Morgunblaðið - 11.12.1982, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.12.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 3 r Frá bískupi Islands: „Friðar-jól“ um víða Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, með bæklinginn „Peace on Earth“ (Friður á jörð) sem dreift er um allan heim fyrir þessi jól. KIRKJA Krists um víða veröld er kölluð til einingar um boðun friðar á aðventu og jólum. Hér er um að ræða sameiginlega dagskrá kirkju- deilda um allan heim sem sprottin er af starfi söfnuða kaþólskra og mótmælenda í Genf í Sviss árið 1979. Svo segir í fréttatilkynningu frá biskupsembættinu: „Fyrir nokkrum árum byggðu söfnuðir kaþólskra og mótmæl- enda saman kirkjumiðstöð í Genf. Eitt af hinum sameigin- legu verkefnum safnaðanna var að endurbyggja sjúkrahús. Til að lýsa samstöðu sinni var ákveðið að tendra samtímis jólaljós á að- fangadagskvöld árið 1979 á heimilum þess borgarhluta sem söfnuðirnir þjónuðu. Var það gert þannig að fólkið hélt ljósinu út að glugganum og lét það þannig lýsa út til nágrannans. Kjörorðið var „Friðar-jól“. Þessi einfalda og látlausa at- höfn hafði geysileg áhrif. Dimmt og drungalegt borgarhverfi um- myndaðist á svipstundu. Heilagt jólaljósið og uppljómun borg- arhlutans greip hugi manna og staðfesti þá , samstöðu sem myndast hafði. A næstu jólum gerðist hið sama. Hreyfingin um friðar- jólin náði brátt mikilli út- breiðslu og líknarþjónustan varð víðtækari. Og riú hafa kirkju- deildir um víða veröld lýst áhuga á þátttöku." Það er þrennt sem er samein- ast um, dagana 12., 19. og 24. desember: Til friðar á jólum. Ákall frá kirkjum heimsins um aðgerðir til friðar á aðventu og jólum. 1. 12. des.: 3. sunnudagur í að- ventu. í nánd jóla: Boðskapur um réttlæti og frið fluttur við guðs- þjónustur. 2. 19. des.: 4. sunnudagur í að- ventu. Alþjóðlegur Töstu-dagur: Hvatt til þess að menn fasti a.m.k. eina máltíð til að votta iðrun sína og samstöðu með þeim er minnst mega sín. Teng- ist hérlendis söfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, — en gíróseðlar hennar hafa þá borist inn á hvert heimili. Hvatt er til þess að andvirði máltíðarinnar renni til H.K., sem safnar fyrir sveltandi fólk. Tekið er á móti framlögum við guðsþjónustur. 3. 24. des.: Aðfangadagskvöld kl. 20.30. Tendrað friðarljós á heimil- um, í giugga eða utandyra, svo birtu þess beri til náungans, — sem tákn vonar og vináttu allra manna nær og fjær. „Boðun friðar hefur auðvitað alltaf verið einn megintilgangur kirkjunnar," sagði herra Pétur Sigurgeirsson, biskup, á fundi með blaðamönnum í gær. „En á síðustu tímum hefur borið meira á þessum boðskap en oft áður. Hvers vegna? Vegna þess myrk- urs sem nú grúfir yfir heimin- um. En myrkrið gerir ljós kirkj- unnar skærara. Krafa um frið er mikilvægasta krafa samtímans. Þess vegna hafa kirkjunnar menn um allan heim tekið hönd- um saman um að gera „Frið á jörðu" að kjörorði jólanna núna.“ Biskup sagði að annað megin- verkefni íslensku kirkjunnar nú á aðventu og jólum væri söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar. Á þessum tíma árs hefur H.K. haft það að reglu að hvetja fólk til þjónustu við þá köllun kirkjunn- ar að hjálpa nauðstöddum. Herra Pétur Sigurgeirsson hefur skrifað ávarp sem hefur verið sent inn á hvert heimili á landinu ásamt gíróseðli þar sem veröld fólk er hvatt til að leggja sitt af mörkum til hjálpar þeim sem við nauð búa. Ávarpið er svohljóð- andi: „Ég ávarpa þig, sem lest þess- ar línur, fyrir hönd Hjálpar- stofnunar kirkjunnar og bið þér blessunar Guðs. „Náð, miskunn og friður frá Guði föður, og Kristi Jesú, Drottni vorum." (2. Tím. 1, 2.). Eins og fyrr á jólaföstu minnir Hjálparstofnunin á sig og hlut- verk sitt, neyðarhjálpina í heimi hungurs og örbirgðar. Margir hafa haft þann sið við undirbún- ing jólanna á undanförnum ár- um að styðja líknarstarf kirkj- unnar. Með ávarpsorðum mínum vænti ég þess, að þú gerir slíkt hið sama á þessari jólaföstu. Augljóst er, að kristið samfé- lag er kallað til hjálpar náung- anum í neyð hans og þjáningu. Kristur kenndi það með fordæmi sínu, lífi og fórn. Hinn fórnandi kærleikur kristindómsins er í líkingu talað saltið, sem Kristur minnist á í fjallræðunni (Matth. 5. 13.). Ef mannkærleikurinn dvínar, verður hann líkt og salt- ið, sem dofnar. Hvaðan fá krist- in sjónarmið og kristið siðgæði líf sitt og kraft, ef kærleikann vantar? „Þér eruð salt jarðar." Hjálparstofnunin er opin leið til þess að vera sameiningarafl og kraftur til hjálpar. Það hefur íslenska þjóðin margoft sýnt með fórnargjöfum sínum og stuðningi við þessa stofnun. Jólafastan er farvegur Guðs líknar og miskunnar. Guð kallar á okkur til þjónustu í kærleika sínum. Þess eðlis þarf undirbúningur jólanna að vera.“ 890 lóðum undir ein- býli úthlutað ÞÆR .1617 íbúðalóðir sem til ráð- stöfunar verða í Reykjavík á næsta ári skiptast þannig á milli byggingar- svæða að 890 lóðir eru í Grafarvogi, 30 við Jaðarsel, 150 á Ártúnsholti, 100 í nýjum miðbæ og 267 í Selási. Af fyrrgreindum 1617 lóðum eru 180 lóðir í Selási, en þær eru í eigu Gunnars Jenssonar og verða þær söluhaTar 1983. Lóðirnar skiptast þannig að 750 einbýlishúsalóðir eru í Grafarvogi og einnig 90 raðhúsalóðir og 50 fjölbýlishúsalóðir. Við Jaðarsel eru 30 einbýlishúsalóðir, á Ár- túnsholti koma til úthlutunar lóð- ir fyrir 150 íbúðir í fjölbýli og í nýjum miðbæ koma 100 fjölbýlis- húsalóðir til úthlutunar. Á Selási verður úthlutað 77 einbýlishúsa- lóðum, 118 raðhúsalóðum og 72 fjölbýlishúsalóðum. Lóðir Gunnars Jenssonar skipt- ast þannig að 33 þeirra eru fyrir einbýlishús, 75 fyrir raðhús og 72 íbúðir verða í fjölbýlishúsum. Því verður um að ræða, að lóð- um Gunnars Jenssonar meðtöld- um, 890 einbýlishúsalóðir, 283 raðhúsalóðir og 444 íbúðir í fjöl- býlishúsum. Dregið í Olymp- íuhappdrættinu DREGIÐ var í Ólympíuhappdrætt- inu 4. desember sl. undir eftirliti borgarfógeta, segir í frétt frá Ólympíunefnd íslands. Vinningar komu á eftirtalin númer: BMW 315: 121321, 160209. Buick Skylark: 45904,132134. Escort GL: 155456, 21452, 230667. SAAB 900 GL: 231073, 69286. Suzuki Fox: 164219,116156, 256470. Öðruvísi húsgögn Opiö í dag laugardag til kl. 18 Opið á morgun sunnudag frá kl. 14—18 ■■I rvOOT húsgögn eru vestur-þýzk gœðavara á góðu verðifyrir hina svokðlluðu húsgagna- fagurkera, - | Rúm, borðstofuhúsgögn, sófasett, smáhlutir s.s. lampar o.mfl. Þú getur búið íbúðina alla í þessum sérstæða stíl — og haft heimili þitt öðruvísi — en þetta vanalega, o? Armúla 44 Símar 32035 — 85153

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.