Morgunblaðið - 08.01.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983
Landsvirkjun:
Nefnd fjallar
um verðlagn-
ingu og sölu-
skilmála
til orkufreks
iðnaðar
STJÓRN Landsvirkjunar skipaði
nýlega nefnd til að fjalla um verð-
lagningu og söluskilmála til orku-
freks iðnaðar. í nefndinni eiga sæti
stjornarmennirnir Jóhannes Nordal,
Baldvin Jónsson, Birgir fsl. Gunn-
arsson og Böðvar Bargason og yfir-
verkfræðingur Landsvirkjunar, Jó-
hann Már Mariusson, segir í frétt
frá Landsvirkjun.
Ennfremur segir, að helstu
verkefni nefndarinnar verði:
a) Að kanna verðlagningu og
aðra skilmála í orkusölusamning-
um Landsvirkjunar við íslenska
álfélagið, Áburðarverksmiðju
ríkisins og íslenska járnblendifé-
lagið. Lagt verði mat á æskilegar
breytingar á þessum samningum
með tilliti til kostnaðarverðs raf-
orku hér á landi, raforkuverðs í
samkeppnislöndum og samkeppn-
isstöðu viðkomandi fyrirtækja.
b) Að meta hvaða orkuverð og
söluskilmála verði hægt að bjóða
nýjum orkufrekum iönaði hér á
landi á næstu árum með tilliti til
viðbótarkostnaðar Landsvirkjun-
ar vegna nýrrar orkusölu. Reynt
verði að bera þetta saman við
orkuverð og skilmála í samkeppn-
islöndum.
c) Að eiga fyrir hönd Lands-
virkjunar aðild að samningum um
endurskoðun orkusölusamninga
við fyrrgreind fyrirtæki í samráði
við iðnaðarráðuneytið og önnur
stjórnvöld eftir því sem við getur
átt.
Helgi V. Jóns-
son formaður
kauplagsnefndar
HELGI V. Jónsson hæstaréttar-
lögmaður hefur, samkvæmt til-
nefningu Hæstaréttar, verið
skipaður formaður Kauplags-
nefndar frá 1. janúar 1983, í stað
Guðmundar Skaftasonar hæsta-
réttardómara, sem frá sama tíma
var leystur frá störfum í nefnd-
inni að eigin ósk. Hann var for-
maður Kauplagsnefndar um 15
ára skeið.
Auk formanns eiga sæti í Kaup-
lagsnefnd Jóhannes Siggeirsson
viðskiptafræðingur tilnefndur af
Alþýðusambandi Islands, og
Vilhjálmur Egilsson hagfræðing-
ur tilnefndur af Vinnuveitenda-
sambandi Islands.
Jóhanna Gisladóttir og Ragnar Henriksson hjá prentsmiðjunni PÁS
virða haftyrðilinn fyrir sér.
Haftyrðill 1 miðborginni
STARFSMENN prentsmiðjunnar PÁS í Miðstræti í miðborg Reykjavík-
ur fundu í porti fyrirtækisins haftyrðil, sem Ævar Petersen náttúru-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnuninni telur að hafi hrakist upp á
landið undan veðrum. Haftyrðillinn er nánast horfinn af íslandi, aðeins
fimm fuglar eru eftir í Grimsey, en hann liflr í milljónatali i Norðuris-
hafi.
„Hann var ágætlega á sig
kominn, en samt orðinn frekar
magur, og þar sem hann er svif-
dýraæta og því bæði tímafrekt
og erfitt að fóstra hann hér, urð-
um við að svæfa hann blessað-
an,“ sagði Ævar.
Ævar sagði að um aldamótin
hafi haftyrðill verpt víða á norð-
anverðu landinu, en varpstöðv-
arnar hér hafi verið þær syðstu,
og talið væri að fuglinn hefði
horfið héðan vegna hlýnandi
loftslags í byrjun aldarinnar.
Eftir væru fimm fuglar, tvö pör
og einn einstaklingur, í Grímsey.
Endurnýjunin væri hæg, þar
sem haftyrðillinn verpti aðeins
einu eggi og ef ungi kæmist upp
yrði hann ekki kynþroska fyrr
en eftir þrjú til fjögur ár. Ef
fuglinn missti eggið verpti hann
ekki öðru það árið.
„Þetta er samt algengur vetr-
argestur hér við strendur, og
stundum hrekur hann á land í
vetrarstórviðrum. Við höfum
dæmi um að þeir hafi hrakist
hundruðum saman, jafnvel upp í
afdali, í álandsvindum. Þeir
fuglar sem hrekjast á land eru
venjulega það illa á sig komnir
að þeir bera þar bein sín,“ sagði
Ævar.
Haftyrðillinn er af svartfugla-
ætt, einn af minnstu sjófuglun-
um, á stærð við skógarþröst og
auðþekktur á kubbslegu vaxtar-
lagi og mjög stuttum hálsi og
nefi. Hann er fugl strandhafa og
úthafs, og verpir í afar stórum
byggðum í holum og smugum í
sjávarbjörgum og fjöruurðum í
ishafslöndum, og sums staðar í
fjallahlíðum í nokkurri fjarlægð
frá sjó.
B-álma Borgarspítalans:
Tvær efstu hæðirnar
í notkun á þessu ári
UNNT VERÐUR að taka tvær efstu
hæðir B-álmu Borgarspítalans I
notkun á þessu ári, að því er fram
kom í ræðu Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra, við síðari umræðu um fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Sagði Davíð að nú rynnu alls
27,7 milljónir til framkvæmda á
þessu sviði, en framlag til B-álm-
unnar lækkaði á þessu ári um 3,1
milljón til samræmis við nýjar
upplýsingar um líklegt framlag
Framkvæmdasjóðs aldraðra. Hins
vegar hækkar framlag til stofn-
ana í þágu aldraðra um 2,7 millj-
ónir króna á árinu. Framlag borg-
arinnar til þjónustuálmu Borg-
arspítalans lækkar um eina millj-
ón króna, enda er ekki gert ráð
fyrir neinu framlagi á fjárlögum
ríkisins til framkvæmda þar.
Davíð nefndi einnig að gert væri
ráð fyrir framlagi að upphæð 1,5
milljón króna til smíði íbúðar í
raðhúsi, sem ætluð er sem
skammtímaheimili fyrir þroska-
hefta, og er þetta gert í samræmi
við tillögur nefndar sem unnið
hefur að þessum málum.
Framlag borgarsjóðs til heilsu-
gæslustöðva verður á þessu ári
helmingi meira en áskilið er í lög-
um, þó það lækki um 300 þúsund
krónur á árinu.
Sjómannasamband fslands:
Formannafundi frestað
Formannaráðstefnu Sjómanna-
sambands íslands, sem boðað
hafði verið til á morgun, sunnu-
dag, hefur verið frestað vegna ill-
viðris og ófærðar, þar eð þátttak-
endur utan af landi komast ekki
til höfuðborgarinnar alls staðar
að.
Boðað er til þessarar ráðstöf-
unar vegna fiskverðsákvörðun-
arinnar um áramót, en sjómenn
hafa lýst megnri óánægju með
hana, einkum 4% gjald á út-
flutning, sem fer til niður-
greiðslu á olíu. Telja þeir af-
skipti ríkisvaldsins af samn-
ingamálum sjómanna með öllu
óþolandi.
Hjörleifur setur Alu-
suisse úrslitakosti
„RÍKISSTJÓRNIN lítur þessi við-
brögð yðar alvarlegum augum. Þau
spilla sambandi milli aðila og stofna
enn á ný i hættu möguleikum á því
að deilan verði leyst með samning-
um,“ segir í skeyti því sem Hjörleif-
ur Guttormsson, iðnaðarráðherra,
sendi Alusuisse miðvikudaginn 5.
janúar sl„ en skeyti þetta lagði ráð-
herrann fram í ríkisstjórn daginn
eftir að hann hafði sent það, og án
þess að ríkisstjórninni hefði gefist
færi að ræða álmálið frá því fyrir
hátíðar, eins og fram kom hér í blað-
inu í gær.
Þau atriði sem iðnaðarráðherra
lítur svo „alvarlegum augum" að
þau geti leitt til viðræðu- og
samningsslita, er sá fyrirvari sem
dr. Paul Múller, aðalsamninga-
maður Alusuisse, hefur haft því á
að hann leggi til við stjórn Alu-
suisse, að hún samþykki upp-
hafshækkun á raforku. Vill dr.
Múller, að fyrir liggi samþykki ís-
lensku ríkisstjórnarinnar við því,
að stækka megi álverið í Straums-
vík þannig að tekið verði í notkun
þriðja framleiðslukerfið, og að
Alusuisse sé heimilt að selja allt
að 50% af eignarhluta sínum til
annarra í stað 49% eins og nú er.
Skeyti iðanðarráðherra frá því
á miðvikudaginn lýkur með þess-
um orðum: „Það er því ljóst, nema
vér fáum frá yður endanlega og
ótvíræða yfirlýsingu um að þér sé-
uð tilbúnir til að hefja skynsam-
legar samningaviðræður á grund-
velli samkomulagstillögunnar sem
vér höfum lagt fram, að vér eigum
þann eina kost að leita lausnar á
vandamálinu eftir öðrum lögleg-
um leiðum."
Þorskafli landsmanna:
90.000 lestum minni
1982 en árið áður
Snæfellsnes:
Símasambands-
laust vegna
brotinna
símastaura
Borg, Miklahollshreppi, 7. janúar.
EFTIR óvenjulegan illviðris-
kafla sem staðið hefur um
nokkurn tíma er nú í dag
vinnufært. Verið er að
hreinsa snjó af vegum, sem
er mikill. Verst var veðrið á
miðvikudag, afspyrnurok og
snjókoma. Ekki er mér kunn-
ugt um að slys hafi orðið eða
skaðar á mannvirkjum.
Óhemjulega mikil fönn er nú
hér í sveitum á sunnanverðu
Snæfellsnesi. í Staðarsveit og
Breiðuvík er nú símasambands-
laust. Bílstjóri sem var að aka
börnum heim úr Laugagerðisskóla
komst að Görðum í Staðarsveit.
Hjá Staðarstað taldi hann átta
símastaura brotna og má búast
við að fleiri brotnir staurar séu
vestar í sveitinni.
Páll
16 tíma fundur í borgarstjórn
FUNDUR borgarstjórnar Reykja-
víkur, þar sem afgreidd var fjár-
hagsáætlun borgarinnar fyrir þetta
ár, 1983, stóð í um 16 klukku-
stundir og lauk um klukkan 9 í
gærmorgun, föstudag.
Fundurinn hófst klukkan 17 á
fimmtudaginn, en fundir borgar-
stjórnar eru jafnan haldnir 1. og
3. fimmtudag hvers mánaðar.
Mjög óvenjulegt er að fundir
borgarstjórnar séu svo langir, en
þó hefur það komið fyrir þegar
síðari umræða fjárhagsáætlunar
fer fram, eins og í þessu tilfelli.
Lengsti borgarstjórnarfundur
sem Mbl. er kunnugt um stóð í 22
klukkustundir, en þá fór einmitt
fram síðari umræða um fjár-
hagsáætlun. Sá fundur hófst
klukkan 14.00 og stóð til hádegis
daginn eftir.
HEILDARAFLI íslenzkra fiskiskipa
varð 671.950 lestum minni á síðasta
ári en árið 1981 samkvæmt tölum
Fiskifélags íslands. Miðað við sömu
ár minnkaði þorskafli landsmanna
um 89.329 lestir og heildar botnfisk-
aflinn um 45.790 lestir. Heildar-
þorskaflinn á síðasta ári varð alls
372.566 lestir samkvæmt bráða-
birgðatölum Fiskifélagsins en árið
1981 varð hann 461.895 lestir. Hvað
heildaraflamagnið varðar skiptir
mestu að á síðasta ári varð nánast
engin loðnuveiði en 1981 veiddust
642.430 lestir.
Þorskafli síðasta árs skiptist
þannig milli báta og togara, að
bátar öfluðu alls 206.682 lestir en
togarar 165.884 lestir á móti
247.816 lestum og 214.079 lestum
1981. Hvað varðar aðrar fiskteg-
undir má geta þess að mismunur á
heildar botnfiskaflanum á milli
áranna er óhagstæður um 45.790
lestir, en svipað magn veiddist af
öðrum tegundum bæði árin.
í desember síðastliðnum reynd-
ist aflinn milli áranna óhagstæður
um alls 45.328 lestir hvað heildina
varðar, og þar gerir loðnan enn
útslagið, því að í þeim máhuði
1981 veiddust 47.356 lestir af
henni, en ekkert á þessu ári. Sé
loðnan undanskilin hefur því afl-
azt meira í desember síðastliðnum
en í sama mánuði 1981. Þorskafl-
inn varð 900 lestum meiri í des-
ember 1982 en 1981 og heildar-
botnfiskaflinn varð 1.111 lestum
meiri í desember 1982 en 1981.
ö
INNLENT
Athugasemd frá
Morgunblaðinu
FRÉTT sú, sem Morgunblaðið
birti í fyrradag, fimmtudaginn 6.
janúar sl., um meintar hug-
myndir Guðmundar G. Þórarins-
sonar og samstarfsmanna hans
um sameiginlegt framboð með
Gunnari Thoroddsen og Vil-
mundi Gylfasyni var röng.
Heimildir Morgunblaðsins fyrir
frétt þessari voru svo nákomnar
Guðmundi G. Þórarinssyni og
aðrar aðstæður í tengslum við
fréttina með þeim hætti, að
Morgunblaðið taldi víst, að þess-
um heimildum mætti treysta.
Það mat var að vísu byggt á al-
mennum heiðarleika í samskipt-
um milli manna. Sá heiðarleiki
var hins vegar ekki til staðar, og
biður Morgunblaðið lesendur
sína afsökunar á þeim mistök-
um, sem leiddu til birtingar
þessarar fréttar.
í Morgunblaðinu í g*r voru
ummæli höfð eftir Jósteini
Kristjánssyni, einum frambjóð-
enda Framsóknarflokksins í síð-
ustu borgarstjórnarkosningum,
þar sem hann segir, að hug-
myndir af þessu tagi hafi verið á
döfinni og kannanir farið fram. í
Dagblaðinu Vísi í g*r, segir
þessi sami maður, að Morgun-
blaðið hafi haft rangt eftir sér.
Af því tilefni skal upplýst, að
ummæli þau, sem birt voru eftir
Jósteini Kristjánssyni í Morgun-
blaðinu í gær, voru lesin fyrir
hann daginn áður og samþykkti
hann birtingu þeirra.