Morgunblaðið - 24.10.1982, Qupperneq 48
^^kriftar-
síminn er 830 33
TUDOR
rafgeymar
„já þessir meá 9 líf”
SKORRIHF
Laugavegi180, slmi 84160
SUNNUDAGUR 24. OKTOBER 1982
Björgun á síðustu stundu við Hælavíkurbjarg:
99
Okkur rak stjórnlaust
að þverhníptu bjarginu“
-•>'’x'x• 'X■• -• •,
(iunnlaugur Finnsson
Ægir llafslcinsson, skipverji á Sif.
„I>KTTA var eins og sprenging — brotið reið yfir stjórnborðsmegin af
feiknarþunga og báturinn lagðist á hliðina. Brúarvengurinn mölbrotnaði
og brúin fylltist af sjó, svo og vélarrúmið og sjór fór í lestina. Ég var í
klefa skipstjórans og kastaðist á brik þar. Guðbjörn skipstjóri, sem var í
brúnni, hlaut mikið höfuðhögg og rotaðist. Öll Ijós fóru af bátnum, en til
allrar hamingju drapst ekki á vélinni — þá hefði verið úti um okkur,“
sagði Ægir llafsteinsson, skipverji á Sif, liðlega 80 tonna vélbát frá
Klateyri, í samtali við Mbl. um borð í varðskipinu Tý á ísafirði í gær. Sif
fékk á sig brotsjó undan Hælavíkurbjargi á tíunda tímanum í gærkvöldi.
„Ég var niðri í lúkar þegar
brotsjóinn reið yfir bátinn,"
sagði Gunnlaugur Finnsson,
fyrrum þingmaður og útgerðar-
stjóri bátsins, en hann var
skráður háseti. Skipverjar voru
þrír, voru að koma með bátinn
frá Siglufirði þar sem hann
hafði verið í slipp.
„Öll ljós fóru af bátnum en
okkur tókst að halda sjó undan
Hælavíkurbjargi um nóttina.
Myrkrið grúfði sig yfir og eina
Ijósglætan sem við gátum notast
við var frá kveikjara, sem við
höfðum. Við reyndum að lagfæra
það sem farið hafði úrskeiðis.
Við vorum sambandslausir,
þar sem talstöðin fór úr sam-
bandi, en við reyndum að láta
vita af okkur með neyðartalstöð-
inni. Bæjarfoss sigldi svo fram á
okkur um fimmleytið og reyndi
að koma taug yfir til okkar, en
ekki tókst betur til en svo, að
taugin fór í skrúfu skipsins — og
skömmu síðar urðum við einnig
vélarlausir og okkur rak stjórn-
laust að þverhníptu bjarginu.
Varðskipið Týr kom þá á vett-
vang og þeir náðu að koma taug
yfir til okkar og forða okkur frá
að reka upp í bjargið," sagði
Gunnlaugur.
„Útlitið var ekki gott þegar við
komum á staðinn — haugasjór
og norðaustan 6—7 vindstig.
Bæjarfoss iá vélarvana við ank-
eri og Sif var komin upp fyrir
Bæjarfoss og rak stjórnlaust að
landi. Rétt um klukkan sjö tókst
okkur að koma taug yfir í Sif. Þá
var báturinn 0,7 sjómílur frá
landi og við drógum Sif út fyrir,“
sagði Gunnar Ólafsson, skip-
herra á varðskipinu Tý, í samtali
við Mbl.
„Þar tók Örn frá Keflavík Sif í
tog, því við þurftum að fara Bæj-
arfossi til aðstoðar — vera til
taks ef ekki tækist að losa taug-
ina úr skrúfu skipsins. Þeim
tókst að siíta taugina að mestu
úr skrúfunni og sigldu fyrir eig-
in vélarafli til Flateyrar. Undir
Grænuhlíð tókum við skipverja
af Sif um borð til okkar og sigld-
um inn til ísafjarðar," sagði
Gunnar Ólafsson.
Týr kom með skipverjana inn
til Isafjarðar um klukkan hálf-
tólf í gærmorgun. Þar beið
sjúkrabíll og flutti Guðbjörn
Sölvason skipstjóra á sjúkrahús-
ið á ísafirði. Hann skarst í and-
liti, fyrir ofan augnabrún, og tal-
ið var að hann hefði axlarbrotn-
að.
Sif í togi á leið til ísafjarðar.
Myndir Mbl. RAX.
Fastari viðskiptareglur innlánsstofnana við Seðlabanka I gildi 1. nóvember:
Refeivextir geta farið í 300%
Innlánsstofnanir verða að draga verulega úr útlánum
FASTARI reglur um viðskipti innlánsstofnana við Seðlabanka íslands taka
væntanlega gildi 1. nóvember nk., en þær munu hafa það í fór með sér, að
innlánsstofnanir verða að draga verulega úr útlánum á næstu mánuðum,
meira en þar hafa gert frá því í vor, þegar útlánareglur þeirra voru hertar.
Þessar nýju reglur virka eins og
nokkurs konar viðvörunarkerfi.
Um er að ræða 15 þrep í viðskipt-
unum. Innlánsstofnanirnar munu
samkvæmt reglunum fá viðvörun
við 5. þrep og síðan aftur við 10.
þrep og síðan ef yfirdráttur stofn-
ananna fer upp í efstu þrep verður
hreinlega lokað á þær.
Innlánsstofnanir geta því ekki
haldið endalaust áfram að draga á
Seðlabankann einfaldlega með því
að borga hærri vexti. Samkvænit
þessum nýju reglum er gert ráð
fyrir því, að refsivextir í hæstu
þrepum nálgist 300%, en sam-
kvæmt upplýsingum Mbl., er nán-
ast ógerningur fyrir innláns-
stofnanir að standa skil á slíkum
vöxtum.
Samkvæmt reglunum er síðan
gert ráð fyrir því, að viðkomandi
innlánsstofnun, sem lendir í vand-
ræðum, hafi um það samvinnu við
Seðlabankann hvernig bezt verður
komizt út úr ógöngunum með við-
unandi hætti.
Staða bankanna gagnvart
Seðlabankanum hefur versnað
verulega á undanförnum mánuð-
um og má í því sambandi nefna, að
staða þeirra var neikvæð um 774
milljónir króna í ágústlok, en var
til samanburðar jákvæð um 87
milljónir króna á sama tíma í
fyrra.
Af framangreindu má vera
ljóst, að nokkur fjármagnsskortur
er yfirvofandi í atvinnulífinu og
hjá einstaklingum næstu mánuð-
ina, þar sem ljóst er, að eðlilegt
jafnvægi kemst ekki á í málefnum
innlánsstofnana fyrr en eftir
nokkuð langan tíma. Reyndar fór
að gæta fjármagnsskorts þegar í
vor, eftir að innlánsstofnanir
hertu útlánareglur sínar.
Loks má geta þess, að ríkis-
stjórnin hefur nú til meðferðar
tillögur stjórnar Seðlabankans um
8—9 prósentustiga hækkun al-
mennra vaxta, til samræmís við
verðbólgustig í landinu.