Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 Jólasálmarnir, sem ALLIR kunna á einni hljómplötu, — í frábaerum flutningi 3ja kóra og ellefu hljóöfaeraleikara. Platan sem kemur öllum í hátíöarskap. Fæst á útsölustööum um land allt. I tilefni 50 ára afmKlú fyretu sjálfvirlni símstöðvanna í Reykjavík og Hafn- arfirði, heiðraði framleiðandi stöðvanna, Telefonaktiebolaget L.M. Ericsson, þá 7 sem enn eru á lífi og störfuðu við uppsetninguna. Myndin hér að ofan er tekin í sjálfvirku símstöðinni Reykjavík I við það tækifæri. Talið frá hægri: Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri, Ágúst Guðlaugsson, Ólafur Þórðar- son, Kjartan Nordahl, Sigurjón Hallbjörnsson, Magnús Eyjólfsson, Lárus Ástbjörnsson og Bo Landin frá L.M. Ericsson. Á myndina vantar Pétur Thomsen. Sjálfvirk símstöð í Reykjavík 50 ára SJÁLFVIRK símaumferð á íslandi og símstöðvarnar Reykjavík I og Hafnarfjörður voru 50 ára 1. des- ember 1982. Ef skoðað er hvað hefur gerst þessi 50 ár kemur greinilega í Ijós að Landsími íslands hefur strax í upp- hafi tekist að tileinka sér tækni- þróunina innan símtækninnar. 1. desember 1932 var fyrsta sjálfvirka símstöðin, Reykjvík I, tekin í notkun. Samtölum notenda var komið á sjálfvirkt með hjálp rafknúinna veljara í þeirra tíma nýtískulegustu símstöð, AGF, frá Telefonaktiebolaget LM Ericsson í Svíþjóð. Símstöðin Reykjavík I þjónar 10.000 notendum í dag og skv. Sig- urjóni Hallbjörnssyni, sem tók þátt í uppsetningunni fyrir 50 ár- um og starfar ennþá við stöðina, er hún heimsins besta símstöð sem hefur staðið sig frábærlega vel þessi 50 ár og á eftir að duga enn nokkur ár í framtíðinni. Þar til fyrir fáum árum hafa símstöðvar verið uppbyggðar með rafknúnum veljurum og síðustu áratugi aðallega með svökölluðum hnitveljurum sem ollu byltingu í viðhaldi stöðvanna vegna rekstr- aröryggis. Þessi gerð af símstöðvum var einnig fljótlega tekin í notkun af Póst- og simamálastofnuninni til stækkunar á simakerfinu og gera alla símaumferð sjálfvirka. Tele- fonaktiebolaget LM Ericsson í Svíþjóð hefur verið brautryðjandi í þróun margra þessara sím- stöðvakerfa. Símstöðvar framtíðarinnar — rafeinda-, tölvustýrðar, stafrænar (digital)-símstöðvar eru nú þegar komnar í framtíðaráætlanir flestra símamálastofnana í heim- inum. Telefonaktiebolaget L M Erics- son hefur hannað hið vinsæla stafræna símstöðvarkerfi AXE sem hefur nú þegar verið valið af fleiri en 40 iöndum og nú þegar hafa 6 milljónir lína tengst þessu kerfi. Eftir alþjóðlegt útboð hefur P&S ákveðið að setja upp AXE- stöðvar á íslandi. Aætlað er að taka fyrstu stöðvarnar í notkun í Reykjavík og Keflavík eftur u.þ.b. 1 ár. Tilkoma þessara stöðva í ís- lenska símanetið þýðir að notend- ur fá nýja þjónustumöguleika og viðhaldskostnaður verður mun lægri. Hinar nýju stöðvar gefa þar að auki mikla möguleika á að auka hagkvæmni símaumferðarinnar í framtíðinni. (FrétUiilkynning frá Jóhann Könning hf.) Enn á ny qefur Eiðfaxi út-rT^rÖ- ÓSKABÓK W* HESTAMANNSINS Bók Sigurbjörns Bárðarsonarfjallar um íslenska reiðmennsku og samskipti við hestinn, reiðhesta sem keppnishesta auk kafla um meðferð og umhirðu. Bókin er ríkulega myndskreytt, fæst í bókaverslunum um land allt. Sendum hana einnig gegn póstkröfu. AFAKSPORI r eiðfaxi Pósthólf 887 Lágmúla 5. Sími (91) 85316 Sigurbjörn Bárðarson áritar bók sína „Á FÁKSPORI" í dag laugardag í Pennanum Hallarmúla, kl. 14:00 — 16:15 og Ástund kl. 16:15 — 18:00. Loksins! Morgunblaðid/ ÓI.K.M. Og nú er snældan með Jólamessunni sem var uppseld, komin í verslanir aftur. Dr. Sigurbjörn Einarsson predikar og Hamrahlíðarkórinn syngur. Tilvalin í gjafapakkann til ættingja og vina erlendis. Fæst m.a. í Kirkjuhúsinu, íslenskum heimilisiðnaði og Rammagerðinni. Sýnir í vinnustofunni Þorlákur R. Haldorsen hefur opnað málverkasýningu í vinnustofu sinni að Urðarstíg 3, Reykjavík. Á sýningunni eru myndir frá Þingvöllum, Stokkseyri, Eyrarbakka, Grindavík og Reykjavík og er sýningin opin frá klukkan 14 til 20 fram að jólum. Myndin er af Þorláki í vinnustof- unni. útnátan Skálholt • Klapparstíg 27 21386.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.