Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
13
^ ELECTROLUX
ORBYLGJUOFNINN
Þaö þarí ekki aö hita upp örbylgjuofninn. Fullur styrkur næst á
broti úr sekúndu. Hinn eiginlegi hiti myndast í matnum sjálfum og
ekkert brennur í örbylgjuofni.
Örbylgjuofninn eyöir rafmagni á við eina meðal ljósaperu. Öll
venjuleg matreiðsla tekur skemmri tíma og þú uppgötvar nýjar viddir
í matreiðslu möguleikum.
Ef þú villt vita enn meira pantarðu þér upplýsingablað í
síma 32107 milli 10—12.
Já, þessi örbylgjuofn er alveg ótrúlegur hvað verður það næst...!
og hraðameti
Ný plata
Gunnars
og Pálma
FJÖLNIR hefur nú sent frá sér
sína fyrstu hljómplötu, en það eru
hinir kunnu hljómlistarmenn
Gunnar Þórðarson og Pálmi
Gunnarsson, sem bera hita og
þunga plötunnar sem hefur að
geyma 10 ný lög eftir Gunnar
Þórðarson, en textarnir eru eftir
Pálma Gunnarsson, Þorstein
Eggertsson, Toby Herman og 4
textar eru eftir Jóhann G. Jó-
hannsson. Eitt laga Gunnars er
án söngs en það er tileinkað
Gísla í Uppsölum.
Gunnar Þórðarson hefur
stjórnað upptökunni á plötunni
en Pálmi Gunnarsson annast
sönginn. Bakraddir syngja þeir
Pálmi, Gunnar, Agnes Krist-
jánsdóttir og Shady Owens. Upp-
taka fór fram í Bretlandi.
Plata þeirra Gunnars og
Pálma er byggð upp á hressi-
legum lögum og undirleik annast
þeir Pálmi á bassa, Gunnar á gít-
ar og einnig kemur saxófónn við
sögu auk tölvuundirleiks sem er í
öllum lögunum. Þetta er í fyrsta
skipti sem einn söngvari syngur
öll lögin á plötu hjá Gunnari
Þórðarsyni.
Fjölnir er útgefandi og sér um
dreifingu.
Lögin á plötunni heita: Aftur
heim, Gísli á Uppsölum, Hleyptu
mér inn, Trúarjátning, Kona,
Kveiktu ljós, Eitthvað hefur
skeð, Bíddu, Velgengni og Á Upp-
sölum.
GUNNAR ÞÓRÐARSON
PÁLMIGUNNARSSON
Barnagælur
Stígur hún við stokkinn,
stuttan á hún sokkinn.
Ljósan ber hun lokkinn,
litli telpu hnokkinn.
Við skulum róa sjóinn á,
að sækja okkur ýsu
En ef hann krummi kemur þá
og kallar á hana Dísu?
Boli litli baular lágt,
býsna rámur er hann.
Eitthvað á hann ofurbágt
innan hungrið sker hann
Þjóðvísa
Stóra barnabókin er komin út. Rammíslensk bók, meö sögum og
ævintýrum, Ijóöum, leikjum, gátum, þrautum, föndri, þulum og barna-
gælum. Jóhanna Thorsteinsson valdi efniö, og Haukur Halldórsson
myndlistarmaöur hefur gert meira en fimmtíu myndir í bókina.
Bók meö öllu því efni, sem foreldrarnir læröu í æsku og vildu geta
kennt börnum sínum. Bók fyrir foreldra og börn þeirra.
Það verður ekki erfitt að gefa krökkunum jólagjöf í ár!
Barónsstíg 18, 101
Reykjavík.
Sími: 18830.