Morgunblaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982
7
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 22.
sept. í Félagsheimili Fáks kl. 20.30.
Dagskrá: Vegamál og reiðvegir.
Á Víöivöllum.
Önnur mál.
Borgarstjórinn í Reykjavík kemur á fundinn.
Fáksfélagar mætið og látið í Ijós ykkar skoð-
anir um vegakerfið. Hestamannafélagiö
Fákur.
PÓLÝFÓNKÓRINN
Lærið að syngja
Auöveld leið að hefja söngnám. Kórskóli Pólýfón-
kórsins tekur til starfa 4. október.
Pólýfónkórinn óskar einnig eftir góðu söngfólki,
einhver tónlistarmenntun áskilin.
Innritun og uppl. í síma 21424 á skrifstofutíma og
símum 82795 og 45799 á kvöldin.
ávaxtar þú
sparifé þitt
Þetta er mikilvæg spurning þegar leiðum til þess að
verðtryggja fé hefur fjölgað og hægt er að velja mis-
munandi ávöxtun.
Leiðin sem hentar þér gæti m.a. verið:
Verðtryggð spariskírteini Ríkissjóðs.
Verðtryggð veðskuldabréf.
Óverðtryggð veðskuldabréf.
Happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs.
Við höfum víðtæka reynslu í verðbréfaviðskiptum
og fjármálalegri ráðgjöf og miðlum þeirri þekkingu
án endurgjalds.
Viljir þú ávaxta sparifé þitt munum við ráðleggja þér
hagkvæmustu ráðstöfun þess.
Verðbréfemarkaöur
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
lönaóarbankahúsinu Sími 28566
Bann á
Steingrím
Olafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra. og fyrr-
um formaður Framsóknar-
flokksins hefur gengið
þvert á vilja Steingríms
Hermannssonar, sjávarút-
vegsráðherra, núverandi
formanns Framsóknar-
flokksins. Ólafur hefur
notað sér aöstöðu sina sem
viðskiptaráðherra í Qar-
veru Tómasar Árnasonar,
sem vonar að geta ein-
hvern tima orðið formaður
Framsóknarflokksins. f
fjarveru Tómasar hefur
Olafur veitt 4 togurum leyfi
til að selja afla sinn í út-
löndum. Steingrímur segist
vera þessu algjörlega and-
vígur og hafi Olafur vitað
um andstöðu sína, þegar
hann veitti leyfin. Olafur
segir hins vegar, að ekkert
hafi veríð bókað um málið
á ríkisstjórnarfundi. „Ég
vissi ekki betur en þessar
tillögur hefðu verið sam-
þykktar," segir Steingrím-
ur á forsíðu Tímans í gær.
Ólafur kannast ekki við
það, enda hefur hann talið
rétt að sitja ríkisstjórnar-
fundi um málefni útgerðar-
innar þar til þeim er slitið.
Steingrímur hefur hins
vegar þann hátt á, eins og
kunnugt er, að hlaupa til
útlanda af miðjum ríkis-
stjórnarfundum og skilja
aðra ráðherra eftir undr-
andi — þeir urðu líklega
svo undrandi fyrir viku, að
það gleymdist að ræða til-
lögur Steingríms um bann
við fisksöhi í útlöndum.
Umræðurnar við ríkis-
stjóraarborðið eftir brott-
hlaup Steingríms hafa lík-
lega snúist um það, hvort
ekki værí rétt að setja
bann við því að sjávarút-
vegsráðherra færi til út-
landa. r
Deilur Ólafs
og Steingríms
Deilur formanns og
fyrrverandi formanns
Framsóknarflokksins um
fisksölur í útlöndum koma
ekki á óvart, þegar til þess
er litið, að Steingrímur hef-
Mikil tíðindi
Það eru svo sannarlega tímamót, að á forsíðu Tímans í gær og svo
aftur á blaðsíðu þrjú í blaðinu skuli greint frá hörkudeilum Stein-
gríms Hermannssonar og Ólafs Jóhannessonar um málefni togara-
útgerðarinnar. Þessi fréttamennska hjá hinu þrönga flokksblaði
sýnir aðeins eitt: Innan Framsóknarflokksins ríkir styrjaldarástand
vegna óánægju með starfshætti Steingríms Hermannssonar. Ólafur
Jóhannesson er hinn eini sem hefur afl til þess að sýna flokksfor-
manninum í tvo heimana — og það hefur Ólafur gert og Tíminn
hampar átökunum til að létta á flokksspennunni. Forystugrein Tím-
ans í gær heitir svo: Áróðurinn gegn sjávarútvegsráðherra.
ur vegið að Ólafi í vanda-
samasta málinu sem hann
hefur fariö með sem utan-
ríkisráðherra, flugstöðv-
armálinu. Einar Ágústsson,
sem var utanríkisráðherra
framsóknarmanna á með-
an Steingrímur sat utan
rikisstjórnar, samdi um
það við Bandaríkjastjórn,
hvernig háttað skyldi skipt-
ingu kostnaðar milli Is-
lendinga og Kandaríkja-
manna við gerð nýrrar
flugstöðvar á Keflavíkur-
flugvelli. Bandaríkjastjórn
hefur staðið við sinn hluta
samkomulagsins og fjár-
magn frá henni er til reiðu.
Við myndun núverandi rík-
isstjórnar gekk Steingrím-
ur Hermannsson hins veg-
ar þvert á samkomulagið
sem Einar Ágústsson hafði
gert með því að veita
kommúnistum neitunar-
vald um framkvæmd þess,
auk Steingrims stóð Gunn-
ar Thoroddsen að því að
veita komraúnistum þetta
vald — þeir hafa auðvitað
beitt því og nú eru islensk
stjóravöld komin í skömm
gagnvart Bandaríkjastjórn
og þurfa að fara aö henni
bónarveg svo að hin sam-
þykkta bandaríska fjárveit-
ing falli ekki niður. Eins og
við var að búast ræðst af-
staða kommúnista í þessu
máli af „þjóðlegri reisn“
— en hvað réð afstöðu
Steingríms Hermannsson-
ar, þegar hann veitti
kommúnistum neitunar-
valdið? Ólafur Jóhannes-
son hefur ekki haft flug-
stöðvarmáliö á valdi sinu
— en hefur hann notið
stuðnings frá Steingrími
Hermannssyni til að fram-
fylgja samkomulaginu sem
Einar Ágústsson gerði?
Nei, Steingrímur Her-
mannsson hefur gagnrýnt
samkomulagið. A hvaða
forsendu? Jú, að réttast
værí að Bandaríkjamenn
bæru allan kostnað við
smíði nýrrar flugstöðvar.
Maðurinn sem veitti
kommúnistum neitunar-
vald í þessu máli ræðst á
flokksbræður sina fyrir að
hafa ekki samið betur.
Athyglisverð
ummæli
Ólafur Jóhannesson hef-
ur tekið afstöðu með
Krístjáni Ragnarssyni,
formanni LÍf, en á móti
Steingrími Hermannssyni.
í Tímanum í gær segir
Krístján í tilefni af leyfis-
veitingu Olafs: „Ólafur Jó-
hannesson er viðskipta-
ráðherra núna og ákaflega
réttsýnn maður eins og
alltaf áður.“ Hér í Morg-
unblaðinu í gær segir
Steingrímur Hermannsson
hins vegar um Kristján
Kagnarsson: „Kristján er
enginn útgerðarmaður,
hann er formaður félagsins
... Við göngum eins langt
og ríklsvaldið getur að
mínu mati og svo er það
útgerðarmanna, ekki bara
Kristjáns Kagnarssonar, að
ákveða hvort þeir halda til
veiða eða ekki.“ Greinilegt
er af þessum ummælum
sjávarútvegsráðherra, að
hann stefnir að því að
svipta Krístján Kagnarsson
völdum í Landssambandi
íslenskra útvegsmanna. Er
sú afskiptasemi Steingríms
af málum sem honum
koma ekki við í samræmi
við annað — en hvernig
værí að Steingrímur athug-
aði, hvort Ólafur Jóhann-
esson hefði tekið af honum
völdin í Framsóknar-
Dokknum?
Verzlunarráð
íslands
65 ára
I tilefni 65 ára afmælis Verzlunarráðs íslands
efnir ráðið til hádegisverðarfundar, kl.
12:15—14:00, með Hans König, framkvæmda-
stjóra Alþjóða verzlunarráðsins, í Víkingasal
Hótels Loftleiða, föstudaginn 17. september.
Umræðuefni: Framtíð frjáls framtaks og frí-
verzlunar í Vestur-Evrópu. Að erindi loknu
mun Hans König svara fyrirspurnum. Fundur-
inn er opinn öllum félagsmönnum VÍ. Vinsam-
legast tilkynnið þátttöku fyrir kl. 17:00,
fimmtudag í síma 83088.
Hans Kðntg
Mótttaka í Húsi verzlunarinnar
Viðhafnarmóttaka í tilefni afmælisins fyrir félagsmenn VÍ og gesti hefst í
nýju húsnæði VI í Húsi verzlunarinnar, 7. hæð, klukkan 16:30 þann 17. og
stendur til 19:00. Dagskráin hefst með setningarræðu Ragnars S. Halldórs-
sonar, formanns VI, en ávörp munu
flytja Halldór Ásgrímsson formaður
fjárhags- og viðskiptanefndar n.d.
alþingis, Davíð Oddsson, borgarstjóri
og Þorvaldur Guðmundsson,
fyrrverandi formaður VÍ.
\í
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS