Morgunblaðið - 15.12.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
Höröur Áskelsson sveiflar tónsproUnum á æfingu.
Morgunbladió/RAX
Jólatónleikar Pólýfón-
kórsins annað kvöld
Á MORGUN, fimmtudag, verða
haldnir jólatónleikar Pólýfónkórs-
ins í Landakotskirkju. Á efnisskrá
verða að þessu sinni Kantanta nr.
61 eftir Bach, Jólakonsert eftir
Torelli og Gloria í D-dúr eftir Vi-
valdi. Fjórir einsöngvarar syngja
með kórnum, þau Katrín Sigurð-
ardóttir, Signý Sæmundsdóttir,
Ásta Thorsteinsson og Sigurður
Björnsson. Einleikarar á fiðlu eru
Rut Ingólfsdóttir og Laufey Sig-
urðardóttir, og Rut er jafnframt
konsertmeistari.
Er litið var inn á æfingu kórs-
ins sl. þriðjudagskvöld voru kór-
félagar að æfa undir stjórn
Harðar Áskelssonar, en þetta
verður í fyrsta sinn sem hann
stjórnar Pólýfónkórnum á tón-
leikum. Hörður sagði það að
mörgu leyti stórkostlegt að
stjórna þessum kór sem þegar er
búinn að flytja mörg meirihátt-
ar verk sem sambærilegir kórar
eru að flytja um þessar mundir
erlendis. „Kórinn hefur t.d. flutt
Gloriu Vivaldis áður, en það var
Frá æfingu kórsins I fýrrakvöld.
á Ítalíu 1977, og verkið hefur
einnig verið sungið inn á
hljómplötu."
Tónleikarnir hefjast kl. 21 á
fimmtudagskvöld, og verða sem
fyrr segir í Landakotskirkju.
Málverk seld fyrir
eina milljón króna
MÁLVERK seldust fyrir um eina
milljón króna á málverkauppboði
Klausturhóla í fyrrakvöld, að því er
Halldór Runólfsson verslunarstjóri i
Klausturhólum sagði i samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Samtals voru boðin upp átta-
tíu og fjögur málverk eftir íslenska
listamenn frá ýmsum tímum.
Dýrasta málverkið fór á 80 þús-
und krónur, Kjarvalsmyndin „Til-
hugalíf", olíumálverk á striga, lík-
lega málað um 1930. Næstmesta
verð fékkst fyrir teikningu eftir
Mugg, Guðmund Thorsteinsson, 65
þúsund krónur, og þriðja dýrasta
verkið fór á 50 þúsund krónur,
olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson
Áskorun um aukna fjárveitingu
Óveðrið:
Heildartjón á
Norðurlandi um
2 milljónir kr.
HEILDARTJÓN á Norðurlandi af
völdum óveðursins, sem þar gekk
yfir nýlega, er talið nema rúmum 2
milljónum króna, samkvæmt upplýs-
ingum sem MbL fékk hjá Ásgeiri
Ólafssyni, forstjóra . Viðlagatrygg-
ingar.
Ásgeir sagði að tjónið hefði orð-
ið mest í Siglufirði og í Hrísey, en
ekki liggja enn fyrir nákvæmar
tölulegar upplýsingar á milli
staða. Ekki er hægt að gera upp
allt tjónið strax og því er ekki
ljóst hversu langt yfir tveimur
milljónum tjónið verður.
Ásgeir sagði að þegar væri farið
að greiða tjónabætur, en það gerð-
ist jafnóðum og upplýsingar bær-
ust.
Stúdentaráð boðaði til almenns
stúdentafundar í Félagsstofnun
stúdenta í gær, þar sem meðal ann-
arra voru viðstaddir fulltrúar
menntamálaráðuneytis og fjármála-
ráðuneytis. Frummælendur voru
Guðmundur Magnússon háskóla-
rektor, Eiríkur Ingólfsson, einn full-
trúi stúdenta í háskólaráði, og Guð-
mundur Ingvarsson frá Félagi
stundakennara við háskólann. Fund-
urinn samþykkti svofellda áskorun:
„Almennur stúdentafundur haldinn
í Félagsstofnun stúdenta þann 14.12.
1982 skorar á ríkisstjórn íslands að
bæta úr brýnni fjárþörf Háskóla ís-
lands með aukinni fjárveitingu hon-
um til handa."
X. ■
^MíJOHN3
Svart
695.-
HERRA-
SKÓR
Litir Verö
Brúnt 598.-
Brúnt og svart
699.-
Brúnt og svart
847.-
Austurstræti
sími: 27211