Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 40

Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 » 1M2 imiwuái'nn _____________________________1 -30 cktti \j[& „ M.cmrvkv/ikirvdtð V' o 9-j ... að bjóða henni í bíltúr i nýja biln- um. Með morgunkaffmu Flokkast ekki þetta undir afrek aldarinnar? HÖGNI HREKKVÍS’ Um gamla turninn og Austurstræti Vilhjálmur Bjarnason skrifar: *í Velvakanda 25. júlí sl. gerir Sveinn Sveinsson að umtalsefni staðsetningu gamla turnsins við enda Austurstrætis. Jafnframt því bendir hann á tvo staði aðra, ann- ars vegar við mótin á Kalkofnsvegi og Hverfisgötu, og hins vegar ofanvert við Lækjargötu, þar sem hún mætir Bankastræti. Eftir að hið fræga útitafl, með öllu sínu umróti, var staðsett á síð- arnefnda staðnum, er takmarkað pláss fyrir turninn, en hefði fyrir þær framkvæmdir verið nokkuð góður staður. Ýmsir staðir aðrir gætu vel komið til greina, og vil ég benda á norðausturhornið á Lækj- artorgi upp við grjóthleðslurnar. Þar væri þeim gamla mikill sómi sýndur, og væri þá ekki fluttur burt af Lækjartorgi. En hvað um það, þá færi hann alls staðar betur en þar sem hann er nú staðsettur. Sveinn Sveinsson telur fullvíst að hann mæli fyrir hönd mikils meirihluta Reykvíkinga. Þar er ég honum fullkomlega sammála. Ég hef átt tal við fjölda fólks um þetta, og undantekningarlaust hef- ur það lýst óánægju sinni, og hneykslast á smekk þeirra, er hlut áttu að þessu staðarvali turnsins. Mér finnst að þessar aðfinnslur byggist aðallega á þeirri staðreynd, að þegar komið er niður Banka- stræti, þá lokar turninn útsýni að stórum hluta Austurstrætis. Flestar götur í okkar borg eru ekki langar og enginn stórborg- arbragur þar á. Gerir ef til vill ekk- ert til; en að stytta þær í augnsýn er engin reisn í hugsunarhætti. Hin glæsilega útsýn frá Banka- stræti til Austurstrætis, meðan þær götur óheftar runnu saman í augnsýn, vakti kennd um glæsi- legan höfuðstað íslands og hjarta gömlu Reykjavíkur. Færið því turninn sem fyrst á annan heppi- legri stað. Já, Austurstræti, sem góðskáld- um hefur orðið að yrkisefni. Hvernig hefur þar til tekist hjá Fegrunar- og umhverfismála- nefnd? Sá hluti Austurstrætis milli Pósthússtrætis og Lækjargötu sem gerður var aðeins að göngugötu var allur hellulagður. Þetta var mjög snyrtilegt og öllum til sóma. En fegrunardísirnar höfðu smitast af nýlist og vildu nú í bessu sambandi láta ljós sitt skína, borgurunum til augnayndis. Nú skyldi í alvöru hresst upp á hinn deyjandi miðbæ með frumsmíð er sköpuð væri úr rammíslensku efni, grjóti og mold — mold og grjóti. Mörgum bilhlössum af mold var þá ekið í Austurstræti á hina nýju göngugötu ásamt tugum — jafnvel hundruðum tonna af grjóti. Grjót þetta var til höggvið og notað áður við gatnagerð, en varð síðar að víkja fyrir nýrri tækni og lá nú ónotað víðsvegar um borgarlandið. Þótti nú sjálfsagt að bjaga þessum verðmætu „fornminjum" og nota í upphleðslur utan um moldarhaug- ana, og þar með slegnar tvær flug- ur í einu höggi. Búlkar þessir tveir eru að stærð hver um sig nálægt 100 fm, og um 45 cm á hæð. Útlínur þeirra hlaðn- ar með innskotum og útnesjum til fegurðarauka. Síðan átti gras að hylja allt sköpunarverkið. Allt hefur þetta uppátæki verið í góðri meiningu gjört, þó misjafn sé smekkur fólks um þessar fram- kvæmdir. En hver er nú reynslan? Þarna hefur ekki einu sinni tekist að láta grasið þrífast. Það er hörmulegt að sjá þessar moldar- flatneskjur í Austurstræti um há- sumar, þegar skrautblóm og allur gróður jarðar skartar sínu feg- ursta. Ég er þess fullviss, að hvergi í borgarlandinu finnst þvílíkur andstyggilegur óræktarblettur. Meðfylgjandi mynd er tekin í ág- ústbyrjun. Hvað erum við að sýna „Mér finnst að þessar aðfinnshir byggist aðallega á þeirri staðreynd, að þegar komið er niður Banka- stræti, þá lokar turninn útsýni að stórum hluta Austurstrætis.” með þessu? Já, mold og grjót. Þessi framkvæmd var mistök, sem verð- ur að bregðast við á viðeigandi hátt, því að eins og það hefur staðið undanfarið, er það borginni til stórrar vansæmdar. Þessar upp- hleðslur eru alltof stórar að flat- armáli, til að unnt sé að þekja þær með skrautblómum og öðrum gróðri, enda tilgangslaust á þessum stað, þar sem spellvirkjar hafa þessar upphleðslur sér til þæginda, og svala þar jafnframt skemmdar- fýsn sinni. Hreinlegast væri að moka öllu þessu upphleðsludrasli í burtu. Það er betra hreint skafið en illa grafið, segir máltækið. Ég vonast fastlega til, að okkar nýi og ágæti borgarstjóri sjái svo um, að Austurstræti gefi framvegis aðra landkynningu en þá, er að undanförnu hefur svo dapurlega blasað við hvers manns augum." að sjá þessar moldarflatneskjur í Austurstræti um hásumar, þegar skraut- blóm og allur gróður jarðar skartar sínu fegursta. Ég er þéss fullviss, að hvergi í borgarlandinu finnst þvílíkur andstyggilegur óræktarblettur. Með- fylgjandi mynd er tekin í ágústbyrjun. Þessir hringdu . . Finnst einhver sem vísað getur leiðina? Ellilífeyrisþegi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Af því að það er ár aldraðra langar mig til að minnast á það sem er einna eftirminnilegast frá árinu. Það eru þessar 13—60% verð- lagshækkanir á því sem ellilíf- eyrisþegar þurfa að kaupa til þess að framlengja lífið frá degi til dags. í því sambandi langaði mig að spyrja, hvort ekki finni’st sá er geti bent okkur á, hvernig við eigum að mæta þessari verð- hækkanaskriðu. Mér virðist eins og vörur hækki frá degi til dags. Ég fór í búð í gær og ætlaði að kaupa súpupakka, en þá kostaði hann 13 krónur. Mér þótti varan hafa hækkað meira en lítið, því að aðeins sex dögum áður hafði ég keypt sams konar súpupakka fyrir 4 krónur. Ég legg ekki meira á þig svona í svipinn. Þetta er matvara sem maður getur ekki sloppið við að kaupa, ef maður á að framlengja lífið eitthvað. Ég má kannski í viðbót minna á símahækkanir og hækk- anir á rafmagni og hita. Er ekki einhver svo góðviljaður að hann vilji benda okkur ellilífeyrisþeg- unum á það, hvernig við eigum að mæta þessari kjaraskerðingu. Þorsteinn Matthíasson Gott útvarpserindi Lára Pálsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langaði til að minnast á og þakka fyrir skemmtilegt er- indi sem haldið var í útvarps- þættinum „Um daginn og veg- inn“ á mánudagskvöld. Flytjand- inn var Þorsteinn Matthíasson og kom víða við. Það hefði verið gaman að fá þetta erindi á prent. Eg hef heyrt marga segja það sama, t.d. á mínum vinnustað. Þetta voru sannarlega orð í tíma töluð, í öllu þessu stressi og amstri, þegar enginn hefur tíma til neins. Hafi Þorsteinn kærar þakkir fyrir erindið. Hvar á að fá mismuninn? 1053-9013 hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Fyrir skömmu var rætt um vasapen- inga okkar gamla fólksins í sjón- varpsþætti. Forstjóri Hrafnistu talaði um að þarna væri um að ræða rúmar 700 krónur. Ég tel mig samt hafa góðar heimildir fyrir því, að samkvæmt lögum, sem tóku gildi 1. júlí í sumar, beri hverjum vistmanni á elli- heimili að fá til eigin ráðstöfun- ar 1.440 krónur. Því spyr ég: Hvar á að fá mismuninn?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.