Morgunblaðið - 15.12.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
19
Á skrifstolu MæArastjrksnefndar. Þegar Ijósmyndari Mbl. leit þar inn, var
Gisli Albertsson að venju (lengst til vinstri) að færa nefndinni sitt framlag til
úthlutunar fyrir jólin. Við borðið situr Guðlaug Runólfsdóttir, gjaldkeri, sem
starfar á skrifstofunni. Hinum megin við borðið situr Unnur Jónasdóttir,
formaður nefndarinnar, og Helga Rafnsdóttir ritari.
Jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar byrjuð
jólasöfnun og úthlutun
MÆÐRASTYRKSNEFNDIN í Keykjavík hefur hafið jólasöfnun sína, eins
og hún hefur gert fyrir hver jól í nærri hálfa öld. Voru samskotalistar sendir
út til fyrirtækja og er byrjað að taka á móti framlögum frá fyrirtækjum og
einstaklingum á skrifstofunni á Njálsgötu 3. Einnig fatagjöfum, sem úthlutað
er þriðjudaga og miðvikudaga kl. 2—6 í Grjótagötu 14. Beiðnir um jólaglaðn-
ing í peningum eru farnar að berast frá samborgurum sem búa við erfið kjör.
a fengu 241 emstaklingur og
konur í Mæðrastyrksnefnd að þeim
beiðnum um fjárhagsaðstoð nú.
Stjórnarkonum kom saman um
að erfiðast ættu einstæðar mæður
og öryrkjar, en einnig aðrir ein-
staklingar, sem rétt kljúfa það að
lifa af tekjum sínum, en vanhagar
um margt. Til dæmis sögðust þær
gleðjast yfir því að hafa nú þegar
fengið nokkuð af góðum fatnaði á
börn og unglinga frá verzlunum og
einstaklingum, en dýrt er að
klæða börn og unglinga þegar úr
litlu er að spila. Mörg sömu fyrir-
tækin styrkja Mæðrastyrksnefnd
ár eftir ár. Þær sögðu að þörfin
virtist svipuð frá ári til árs. Þó
[ imili slika urlausn, og sögðu stjórnar-
sýndist ætla að verða heldur meira af
færi það nokkuð eftir árferði.
Nefndin beinir því til fólks að láta
umsóknir um jólaglaðning berast
henni sem allra fyrst. Síminn á
skrifstofu Mæðrastyrksnefndar er
14349.
Mæðrastyrksnefnd býður upp á
endurgjaldslausa lögfræðiþjón-
ustu allt árið og er opin á mánu-
dögum kl. 10—12, og er það mjög
mikið notað af einstæðum mæðr-
um og fleirum. Lögfræðingur
nefndarinnar er nú Sólveig Pét-
ursdóttir.
Bíóhöllin sýnir
„Litla lávarðinn“
BÍÓIIÖLLIN hefur frumsýnt kvik-
myndina Litli lávarðurinn, sem gerð
er eftir hinni þekktu sögu Frances
Hodgson Burnett, „Little I.ord
Fauntleroy".
Aðalhlutverkin eru í höndum
Ricky Schröder, sem leikur litla
lávarðinn, Alec Guinness, sem
leikur afa hans, jarlinn af Dorin-
court, og Eric Porter, sem leikur
Havisham, sendiboða jarlsins.
Litli lávarðurinn er átta ára
gamall og býr með móður sinni í
fremur fátæklegri íbúð í New
York. Þetta var snemma á 19. öld.
Líf hans er ósköp venjulegt allt
þar til Havisham kemur með þau
boð frá afa drengsins, að hann
vilji fá hann til sín til Englands.
Faðir litla lávarðarins, sonur
jarlsins, hafði kvænst stúlku af
lægri ættum og þar með verið út-
skúfaður. En nú er viðhorf gamla
mannsins breytt, og hann vill fá
sonarson sinn til sín. Verður at-
burðarás þessarar ævintýramynd-
ar ekki rakinn lengra en margt
drífur á daga litla lávarðarins áð-
ur en tjaldið fellur í lok myndar-
innar.
Myndabókaútgáfan gef-
ur út tvær litmyndabækur
Myndabókaútgáfan hefur sent
frá sér tvær litmyndabækur,
„Ævintýri kettlinganna" og
JDvergurinn Daði“. Hersteinn
Pálsson þýddi báðar bækurnar.
Þessar bækur eru fyrir yngstu les-
endurna, þá sem eru nýbúnir að
læra að lesa. Mikið er lagt upp úr
myndum og letur er stórt. Báðar
bækurnar eru 40 blaðsíður að
stærð.
Víðir efnir til sam-
keppni um nafn á
nýjum húsgögnum
EINS og fram kom í fréttum fyrr á
þessu ári, lét Trésmiðjan Víðir hf.
hanna nýja gerð húsgagna, sem ætl-
að var að selja bæði hér heima og
erlendis. Var þetta gert í tilrauna-
skyni og viðtökur hafa verið góðar,
að því er segir í frétt frá fyrirtækinu.
Fyrsta skrefið var hönnun
nýrra húsgagna í samráði og sam-
vinnu við starfsmenn Trésmiðj-
unnar Víðis hf. Til hönnunar-
starfanna var fenginn þekktur
finnskur húsgagnahönnuður, Ahti
Taskinen, arkitekt frá Helsinki.
Taskinen teiknaði og skipulagði
framleiðslu nýrrar húsgagnalínu,
sem síðan hefur verið framleidd í
tiiraunaskyni, og sýnd húsgagna-
fyrirtækjum á Norðurlöndunum
og víðar. Voru þessi húsgögn m.a.
sýnd á hinni þekktu húsgagnasýn-
ingu í Bella Center í Kaupmanna-
höfn sl. sumar. Einnig voru þau
sýnd að Kjarvalsstöðum á sýning-
unni „Hönnun ’82“ sem haldin var
í tengslum við Listahátíð í
Reykjavík á þessu ári.
Næsta skrefið í þessari tilraun
Víðis er að kynna húsgögnin á ís-
lenskum markaði. Hluti af þeirri
kynningu felst í samkeppni um
nafn á húsgögnin, sem fyrirtækið
efnir til nú í desembermánuði.
Húsgögnin verða til sýnis í hús-
gagnaverslunum víða um land, en
þar geta þeir sem áhuga hafa á því
að finna gott nafn á húsgögnin
skoðað þau og fengið sérstök eyðu-
blöð, sem nota á í samkeppninni.
Samkeppninni verður þannig
hagað, að fólk getur sent eyðublað
með tillögu sinni til Trésmiðjunn-
ar Víðis hf í Kópavogi fyrir hinn
20. desember nk., en á Þorláks-
messu tilkynnir dómnefnd um
ákvörðun sína. Dómnefndina
skipa Lovísa Christiansen, híbyla-
fræðingur, Reimar Charlesson og
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjórar. Ein verðlaun verða veitt
fyrir „besta nafnið" en þau verða
sófasett, hannað af Ahti Taskinen.
Noröurland vestra:
Skoöanakönn-
un ráði lista
Framsóknar
Kjördæmissamband framsókn-
armanna á Norðurlandi vestra sam-
þykkti á fundi sínum um helgina, að
á kjördæmisþingi 15. janúar verði
gerð skoðanakönnum um vilja
manna til skipanar framboðslista
flokksins til næstu alþingiskosn-
inga. Var skoðanakönnunin sam-
þykkt samhljóða, en tveir stjórnar-
manna greiddu ekki atkvæði.
Vegna skoðanakönnunarinnar
verður auglýst eftir framboðum
og verða þátttökutilkynningar að
hafa borizt stjórn kjördæmissam-
bandsins fyrir 5. janúar. Úrslit
kannanarinnar verða bindandi
fyrir þrjú efstu sætin, en síðan
mun kjördæmisþingið ganga frá
frekari niðurröðun á listann.
Nú í
DÝRTÍÐINNI
biðja allir um
ÓDÝRU
STJORNU
JÓLAKORTIN
FAST I FLESTUM
BÓKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
LITBRÁ HF.
SÍMAR 22930 - 22865
kr. 140-190
kr.495
Þú verður ekki í vandræðum með að finna skó á fjölskylduna um þessi
jól, því nú eru Hvannþergsþræður á tveimur stöðum
við Laugaveginn og skóúrvalið aldrei glæsilegra.
Stöðugt þerast nýjar og spennandi sendingar og auðvitað eru
allir í jólaskapi.
£Jfvann6erqs6rteSur
LAUGAVEGI 24 og 7r
I IVsei* ijóöar j
VIÐ LAUGAVEG ^
kr.495
kr.523