Morgunblaðið - 24.10.1982, Page 38

Morgunblaðið - 24.10.1982, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982 auðveldara að pranga hverju sem er inn á neytendur, sem ekki þekkja áhrif lyfsins fyrir. En vonandi sjá þeir, sem nú ganga um og gnísta tönnum eftir langvarandi amfetamínneyslu, að sér áður en þeir vakna upp við þann vonda draum að þeir þjóna ekki lengur öðru hlutverki en að vera næstu kynslóð víti til varnað- ar. Eitt af því hættulegasta við amfetamín er hve „eðliiegur" neytandanum finnst hann vera undir áhrifum þess. (Öfugt við áhrif LSD enda um ólíkar efna- samsetningar að ræða.) A meðan iíkaminn brennir upp alla vara- sjóði sína, fyllist neytandinn ofurmannlegri orku, verður flug- gáfaður og skarpur með afbrigð- um, enda kalla Bretar lyfið „eit- urlyf hinna vinnandi stétta — hassið er bara fyrir þá, sem geta leyft sér að liggja í leti“. „Speed kills“ er hins vegar algeng áletrun á veggjum allt frá Kristjaníu í Kaupmannahöfn til Brixton í Bretlandi. Og í Kristjaníu, þar sem íbúarnir setja sín eigin óskráðu lög, fá amfetamínsalar slæma útreið þegar til þeirra næst. „Neytendum hætti til að komast í geðveikisástand, sem ekki batnaði“ „Við fengum þó nokkuð inn af fólki, sem hafði neytt LSD á sín- um tíma enda lyfið mjög skað- legt,“ sagði Jóhannes Bergsveins- son, er hann var spurður um þessi efni, áhrif þeirra og batahorfur þeirra, sem fara illa út úr neysl- unni. „Það, sem við sáum gerast eftir neyslu LSD, var það að neytend- um hætti til að komast í geðveikis- ástand sem ekki batnaði," sagði Jóhannes. „Það hefur verið allur gangur á bata og ekki hægt að fullyrða hve margir hafa náð sér að fullu. Sumir hafa líka haldið áfram í öðrum vímugjöfum. En geðklofi og þvílíkir geðsjúkdómar brjótast yfirleitt fram hjá ungu fólki, á þeim aldri sem mestar lík- ur eru á að það sé að fikta við fíkniefni. Fólki líður þá illa og sækir í vímuefni til þess að láta sér líða betur. Ef menn fara að fikta við lyf á borð við LSD undir slíkum kringumstæðum getur það leyst geðsjúkdóma úr læðingi. Við sáum líka tilfelli þar sem fólk var lagt inn mörgum mánuð- um eftir að það var hætt neyslu. Sum þessara efna bindast eggja- hvítuefnum blóðsins og eru óvirk um tíma en verða síðan virk aftur. Geðræn starfsemi byggist á flókn- um efnaskiptum í heilanum og það þarf ekki mikið til þess að breyta þessum efnaskiptum varanlega. Amfetamín er „gamalt vímu- efni“, sagði Jóhannes. Hér áður fyrr var algengt að það væri tekið með áfengi. Sjómenn gerðu þetta oft til þess að geta drukkið lengur og margir lentu inni á deildum fyrir vikið því þetta flýtti fyrir því að þeir yrðu háðir hvoru tveggja. Eg tel að misnotkun á amfetamín' sé ekki meiri núna en hún var þeg- ar mest var á árum áður.“ Amf- etamín hefur verið eftirritunar- skylt lyf í nokkur ár og erfitt að nálgast það eftir löglegum leiðum en Jóhannes kvaðst ætla að því hefði einnig verið smyglað inn í landið í stórum stíl fyrr á árum. „Amfetamín er mjög vanabind- andi,“ sagði hann. „Líkaminn myndar þol gagnvart því og einnig kemur til sterkur andlegur ávani. Eftir að neyslunni er hætt kemur síðan þunglyndi, sökum þess hve nærri sér menn hafa gengið. Við vitum að töluvert af amfetamíni og jafnvel kókaín er á markaðn- um. Hins vegar höfum við ekki orðið vör við að sala á morfíni sé í gangi en ég veit ekki hve lengi það helst. Annars er öll aðstaða til þess að greina hvað fólk hefur verið að taka slæm,“ sagði Jóhannes. „Við höfum ekki aðstöðu til fljótvirkrar greiningar á efnum í blóði. Með- ferðin situr í fyrirrúmi og því verða rannsóknir að sitja á hakan- um. Stundum vilja sjúklingar ekki gefa upp hvað þeir hafa verið að taka, heldur nefna það, sem þeir vita að veldur mestum fráhvarfs- einkennum af því að þeir vita að við getum dregið úr þeim með lyfj- um. Svo veit fólk oft ekki hvað það hefur verið að innbyrða. Það held- ur t.d. að það hafi verið að taka kókain en þá hefur því oftar en ekki verið selt annað efni.“ „Áfengi er dæmigert ávana- og fíkniefni“ í greinaflokki Mbl. hefur aðal- lega verið fjallað um þá vímu- gjafa, sem falla utan ramma lag- anna en það breytir ekki þeirri staðreynd að þeir eru margfalt fleiri, sem í dag eiga að stríða við misnotkun vímugjafa sem þeir geta orðið sér úti um með full- komlega löglegum hætti. „Áfengið gengur eins og rauður þráður í gegn um alla misnotkun vímu- gjafa," segir Jóhannes Berg- sveinsson og bætir við: „Áfengi er ekki eins saklaust og margir virð- ast halda, það er dæmigert ávana- og fíkniefni og afleiðingarnar af ofneyslu þess geta orðið eins slæmar og af hvaða eiturlyfi sem er.“ Misnotkun róandi lyfja af ýms- um gerðum hefur einnig tíðkast um langt skeið meðal fólks úr öll- um stéttum, á öllum aldri. „Versta dópið er ekki að finna í okkar hópi,“ segir tvítugur hassneyt- andi, „... heldur meðal hinna „duldu“ fíkniefnaneytenda, sem sitja inni á stofnunum eða heima hjá sér og bryðja pillur, sem þeir fá í hjá læknum." Sitthvað er til í þessum orðum og víst er, að í við- tölum við þá, sem höfðu orðið háð- ir fíkniefnum á unga aldri, kom oft fram að þeir höfðu byrjað þar sem heimatökin voru hægust: í l lyfjaskáp foreldranna. Jóhannes Bergsveinsson telur lækna vera orðna mun meðvitaðri en áður um hættuna þegar lyfjaútskrift er annars vegar og bendir á að alltaf hafi verið töluvert um smygl á lyfjum h.s. barbítúrötum (þ.e. sterkum róandi lyfjum) og amfetamíni til landsins, eins og þegar hefur komið fram. Algengustu „kokkteilarnir“ Þau lyf, sem algengast er að fólk blandi saman og misnoti, tveir „algengustu kokkteilarnir", eins og Jóhannes orðar það, eru róandi lyf og áfengi og róandi lyf og hass. Það sem J.B. hefur að segja um hass hefur þegar komið fram en um blönduna af róandi lyfjum og áfengi segir hann: „Það er afar hættuleg blanda, slævir heilann og getur valdið lömun á bráðnauð- synlegum stöðvum. Sérstaklega eru barbítúrötin hættuleg en þau lyf eru nú eftirritunarskyld og minna misnotuð en áður fyrr. Þó er enn töluvert um að lyf á borð við t.d. fenemal séu misnotuð. Þegar blm. ræddi við hóp unglinga á aldrinum 13 til 16 ára og spurði skil ekki fólk sem í mis- skildum „töffara- skapu er að ræna sig því dýrmæt- asta sem það á.“ amfetamín og kókaín eru margfalt auðveld- ari í meðförum en kannabis og skila allt að tífalt meiri gróða.“ þau m.a. hvort eitthvað væri um fíkniefnaneyslu meðal jafnaldra þeirra, var algengasta svarið eitthvað á þessa leið: „Já, sérstak- lega áfengi." Þessi afstaða ungl- inga til áfengis ætti að vera for- eldrum umhugsunarefni því hún bendir til þess að unglingar í dag geri ekki jafnmikinn greinarmun á áfengi og öðrum vímugjöfum og áður. Þeir foreldrar, sem e.t.v. neyta áfengis ótæpilega í viðurvist barna sinna, eiga því á hættu að minna mark verði á þeim tekið en ella, er þeir hyggjast beina ung- viðinu frá fíkniefnum, í hvaða mynd sem er. „Sniffið", þ.e. lím, þynnir og þef- efni ýmiskonar, virðist sem betur fer hafa dottið upp fyrir að mestu eftir að „krakkarnir gerðu sér grein fyrir hvað það var hættu- legt“, eins og flestum ungling- anna, sem rætt var við, bar saman um. „Nú eru það sjóveikipillurn- ar,“ bætti einn við. Nokkrir voru lagðir inn á meðferðarstofnanir eftir að hafa „sniffað" á sl. vetri. Þefefnin eru stórskaðleg og geta valdið heilaskemmdum. Fari svo, segja læknar batahorfur slæmar. „Aldurinn kominn býsna neðarlega“ Á undanförnum árum hefur verið gert mikið átak í málefnum áfengissjúklinga hér á landi. Það átak ber ekki að vanmeta en það er staðreynd að „kerfið" er í dag illa í stakk búið til þess að takast á við vandann, sem hlýst af neyslu annarra vímugjafa. „Misnotkun vímugjafa er alltaf að aukast," segir Jóhannes Bergsveinsson, yf- irlæknir. „Við fáum daglega fleiri einstaklinga inn á meðferðar- stofnanir ríkisins en við getum sinnt og okkur skortir tilfinnan- lega rannsóknaraðstöðu og deild til „afeitrunar". Aldur sjúkl- inganna er kominn býsna neðar- lega. Þeir yngstu eru 16—17 ára, sem þýðir að misnotkunin hefur byrjað fyrr og það er aðkallandi að komið verði upp unglingageð- deild. Vandinn er sá að það er erf- iðara og timafrekara að með- höndla svo ungt fólk og til þess þarf meiri mannafla en við höfum yfir að ráða. Það er svo margt sem þarf að taka inn í dæmið þegar um unglinga er að ræða.“ Er Jóhannes var spurður í hverju meðferð á ungum sjúklingum fælist sagði hann: „Við reynum að mynda við þá sem best tengsl, styðja þá og hjálpa þeim að öðlast innsýn í sig og sinn vanda. En okkur vantar aðstöðu til þess að fylgja meðfe- rðinni eftir. Til að hægt sé að bæta fyrir þá röskun, sem hefur orðið á námi þeirra og vinnuþjálf- un. Til að sinna þessum mikilvægu þáttum þyrfti sérhæfðar stofnanir þar sem mannleg samskipti sætu í fyrirrúmi." Aðspurður hvað væri erfiðast í meðferðinni, sagði Jó- hannes: „Að vekja áhuga þeirra á að vera þátttakendur í lífi og starfi þjóðarinnar. Þau standa oft höllum fæti og hafa glatað þeim tækifærum til þess að undir- byggja líf sitt og lífsstarf, sem þau hafa fengið. Oft vegna þess að þau hefur skort skilning á þessum tækifærum. Því meira sem foreldrar varpa ábyrgðinni yfir á opinberar stofn- anir því meiri hætta er á að illa fari. Á hinn bóginn eru margir foreldrar knúnir til þess að fela öðrum forsjá barna sinna í æ rík- ari mæli á meðan þeir vinna myrkranna á milli til þess að eiga fyrir lífsgæðunum og standast kröfurnar," sagði Jóhannes Bergsveinsson. StofnaÖur starfshópur Það er skammt öfganna á milli í umræðum um fíkniefnaneyslu. „Ýmsir gera meira úr vandamál- inu en efni standa til, aðrir minna,“ segir Gísli Björnsson, fulltrúi í fíkniefnadeild lögregl- unnar, í Mbl. þ. 8. september sl. og bætir við að þróun fíkniefnaneyslu síðustu tíu ár hér á landi hafi orð- ið eins og spáð var; við fylgjum á eftir hinum Norðurlöndunum og að ástæða sé til þess að óttast „hættulegri efni sem í vaxandi mæli hafa verið að ryðja sér rúms erlendis". Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi sem starfar við útideild, segir að hér ríki sinnuleysi um þessi mál og bendir á að þegar Norðmenn loksins tóku við sér hafði vandinn vaxið þeim yfir höfuð. En þeir að- ilar, sem hvað helst ættu að geta sinnt vandamálum sem af fíkni- efnaneyslu unglinga geta hlotist, s.s. útideild sem starfar meðal unglinga milliliðalaust, búa við fjársvelti og óviðunandi aðstæður á flestan hátt. Um þessar mundir er að hefja störf starfshópur, sem í eiga sæti fulltrúar hinna ýmsu aðila, sem að þessum málum starfa, s.s. útideildar, unglinga- heimilisins í Kópavogi, fíkniefna- lögreglunnar og skilorðseftirlits- ins. Stofnun slíks hóps var löngu orðin tímabær og verður fróðlegt að sjá að hvaða niðurstöðum hann kemst þegar þar að kemur. ________Hver er sekur?___________ Menn getur endalaust greint á um „sekt“ samfélagsins svo vítt sem það hugtak nú er, þegar vandamál á borð við misnotkun vímugjafa er annars vegar. Það þarf ekki félagsfræðing til þess að fullyrða að „fíkniefnaneysla sé samspil milli einstaklings og um- hverfis hans“. (E.Ó. Mbl. 9. sept- ember). Það segir sig sjálft að hún hlýtur að vera hluti af stærra samhengi líkt og flest mannlegt atferli. Sem betur fer er því ekki þannig farið að allir, sem af forvitni fikta við vímugjafa, verði forfallnir eit- urlyfjaneytendur. Það vita ungl- ingar jafnt sem aðrir. En á hinn bóginn ætti jarðvegurinn fyrir raunhæfa fræðslu um þessi mál að vera frjósamari í dag en fyrir nokkrum árum, þegar viss geð- hrifalyf voru sveipuð dularfullum Ijóma í hugum margra. En fræðsl- an þarf að koma snemma og hún þarf að vera á máli, sem þeir, sem henni er beint, að skilja. Flestir framkvæmdaaðilar í þjóðfélaginu telja sig hafa öðrum hnöppum að hneppa en að sinna því, sem hlýt- ur að flokkast undir frumþætti allra fyrirbyggjandi aðgerða. Lög- reglan sér um að koma þeim, sem neyta efnanna og/eða smygla þeim, á bak við lás og slá, heil- brigðisstofnanir sinna þeim, sem verst fara út úr neyslunni. En stærsta fyrirbyggjandi aðgerðin hlýtur að felast í því að skapa samfélag þar sem þörfin fyrir flótta frá raunveruleikanum fer ekki sívaxandi, eins og nú er raun- in. Hvers konar samfélag er það sem meðhöndlar ungviði sitt eins og óþörf og jafnvel óvelkomin aðskota- dýr? Flestum þeim aðilum, er að unglingamálum starfa, ber saman um að í landinu sé að vaxa upp kynslóð, sem enginn má vera að því að tala við. í vestrænum nágrannalöndum okkar er skuldinni af fíkniefna- neyslu skellt á atvinnuleysi og vonleysisástand sem því fylgir. Því er sem betur fer ekki til að dreifa hér á landi nema þá helst meðal unglinga, eins og bent hefur verið á. Á hátíðlegum stundum er talað um „fólkið sem á að erfa landið" í sama tón og aldamóta- kynslóðin er lofsungin við svipuð tækifæri. Staðreyndin er hins veg- ar sú, að milli hátíðlegra tækifæra eru báðir hópar afskiptir og mið- aldra kynslóðin er búin að koma sér og okkur, sem eigum að erfa landið, upp þjóðfélagi þar sem vinnuálagið er slíkt að helst væri leitandi niður í suður-afrískar kolanámur til að finna hliðstæðu, þó að hér sé umgjörðin að sjálf- sögðu fegurri. Einhversstaðar á leiðinni urðu mannleg samskipti utanveltu, kyn- slóðirnar hættu að tala saman og nú hrekkur sú miðaldra upp við vondan draum og heimtar lögreglu á börnin sín! Hitt er svo annað mál að fátt gerir mannlegum samskiptum meira ógagn en neysla fíkniefna og vilji menn breyta heiminum er sú uppreisn, sem einhverjum kann að finnast að felist í vímugjöfum, harla máttlítil; — vopn, sem snýst í höndum þess er á heldur. Ef til vill felst vottur af ungæð- islegri sjálfsvorkunn, svo ekki sé talað um vanþakklæti, í því að skella skuldinni á kynslóðina sem gaf okkur vídeóið og virkjanirnar. „Hver er sinnar gæfu smiður," eins og þar stendur. En svona orðaði einn viðmælandi Mbl. af yngri kynslóðinni viðhorf sín til fíkniefnaneyslu: „Það býr svo margt innra með okkur, sem ljóst og leynt er drepið niður, í skóla, uppeldi o.s.frv. Þar á meðal er hæfileikinn til að tjá tilfinningar. — Ég held að það stæði okkur nær að brjóta þessa slagbranda niður í stað þess að taka sjálf þátt í að smíða þá. Ég skil ekki fólk sem í misskild- um „töffaraskap" er að ræna sig því dýrmætasta sem það á; hæfi- leikanum til að horfast í augu við sjálft sig — og aðra — með óbrengluð skilningarvit."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.