Morgunblaðið - 15.12.1982, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
Ty lenol-morðinginn ?
Ncw Vork, 14. dcscmbcr. \1.
JAMES W. Lewis, sem eftirlýstur hefur verid í tengslum vid Tvlenol-mordin,
var handtekinn í gær, eftir að starfsmaður í bókasafni í New York bar kennsl
á hann þar sem hann sat og las blöðin í ró og spekt. Hringdi bókavörðurinn
í lögregluna og gafst Lewis upp án mótþróa.
Að sögn talsmanna lögreglunn-
ar í New York, freistaði Lewis
þess að svíkja eina milljón dollara
út úr Johnson/Johnson lyfjafyr-
irtækinu, að öðrum kosti myndu
fleiri verða eitrinu að bráð, en eins
og frá hefur verið greint í fréttum,
létust sjö manns í Chicago á tíma-
bilinu 29. september — 1. október,
eftir að hafa tekið inn sterkt Tyl-
enol sem blásýru hafði verið
blandað út í. Johnson/Johnson-
fyrirtækið í New York framleiðir
Tylenol.
Kenneth Walton hjá álríkislög-
reglunni sagði, að þrátt fyrir fjár-
kúgunartilraunir Lewis væri ekk-
ert sem bendlaði hann sannanlega
við Tylenol-morðin, það væri alveg
eins til í dæminu að hann hefði
einungis ætlað sér að notfæra sér
stöðuna í eigin þágu.
Sameinuðu þjóðirnar:
Samþykktu
friðartillögur
Samcinuðu þþVðirnar. 14. dcscmber. Al*.
ALLNIIERJARMNG Sameinuðu
þjóðanna hefur samþykkt tvær til-
Veður
víða um heim
Akureyri +1 snjókoma
Amsterdam 1 skýjað
Aþena 18 heióskírt
Barcelona 11 heióskfrt
Berlín 2 skýjaó
Brössel 4 skýjaó
Buenos Aires 27 rigning
Caracas — vantar
Chicago 1 skýjaó
Dyflinni 9 skýjaó
Feneyjar 1 skýjað
Frankturt 3 skýjaó
Fasreyjar 4 skýjaó
Gent 8 heiðskírt
Helsinki +7 heióskírt
Hong Kong 17 heióskírt
Jerúsalem — vantar
Jóhannesarborg 29 heiðskírt
Kairó 13 skýjaó
Kaupmannahöfn 1 skýjaó
Las Palmas 19 skýjaó
Lissabon 14 heióskírt
London 6 skýjaó
Los Angeles 20 léttskýjaó
Madrid 11 heióskírt
Malaga 13 léttskýjaó
Mallorca 14 léttskýjaó
Mexikóborg 21 heióskírt
Miami 23 skýjaó
Montreal +22 skýjaó
Moskva 3 skýjaó
Nýja Delhí 24 heióskírt
New York +5 heióskírt
Ósló +12 heióakirt
Parts 6 léttskýjaó
Reykjavík +2 snjóél
Rio de Janeiro 33 skýjaó
Róm 15 rigning
San Francisco 14 skýjað
Stokkhólmur +2 skýjaó
Tókýó 9 skýjaó
Vancouver 8 skýjaó
Vfn 7 skýjaó
lögur sem miða að því að stöðva
vígbúnaðarkapphlaupið. I>á hefur
þingið skipað nefnd til þess að rann-
saka og skila áliti um hugsanlega
notkun á ólöglegum eiturefnavopn-
um.
Fyrst tók ráðið fyrir tillögu frá
Indlandi sem fól í sér stöðvun á
framleiðslu kjarnorkuvopna og
framleiðslu á tækjum til eyðingar
slíkra vopna án allrar áhættu. 122
greiddu tillögu þessari atkvæðl
sitt, 16 voru á móti, en 5 fulltrúar
voru fjarverandi.
Því næst var tekin fyrir s^gjisk-
mexíkönsk tiliaga sem fól í ser að
engin kjarnorkuvopn yrðu fram-
leidd næstu fimm árin og Banda-
ríkin og Sovétríkin ættu að nota
tímann til þess að komast að end-
anlegu samkomulagi í þessum efn-
um. 119 greiddu tillögunni at-
kvæði, 17 voru á móti, en nokkrir
sátu hjá eða voru fjarverandi.
Sovétmenn og bandamenn
þeirra greiddu tillögunni um
stöðvun framleiðslu kjarnorku-
vopna atkvæði sitt, Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra í
Vestur-Evrópu voru hins vegar á
móti tillögunni. Tillagan um skip-
an rannsóknarnefndar varðandi
eiturefnahernaðinn fékk 86 at-
kvæði gegn 19, en fjölmargir ým-
ist sátu hjá eða voru fjarverandi.
Meðal þeirra sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni voru Sovétríkin,
en þau hafa legið undir grun um
að nota slík vopn í hernaði sínum í
Afganistan.
Sovétmenn lögðu á hinn bóginn
fram tillögu þar sem þeir lýstu yf-
ir miklum áhyggjum yfir vaxandi
framleiðslu og möguiegri notkun
slíkra eiturefna og hvöttu til við-
ræðna við Bandaríkin um lausnir.
Slíkar viðræður stóðu yfir til árs-
ins 1980, en Bandaríkjamenn slitu
þeim þegar Sovétmenn sendu her
sinn inn í Afganistan. Tillaga Sov-
étmanna var samþykkt með mikl-
um meirihluta atkvæða, aðeins
Bandaríkjamenn voru tillögunni
mótfallnir, hins vegar sátu marg-
ar þjóðir hjá eða voru fjarstaddar.
Loks var samþykkt tillaga án
mótatkvæða um að halda áfram
öllum gagnlegum friðar- og af-
vopnunarviðræðum.
Ætluðu Búlgarar að
myrða Lech Walesa?
Fyrrum starfsmaður ítalskra verkalýössamtaka játar að svo sé
Róm, 14. dcscmber. AP.
BIILGARSKIR leyniþjónustu-
menn höfðu á sinum tíma sam-
band við liðsmenn Rauðu her-
deildanna, itölsku hryðjuverka-
samtakanna, og lögðu á ráðin með
þeim að myrða Lech Walesa, leið-
toga Samstöðu, þegar hann kæmi í
heimsókn til Rómar. ítölsk blöð
skýra frá þessu og segjast hafa
fyrir því mjög áreiðanlegar heim-
ildir.
Luigi Scricciolo, embættis-
maður ítalskra verkalýðssam-
taka, sem nú bíður dóms fyrir
njósnir og aðild að Rauðu her-
deildunum, hefur skýrt svo frá,
að hann hafi rætt um morðárás
á Lech Walesa við búlgarska
njósnara og hafi hún átt að
verða í Róm í janúar 1981 þegar
Walesa var þar í heimsókn.
Scricciolo, sem er fyrrum yfir-
maður alþjóðlegrar skrifstofu ít-
ölsku verkalýðssamtakanna
UIL, skipulagði sjálfur heim-
sókn Walesa og fund hans með
Páli páfa.
Scricciolo er gefið að sök að
hafa njósnað fyrir Búlgara frá
árinu 1976 og segir í dagblaðinu
The Rome Daily American, að
hann hafi gefið þeim „reglulega
skýrslu um ítölsk málefni".
Scricciolo, sem einnig er uppvís
að því að vera félagi í Rauðu
herdeildunum, notaði frænda
sinn, Loris, sem milligöngumann
þegar hann kom á fundum með
þeim og búlgörsku leyniþjón-
ustumönnunum.
Antonio Savasta, einn af leið-
togum Rauðu herdeildanna, sem
nú er í haldi, skýrði svo frá fyrr
á þessu ári, að búlgarskir njósn-
arar hefðu boðist til að aðstoða
hryðjuverkamennina eftir að
þeir rændu bandariska hers-
höfðingjanum James L. Dozier i
fyrra. Sagði hann, að Scricciolo
hefði haft milligöngu um þetta
boð og einnig komið áleiðis
NATO-skýrslum til Búlgaranna
og skýrslu um yfirheyrslur
hryðjuverkamannanna yfir
Dozier.
The Rome Daily American
segir einnig, að Scricciolo hafi
nefnt með nöfnum fjóra sam-
starfsmenn sína búlgarska og að
allir séu þeir starfsmenn sendi-
ráðs lands síns í Róm. Ennfrem-
ur kemur fram i blaðinu, að
Vatikanið hafi lagt Samstöðu til
50 milljónir dollara en það var
ekki skýrt frekar. Scricciolo og
kona hans, Paola, sem einnig er
starfsmaður verkalýðssamtak-
anna, voru handtekin í júlí sl.
Giorgio Benvenuto, forseti
UIL, var til yfirheyrslu hjá ít-
ölsku lögreglunni sl. laugardag
og sagði á eftir, að hann efaðist
ekki um, að Scricciolo hefði verið
komið fyrir hjá verkalýðssam-
tökunum til að njósna fyrir
Búlgara og Pólverja. ítölsk blöð
sögðu frá því um helgina, að
Scricciolo hefði ásamt öðrum
verkalýðsmönnum farið til Pól-
lands í desember 1980 til fundar
við Walesa. Á pólsku landamær-
unum hefði Scricciolo einn
manna verið tekinn til yfir-
heyrslu hjá landamæravörðun-
um og ekki látinn laus fyrr en
eftir klukkustund. Er getum að
því leitt, að á þeim tíma hafi
hann gefið Pólverjunum ýmsar
upplýsingar um Samstöðu og
fjármál samtakanna.
Walesa krýpur fyrir páfa f janúar 1981. Búlgarska leyniþjónustan lagði á
ráðin um að myrða Walesa í þessari heimsókn hans til ftalíu að því er
Luigi Scricciolo segir, en hann er nú í haldi, sakaður um njósnir fyrir
Búlgaríu.
Einn i Búls ;ai ran ina
farin c n úr ] > lai adi I
Fridhelgi sendiráðsmanna foröaði honum frá handtöku
Ítalía:
Róm, 14. desember. AI*.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ ítalska viðurkenndi í dag, að því hefði ekki
tekist nógu snemma að fá afnumin diplómatísk réttindi búlgarsks sendi-
ráðsmanns, sem grunaður er um aðild að morðsamsæri gegn Páli páfa. Af
þeim sökum væri Búlgarinn nú farínn úr landi.
Þessi viðurkenning kemur
fram í skýrslu frá utanríkisráðu-
neytinu þar sem það greinir frá
tilraunum sínum til að hafa
hendur í hári Búlgaranna, sem
grunaðir eru um að hafa lagt á
ráðin um banatilræðið við páfa.
Itölsk blöð gagnrýna stjórnina
nú ákaft fyrir seinagang í þessu
máli og þingmenn hafa hvatt til
að öll samskipti ítala og Búlgara
verði tekin til endurskoðunar.
Utanríkisráðuneytið kveðst
hafa, að beiðni ítalska saksókn-
arans, farið þess á leit við búlg-
arska sendiherrann 26. nóvem-
ber sl., að diplómatísk réttindi
Teodoro Ayvazov, gjaldkera
sendiráðsins, yrðu afnumin en
því hefði hann neitað. Nokkrum
dögum síðar var svo tilkynnt, að
Ayvazov væri farinn til Búlgaríu
þar sem starfi hans væri lokið.
Pietro Longo, leiðtogi sósíal-
demókrata, krafðist þess á þingi
í dag, að samskipti Itala við
kommúnistarikin í Austur-
Evrópu yrðu tekin til allsherjar-
endurskoðunar. „Við höfum orð-
ið fyrir dæmafárri aðsókn.
Hryðjuverkin voru komin með
allt samfélagið fram á ystu
brún,“ sagði Longo þegar til um-
ræðu var traustsyfirlýsing á
nýja stjórn Fanfanis, en umræð-
urnar hafa næstum eingöngu
snúist um meinta herferð búlg-
örsku leyniþjónustunnar á hend-
ur ítölsku samfélagi.
Stórblaðið Corriere della Sera
segir í dag, að Mario Moretti,
einn leiðtoga Rauðu herdeild-
anna, hafi margsinnis gert sér
ferð á hendur til Búlgaríu og því
er einnig haldið fram í ítölskum
fjölmiðlum, að Búlgarar eigi að-
ild að miklum eiturlyfja- og
smyglhring, sem afhjúpaður var
í borginni Trento fyrir skömmu.