Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 41 Verðtrygging lána: Hefur ekki afgerandi áhrif á það hvort Arnór verður „öreigi“ °K inT Kli ‘inm nn">K r ie,kn» uf **"> ad x^zr:,g^ hu"'lrudhu.'ul'U tonZ>.r—Mi l ^rKWft-Sfc l;,r uHra . r Aíi^,. rfte^-^Tí ■ «SS5,”Í S fe',6naU9mynd" um I hækhar En nu hækk^. Vaf'f V'ð að VOfuve / a6,a, minna Hvernra aj1*™' VOrUf me,fa Wgunao Pað ef oS,90!"*'’" mæ" ve I ~i=s=£5f*£«3?. ~aLL: með ivö Bc / „Sem svar við fyrirspurn Arn- órs Ragnarssonar í Velvakanda, 3. september sl., þar sem spurt er um, hvort verðtrygging lána geri menn að öreigum, ef þeir byggja hús úti á landi, skal eftirfarandi tekið fram: I dæmi sínu gerir Arnór ráð fyrir því, að hann byggi hús í kauptúni úti á landi. Verðmæti hússins sé 1 milljón kr. og hann hafi tekið verðtryggð lán að upp- hæð 300.000 kr. frá lífeyrissjóðum og Húsnæðisstofnun ríkisins. Hann gerir síðan ráð fyrir því, að verðbólgan sé 50% á ári, en verð- gildi húsnæðisins hækki hins veg- ar aðeins um 30—35% á ári. Ef húsnæðið hækkar um 30% á ári, eru eftirstöðvar lánanna, að viðbættum verðbótum, um nokk- urt árabil, hærri en verðmæti hússins. Hækki húseignin um 35% er verðmæti hússins alltaf hærra en eftirstöðvarnar. Hér er miðað við 25 ára lánstíma. Verðtrygging lána hefur sem slík ekki afgerandi áhrif á það, hvort Arnór verður „öreigi", ef hann byggir hús við þessar að- stæður. Leggi hann fram allt sitt fé sjálfur, rýrnar eign hans að verðgildi um 13,3% á ári, ef al- mennt verðlag hækkar um 50% en húseignin um 30%. Eftir 5 ár er verðgildi eignarinnar um 49% af upprunalegu verðgildi, eftir 10 ár 23% og eftir 20 ár aðeins 6%. Taki Arnór verðtryggt lán, til þess að byggja hús sitt, má segja að hans eigið fé rýrni tiltöiulega enn örar og sú hætta vofir yfir lánveitendum, að þeir tapi ein- hverju af fé sínu við slíkar að- stæður. Tilgangur lífeyrissjóðanna með útgáfu bæklings og auglýsinga í blöðum er fyrst og fremst að fræða almenning um verðtryggð útlán sjóðanna. Hins vegar verður hver og einn sjóðfélagi að vega og meta það sjálfur, hvort hann býr við slíkar aðstæður að verjandi sé fyrir hann að taka verðtryggt líf- eyrissjóðslán. I því sambandi skiptir auðvitað meginmáli að andvirði lánsins sé varið í skyn- samlegar fjárfestingar. Á hitt ber ennfremur að líta, að jákvæð ávöxtun á fjármagni líf- eyrissjóðanna er grundvöllur fyrir verðtryggðum lífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga. Ef minnka á verð- tryggingu á útlánum lífeyrissjóð- anna, hefur það óhjákvæmilega í för með sér skerðingu á bóta- greiðslum sjóðanna. Landssamband lífeyrissjóða Samband almennra lífeýrissjóða.** Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Spái að námsárangur yrði betri Húsmóðir i Kópavogi skrifar: „Velvakandi. Eg var að lesa um heimsókn for- seta íslands, Vigdísar Finnboga- dóttur, í fiskvinnsluverksmiðju Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna í Cambridge í Bandaríkjun- um. Vakti einkum hrifningu henn- ar þar að útbúnir voru sérstakir fiskréttir sem seldir voru í skól- ana. Mér datt svona í hug, að mikið væri gott að íslenskir skólanem- endur ættu kost á að fá keypta ódýra og lystuga fiskrétti í hádeg- inu, eða annan hollan íslenskan mat, þar sem þeir komast ekki heim til sín og eru kannski í skóla frá kl. 8 á morgnana til kl. 17 á daginn. Ég spái því, að námsár- angur yrði betri og heilbrigði yk- ist, ef hægt yrði að koma þessu í framkvæmd." ALLTAF Á SUMNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! ?S. S;S , : ■ . GIÖTHEBORG STRAND- AR Á HRAUNSKEIÐI NU ER AÐ DUGA EÐA DREPAST — R/ETT VIÐ ÁSGEIR SIGURVINSSON r ■■ HEITIR DAGAR I HOFN FORFEÐURNIR SÝNDU MIKIÐ VERKFRÆDIVIT — heimsOkn ad stóru-borg AFKOMENDUR VÍK- INGANNA í NORMANDÍ GRIGORI RASPUTIN HEFÐI MAÐUR ATT AÐ FARA í TEBOÐ? JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Á FLEYGIFERÐ UM AUSTUR- LÖND FJÆR HRÆRINGAR — POTTA- RÍM — VERÐUR SÝND Á NÆSTUNNI — JÁRN- SÍÐAN — Á FÖRNUM VEGI Sunnudagurítm byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.