Morgunblaðið - 15.09.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982
fff'BL „ í •! W k
Vmk PÍWP
mmk -
Brimkló á rússnesku svidi...
Ljómn. Arnaldur Indríðaaon.
Hljómleikaför Björgvins Halldórssonar
I Sovétríkjunum:
Um 15 þúsund manns
hafa sótt hljómleikana
___og við auglýsingu um tónleika hljómareiUrinnar.
Krá Arnaldi lndriAa.syni, NovoHÍbirHk, Sovétríkjunum.
„I»IÐ verðiö að koma tii Novosibirsk á hverju ári. Nei, á hverjum
degi,“ sagði ein stúlka af mörgum við Björgvin Halldórsson og hljóm-
sveitarmenn hans, þegar þeir gengu út úr menningarmiðstöð Félags
járnbrautarstafsmanna í áttundu sUerstu borg Sovétríkjanna.
Stúlkan var ein af mörgum
ungmennum sem verið höfðu á
hljómleikunum og biðu eftir
tónlistarmönnunum fyrir utan
til að fá eiginhandaráritun
þeirra. Þær voru fúslega veittar.
Þetta voru 11. hljómleikarnir
sem hljómsveitin hefur haldið í
Sovétríkjunum og voru þeir
mjög vel heppnaðir eins og
reyndar hinir tíu sem haldnir
hafa verið. Húsfyllir var eins og
venjulega og var mjög góð
stemning í salnum. Þegar líða
tók á skemmtunina hópuðust
dansandi áhorfendur að sviðinu
og hlupu svo upp á sviðið og um-
kringdu hljómsveitina. Þeim var
stuggað niður af sviðinu af
starfsmönnum menningarmið-
stöðvarinnar, en nokkrir hlupu
enn upp á sviðið, þegar hljóm-
sveitin var klöppuð upp í þriðja
sinn. Það vakti nokkra kátínu
meðal hljómleikaferðalanga þeg-
ar Björgvin kynnti sig þannig:
„Ég heiti Björgvin Halldórsson
og ég var í Bendix, auðvitað á
íslandi."
Nú hefur hljómsveitin dvalið í
Sovétríkjunum í 12 daga, þar af í
Síberíu í vikutíma og hafa sam-
tals um 15.000 manns mætt á
tónleika. Frá Moskvu var haldið
til Novokuznetzk í Síberíu 5.
september og þar og í nágrenni
haldnir þrír tónleikar, m. a. í
cirkus með öskrandi ljónum hið
næsta búningsklefunum og í sex
þúsund manna skautahöll, sem
er reyndar eini staðurinn þar
sem ekki hefur verið húsfyllir.
Var höllin setin að hálfu, eða af
um þrjú þúsund manns.
Það hafa það allir mjög gott
og veðrið hefur verið einstaklega
blítt, sól upp á næstum hvern
dag. Nú er haust í Síberíu og
mjög kólnar í veðri á kvöldin.
Blöð hafa verið áhugasöm um
þetta hljómleikaferðalag og
birst hafa viðtöl við Björgvin í
mörgum þeirra.
í kvöld verða haldnir tónleikar
í vísindamiðstöð hér nálægt
Novosibirsk, en á morgun verður
haldið til Kemerovo í 280 km
fjarlægð héðan, en þaðan svo
haldið til Sochi við Svartahafið.
Myndabrengl
í FRÁSÖGNUM af ferð Sin-
fóníuhljómsveitarinnar hafa
birzt viðtöl í Morgunblaðinu
við félaga hljómsveitarinnar
o.fl. í blaðinu í gær var viðtal
við Þorkel Jóelsson, en með
viðtalinu birtist mynd af Stef-
áni Stephensen. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum. Hér birtast
myndir af þeim félögum.
I’orkell Stetáa
JóelnMon StepbenflCfl
Gáfu Hallgríms-
kirkju 30 þús. kr.
SAMKVÆMT arfleiðsluskrá hjónanna Páls Hallbjörnssonar og Sólveigar Jó-
hannsdóttur, Leifsgötu 32, Reykjavík, koma i hlut Hallgrímskirkju í Reykjavik
30.000 krónur, segir í fréttatilkynningu frá Hallgrímskirkju.
I fréttinni frá kirkjunni segir enda hafi kirkjan verið í næsta
ennfremur, að þau hjón hafi haft nágrenni heimilis þeirra. Því
mikinn áhuga á byggingu Ha- óskuðu þau eftir að framangreind
llgrímskirkju á Skólavörðuholti, gjöf rynni til byggingar kirkjunnar.
Akureyri:
Tónleikar í
kirkjunni í kvöld
Akureyri, 14. Heplember.
INGA Rós Ingólfsdóttir sellóleikari,
Andreas Schmidt baritónsöngvari og
Hörður Áskelsson orgelleikari halda
tónleika i Akureyrarkirkju annað
kvöld, miðvikudagskvöld, og hefjast
þeir klukkan 20.30. Hér er um ungt
fólk að ræða. Hörður og Inga Rós
hafa nýlega lokið framhaldsnámi í
tónlist og hljóðfæraleik í Dússeldorf
í Þýskalandi, og Andreas Schmidt,
sem er 22ja ára, hefur þegar getið
sér hið besta orð erlendis sem
söngvari.
Á efnisskrá eru meöal annars
verk eftir Joh. Sebastian Bach,
Sésar Franck, Franz Schubert,
Árna Þorsteinsson og nýtt verk
eftir Hörð Áskelsson er hann hef-
ur samið fyrir söngrödd og selló.
Sv.P.
Listgagnrýni
mikilvæg
RÁÐSTEFNA um list og
gagnrýni var haldin helgina
11. og 12. september í Árna-
garði í Reykjavík. Ráðstefn-
an sendi frá sér eftirfarandi
ályktun:
Ráðstefna um list og gagn-
rýni, haldin í Árnagarði
11.—12. september 1982, álykt-
ar eftirfarandi:
Ráðstefnan leggur áherslu á
mikilvægi listgagnrýni í fjöl-
miðlum, enda sé gagnrýnin
vönduð og heiðarleg.
Þá er ekki síður nauðsynlegt
að fjölmiðlar fjalli almennt um
listir og menningarmál en á
það þykir mjög hafa skort mið-
að við aðra efnisflokka.
Til þess að ræða þessi mál og
annað sem þeim tengist telur
ráðstefnan æskilegt að hið
fyrsta verði boðað til annarrar
ráðstefnu og þá með stjórnend-
um og starfsfólki fjölmiðla og
listamönnum.
INNRITUN
OG UPPLÝSINGAR
KL. 13-19
SIMAR: 38126 74444
Jazzballett er sérstaklega
holl og góö hreyfing og
vægast sagt mjög skemmti-
legur. Viö höfum fengiö til
liðs viö okkur stórgóöan
kennara Kristínu Svavars-
dóttur, sem kennt hefur
jazzballet í 10 ár í Dan-
mörku.
liu
Kennslustaðir
Reykjavík
Drafnarfell 4, INNRITUN
mánudag til föstudags
DRIISSHOII