Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 32

Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 í tilefni af Morgunblaðsleiðara Eftir Vilmund Gylfason í leiðara Morgunblaðsins í dag, sem ég giska á að sé ritaður af Styrmi Gunnarssyni, er réttilega um það fjallað, hvernig flokkseig- endablöð, Tími, Alþýðublað, Þjóð- vilji, fjalla lágkúrulega um þann atburð að Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hlaut laka útkomu í prófkjöri flokksins. Leiðarahöfundur fer hörðum orðum um þessi lágkúru- legu flokksþrælaskrif, þar sem að- eins er reynt að nudda salti í sár, en engin heiðarleg tilraun gerð til þess að útskýra, eða skilgreina, bakland þessara merkilegu tíð- inda. Þetta er einkenni hins þrönga flokksvalds. Ég vil taka undir það með Styrmi Gunnarssyni (?) að þessi ómerkilegu skrif eru auðvit- að fyrir neðan allar hellur. En málið er það að á íslandi er engin frjáls fjölmiðlahefð til. Mik- ilvægri tilraun er auðvitað lokið, þegar nýdínamíkin gekk í eina sæng með gamla haftavaldinu, með sameiningu síðdegisblaðanna, og enda er annar ritstjóri síðdeg- ispressunnar orðinn þingmanns- efni fyrir Sjálfstæðisflokkinn! Fjölmiðlakerfinu, ekki aðeins þeim þremur „dagblöðum", sem nefnd hafa verið, heldur einnig Morgunblaðinu og ríkisfjölmiðl- unum er stjórnað af fámennis- valdi, sem er efst í píramítum stjórnmálaflokkanna. Þetta er hin skelfilega staðreynd um þá and- upplýsingu sem því miður lekur um samfélagið, undir merkjum svokallaðra fjölmiðla. Nefnum eitt dæmi, tilraun til alvarlegrar skýringar: Það er staðreynd, að Geir Hallgrímsson fékk slaka útkomu í prófkjöri, þó svo hann sé formaður Sjálfstæðis- flokksins. Það eru auðvitað mik- ilsverð pólitísk tíðindi, sem kunna, og kunna ekki, að draga mikinn dilka á eftir sér. Þessi tíðindi verða auðvitað ekki skýrð með mannkostum eða mannkostaleysi Geirs Hallgrímssonar. Ég er auð- vitað sammála ritstjórum Morgunblaðsins um það að Geir Hallgrímsson er heiðarlegur mannkostamaður — eins og við erum raunar flest. En að ætla að gera þetta að einhverri höfuðskýr- ingu, eins og Morgunblaðið hefur reynt að gera í væmnum — og að minni hyggju afar ósmekklegum leiðaraskrifum — með öðrum orð- um, að fólkið hafi verið að kjósa gegn mannkostum Geirs, að nú sé um sinn liðinn tími heiðarlegra stjórnmálamanna, og allt þetta rugl, er náttúrlega fyrir neðan all- ar hellur. Nei, meiri háttar skýr- ing kynni að standa Morgunblað- inu nær en þetta heiðarleikarugl. Nefnilega sú skýring, að margt fólk hafi verið að kjósa gegn Morg- unblaðsvaldinu sjálfu, þeim þrönga hópi, sem nærfellt einokar skoðanamyndun á vegum Sjálf- stæðisflokksins, sem þó hefur til þessa talist nokkuð stór stjórn- málaflokkur. Þetta ætti að vera ritstjórum Morgunblaðsins alvarlegt íhugun- arefni. Einokunarvald er alltaf hættulegt — og það á við um Morgunblaðið eins og alla aðra. En sjálfs er nafli næstur En því miður, siðferðisþrek Styrmis (?) ritstjóra náði aúðvitað ekki lengra en niður í miðjan leið- ara. Eftir að hafa lýst réttilega beinum óþverraskrifum flokks- blaðanna um Geir Hallgrímsson, þá tekur hann að skrifa um aðra stjórnmálaflokka. Hann segir: „Og hvað um Alþýðuflokkinn? Þar hlaupa fulltrúar ættanna út og inn um flokksgluggann, eftir því hvort þeir telja sér gert nægi- lega hátt undir höfði eða ekki. A að dæma hæfni þessara manna og flokkinn allan eftir því hver hefur betur í slíku skæklatogi?" Hvernig getur maður, sem rétti- lega fordæmir lágkúrulega flokks- blaðamennsku, komist svona að orði? Og nú skulu menn vera hrein- skilnir. Þetta smekklega orðaval fjöldahreyfingarinnar á Morgun- blaðinu vísar til þeirrar stað- reyndar, að sá sem þessar línur ritar, sagði fyrir nokkrum vikum skilið við Alþýðuflokkinn. Það hafa a.m.k. ekki aðrir þingmenn þess flokks gert, mér vitanlega, svo hér hlýtur að vera átt við mig. Ég er þó ekki nafngreindur, en „fulltrúar ættanna" hlýtur að vísa til þeirrar líffræðilegu staðreynd- ar að ég mun sonur Gylfa Þ. Gísla- sonar, sem lengi sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn, og var um skeið formaður þess flokks. Um „ættarveldi" okkar Gylfa hefur mér raunar verið ókunnugt til þessa, en vera má, að Morgunblað- ið viti betur. „Hlaupa út og inn um flokksgluggann", segir Styrmir. Sé hér enn átt við sama mann, þá er ljóst að ég hef einu sinni gengið út, og ætla aldrei inn aftur, hef fengið rækilega nóg. Auðvitað vill Morgunblaðið að þetta sé upphlaup og allt það. Og „ekki gert nægilega hátt undir höfði" á sennilega að vísa til þeirrar staðreyndar, að ég féll oft í kosningum innan míns gamla flokks, og, sem meira máli skiptir, varð undir á svo mikilvæg- um málasviðum, að fyrir rest var vera í þessum flokki orðin mál- efnalega óbærileg. Um þetta síðasttalda vill Morgunblaðið auð- vitað ekki vita. Og sú ritsóðalega leiðaraklausa, sem hér hefur verið vitnað til, er til marks um hvað þeir vildu að gerst hefði! Tilraun til skýringar Islenskt þjóðfélagskerfi lýður fyrir óheiðarlega fjölmiðla, sem skýra samtímaatburði með þeim hætti, sem Morgunblaðið gerir í umræddri klausu. Og Morgunblað- ið er að því leyti óheiðarlegast ís- lenskra blaða, að það er stærst. Auðvitað er enginn munur á að- ferðum Morgunblaðsins og þeirra þriggja blaða, sem það sjálft þyk- ist hafa efni á að fordæma. En sannleikurinn er sá, að um áraraðir hefur engin tilraun verið gerð af Morgunblaðsins hálfu, sem þó þykist öðru hverju vera að flytja fréttaskýringar, til þess að útskýra um hvað var tekist í hin- um gamla Alþýðuflokki. Ég vil aðeins nefna eitt dæmi, sem þó er auðvitað gríðarlega mikilvægt, en einnig vegna þess að það snertir væntanlegt Bandalag jafnaðarmanna og hið fyrsta þing- mál, sem flutt hefur verið á vegum þess. Þetta er tillaga til þingsálykt- unar um aðgreiningu löggjafarvalds og framkvæmdavalds. Þó svo hugsun stjórnarskrár- innar geri ráð fyrir þremur meg- ALL' f BYGGINGUNA TEPPI í miklu úrvali. Berber-alull- argólfteppi á aðeins kr. 299 pr. m2. Ath. alls konar stakar mottur og teppi. BUCHTAL flísarnar viðurkenndu. Flestar gerðir fyrirliggjandi. Munið að allar BUCHTAL flísarnar eru bæði frostheldar og eldfastar. Skoðiö BUCHTAL sýninguna í verslun okkar. Sjón er sögu ríkari. KORKFLÍSAR. Por pr. m2. túgalskar korkflísar með vinylhúö á aöeins 416 VEGGDÚKAR GÓLFDÚKAR PARKET PANELL Sænska parketið frá TARKET fáanlegt í furu, eik, beyki og aski. Sænskur furu og greni panell. ÞAKJARN ÞAKPAPPI Allt til einangrunar: Glerull — steinull — plast. Staðgreiðsluafsláttur eða ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar. Allt niöur 20% útborgun og lánstími allt að 6 mánuðum. HREINLÆTISTÆKI BLÖNDUNARTÆKI Royal Sphinx hreinlætistæki og Grohe blöndunartæki. BAÐTEPPI, BAÐMOTT- UR, BAÐHENGI MALNINGARTILBOÐ Viö bjóðum málingu á sérstöku afslátt- arverði og greiðsluskilmálum, þar aö auki 5% afsláttur af kaupum yfir kr. 800. 10% afsláttur af kaupum yfir kr. 1.200. 15% afsláttur af kaupum yfir kr. 2.000. 20% afsláttur í heilum tunnum. ALLT TIL PIPULAGNA SPONAPLÖTUR OG GRINDAEFNI Opnunartími í desember: Mánudaga — fimmtudaga 8—18. Föstudaga 8—19. Laugardag 4. des. 9—16. Laugardag 11. des. 9—18. Laugardag 18. des. 9—22. Þorláksmessa 23. des. 8—19. Aðfangadag 24. des. lokað. Gamlársdag 31. des. 8—12. »••< BYGGINGAVORUR IC HRINGBRAUT120: Símar: Byggingavörur......... 28-600 Gólfteppadeild ........ 28-603 Timburdeild ................28-604 Málningarvörur og verkfæri___28-605 Flísar og hreinlætistæki.....28-430 ] Vilmundur Gylfason „En sannleikurinn er sá, að um áraraðir hefur eng- in tilraun verið gerð af Morgunblaðsins hálfu, sem þó þykist öðrum hverju vera að flytja fréttaskýringar, til þess að útskýra um hvað var tekist í hinum gamla Alþýðu- flokki.“ invaldþáttum, sem séu óháðir hver öðrum, hefur sú grundvall- arhugsun aldrei verið virt á Is- landi, og hefur þó síðasta áratug- inn sigið mjög á ógæfuhlið. Þetta er kannski alvarlegasta megin- skekkjan í íslensku stjórnkerfi. „Völd“ alþingismanna eru ekki fólgin í því að þeir hafi áhrif á hinar almennu leikreglur, og síðan eftirlit með því að þeim sé fram- fylgt, sem þó er hugsun með svo- kölluðu löggjafarvaldi, eins og í orðinu felst. Völd alþingismanna felast þvert á móti í því að koma sér í bankaráð, stjórn í Morgunblaðinu 14.11,82 er grein sem J.Þ. hefur skrifað hér í dálki félagsins Geðhjálpar. í greininni eru sagðir merkilegir hlutir um aðstöðu geðsjúklinga og aðstandenda þeirra. Ég gríp þetta tækifæri sem J.Þ. gefur til að koma með ýmis sjónarmið geðlæknis um sömu mál. Orðrétt stendur í grein J.Þ.: „Samt langar mig af þessu til- efni að benda á aðra tegund neyðarþjónustu, sem tíðkast hef- ur á Norðurlöndum jafnframt hinni. Er hún fólgin í því að fylgst er með sjúklingum eftir útskrift af sjúkrahúsi og þeir t.d. heimsóttir ef þeir mæta ekki samkvæmt umtali á göngudeild- ir. Einnig geta þeir sem hafa slíka sjúklinga á heimilum sín- um hringt og fengið fólk heim þegar ljóst er að sjúklingur er hættur að taka nauðsynleg lyf og dregur þessi þjónusta að sjálf- sögðu mjög úr innlagningartíðni. Ef geðsjúklingur ákveður að hætta að taka lyfin sín er að- standandi oftast síðasti aðilinn sem getur talið honum hughvarf, enda sjúklingnum þá svo er komið oftast meinilla við alla ættingja með tölu. Liggur í aug- um uppi að þetta er nöturlegt ástand fyrir aðstandandann, hann veit mæta vel að hverju dregur, en getur samt enga hjálp fengið fyrr en sjúklingurinn er sannarlega orðinn snargalinn og þar af leiðandi hæfur spítala- matur. Víst er hægt að panta tíma hjá lækni þegar svona stendur á, en meira en lítið vafa- samt að sjúklingurinn fáist til að mæta, að sjálfsögðu fá þeir sjúklingar sem búa einir úti í bæ að vera snargalnir í friði.“ Það eru orð í tíma töluð að minna almenning og fagfólk á sjálfhelduna sem geðsjúklingar hrekjast einatt inn í ásamt að- standendum sínum. Einnig er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.