Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
11
HfíMAR
„Heimar"
Jólatrén
erukomin!
Falleg og fjölbreytileg
■■■■
— Skáldsaga eftir Sig-
urö Á. Friðþjófsson
SKUGGSJÁ hefur sent á markað
bók eftir ungan Hafnfírðing, Sigurð
Á. Friðþjófsson. Er það skáldsaga,
sem höfundur hefur gefíð nafnið
„Heimar“.
„Heimar er á engan hátt hefð-
bundin skáldsaga, til þess eru
þræðir sögunnar of margir og of
laustengdir, með snertipunkta í
raunveruleika, þjóðsögu, draumi
og ímyndun. Sérhver kafli sögunn-
ar stendur sem sjálfstæð heild, er
heimur út af fyrir sig, en þó í beinu
samhengi við aðra heima frásagn-
arinnar," segir m.a. í frétt frá út-
gefanda.
„Sagan segir frá Ágústi. Hann
er af hernámsárakynslóðinni,
fæddur árið sem íslendingar und-
irrituðu hernámssamninginn við
Bandaríkjamenn. Ágúst er átta-
villtur í tilverunni, hann trúði því
sem unglingur að lífið hefði upp á
allt að bjóða, aðeins þyrfti að
beygja það undir sig og móta að
eigin geðþótta. í sögulok er hann
hinsvegar reynslunni ríkari."
35 farast
í flugslysi
i Chile
Santia^o, ('hile, 9. desember.
CHILEÖNSK flugvél hrapaði í dag
við (lugvöllinn í La Serena er hún
undirbjó lendingu. Þrjátíu og fimm
manns voru um borð og létu allir
lífíð.
Vélin, sem var af Fairchild-
Turboprop-gerð frá Aeronor-
flugfélaginu var í áætlunarflugi
frá Santiago. Mikill eldur kom upp
í vélinni er hún hrapaði til jarðar
og reyndust allir um borð látnir er
að var komið.
Nú er gaman að vera til. Allt er fullt hjá okkur
af fallegum jólatrjám af öllum gerðum.
Norðmannsgreni eða Norðmannsþynur.
Lang-barrheldnasta jólatréð á markaðnum.
Dökkgrænt og fallegt á litinn.
Rauðgreni. Mikið úrval af þessum fallegu og
ódýru jólatrjám.
Eigum einnig gott úrval af öðrum tegundum
sem alltaf eru vinsælar, t.d. Omórika, blá-
greni, fjallafura ofl.
Komið í Blómaval, gangið um jólatré-
skóginn og veljið jólatréð við bestu
aðstæður inni sem úti.
Leggjum áherslu á góða þjónustu og
vandað val á jólatrjám.
bl^ncwcíl
GróÖurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340
felagiORÐ
ENNEITT
BÓKMENNTAAFREK
MATTHIASAR JOHANNESSEN
I þessari brik, Félagi orð, eru greinar, samtöl og Ijóð frá jmsum
tímum sem höfundur hefur nú safnað saman í eina Inik. Sumt af
þessu efni hefur áður birst á prenti, en annað ekki. í bókinni eru
greinar um bókmenntir og stjórnmál, og m.a. áður óbirtar frásagnir
af sovésku andófsmönnunum Brodský, Búkovskv og Hostropovits,
sem allir hafa komið hingað til lands, en eru heimsþekklir hver á sínu
sviði. Fjölmargir íslenskir og erlondir menningar- og stjórnmálamenn
koma við sögu í bókinni. Kaflaheitin gefa nokkra hugmynd um
verkið: Af mönnum og málefnum, l'ndir „smásjá hugans“ (af
Buckminster Fuller), Hispur, Bréf til (íils (Guðmundssonar fyrrum
alþingismanns sem vöklu mikla athygli á sínum tíma), Andóf og
öryggi og Vetur á næstu grösum, en þar eru áður óbirt Ijóð Matthías-
ar sem tengjast efni iMÍkarinnar með sérstökum hætti.
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTR4ETI 27 — SÍMI 13510