Morgunblaðið - 11.12.1982, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.12.1982, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 „Skyldu bátar mínir róa í dag?“ eftir Halldór Blöndal alþm. Sagan af Árna í Botni er al- kunn. Hann var allra sveita kvik- indi og bjó á argasta koti í Helga- fellssveit. Þar sér hvorki sól né sumar. Einhverju sinni bjó hann sig út með nesti og nýja skó, lagði á drógar sínar og hélt suður á land, svo langt að enginn þekkti Árna í Botni. Hann kom loksins að stóru og reisulegu prestssetri og var þar um nótt. Presturinn átti unga og fríða dóttur. En þegar Árni vaknaði og skyggndist til veðurs, sagði hann við sjálfan sig: „Og skyldu þá bátar mínir róa í dag?“ Þetta sagði hann eður ann- að þvílíkt þrjá morgna í röð, svo prestur hélt að þar væri kominn stórhöfðingi að vestan og er ekki að orðlengja, að hann fékk prestsdóttur. — Um sambúð þeirra er ekki getið. Sumpart og sumpart ekki Nú liggur við borð öðru sinni á röskum þrem mánuðum að útgerð- in stöðvist. Að þessu sinni var hættumerkið gefið á Húsavík, sem er athyglisvert fyrir þá sök, að einmitt þar fengu aðgerðir LÍÚ í september hvað minnstar undir- tektir eins og orð Kristjáns Ás- geirssonar forstjora Höfðá hf., í Þjóðviljanum 17. sept. sl. gáfu til kynna: „Þótt það sé vissulega erf- itt að haida skipunum úti, þá höf- um við enn minni efni á að stöðva þau. Það yrði allt í kaldakoli hér í atvinnumálum ef við stöðvum.“ I ljósi þess, sem síðan hefur gerst, er borðleggjandi, að báðir togarar Höfða hf. væru löngu bundnir við bryggju, ef þær lag- færingar hefðu ekki náðst á rekstrargrundvelli útgerðarinnar, sem LIÚ knúði fram. Deilan við LIÚ leystist með þeim hætti, að nokkur hækkun fékkst á fiskverði' og olían er niðurgreidd til áramóta. Gefin voru fyrirheit um víðtæká skuldbreytingu, sem sumpart hef- ur verið efnt og sumpart ekki, enda yrði tíminn til áramóta notaður til þess að finna leiðir til þess að ná því jafnvægi í efna- hagsmálum að fiskiskipastóllinn gæti gengið án styrkja eða hallær- islána á næsta ári. Engin lausn í sjónmáli Ég skal ekki rekja í einstökum atriðum þá hringavitleysu, sem skuldbreytingin er orðin. í stuttu máli er sagan sú, að ríkisstjórnin og sjávarútvegsráðherra hafa gef- ið fyrirheit um að lánin megi nema allt að 10% af vátryggingar- verði fiskiskips og nái til helztu viðskiptaaðila útgerðarinnar. Seðlabankinn bindur sig við 7% og neitar að taka olíuskuldir inn í dæmi. Ekki er ljóst, hvar slipp- stöðvar og veiðafæraverslanir standa. Þetta veldur margvísleg- um erfiðleikum, þar sem útgerð- armenn höfðu tekið orð sjávarút- vegsráðherra trúanleg og miðað greiðsluáætlanir sínar við þau. Auðvitað er það rétt, að skuldbreyting út af fyrir sig bætir ekki efnahag fyrirtækjanna, en hún lagar greiðslustöðuna í bili. Meðan verið er að greiða lánin upp verkar hún eins og venjuleg rekstrarútgjöld, svo að útgerðin þarf meira til sín en ella myndi. Þannig eykur undangenginn hallarekstur á þann vanda, sem við /stöndum nú frammi fyrir vegna minnkandi afla og erfiðari markaðsaðstæðna en áður. Því miður er það svo, að þess sjást engin merki, að ríkisstjórnin sé nálægt því að finna frambúð- arlausn á vanda útgerðarinnar. Það hefur að vísu kvisast, að „Við getum ekki látið við það sitja að greiða niður rekstrarkostnað útgerðar- innar. Iðnaðurinn kemur á eftir og svo koll af kolli. niðurgreiðslunum á olíunni eigi að halda áfram eftir áramotin, en hagur ríkissjóðs er svo bágborinn, að það getur ekki gerst án aukinn- ar skattheimtu. Og svo er talað um niðurfellingu á opinberum gjöldum, eftir því sem mér er sagt. Nú veit það hvert mannsbarn á íslandi, að sjávarútvegurinn er bakfiskurinn í þjóðfélagsgerð okkar. Við getum skilið það, að út- flutningsbætur séu greiddar á landbúnaðarvörur og vitum hvað- an þær eru komnar. En hver er þess megnugur á landi hér að halda sjávarútveginum uppi? Spyr sá, sem ekki veit. Iðnaðurinn stendur höllum fæti í þeim löndum, þar sem stjórn- málamenn þykjast ekki sitja einir með alla visku veraldar, er stjórn gjaldeyris- og efnahagsmála hag- að þannig, að J>eÍE,_atvinnuvegir, sem búa yfir mestri arðsemi, eru látnir bera sig. Hér á landi hefur útflutnings- og samkeppnisiðnað- inum aldrei þýtt að keppa við sjávarútveginn. Ef við ætlum nú að greiða útgerðarkostnaðinn niður til langframa, vaknar óðar sú spurning: Hvað verður um iðn- aðinn? Hann hefur átt undir högg að sækja af ýmsum ástæðum, enda svo komið, að hann hefur dregist saman fremur en hitt. Það er óralangt í það, eins og sakir standa, að hann geti orðið sá vaxt- arbroddur sem tekur við því unga fólki, sem bætist við á vinnu- markaðinn á ári hverju. Það er því öldungis víst, að við getum ekki látið við það sitja að greiða niður rekstrarkostnað útgerðarinnar, ef út í það verður farið. Iðnaðurinn kemur á eftir og svo koll af kolli. Og þá er skammt í þjóðnýtingu allra fyrirtækja í landinu, — þá verður draumur þeirra Svavars og Hjörleifs að veruleika. Þá verður martröðin í Póllandi óhugnanlega nálægt okkur. Það er sem ég sjái þá Það er fjarri mér að finnast nokkur maður núlifandi líkur Árna í Botni. En þegar ég sá frétt- ina frá Húsavík á dögunum um að togararnir væru að stöðvast, datt mér í hug, hvort Kristján Ásgeirs- son brygði ekki fyrir sig betri fæt- inum og skryppi til Reykjavíkur til að hitta Steingrím, þegar hann kæmi frá útlöndum. Hann myndi leiða sjávarútvegsráðherrann af- síðis, minna hann á skuldbreyt- inguna og segja við hann: „Og skyldu bátar mínir róa í dag, Steingrímur minn?“ TIERÐKYNNING IERÐIAGSSIOFNUNAR INNKAUPA KARFAN Verð eftir verslunum Kjötvörur, Arsutgjöld meðalfjölskyldu 12.000-12.500 kr. Kjötml&stööln Lauglgek 2 - Vlftir Starmýn. 12.500-13.000 kr. Allabuð Vesturbraut 12 Hf. - Austurborg Stórholti 16 - Brekkuval Hjallabrekku 2 Kóp. - Freyjubúöln Freyjugötu 27 - JL-húsíö Hringbraut 121 - Kaupfélag Kjalarnesþings - Kjörval Mosfellssveit - Kjöt og flakur Seljabraut 54 - Telgakjör Laugateigi 24 - Vfölr Austurstræti 17 - Vðrumarkaöurlnn Árrnúla 1. 13.000-13.500 kr. Arbæjarkjör Rofabæ 9 - Asgeir Tindaseli 3 - Daimúli Siðumula 8 - Fjaröarkaup Hólshrauni 16 Hf. - Gunnlaugsbúö Freyjugótu 15 - Grensáskjör Grensásvegi 46 - Hagkaup Laugavegi 59 - Hagkaup Skeifunni - Hólagaröur Lóuhólum 2-6-Kjörbúö Vesturbæjar Melhaga 2 -KjörbúölnLaugarásl Noröurbrún2- Kostakaup Reykjavikurvegí Hf - KRON Eddufelli - KRON Snorrabraut 56 - KRON Tunguvegi 19 - Nóatún Nóatúni 17 - Skjólakjör Sörlaskjóli 42 - SS Hafnarstræti 5 - Straumnes Vesturbergi 76 - Valgarður Leirubakka 36 - Þlnghott Grundarstig 2 13.500-14.000 kr. Alfaskeiö Alfaskeiði 115 Hf - Árbæjarmarkaðurinn Rofabæ 39 - Arnarkjör Lækiarfit 7 Garðabæ - Breiðholtskjör Arnarbakka 46 - Dalver Dalbraut 3 - Drlfa Hliðarvegt 53 Kóp. - Hagabúðin Hjarðarhaga 47 - Hringval Hringbraut 4 Hf. Kaupfelag Hafnfirðinga Garðabæ - Kaupfélag Hafnfirðínga Miðvangi Hf. - Kjötborg Ásvallagötu 19 - Kjötbúð Suöurvers Stigahlið 45 - Kjöthöllin Háaleitisbraut 58-60 - Kjöthöllln Skipholti 70 - Kópavogur Hamraborg 12 Kóp. - KRON Állhólsvegi 32 Kóp - KRON Hliðarvegi 29 Kóp - KRON stórmarkaður Skemmuvegi Kóp - Langholtsval Langholtsvegi 174 - Lækjarkjör Brekkulæk 1 - Matvat Þingholtsbraut 21 Kóp. - Melabúðin Hagamel 39 - Nesval Melabraut 57 Seltj nesi - Snæbjörg Bræðraborgarstíg 5 - SS Austurveri - SS Bræðraborgarstig 43 - SS Glæsibæ - SS Iðulelli 4 - SS Laugavegi 116 - Sundaval Kleppsvegi 150 - Teigabúðln Kirkjuteigi 19 - Vörðufell Þverbrekku 8 Kóp. 14.00-14.500 kr. Amarhraun Arnarhraum 21 Hf - Ásgeir Efstalandi 26 - Borgarbúöin Hófgerði 30 Kóp - Borgarkjör Grensásvegi 26 - Hverftskjötbúðin Hvertisötu 50 - Kaupfelag Hafnflrðlnga Strandgótu 28 Hf. - Kaupgarður Engihjalla 4 - KRON Stakkahlíð 17 - SS Aðalstræti 9 - SS Skólavörðustíg 22 - Sunnukjör Skaftahlíð 24 - Versl. Þóröar Þórðarsonar Suðurgötu 36 Hf Nýlendurvörur, ársútgjðld meðalfjölskyldu 28.000 - 29.000 kr. Hagkaup Skeifunni - Hólagarður Lóuhólum 2-6 - Kostakaup Reykjavikurvegi Ftf. - KRON stórmarkaöur Skemmuvegi Kóp. 29.000 - 30.000 kr. Breiðholtskjör Arnarbakka 46 - Fjarðarkaup Hólshrauni 16 Hf. - Gunnlaugsbúð Freyjugötu 15 - Hagkaup Laugavegí. 59 - Kaupfelag Kjalamesþings - Kjörbúðin Laugarási Norðurbrún 2 - Kópavogur Hamraborg 12 Kóp. - Nóatún Nóalúm 17 - SS iðufelli - SS Laugavegi 116 - Viðlr Starmýri - Vörðufell Þverbrekku 8 Kóp. - Vörumarkaðurinn Armúla 1 30.000 - 31.000 kr. Árbæjarmarkaðurinn Rofabæ 39 - Ásgeír Tindaseli 3 - Drlfa Hliðarvegi 53 Kóp - Freyjubúðln Freyjugötu 27 - Kaupgarður Engihjalla 4 Kóp - Kaupfélag Hafnfirðlnga Miðvangi Hf - Kjörbúð Vesturbæjar Melhaga 2 - Kjötmiðstöðln Laugalæk 2 - KRON Alfhólsvegi 32 Kóp - KRON Hliðarvegi 29 Kóp - KRON Stakkahlið 17 - Matvælabúöln Efstasundi 99 - Straumnes Vesturbergi 76 - SS Austurveri - Teigabúðln Kirkjuteigi 19 - Teigakjör Laugateigi 24 31.000 - 32.000 kr. Árbæjarkjör Rofabæ 9 Arnarkjör Læk|arfit 7 Garðabæ - Ásgelr Efstalandi 26 - Brekkuval H|allabrekku 2 Kóp - Finnsbúð Bergslaðastræti 48 - Grensáskjör Grensásvegi 46 - Hamrakjör Stigahlið 45 - Herjólfur Skipholti 70 - Holtskjör Langholtsvegi 89 - Hrlngval Hnngbraut 4 Hf. - JL-húsið Hrmgbraut 121 - Kjörval Mosfellssveit - Kjöt og flskur Sel|abraut 54 - KRON Eddufelli - KRON Snorrabraut 56 - KRON T unguvegi 19 - Langholtsval Langholtsvegi 174 - Skerjaver Einarsnesi 36 - Skjólakjör Sörlaskjóli 42 - Snæbjörg Bræðraborgarstig 5 - SS Glæsibæ - Versl. Þórðar Þórðarsonar Suðurgötu 36 Hf. 32.000 - 33.000 kr. Alfaskelð Alfaskeiði 115Hf - Allabuð Vesturbraut 12Hf - AusturborgStórholti 16- Baldur Framnesvegi29 - Dalmúli Siðumúla 8 - Dalver Dalbraut 3 - Hagabúðln Hjarðarhaga 47 - Hlfðarkjör Eskihlið 10 - Kársneskjör Borgarholtsbraut 71 Kóp - Kaupfélag Hafnfirðinga Garðabæ - Kaupfélag Hafnfirðinga Strandgötu 28 Ht - Kjörbúð Hraunbæjar Hraunbæ 102 - Kjöthöllin Háaleitisbraut 58 60 - Lækjarkjör Brekkulæk 1 - Matval Þmgholtsbraut 21 Kóp. - Melabúðln Hagamel 39 - Sundaval Kleppsvegi 150 - Sunnukjör Skaftahllð 24 - Valgarður Leirubakka 36 - Vlðlr Austurstræti 17 - Þlngholt Grundarstíg 2 33.000 - 34.000 kr. Amarhraun Arnarhraum21 Hf - Borgarbúðin Hófgerði 30 Kóp. -Kjötborg Asvallagölu 19 - KRON Langholtsvegi 130 - Nesval Melabraut 57 Seltj nesi - SS Aðalstræti 9 - SS Bræðraborgarstig 43 - SS Hatnarstræti 5 - Vegamót Nesvegi Selt| nesi - Verslun Guðmundar Guðjónssonar Vallargerði 40 Kóp 34.000 - 35.500 kr. Borgarfcjör Grensásvegi 26 - Hverfiskjötbúöln Hverfísgötu 50 - SS Skólavörðustig 22. „Innkaupakarfa“ Verðlagsstofnunar: Verðmunur á hæsta og lægsta verði í kjötvörum var 21,1% í þessari viku birtir Verð- iagsstofnun Innkaupakörfu númer sex. Hún sýnir annars vegar ársútgjöld meðalfjöl- skyldu vegna kaupa á kjötvöru eftir nýlenduvöru og fiski. Birt er heildarupphæð lægsta verðs eftir verslunum. Þessi könnun var gerð 22.-26. nóvember sl. í 89 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og athugað verð á 35 mat- og hreinlætis- vöruflokkum. í Iiðinni viku kynntum við heildarniðurstöðu þessarar umfangsmiklu könnun- ar (í Innkaupakörfu 5). Þær vörutegundur, sem athug- aðar voru, eru látnar endur- spegla alla neyslu meðalfjöl- skyldunnar á einu ári á kjöti, fiski, nýlenduvörum og notkun hreinlætisvöru. Mjólk, öðrum mjólkurvörum og kartöflum, sem eru á sama verði í öllum verslunum, hefur verið sleppt. Þess vegna er heildarverðmunur milli verslana og innan þeirra meiri en ella. Ef niðurstöður eru dregnar saman, eru þessar helstar: Kjötvörur: 1. Verðmunur á heildarverði, þar sem það var lægst og hæst var 21,1% eða því sem næst 2.500 krónur. (Þess ber að gæta, að verðupptakan var gerð fyrir hækkun landbúnað- arafurða 1. des. sl.). 2. Lítill sem enginn verðmunur er á kjötvörum innan hverrar verslunar ef keypt er í þeirri þyngdareiningu, sem hér er miðað við, þ.e. 1 kg. 3. Ekki er verulegur munur á verði kjötvöru í hverfisversl- unum og stórmörkuðum. Nýlenduvörur, fiskur og hreinlætisvörur: 1. Munur á heildarverði var mestur 26,8% á milli versl- ana, u.þ.b. 7.500 kr. 2. Verðmunur innan verslunar, ef ávallt var miðað við ódýr- asta vörumerki annars vegar en dýrasta hins vegar, varð allt að 36%. Þetta undirstrik- ar mikilvægi þess, sem áður hefur verið bent á, að meira er kleift að spara með verð- samanburði innan verslana en með því að fara á milli verslana. 3. Stórmarkaðir eru að jafnaði ódýrari þó að einstaka hverf- isverslanir standi þeim jafn- fætis. 4. í allmörgum tilvikum var of hátt verð á vörum. Einkum bar á þessu með súkkulaði- kexið Prins Póló. Hámarks- verð á því er 8,75 kr., en það var selt á allt að 12 krónur stykkið. Þess má geta, að mið- að við leyfilega hámarks- álagningu má verð á litlu stykki af þessu súkkulaðikexi vera kr. 4,60. Þá bar nokkuð á því, að innflutt kaffi í neyt- endapakkningum væri of hátt verðlagt. Eins og í fyrri Innkaupakörf- um Verðlagsstofnunar er ekki lagt mat á þjónustu og vörugæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.