Morgunblaðið - 15.09.1982, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982
25
Systkini íslandsmeistarar í ökuleikni
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNINNI í ökuleikni lauk á sl. laugardag. í karladokki sigraöi Jón S. Ilalldórsson, en
systir hans, Friða Halldórsdóttir, sigraði í kvennaflokki. Sigruðu þau systkini bæði með yfirburðum og hljóta að
launum utanlandsferð ásamt Ingvari Agústssyni, sem varð í öðru sæti í karlaflokki. Munu þau þrjú taka þátt í
Norðurlandameistaramótinu í ökuleikni, sem fram fer á Spáni. Er sú keppni haldin á vegum Opel-verksmiðjanna þar.
(Ljósm. (iunnlaugur).
Garður:
Bæði knattspyrnuliðin
unnu sig upp í deildum
(■arði, 12. september.
EINS OG fram hefir komið í frétt-
um, vann 3. deildar lið Víðis
úrslitakeppni 3. deildar og
þátttökurétt til að spila í annarri
deild að ári. Þeir gerðu jafntefli í
sínum síðasta leik í úrslitakeppn-
inni sl. laugardag gegn KS frá
Siglufirði 0—0. I»á gerði kvenna-
liðið sér lítið fyrir og vann KA í
úrslitaleik um hvort liðið ætti að
spila í I. deild að ári.
Hreppsnefndin bauð fótbolta-
hetjunum okkar í mat í
samkomuhúsinu sl. iaugar-
dagskvöld og endaði samkoman
með líflegum dansleik. Kom þar
m.a. fram, að í tilefni hins góða
árangurs sem náðist á þessu
keppnistímabili, hyggst hrepps-
nefndin gera átak í að bæta
keppnisaðstöðuna, en grasvöllur-
inn úti á Skaga þykir nokkuð
hrjúfur svo ekki sé dýpra í árinni
tekið. Er stefnt að því að gera
góðan grasvöll norðan mal^rvall-
arins og ljúka við hann á næstu
tveimur árum, eða eins og gár-
ungarnir segja, áður en liðið fer í
fyrstu deild. Arnór.
Þessi mynd er tekin i Hrunamannahreppi I lok heyskapar I sumar.
Hrunamannahreppur:
Heyskap lokið og
lagt af stað í göngur
Syðra Langholti, 8. september.
HEYSKAP er lokið hér fyrir all-
nokkru, og má telja að hann sé víð-
ast hvar ágætur. Það er þó misjafnt
eftir bæjum, þar sem ekki voru öll
tún búin að jafna sig eftir kal í fyrra-
vor, en lítið sem ekkert kal bættist
við í vor.
Yfirleitt eru heyin góð, þótt
þurrkar væru mjög stopulir siðari
hluta júlímánaðar. Þá hraktist
hey nokkuð, en súgþurrkun er nú
komin á flesta bæi, en votheys-
verkun er lítil hér um slóðir. Stór-
ar flatgryfjur eru þó á nokkrum
bæjum.
Nú eru bændur að tygja sig af
stað í leitir, og er ieitað inn að
Hofsjökli, milli Stóru-Laxár og
Hvítár. Réttir verða svo í Hruna
fimmtudaginn 16. september. Bú-
ast má við að 12 til 14 þúsund fjár
komi af fjalli, en nokkuð hefur
sauðfé leitað niður að girðingum
vegna kulda, og hefur það haft að-
gang að óbitnu landi til rétta, svo
ekki hefur þurft að rétta það sér-
staklega.
Alls fara 25 menn í fyrstu leitir
á Hrunamannaafrétt, og taka leit-
irnar vikutíma. í aðra leit verður
svo farið hinn 19. september og í
þá þriðju um miðjan október. í
aðra leit fara níu menn, en fimm
þaulvanir smalar í þá þriðju. Gist
er bæði í tjöldum og gangna-
mannakofum í fyrstu leitum, en í
þeim síðari eingöngu í gangna-
mannakofum. — Sig. Sigm.
Innilegar þakkir færi ég bömum mínum, tengda-
bömum, barnabörmrm og öllum ættingjum og vinum,
sem glöddu mig á 80 ára afmæli mínu, meÖ fögmm
gjöfum, blómum og heillaskeytum.
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR,
BRÁVALLAGÖTU 50.
Hjartans þakkir fœri ég börnum mínum
og barnabörnum, og öllum œttingjum og
vinum fjœr og nær, fyrir ógleymanlegar
stórgjafir, skeyti, blóm og kveöjur á 75
ára afmæli minu 9. sept.
GuÖsblessun fylgi ykkur öllum.
ELENÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR,
ÞÓRUFELLI 10,
REYKJAVÍK.
MIMIR
Þrír innritunardagar eftir
Samtalsflokkar hjá Englendingum.
Kvöldnámskeiö — síödegisnámskeið.
Léttari þýzka. íslenzka fyrir útlendinga.
Franska, spánska, ítalska, Norðurlandamálin.
Enskuskóli barnanna.
Einkaritaraskólinn.
Símar 10004 og 11109
Málaskólinn Mímir
13 Brautarholti 4. (kl. 1—5 e.h.)
/->DaIe .
Camegie
námskeiðið
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn
fimmtudaginn 16. september kl. 20.30 að
Hólagötu 15, Sjálfstæðishúsinu, Ytri-
Njarðvík.
★ Námskeiöiö getur hjálpað þér að:
★ öölast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ bæta minni þitt á nöfn, andlit og staðreyndir.
★ láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfær-
ingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ stækka vinahóp þinn, ávinna þér viröingu og
viöurkenningu.
★ Talið er að 85% af velgengni þinni sé komið
undir því, hvernig þér tekst að umgangast aöra.
★ starfa af meiri lífskrafti, — heima og á vinnu-
stað.
★ halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
★ verða hæfari að taka við meiri ábyrgö án
óþarfa spennu og kvíöa.
★ Okkar ráölegging er því: Taktu þátt í Dale
Carnegie-námskeiöinu. I dag er þitt tækifæri.
★ Hringið í síma 82411 og
skrifið eftir upplýsingum.
fyff 82411
^ f Emkaleyfi á Islandi
^/f^LfSTJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphsson