Morgunblaðið - 15.12.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.12.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR15. DESEMBER 1982 Graham Smith tryllir fiðluna „Þá og nú“ • Graham Smith er iðinn við kolann og nýjasta fiðluplata hans frá SG-hljómplötum undir- strikar ágæti hans og ferskan blæ í þeirri tónlist sem hann flytur. Platan sem ber nafnið Þá og nú er útsett af Ólafi Gauk, sem jafnframt stjórnaði hljóð- færaleik og hljóðritun. Platan ber því merki fagmannsins, því það er valinn maður í hverju rúmi þar sem nær 30 hljóðfæra- leikarar koma við sögu. Það eru allt gamalkunn lög á þessari plötu, en það er skemmtileg tilbreyting að heyra þau í þessum útsetningum þar sem hin létt leikandi fiðla Gra- ham fer með einleikshlutverkið. I sumum lögunum er ef til vill heldur mikill hraði, en á hinn bóginn er það ekki óeðlilegt að stíla upp á það þar sem textarnir sitja heima og fiðlan býður upp á blússandi fjör. Það eru mjög fjölbreyttar út- setningar á plötunni hjá Óla Gauk. Hann byrjar á Fljúgum hærra eftir Jóhann G. Jóhanns- son, gott lag í lotunni, þá kemur Söknuður eftir Jóhann Helga- son, fallegt lag í heldur flókinni útsetningu, því hún gengur á hinn ljóðræna blæ lagsins. Af litlum neista úr sönglagakeppni Sjónvarpsins er þarna á ferð- inni, skemmtilega útfært, en höfundurinn er Guðmundur Ing- ólfsson. Þá er hið gullfallega lag Jóns Nordal við Barnagæluna úr Silfurtungli Halldórs Laxness, eilítið jössuð útsetning, en mjög falleg. Þá eru lögin Hótel Jörð eftir Heimi Sindrason, þjóðlögin Austan kaldinn og Þorraþræll, Sailor á Sankti Kildu eftir Ólaf Gauk, Tondeleyó eftir Sigfús Halldórsson og Gvendur á eyr- inni eftir Rúnar Gunnarssop. Svavar Gests er næmur fyrir tónlistarsmekk íslendinga á dægursviðinu og fljótur að finna aflamenn sem vert er að senda á sjó. Graham Smith er gott dæmi um það því það er fengur að þessari plötu, hún er bæði skemmtileg og vel unnin. Guðmundur Rúnar, Trölli, Stúf- ur og krakkar með jólalögin I skóinn, plata Guðmundar Rúnars, er létt og leikandi, enda byggir hún á alkunnum jólalög- um eftir Ómar Ragnarsson, Hin- rik Bjarnason, Ólaf Gauk, Stef- Hljóm- plotur Árni Johnsen án Jónsson og fleiri. Að þessu sinni hefur Guðmundur Rúnar með sér tríó barna og setja þau skemmtilegan svip á plötuna. Guðmundur Rúnar hefur fært mörg lögin í nýjan búning, en það er erfitt að fara í sporin hans Ómars Ragnarssonar þegar um slíka texta er að ræða. Guðmundur Rúnar hefur fengið til liðs við sig hina ágætu Hljómsveit Stefáns P. og fellur leikur þeirra vel að hinum gam- alkunnu textum og einfaldur og smekklegur stíll þeirra skilar sér vel á þessari plötu. Guðmundur Rúnar er uppá- tektarsamur og í nokkrum lag- anna bregður hann sér jafnvel í hlutverk Stúfs og Trölla til skiptis, en það verður að segjast eins og er, að dimmur rómur Trölla er ekki nógu þróttmikill til þess að skila textanum eins og bezt væri á kosið. Að öðru leyti er hér skemmtilegur prakk- araskapur á ferðinni, en þar sem rödd Guðmundar Rúnars hljóm- ar eðlilegust eru beztu kaflar plötunnar. í stöku lagi gætir hann þess ekki að skila textan- um eins skýrt og ákveðið og vera ber þar sem von er til að börn hlusti á. Margar skemmtilegar útsetn- ingar eru á plötunni og þótt erf- itt sé að hnika við gamalgrónum kunnum lögum, þá fer ekkert á milli mála að Guðmundur Rúnar hefur mótað sjálfstæðan svip á þessa plötu. í stuttu máli er hún skemmtileg eins og lagavalið býður upp á. Þá var það eftir Guðmundi Rúnari að láta sérstakt jólaspil fylgja með plötunni með áprent- uðum leikreglum sem tengjast m.a. lögunum á plötunni og ég fékk svo sem tækifæri til þess að kynnast spilinu einnig, því 5 ára gamall sonur minn heimtaði spil eftir spil og fannst æðislega skemmtilegt, eins og hann orð- aði það þegar ég lenti á stjörn- unum þar sem fyrirskipað var að hoppa á öðrum fæti fjóra hringi og gala eins og hani, eða hoppa upp á stól og segja: Gleðileg jól. Það má segja að jólaspilið sé eins konar aukabiti með því sem var I skónum. Menningar- auki Ingveldar Hjaltested Stundum minnir rödd hennar á þytinn af vængjum arnarins, stundum á þeyinn sem vaggar holtasóleynni svo blíðlega og stundum spinnur hún tónana þannig að úr verður norræn stemmning til allra átta. Ing- veldur Hjaltested hefur sér- stæða sópranrödd fyrir ljóða- söng og það er með ólíkindum hvað hún nýtur sín vel þegar mest á reynir. Á plötu hennar sem SG- hljómplötur hefur gefið út ný- lega eru 16 lög, margar af perl- um íslenskra sönglaga. Þá er hlutur Jónínu Gísladóttur píanó- leikara mjög glæsilegur, túlkun hennar einkennist af öryggi og reisn. Nokkur laganna finnst mér bera af í túlkun Ingveldar og má þar nefna Við Sundiö og Draumalandið sem söngvarinn flytur af tærri snilld. Gígjan er glæsileg í túlkun Ingveldar og Vöggukvæðið fagurt. Þá eru Sjó- mannavísurnar fluttar á skemmtilegan hátt og þannig mætti lengi telja. Þetta er tíunda einsöngvara- plata SG-hljómplatna og það er mikill fengur að því menning- arstarfi sem Svavar Gests hefur unnið á þessum vettvangi. Kom- andi kynslóðir eiga eftir að meta það starf að verðleikum þótt fremur fari hljótt í dag. Ingveldur hóf söngferil sinn í Þjóðleikhúsinu, en henni hefur sífellt vaxið ásmegin og hún er mikili stemmningssöngvari á tónleikum. Hún hefur numið söng víða hjá hæfustu kennurum bæði heima og heiman, en þegar hún rís hæst ber hún þess merki að hafa notið kennslu Þuríðar Pálsdóttur. Ingveldur hefur óvenju mikla sópranrödd og sérstæða að sama skapi og það fer einhvernveginn ekki á milli mála að það er hin norræna kona sem syngur, hún syngur út í víðáttuna. Þær Ingveldur og Jónína hafa starfað saman á undanförnum árum, enda er örugg samvinna þeirra hnökralaus og byggir þar hvor upp aðra. Þessi plata er menningarauki. 1 < m jj 2 > Z m 5 m JO tr m <o c/> > 3J > 30 T3 0> Crt O O 30 >■ I > cz O) cfw Q O eita _ V\ú^ % o> ANNA SKOÐAÐI HEIMINN LlKA VMMV 8KOÐVÐI HEIIAIIHM HKV Unglingar á fylliríi Bókmenntír Sveinbjörn I. Baldvinsson Páll Pálsson: HALLÆRISPLANIÐ 102 bls. Iðunn. Þessi skáldsaga Páls Pálssonar er auglýst af útgefanda í sjónvarpi sem barna- eða unglingabók. Hún hefur því kannski lent á rangri hillu, þegar mér var falið að skrifa um hana. Hún gæti sem sagt verið ágæt sem slík, þótt mér hafi ekki þótt varið í hana. En hvað um það. Mér finnst ekki gaman að þess- ari sögu. Það er einkanlega vegna þess að við lestur hennar finnst mér ég ekki fá neina sérstaka samúð og eiginlega varla nokkurn áhuga á sögupersónunum, né held- ur söguefninu, sem er að miklu leyti þetta: Unglingar á fylleríi. Það er ekkert óskaplega langt síð- an ég var sjálfur unglingur en bók Páls Pálssonar varð til þess að ég fagnaði því enn og aftur að vera ekki unglingur núna. Það virðist ekki vera gaman. Ekki einu sinni athyglisvert. Saga Páls fjallar um unglinginn Eirík, sem er skotinn í stelpu í sama bekk og er líka í vandræðum með fílapenslana og reykir og drekkur í laumi. Fyrst fylgjumst við með því er Eiríkur vaknar til að fara í skólann. Móðir hans, sem kölluð er „mamman" í bókinni, vekur hann m.a. með þessum hlý- legu orðum: „Drullaðu þér á lappir/'“~ segi ég.“ (bls 6). Um kvöldið er skólaball og Eiki hittir ástina sína og bingó, allt gengur upp hjá þeim. Daginn eftir er lagt á ráðin um að halda mikið partý og Eiki og vinirnir fara að útvega áfengi. Svo rennur upp föstudagur og um kvöldið er fyll- erí og farið á „Planið", þar sem félagi Eiríks slasast í slagsmálum, en Eiki kemst heim heilu og Góðir straumar í skógarkofanum Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Vigfús Björnsson: Skógarkofinn, skáldsaga. Útg. Bókaútg. Skjaldborg 1982. Það er jafnan forvitnilegt, þeg- ar nýr höfundur kveður sér hljóðs, og mér er ekki kunnugt um að Vigfús Björnsson hafi sent frá sér bók áður, alténd er hér á ferð fyrsta skáldsaga hans. í upphafi virðist bókin fjalla um Salva (eða Svala — prófarkalestur á nafni hans mjög slæmur). Salvi er listamaður af guðs náð, um það efast enginn. Hann hefur komizt í kynni við stúlkuna Rebekku, sem er góð stúlka og með þeim takast ástir. Svo kemur að því að Salvi fær styrk til að fara út í heim að forframa sig í listinni. Er nú Salvi úr sögunni lungann úr bókinni og Rebekka hverfur að mestu í bili eftir að hún hefur orðið fyrir því að láta samstarfsmann sinn gera sér barn, það er mikil hneisa og hún fer því huldu höfði langa hríð. Á sviðinu birtist þá Brandur, vin- ur beggja, hann er góður maður eins og aðrar persónur, draum- lyndur og jákvæður og kaupir sér yndislegan skógarkofa, og dútlar þar öðru hverju við skógrækt og iðkar holla lifnaðarhætti fjarri skarkala heimsins. Rakel eitur- lyfjaneytandi mætir nú á svæðinu og verður fyrirferðarmikil það sem eftir er, hún er forfallin og spillt., en þá grípur Brandur til jjess ráðs að fara með hana í skóg- arkofann og er ekki að orðlengja að þaðan kemur hún áður en varir, ný og betri manneskja. Brandur Tröllatryggð Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Haukur Halldórsson: SÖGUR OG TEIKNINGAR ÚR ÍS- LENSKRI ÞJÓÐSAGNAVERÖLD Bókaútgáfan Örn og Örlygur 1982. Haukur Halldórsson er einn þeirra myndlistarmanna sem hef- ur tekið ástfóstri við islenskan þjóðsagnaheim. Þegar aðrir ungir myndlistarmenn velja sér firringu nútímans að viðfangsefni leitar Haukur á vit löngu liðins tíma, freistar þess að gæða þjóðsögurn- ar nýju lífi með kraftmiklum teikningum. Því að kraftmiklar eru þessar teikningar. Það er eitthvað upp- runalegt og sterkt við teikningar Hauks þótt stirðleika gæti á stöku stað. Það er helst þegar hann teiknar mannfólk, tröllin skilur hann betur. Eitt af því sem gerir teikningarnar skemmtilegar er glettni þeirra, ekki síst erótíkin, en Haukur hefur af því yndi að túlka ástir trölla og manna á sinn sérstæða hátt. Nú hefur Bókaútgáfan Örn og Örlygur sent frá sér bók með tröllateikningum Hauks Halldórs- sonar og eru jafnframt birtar í henni sögur sem listamaðurinn sækir innblástur í. Flestar eru sögurnar úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar, ein er úr Gráskinnu Gísla Konráðssonar, nokkrar samdar af listamanninum sjálfum samkvæmt skilningi hans á hug- arheimi íslenskra þjóðsagna. Sumar myndanna eru án tengsla við sögur í bókinni, en eiga að skýra ýmislegt sem þjóðsögurnar birta lesendum sínum. Úr þessu hefur orðið hin eigu- legasta bók sem margir munu fagna. Hér má eiga endurfundi við gamlar sögur og skoða þær á ný með augum listamannsins og um leið bera þær saman við eigin hugmyndir um tröll. Hver man til dæmis ekki eftir Jóni Loppufóstra sem flagðkonan stal þegar hann var við fjallagrasatínslu. Hún hafði Jón heim í helli sinn, en þar var systir hennar fyrir: „Systurn- ar voru báðar í blóma aldurs síns, en sökum þess að þá var kristni fyrir löngu komin í land og tröll á förum hugðu þær að efna Jón þennan til fylgjulags við sig svo þær gætu aukið kyn sitt. Lögðu þær því alla alúð á að fara sem bezt með hann og láta ekkert skorta er eflt gæti þroska hans. Iðulega tóku þær hann og mökuðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.