Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
17
Miklar breytingar gerð-
ar á jarðhæð Hótel Esju
Fjölskyldudagskrá verður um hverja helgi
AÐ UNDANFÖRNU hafa verið
gerðar miklar breytingar á jarð-
hæð Hótel Esju, sem allar miða
að auknum þægindum og aukinni
fjölbreytni fyrir hótelgesti. Boðað
var til blaðamannafundar til þess
að kynna þessar breytingar og þá
dagskrá, sem boðið er uppá á hót-
elinu um þessar mundir.
ugum pakkningum og hljómplöt-
ur, viðtæki og ýmsar fleiri vörur.
Nýr inngangur bætist við í Esju-
berg á framhlið hótelsins.
Hótel Esja hefur 134 gistiher-
bergi með samtals 268 rúmum.
Landsbyggðarfólk á mjög mikil
viðskipti við Hótel Esju, enda voru
55% gesta á síðastliðnu ári íslend-
ingar.
Forráðamenn Hótel Esju og fyrirtækja á jarðhæð kynna breytingar og nýjungar fyrir blaðamönnum.
Morgunblaðiö/KÖE.
Fjölskyldudagar á
Esjubergi
Á Esjubergi er fjölskyldu-
dagskrá um hverja helgi. Þar er
sérstakur fjölskyldumatseðill á
laugardögum og sunnudögum
og er verði stillt mjög í hóf, auk
þess sem börnin fá ókeypis
hamborgara.
Um þessa helgi mun blóma-
búðin Rósin sýna jólaskreyt-
ingar, barnfóstra hefur ofan af
fyrir börnunum síðdegis og
Módelsamtökin eru með tízku-
sýningu. Á sunnudaginn, þ.e. á
morgun verður jólasveinn á
ferðinni í hádeginu og um
kvöldið. Um þessa helgi verður
boðið upp á danskan jólamat á
hlaðborði, auk þess sem jóla-
glögg verður á boðstólum.
Ymsir þjóðardagar verða á
Esjubergi um helgar í vetur.
Má nefna, að 28.—30. janúar
verða Luxemborgardagar og
mun Valgeir Sigurðsson veit-
ingamaður í „The Cockpit-Inn“
í Luxemborg stjórna matseld-
inni.
Ragnar og Bessi í
Skálafelli
Hinn vinsæii samkomustaður
Skálafell, á efstu hæð Hótels Esju
er opinn á hverju kvöldi. þar eru
tískusýningar á hverju fimmtu-
dagskvöldi árið um kring og ýmis
skemmtiatriði um helgar. Undan-
farnar vikur hefur Haukur Morth-
ens skemmt gestum Skálafells.
Ragnar Bjarnason og Bessi
Bjarnason munu troða upp með
nýja semmtiþætti í Skálafelli
næstu helgar. Einnig mun Ragnar
kynna lög af nýjum plötum og
bregða á leik með harmónikku
föður síns.
Aukið Rými — Ný starfsemi
Á jarðhæð Hótels Esju er verið
að ljúka við frágang á 900 fer-
metra húsnæði í austurenda húss-
ins. Þar eru til húsa verslun
Rammagerðarinnar, söluskrif-
stofa Flugleiða og þar verður úti-
bú Búnaðarbankans opnað á
næstu dögum í mun stærra hús-
næði en bankinn hefur haft til
þessa í hótelinu. Búnaðarbankinn
er í þann veginn að hefja gjaldeyr-
isafgreiðslu og mun það til dæmis
verða til mikilla þæginda fyrir
hótelgesti og þá sem kaupa far-
seðla sína á söiuskrifstofu Flug-
leiða, því þá er hægt að fá gjald-
eyri afgreiddan í sama húsi. Þá er
á hæðinni Blómabúðin Rósin, hár-
snyrting og klipping hjá Dúdda og
Matta fyrir dömur og herra og
snyrtistofan Sól og snyrting býður
upp á solarium og snyrtingu.
Með þessum breytingum fær
hótelið meira rými til umráða á
jarðhæðinni og „lobbýið" breytir
algjörlega um svip.
I þeim hluta sem útibú Búnað-
arbankans hefur verið munu ís-
lensk matvæli og Hljómbær opna
litlar verslanir. Þar verður meðal
annars hægt að fá matvæli í hent-
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Smá gjöf til vinar á jólum
lýsir hlýju hjarta og góðum hug.
Kosta Boda býður ótrúlegt úrval slíkra
smámuna úr ekta kristal. Allskyns
hengihlutir, kertastjakar
og fleiri skrautmunir.
Kosta Boda er gjafaverslun vandlátra.
Fyrstaflokks skrautmunir og
nytjahlutir úr kristal, postulíni,
steinleir, eldföstum leir og stáli.
Bankastræti 10, sími 13122