Morgunblaðið - 24.10.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.10.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982 Flötu þökin eru á hröðu undanhaldi á húsum í Reykjavíkurborg. Að und- anförnu og einkum í sumar hefur mátt sjá mörg hús taka breytingum. Og af umsóknum til borgarinnar um leyfí til að breyta flötu þökunum og byggja ný og hallandi, má sjá að í flest- um tilfellum er það vegna þakleka, sem ekki hefur tekist að komast fyrir. Þó eru til aðrar skýringar á einstöku húsi, svo sem á húsinu hér á myndinni við Hverfísgötu, þar sem verið er að samræma hús byggð- inni í kring í gamla bæn- um, og til er það að fólk vilji með hallaþaki fá betra rými. Þar sem við höfum séð svo mikið af slíkum húsum að undanförnu, fór ljósmyndar- inn okkar, Emilía, og tók þessar myndir, sem birtast hér, af húsum með ný og breytt þök og jafnvel einu, í Fossvogshverfi, sem búið er að fá leyfi til að setja nýtt þak á, það fyrsta í því hverfi. Tvær tízkubylgjur skipu- lagsmanna og arkitekta, sem innleiddu flöt þök, hafa riðið yfir. Sú fyrri upp úr 1930, þegar þýzku húsaþökin komu, og sú síðari upp úr 1960 og var sú öllu meira krassandi. Eftir það var farið að setja slíkt í skipulagsskilmála heilla hverfa og þá í byggingarleyfi til eigenda fyrirmæli um útlit þaka. Og skyldi það vera til samræm- ingar í hverfunum. Þetta hef- ur svo í för með sér að leyfi verður að fást til breytinga við hvert þeirra húsa. Við Hraunbæinn eru um 15 ára gömlu svokölluð garðhús, eða raðhús með flötum þök- um,og er nú búið að byggja ofan á næstum öll og þarna heillegasta hverfið sem tekið Ljósmyndir Emilía hefur slíkum breytingum, að því er byggingafulltrúi borg- arinnar tjáði okkur. Er beðið um leyfi fyrir þakbreytingar víðsvegar um bæinn, í húsum í Vogahverfi, á Teigunum, Túnunum, í gamla bænum og víðar. Og nú hefur verið veitt fyrsta leyfið til að byggja þak ofan á hús við Haðarland, en í Fossvogshverfi voru mjög strangir byggingarskilmálar á sínum tíma, og má því búast við fleiri beiðnum nú eftir að frávik er orðið og fordæmi fengið. Segir Gunnar Sigurðs- son, byggingarfulltrúi, að umsóknir um breytingar á flötum þökum fari ört vax- andi. Myndirnar, sem hér birt- ast, tók Emilía ljósmyndari víðs vegar um Reykjavíkur- borg, við Hraunbæ, í Eikju- vogi, í Sæviðarsundi, á Gull- teig, í Nóatúni, á Hverfisgötu og í Haðarlandi. — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.