Morgunblaðið - 08.01.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983 13
FERÐAMÁL
Atvinnutækifæri — atvinnugrein
Eftir Gunnar
Friðþjófsson, Osló
„Frá þjóðrélagsins hálfu eru atvinnuvegirnir
ekki neitt takmark í sjálfu sér, miklu heldur
afleiðingarnar eða áhrifin sem þeir valda í
þjóðfélaginu.“
— Sondre Svalastog.
Fram til dagsins í dag hefur ís-
lenskt viðskiptalíf og afkoma
þjóðfélagsins í heild verið háð
aflabrögðum og því verði, sem
okkur hefur á hverjum tíma tekist
að fá fyrir sjávarafurðir okkar á
erlendum mörkuðum. Hinar ár-
legu sveiflur í aflamagni og mark-
aðsverði hafa oft valdið óstöðug-
leika í íslensku þjóðfélagi.
Andstætt við flest önnur ríki er
á íslandi hvorki nægur vinnu-
kraftur né auðlindir til að fram-
leiða allar æskilegar vörutegundir
á hagkvæmastan hátt, né nógu
mikil eftirspurn til að íslenskur
markaður geti einn borið hag-
kvæma framleiðslu af hverju tagi.
Án millilandaverslunar og án
þeirra möguleika, sem slík verslun
hefur í för með sér í formi aukinn-
ar framleiðni, hagkvæmni og
lækkaðs vöruverðs þyrftu jjegnar
margra hinna minni ríkja að
draga úr neyslu frá því sem nú er.
Á íslandi er hagkvæmt að fram-
leiða einstakar vörutegundir.
Þessarar framleiðslu neytum við
sjálf og/eða seljum til annarra
landa og öflum með því gjaldeyris.
Hins vegar er meginþorri þeirra
vara sem við notum eða neytum
innfluttur og greiddur með gjald-
eyri, sem oft er hins vegar af
skornum skammti vegna þeirra
verðsveiflna og aflabrests, sem
höfuðútflutningsatvinnuvegur
okkar verður fyrir. Aukinn stöðug-
leiki innan atvinnulifsins er for-
senda öruggrar afkomu.
Atvinnuvegirnir
Fram til ársins 2000 þarf að
skapa 26.000 ný störf, og hinar
hefðbundnu atvinnugreinar eru
ekki færar um það.
Orðið framleiðni er notað til að
tákna og mæla hlutfallsleg afköst
í framleiðslu. Ef framleiðni eykst
umfram framieiðslu, t.d. vegna
tæknivæðingar, þá fækkar at-
vinnutækifærum. Mismunurinn
verður hlutfallslega færri störf.
I riti sem heitir „Þróun sjávar-
útvegs“ og gefið er út af Rann-
sóknarráði rikisins, segir m.a.:
„Eins er það nú almennt viður-
kennt, einnig í röðum hagsmunaaö-
ila, að sérhver viðbót við fiskiskip og
fiskvinnsluhús sé óþörf og verði að-
eins til þess að draga úr nýtingu
þeirra sem fyrir eru og spilla afkomu
þeirra. Samtök útgerðar og fisk-
vinnslu munu í vaxandi mæli sporna
við undanlátssemi stjórnvalda í
þessum efnum.“
Á öðrum stað í sama riti stend-
ur ennfremur:
„Framkvæmdastofnun áætlar
mannaflaþörfina í fiskiðnaði verða
svipaða árið 2000 og nú er, eða um
10.000 ársverk. Þróunin verður lík-
lega sú að vinnuafl verður stöðugra,
vinnuálag minna en jafnframt getur
þurft að hækka dagvinnulaun um-
fram það sem gerist á almennum
vinnumarkaði."
Með öðrum orðum, aukinna at-
vinnutækifæra við fiskveiðar og
fiskvinnslu er ekki að vænta í
framtíðinni.
Byggingariðnaðurinn hefur
undanfarin ár skapað mörg ný
störf. í dag er gert ráð fyrir stöðn-
un og aukinni framleiðni, sem síð-
an mun leiða til færri ársverka
innan þeirrar atvinnugreinar. í
framtíðinni er gert ráð fyrir auk-
inni framleiðni og tæknivæðingu í
landbúnaði. Ársverkum þar mun
því ekki fjölga, öllu heldur fækka,
því aukin framleiðsla er óraun-
hæf. Framleiðsluaukningin í iðn-
aðinum er meiri en framieiðni-
aukningin, sem leitt hefur til fleiri
starfa og atvinnutækifæri munu
aukast í þeirri grein í framtíðinni.
Á íslandi hefur hluti þjónustu-
greinanna verið hlutfailslega
minni en i nágrannalöndunum.
Með aukinni framleiðni í öðrum
greinum atvinnulífsins er gert ráð
fyrir að þáttur þjónustugreinanna
muni aukast, sem síðan getur
einnig stuðiað að því að hindra
fólksflótta úr iandinu.
Ferðamál
Ferðamál eru atvinnugrein, sem
þarf að leysa mörg, ólík og nauð-
synleg verkefni í íslensku þjóðfé-
lagi. Til dæmis: Að þjóna Islend-
ingum sem og öðrum, er vilja ferð-
ast um ísland, hvort sem það er í
atvinnuerindum og/eða af ánægju
einni saman.
Rúm 6% af vinnuafli á íslandi
starfa að ferðamálum og eiga
drjúgan þátt í öflun gjaldeyris.
Hinn alþjóðlegi þáttur ferðamál-
anna skapar m.a. grundvöllinn að
samgöngum við útlönd. í nútíma-
þjóðfélagi ætti öllum að vera ljóst
mikilvægi þess fyrir þróun at-
vinnuveganna á Islandi, sem og
fyrir mannleg samskipti yfirleitt,
að hafa góðar samgöngur við önn-
ur iönd.
Ýmis vanþróuð ríki, sem hafa
ætlað að verða sér úti um aukinn
gjaldeyri og aukna atvinnu með
því að auka hlut ferðamála í at-
vinnulífinu, hafa orðið fyrir
vonbrigðum. Ástæðan er oft sú, að
lítill hluti þeirra tekna og þess
ágóða sem myndast verður eftir í
landinu. Erlendar ferðaskrifstofur
sem hafa lönd þessi sem áfanga-
staði nota í flestum tilfellum eigin
flugfélög og eigin hótel, jafnvel
eigin mat og eigin skemmtistaði,
til að þjóna viðskiptavinum sín-
um. Heimamenn eru notaðir til að
inna af hendi verst launuðu störf-
in.
Á íslandi horfir þetta öðru vísi
við. íslendingar eiga og stjórna að
mestu leyti flugfélögunum sem
halda uppi flugsamgöngum við
önnur lönd, sem og hótel og veit-
ingastaði. Á þennan hátt hverfur
„Það er augljóst að ferða-
mál koma hvorki til með
að verða höfuð- né undir-
stöðuatvinnugrein á ís-
landi. Miklu heldur má
líta á ferðamál sem einn
af mörgum skynsamlegum
möguleikum til þess að
levsa þann óstöðugleika,
sem of einhæft atvinnulíf
veldur á íslandi.“
ekki sá gjaldeyrir sem erlendir
ferðamenn gefa af sér, heldur
verður hluti af gjaldeyrisviðskipt-
um landsmanna.
í framtíðinni er gert ráð fyrir
auknum ferðamannastraumi um
heim allan. Helstu ástæður þess
eru m.a. lækkun ellilífeyrisaldurs,
aukinn frítími, betri samgöngur
og aukið atvinnuleysi. Sem áður er
reiknað með því að Evrópa verði
áfangastaður flestra ferðamanna í
heiminum. Árið 1990 er gert ráð
fyrir að 75% af öllum ferðamönn-
um í heiminum ferðist til eða um
Evrópu.
Með auknum skilningi og vilja
íslenskra stjórnvalda er hægt að
gera ferðamál að mikilvægri at-
vinnugrein, sem síðan gæti leitt til
þess að ísland fengi sinn hlut af
þessari aukningu.
Það er augljóst að ferðamál
koma hvorki til með að verða höf-
uð- né undirstöðuatvinnugrein á
Islandi í nánustu framtíð. Miklu
heldur má líta á ferðamál sem
einn af mörgum skynsamlegum
möguleikum til þess að leysa þann
óstöðugleika, sem of einhæft at-
vinnulíf veldur á íslandi.
Fyrirlestur í Háskóla íslands á sunmidag:
„Rekst velferðar-
ríki nútímans á sér-
eignarréttinn?"
Á MORGUN, sunnudag 9. janúar,
flytur Hannes H. Gissurarson cand.
mag. fyririestur í Háskóla íslands í
boði Félags áhugamanna um heim-
speki. Fyrirlesturinn, sem verður
(luttur í stofu 101 i Lögbergi kl. þrjú
síðdegis, nefnist „Séreignarréttur-
inn“. Morgunblaðið forvitnaðist um
það hjá Hannesi, hvað hann hygðist
ræða um.
„Séreignarrétturinn er einn af
hornsteinum þjóðskipulags okkar,
svo að það er í meira lagi tíma-
bært að ræða um hann heimspeki-
lega, enda erum við nú að endur-
skoða stjórnarskrána okkar,“
svaraði Hannes. „Það, sem ég mun
einkum gera í þessum fyrirlestri,
er að reifa rök bandaríska heim-
spekingsins Roberts Nozicks fyrir
séreignarrétti, en óhætt er að
segja, að kenning hans hefur vakið
geypilega athygli fræðimanna síð-
ustu átta árin, eða frá því að bók
hans, Stjómleysi, riki og staöleys-
ur (Anarchy, State, and Utopia),
kom út árið 1974. Nozick leiðir rök
að því, að séreignarrétturinn eigi
að vera fullur og óskoraður og að
velferðarríki nútímans rekist
harkalega á hann og sé því ekki
siðferðilega réttlætanlegt."
I
Hannes sagði síðan: „Ýmsir
fræðimenn hafa gagnrýnt kenn-
ingu Nozicks, stundum með gild-
um rökum. Ég hyggst reyna að
betrumbæta kenningu Nozicks
með því að nota kenningu Hayeks
og fleiri hagfræðinga um hagnýt-
ingu þekkingarinnar. í því sam-
bandi ræði ég um framlag fram-
kvæmdamanna til þjóðlífsins og
tek þar dæmi af þeim Davíð
Robert Nozick
Scheving Thorsteinssyni, Pálma
Jónssyni í Hagkaupum og Ingólfi
Guðbrandssyni í Utsýn. Ég ber
þessa framkvæmdamenn saman
við aðra, sem veita eftirsótta þjón-
ustu á markaðnum, svo sem Pétur
Pétursson knattspyrnumann,
Guðrúnu Helgadóttur barnabóka-
höfund og Stefán íslandi söngv-
ara. Ég ræði einnig um spurningar
eins og þessar: Hvernig kemst
eign á, þar sem engin eign hefur
verið fyrir, svo sem á ónumdu
landi? Hvernig geta menn leiðrétt
það sögulega ranglæti, sem kann
að gera eignarréttarfyrirkomulag
okkar ósiðlegt? Og er þjóðskipu-
lag, sem hvílir á fullum séreignar-
rétti, í raun og veru eftirsóknar-
vert?“
Landsleikur í körfuknattleik
Isbnd
Danmörk
í Laugardalshöllinni í dag kl. 14.00.
Hinn frábæri leikmaöur
Pétur
Guðmundsson
leikur meö íslenska
landsliöinu.
Nú gefst áhorfendum
kostur á að sjá það allra
besta í íslenskum körfu-
knattieik.
ALLIR I
HÖLLINA
í DAG
Síöasti landsleikur þjóöanna
aö þessu sinni fer fram á
morgun í Borgarnesi.
K.K.Í.