Morgunblaðið - 15.09.1982, Síða 31

Morgunblaðið - 15.09.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982 31 Páll Pálmason horfir á eftir knettinum í netið hjá aér eftir skalla Pólverjans Partynski, sem sést ekki á myndinni. I.jósm. KÖE. Pólverjarnir mörðu IBV með eins marks mun — en íslenska haustveðráttan var hinn raunverulegi sigurvegari PÓLSKA knattspyrnuliðið Loch »p: Poznan sigraði IBV 1—0 í fyrri leik liðanna í 1. umterö Evrópu- keppni bikarhafa í knattspyrnu. Er líklegt aö veganestið nægi lið- inu til að komast í 2. umferð, þar sem heimaleikur pólska liðsins er eftir, en þó er best að segja sem minnst um það á þessu stigi málsins, því sannast sagna virk- aði pólska liðiö langt frá því að vera sterkt og ef heppni v»ri með gæti ÍBV þess vegna skákaö því á góðum degi. En það er nákvæmlega þaö sem dagurinn í gær, þriöjudagur 14. september, var ekki, þ.e.a.s. góöur dagur. Þaö tefldu allir fram sínu sterkasta, Lech, ÍBV og síðast en ekki sist veöurguöirnir, en eins og islendingar vita geisaöi í gær dæmigert íslenskt haustveður. Úr- hellisrigning, kuldi og rok settu því miður mark sitt á leik þennan, áhorfendur voru varla fleiri en 100 talsins, engin stemmning og leik- menn hlupu til og frá ekki síst til aö farast ekki úr kulda. Utkoman var eins og vænta mátti, einhver dauf- asti knattspyrnuleikur sem undir- ritaöur hefur augum litiö. Oft er talaö um aö slíkt veður og slík skil- yröi eigi að koma íslensku liöunum til góöa, þau séu vanari aö leika viö slikar kringumstæöur heldur en mótherjarnir. Þaö er kannski IBV— Lech P. eitthvaö til í því, en í gærkvöldi má fullyrða aö fullmikiö hafi þó verið af þvi vonda. Voru tilþrifin í leikn- um ekki meiri en svo þegar á heild- ina er litiö, aö ekki einu sinni allan seinni hálfleikinn lyftu blaöamenn pennum til aö punkta hjá sér markverð atvik. Fyrri hálfleikurinn var aö því leyti fjörugri og betri að þá var eina mark leiksins skoraö og þá fengu Eyjamenn þau færi sem þeim buö- ust. Eyjamenn voru lítiö meö knöttinn framan af, þeir pólsku dúlluöu fram og til baka í rokinu og áttu nokkur sæmileg skot utan af velli sem Páll „Zoff“ Pálmason af- greiddi eins og aö drekka vatn. Þaö ætlaði aö veröa löng biö eftir fyrsta skikkanlega samleikskaflan- um frá ÍBV, en loks er hann kom munaöi einum aö úr yröi mark. ÍBV nældi þá í hornspyrnu og er Ómar Jóhannsson spyrnti knettinum fyrir, munaöi millimetra aö Sigur- lás næöi aö skalla í netiö, en hann gnæföi eins og viti upp úr leik- mannaþvögunni í teignum. Þetta var á 20. mínútu og fimm mínútum síðar átti Lási skalla úr góöu færi, en setti knöttinn of nálægt mark- verðinum, nánar tiltekiö beint í fangiö á honum. Og svo skoruöu Pólverjar og kom markiö þeirra dýrmæta á 32. mínútu, þeir prjónuöu sig inn í víta- teiginn hægra megin og var skyndilega fátt um varnir hjá ÍBV. Pólverjinn Ogynski vippaöi knett- inum fyrir markiö og félagi hans, Lezek Partynski, skallaði laglega í netiö. Átti Páll enga möguleika á aö verja. Eftir markiö voru Pólverjarnir enn meira meö knöttinn, en Eyja- menn fengu þó hættuleg færi er þeir náöu skyndisóknum. Til dæm- is munaði hársbreidd að Kári Þor- leifsson næöi aö stýra fastri send- ingu Ómars i netið á 34. mínútu og á 43. minútu var Kári aftur á ferö- inni, aftur átakanlega nærri því aö pota knettinum í netiö. Á 44. mín- útu munaöi svo allra minnstu. IBV fékk þá hornspyrnu hægra megin og gaf Ómar sérlega vel fyrir mark- iö. Valþór Sigþórsson kom æöandi aö markinu, stökk lang hæst og skallaöi þrumufast í markhorniö. Mowlik markvöröur náöi aö verja snilldarlega, hélt þó ekki knettin- um og pólskur varnarmaöur mok- aöi honum af marklínunni áöur en rokið hreif hann í netiö. Og svo tók viö seinni hálfleikur- inn sem veröur ekki lengi i minnum haföur fyrir leiftrandi og opna sóknarknattspyrnu. En til aö gæta fyllstu sanngirni er rétt að minna aftur á aöstæöurnar, þær voru hörmulegar og buöu ekki upp á annað en þaö sem fram var reitt. Ef aöstæður leyföu, gæti ÍBV hæglega gert þessu pólska liöi skráveifu er austur fyrir tjald verð- ur komið. Þaö er ekki sterkt og hefur aö sögn fróöra ekki gengiö vel í pólsku deildarkeppninni. Bestu menn ÍBV voru bræðurnir Kári og Sigurlás, Ómar átti góöa spretti og vörnin var öll hin traust- asta. Hélt hún hinum þunglama- legu Pólverjum léttilega í skefjum. Páll var og góöur í markinu. Best aö segja sem minnst um pólska liðið, leikmenn þess eru jafnir aö getu. Lítið bar á landsliðsmannin- um Cupzewicz. suöaustanáttin hélt honum niöri ekki síöur en félögum hans. Skoskl dómarinn stóö sig vel. — gg. Arsenal tapaði ARSENAL tapaði 2—3 fyrri leik sínum gegn sovéska liðinu Torp- edo í UEFA-keppninni i knatt- spyrnu, en liðin áttust viö í Moskvu í gærdag. Arsenal lék vel framan af og komst í 2—0 og skoraði Lee ('hapman a.m.k. fyrra markið. En Lundúnaliöið missti allt úr böndunum í síðari hálfleiknum og þá skoruðu Rússarnir þrívegis og tryggðu sér sigur. Staða Arsenal er engu að síður eftir atvikum sterk, meö tvö útimörk í sarpnum. Þá bárust Mbl. fregnir af einum leik enn í Evrópukeppn- inni í knattspyrnu, en sem kunnugt er skipta leikirnir svo tugum í kvöld. Það voru AEK frá Grikklandi og Köln frá Vestur-Þýskalandi sem þjóf- störtuðu í Aþenu, en leik þeirra lauk 3—3, eftir að stað- an í hálfleik hafði verið 2—2. Vlachos, Ballis og Nikoloudis skoruðu mörk AEK, en Zimm- ermann, Fischer og Steiner svöruðu fyrir Köln. Ahorfend- ur voru 30.000. Tvö lið með fullt hús 2.umferð spænaku deildar- keppninnar í knattspyrnu fór fram um aíðustu helgi og uröu úralit leikja sem hór segir: Gijon — Real Socíedad 00 Santander — Malaga 0—0 Betis — Atl. Madrid 1—3 Celta — Zaragoza 0—2 Real Madrid — Sevilla 1—0 Barcelona — Valladolid 3—0 A.Bilbao — Valencia 2—1 Las Palmas — Osasuna 2—1 Aöeins tvö liö hafa fullt hús stiga eftir tvær fyrstu umferð- irnar, þaö eru Zaragoza og At- letico Madríd. Þrjú lið hafa 3 stig hvert, Las Palmas, Real Madrid og Atletico Bilbao. Betis og Celta hafa tapaö leikjum sínum og eru neöst án stiga. l>lovjii>mblnðt^ mm Sjá íþróttir á bls. 42 og 43 Einkunnagiöfln Getrauna- spá MBL. •*2 3 — C & e s Sunday Mirror f a. ►* « ■?. I f ■J. News of the World I •t ■g ■í. SAMTALS 1 X 2 Arsenal — N. County X í X 1 i 1 4 2 0 Birmingham — Coventry 2 X 2 2 X X 0 3 3 Everton — Norwich 1 í 1 1 í 1 6 0 0 Ipswich — Stoke X í 1 X 2 X 2 3 1 Luton — Brighton X í 1 1 1 1 5 1 0 Man. City — Aston Villa X 1 1 1 1 1 5 1 0 N. Forest — Watford X í 1 X 1 X 3 3 0 Southampton — Man. Utd. X X 2 2 X X 0 4 2 Sunderland — Tottenh. X X 2 I 2 I 2 2 2 Swansea — Liverpool X 2 X X X 2 0 4 2 WBA — West Ham X 1 1 1 1 1 5 1 0 Blackburn — Leicester 2 X X X X 1 1 4 1 Liö Breiöabliks: Guðmundur Ásgeirsson 6 Lið KR: Halldór Pálsson 7 Liö ÍBÍ: Hreiðar Sigtryggsson Ólafur Björnsson 6 Siguröur Indriöason 6 Gunnar Guðmundsson Valdimar Valdimarsson 6 Ottó Guðmundsson 6 Jón Björnsson Vignir Baldursson 5 Jakob Pétursson 6 Örnólfur Oddsson Jóhann Grétarsson 6 Jósteinn Einarsson 6 Ámundi Sigmundsson Sigurður Grétarsson 7 Ágúst Már Jónsson 7 Jóhann Torfason Helgi Bentsson 6 Sæbjörn Guömundsson 8 Gústaf Baldvinsson Þorsteinn Hilmarsson 6 Hálfdán Örlygsson 7 Jón Oddsson Sigurjón Kristjánsson 6 Birgir Guöjónsson 6 Gunnar Pétursson Sævar Gunnleifsson 7 Elías Guömundsson 6 Rúnar Guömundsson Benedikt Guömundsson 6 Óskar Ingimundarson 7 Einar Jónsson Hákon Gunnarsson (vm.) 7 Magnús Jónsson (vm.) 5 Atli Einarsson (vm). Lék of stutt Liö KA: Aðalsteinn Jóhannesson 7 Liö Vals: Brynjar Guömundsson 7 Liö ÍBK: Þorsteinn Bjarnason Kristinn Jóhannsson Guöjón Guðjónsson 7 Grímur Sæmundsen 6 Gísli Eyjólfsson Haraldur Haraldsson 6 Úlfar Hróarsson 6 Ingiber Óskarsson Gunnar Gíslason 6 Dýri Guömundsson 6 Rúnar Georgsson Erlingur Kristjánsson 6 Þorgrimur Þráinsson 6 Einar Á. Ólafsson Eyjólfur Ágústsson 6 Magni Pétursson 5 Siguröur Björgvinsson Elmar Geirsson 7 Njáll Eiösson 5 Ingvar Guðmundsson Hinrik Þórhallsson 5 Hilmar Sighvatsson 6 Magnús Garöarsson Ásbjörn Björnsson 7 Guömundur Þorbjörnsson 8 Óli Þór Magnússon Steinar Birgisson 5 Valur Valsson 5 Ragnar Margeirsson Ormar Örlygsson 5 Ingi Björn Albertsson 5 Steinar Jóhannsson (vm.) 0)0)00)0)0)0)0)0)0)0)0) 050>0)0)0>00)0)0)0)0)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.