu allan sinn búskap að Grímsstöð- um. Frumbýlingsárin hafa verið erfið — þar var allt sandur og mikið vatn — má segja að mikill hluti lands hafi verið undir vatni, enda rann Þverá þá óhindruð yfir bakka sína og flæddi um allt — það var sem sagt ekki álitlegt að hefja búskap og erfitt líf þar í fyrstu. En með dugnaði og elju, sem einkenndi þessi hjón, tókst þeim að yrkja jörðina og hafa lífsviðurværi sitt af. Seinna var Þverá heft í einn farveg og dró þá strax úr vatnselgnum á jörðinni og land kom undan vatni og þorn- aði til. Smám saman komust svo börnin á legg en þau voru sérlega samhent og ákveðin í að aðstoða foreldra sína við búskapinn. Þessi samheldni og samvinna varð til þess að jörðin varð meiri og betri með hverju árinu sem leið, þangað til loks að hún er nú orðin að grös- ugu býli og er nú mjög búsældar- legt þar um að litast. Mörg aðkomubörn dvöldu hjá þeim hjónum á Grímsstöðum á sumrin og létu þau jafnan mjög vel af dvöl sinni hjá þeim og vildu gjarnan koma aftur og aftur. Hjónin bjuggu þar þangað til Sigurjón lést þann 15. febr. 1959, en Ingileif bjó þar þó enn um 2ja ára skeið með Guðjóni syni sínum. Arið 1961 brá hún búi og yfirgaf staðinn og flutti til Reykjavíkur, en sonur hennar, Guðjón, tók við búinu. I Reykjavík fór Ingileif að vinna við saumaskap hjá fyrirtæki Andrésar frá Hemlu og seinna víðar. Árið 1975 hætti Ingileif vinnu utan heimilisins sökum aldurs og heilsubrests og fluttist þá á heim- ili dóttur sinnar, Katrínar, og tengdasonar að Gilsárstekk 1 í Reykjavík. Þar bjó hún notalega um sig á neðri hæðinni í húsinu og átti þar heima til dauðadags. Barnabörn Ingileifar eru nú tólf á lífi — eitt lést af slysförum fyrir tæpum níu árum. Eftir að hún flutti til Reykja- víkur fór hún ávallt í „orlofsferð- ir“ á sumrum til barna sinna og vinafólks austur í Rangárvalla- sýslu og víðar. Undirritaður kynntist Ingileif og fjölskyldu hennar á heimili þeirra að Grímsstöðum í V-Land- eyjum í júlímánuði sumarið 1955. Fyrstu kynnin segja mikið og maður býr lengi að þeim. Það var einkennandi fyrir heimili hennar að Grímsstöðum og nánasta um- hverfi þar, hvað allt var hreinlegt og snyrtilegt. Reisn hennar, myndugleiki og góður þokki voru afgerandi. Hún var starfsöm og dugleg kona og vannst allt vel. Hún var vandvirk og vildi hafa hlutina í lagi — vildi ekki hafa nein vettlingatök á hlutunum né að störfin væru unnin með hang- andi hendi. Ánægðust var hún þegar eitthvað var verið að fram- kvæma í kringum hana — hey- skapurinn í fullum gangi, verið að byggja eða dytta að húsinu eða yf- irleitt framkvæma eitthvað þarft og gott. Ingileif var ákveðin — stóð fast á sínu — en tók þó jafnan tillit til skoðana annarra. Hún var skap- mikil en ávallt sanngjörn og mild í hjarta, tilfinningarík og í reynd- inni næm og viðkvæm og alltaf var hún góð við börn. Rausnarleg var hún í gjöfum sínum, og nutu m.a. barnabörn hennar þess. Seinni árin gekk hún ekki heil til skógar, átti við nokkra van- heilsu að stríða, m.a. varð hún að láta gera annan fótinn að staur- fæti sökum erfiðleika í hnjáliðn- um. Við heimilisfólkið á Gilsárstekk 1 höfðum ánægju af dvöl hennar hjá okkur — hún var jafnan góður félagi og vinur. Það voru ófáar stundir sem við sátum saman á neðri hæðinni og röbbuðum um heima og geima. Á heimili hennar ríkti ávallt góður andi — og það var ávallt gott að heimsækja hana — gestrisni hennar var alkunn. Við missum öll mikið við fráfall hennar. J.H. Parket auglýsir: Er parketið orðið ljótt? Pússum upp og lökkum PARKET Einníg pAssum við upp og lökkum hverskyns viðargólf. UppLisima 12114. Við munum öll sakna Ingileifar og minnast hennar með virðingu og ánægjutilfinningu. Fari hún vel á vegferð sinni handan jarðnesks lífs, í fylgd með manni sínum, besta vininum sem hún átti. Börn hennar öll, tengdabörn og barna- börn sameinast um að senda henni hlýjar kveðjur í veganesti yfir landamærin til fyrirheitna lands- ins — við þökkum henni sam- fylgdina og biðjum góðan Guð að annast hana. F'ari hún í friði. Kinar I. Sigurðsson, Gilsárstekk 1. Þú þarft lítió annaó en skrúfjám, hamar og hallamál... ...smíóaefniö færóu hjá okkur Límtré Viðarþiljur Fjökii mismunandi tegunda Smíðisplötur Spónlagdar eda piasthudadar Skápahurðir Fyrir badherbergi, eldhus, svetnherbergi eda forstofu. Tilbúið skúffuefni Tilbúnir fataskápar Með róttu smtöaefni I tilbúnum stöðludum stærðum er smíðavinnan I senn ódýr, einföld og ánægjuieg. Við bjóðum þór mikið úrval hentugra og skemmtilegra efna á vægu verði og minnum á tvöfalda ánægjuna afþvi að smíða hlutina nákvæmtega að eigin hentugleika og spara um leið drjúgan skilding. Uttu vlð í nýjum afgrelðsluaal - fullum af skemmtilegu smfðaefni. HJOltXIW 'V Skúlatúni 4 Sími 25150 FALLEGIR FYLGIHLUTIR EN FÁNÝTIR EINIR SÉR ____því hvað er húnn án HURÐAR_ VIÐ BJÓÐUM ÓTRÚLEGT ÚRVAL INNIHURÐA 1. Vönduð framleiðsla 2. Stuttur afgreiðslufrestur 3. Fastur afgreiðslutími 4. Mjög hagstæð greiðslukjör 5. Ókeypis heimsending í Reykjavík 6. Setjum pantanir á bíla og skip 7. Máltaka á Suðurnesjum 8. Sérhannaðar hurðir samkv.ísl. gæðakröfum 9. Utsölustaðir í Reykjavík og Kópavogi. SlÐAST EN EKKI SlST: ALLAR HURÐIR ENN Á GAMLA VERÐINU EF PANTAÐ ER STRAX. VERULEGUR VERÐMUNUR. Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar hf. Iðavöllum 6, Keflavík Sími: 92-3320

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.