Morgunblaðið - 09.01.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
7
HUGVEKJA__
eftir
Pétur Sigurgeirsson biskup
Lúk. 2. 41.—51.
Margir sóttu kirkju um þessi
jól. Það fór eftir hátíðasiðnum.
Jól, — án kirkjunnar og þess
boðskapar, sem hún flytur, hvað
eru þau? Hátíðasiður er trúar-
atriði og dýpri merkingar, en við
gerum okkur kannski grein
fyrir.
í dag fáum við guðspjall til
umfjöllunar, sem greinir frá
fjölskyldu í Nazaret, sem fór ár
hvert til musterisins í Jerúsalem
eftir hátíðasiðnum. Það var á
páskum. María og Jósef tóku
Jesús með sér í musterisferðina,
er hann var tólf ára. Þá voru
mikil tímamót í lífi hans, eins og
annarra drengja í Gyðingalandi.
Gyðingar eru teknir í tölu full-
orðinna á því aldursskeiði, og fá
þá ábyrgð og skyldur. Það gerð-
ist með trúarathöfn í musterinu,
og svipar að sumu leyti til ferm-
ingar hjá okkur.
Gyðingar rækja af kostgæfni
trúarsið þennan enn í dag. Nú er
hins vegar um ekkert musteri í
Jerúsalem að ræða, þar sem það
var eyðilegt í styrjöld við Róm-
verja árið 70 eftir Krist. Leifar
musterisins er grátmúrinn svo-
kallaði. Það er þykkur og hár
múrveggur Gyðingum ginnheil-
agur. Þangað safnast þeir saman
hvaðananæva úr veröldinni og
biðja bænir sínar. Grátmúrinn
er þeim helgidómur. Þeir ganga
fast að veggnum, lesa upphátt úr
helgiritum sínum og róa fram í
gráðið.
Við grátmúrinn koma fjöl-
skylduhópar saman, (en skilrúm
er þó, sem aðskilur konur og
karla) — og þar eru synirnir
„fermdir" í trúarathöfn. Þegar
við hjónin komum til Jerúsalem
1979, sáum við þetta gerast með
háværum söng og lestri úr við-
hafnarbókrollu gamla testa-
mentisins. Drengirnir voru
klæddir skrautlegum klæðum.
Allt fór fram á hebreskri tungu.
Bæn drengjanna við þetta
tækifæri, er á þessa leið: „Þú
hinn eilífi skapari og Drottinn
heimsins. Eg játa trú mína á þig.
Þig tilbið eg, hinn eina ósýnilega
Guð, sem fyrir munn Móse hefur
opinberað þína heilögu kenn-
ingu. Fyrir þínu augliti fell eg á
kné, þú hinn réttláti dómari,
sem endurgeidur gott og illt á
jörðu sem á himni. Á þig, ástriki
faðir alls mannkyns, set eg allt
mitt traust."
Með fermingu í kirkju okkar
staðfesta menn skírn sína á
skeiðskiptum bernsku og æsku,
eða á því ári, er unglingar verða
14 ára. Fermingin var á sínum
tíma innleidd með konungsbréfi
til Jóns biskups Árnasonar 9.
júní 1741, og var einn árangur-
inn af ferð danska prestsins
Harboes hingað til lands.
Menn eru ekki á eitt sáttir um
Guðleg
hand-
leiðsla
það, hvenær rétt sé að fermingin
eigi sér stað. Víst er um það, að
unglingar verða í dag í vaxandi
mæli að mæta ógnum, hættum
og freistingum rétt eins og full-
orðið fólk. Þó að reynt sé að
setja aldurstakmör t.d. að
kvikmyndahúsum, þegar um
myndefni er að ræða, sem ofbýð-
ur ungum sálum, þá kann það að
ná tilgangi sínum þar, en slíkar
takmarkanir við sýningar í sjón-
varpi munu reynast æði hald-
lausar a.m.k. þar sem svo vill til,
að aðeins börn sitja við sjón-
varpið. Þá má benda á þau skað-
ræðisáhrif, sem vídeó-væðingin
getur haft í för með sér.
Sannleikurinn er sá, að eins og
málum er komið í þjóðfélagi
okkar, er vart gert ráð fyrir því,
að börn fái eins og áður að lifa
bernskuskeið sitt. Þau þurfa svo
fljótt að axla ábyrgð að hætti
hinna fullorðnu. Því verður svo
fljótt og vel sem unnt er að
hjálpa þeim til þess að mæta
lífsvandanum. Að þessu leyti
kemur fermingin ekki of
snemma. Það er reynsla mín að á
þessum aldri eru unglingar hvað
mest opnir og móttækilegir til
þess að nema trúarlærdóminn.
Þá er tíminn til að búa manninn
undir framtíð sína. Reynslan
sýnir sannleik þess, sem Jónas
Hallgrímsson kvað: „I vetrar-
hríðum vaxinnar ævi gefst eigi
skjól nema Guð.“
Við skulum ekki gera lítið úr
fermingunni vegna þess að hún
er almennur hátíðasiður. Hér er
ekki „bara“ um siðvenju að ræða.
Markmið fermingarinnar er, að
hún hafi grundvallandi þýðingu
fyrir framtíð unglinganna. Að
því er stefnt með undirbúningi
fermingar og síðan hátíðar í
kirkjum og heimilum. Hvað sem
úrskeiðis kann að fara, þá er
uppfræðsla og staðfesting trúar
og siðferðissjónarmiða kristn-
innar lýsandi afl og handleiðsla
út í þann heim, sem við lifum í
og þess ríkis, sem við væntum á
himni.
Kennari kom dag einn að máli
við sóknarprest sinn og sagði:
„Ég er löngu búinn að ákveða
það, að taka í hendina á þér
þennan dag. Það eru nákvæm-
lega 20 ár síðan þú fermdir mig.“
— Hér má eigi svo lítið lesa milli
lína um gildi fermingar. Við
skólasetningu Gagnfræðaskóla
Akureyrar haustið 1977 hlustaði
ég á setningarræðu skólastjór-
ans, Sverris Pálssonar, og lýk eg
þessum orðum með því að vitna í
ummæli hans við það tækifæri.
Þau eru í samhljóðan við sjónar-
mið margra forustumanna í upp-
eldismálum, sem ég hefi fengið
að kynnast.
„Það er að mínum dómi, ekki
skólaganga, ekki námsgáfur,
ekki lærdómur, sem skera úr um
og ráða úrslitum um manngildi
og lífsgæfu, heldur allt aðrir
hlutir. Þetta er að vísu allt gott
og blessað, en er ekki skilyrði
fyrir hamingju mannsins eða
sönnum ávinningi í lífinu. Það,
sem máli skiptir fyrir hvern ein-
stakling umfram allt, er að vera
sannur og heill maður, að vilja
hið góða og vinna að því af
fremsta megni, sjálfum sér og
öðrum til blessunar. Ef viljann
vantar til þess að vera sannur og
heill og góðviljaður, eru náms-
gáfur og lærdómur ónýtt dót og
einskis virði, geta meira að segja
orðið að hættulegum skaðræðis-
vopnum í þágu hins illa, ef slysa-
lega tekst til. Hinu æðsta marki
nær enginn óstuddur, en í þeirri
viðleitni að ná því, sækja menn
bestan styrk og stuðning til trú-
arinnar á frelsara heimsins og
guðlega handleiðslu."
Fast-
einga-
auglýs-
ingar
eru á bls.
7—8—9—10
—11—12—
13—14 og 15
Skógarhverfi
Glæsilegt einbýli
Glæsilegt einbýlishús á mjög fallegum staö ca.
300 fm á tveim hæöum með innbyggöum bílskúr.
Möguleiki á aö hafa sér íbúö á jaröhæö. Húsiö er
mjög vandað. Lóöin fullfrágengin, sérlega fallegar
og vandaöar innréttingar. Ákveöin sala. Upplýs-
ingar á skrifstofu.
Huginn fasteignamiðlun,
Templarasundi 3.
Sími 25722 og 15522.
29555
29558
Skoðum og verðmetum
eignir samdægurs
Opið í dag frá 1—3
2ja herb. íbúðir
Alftamýri 2ja herb. 65 fm íb. á
1. hæð. Verð 850 þús.
Boðagrandi 2ja herb. 64 fm íb.
á 2. hæð. Verð 880 þús.
Nýbýlavegur 2ja herb. 60 fm ib.
á 2. hæð. Bílskúr. Verð 950 þús.
'Krummahólar 2ja herb. 50 fm
íb. á 3ju hæð. Bílskýli. Verð 740
þús. ' /
3ja herb. íbúðir
Kaplaskjólsvegur 3ja herb. 90
fm íbúð á 1. hæð. Verð 920 þús.
Kaplaskjólsvegur 3ja herb. 88
fm íb. á 3ju hæð. Verð 970 þús.
Laugarnesvegur 3ja herb. 94
fm íb. á 4. hæð. Verð 920 þús.
Breiövangur 3ja herb. 98 fm íb.
á 3ju hæð. Bílskúr. Verð 1150
þús.
Fellsmúli 3ja herb. 80 fm íb. á
jarðhæð. Verð 900 þús.
Njálsgata 3ja herb. 75 fm íb. á
1. hæð. Tvö aukaherb. í kj.
Verð 1 millj.
Stóragerði 3ja herb. 92 fm íb. á
4. hæð. Verð 1.050 þús.
Æsufell 3ja—4ra herb. 98 fm
íb. á 2. hæð. Verð 950 þús.
4ra herb. íbúðir
og stærri
Njarðargata Hæð og rls, 87 fm
+ 30 fm í risi í tvíbýlishúsi. Verð
1 millj.
Fagrabrekka 4ra—5 herb. 120
fm íb. á 2. hæð. Verð 1250 þús.
Grettisgata 4ra herb. 100 fm íb.
á 3ju hæð. Verð 900 þús.
Hraunbær 4ra herb. 110 fm íb.
á 3ju hæð. Verð 1200 þús.
Hverfisgata 4ra herb. 80 fm ib.
á 1. hæð. Verð 880 þús.
Kaplaskjólsvegur 4ra herb.
100 fm íb. á 1. hæð. Verð 1200
þús.
Ljósheimar 4ra herb. 110 fm íb.
á 3ju hæð. Verð 1150 þús.
Meistaravetlir 4ra herb. 117 fm
íb. á 4. hæð. Hugsanlegt að
taka stóra 2ja herb. íb. upp í
hluta kaupverðs.
Kársnesbraut 5—6 herb. 150
fm efri sérhæð. Suður og vestur
svalir. 30 fm bílskúr. Vérð 1,8
millj.
. Fossvogur raðhús 200 fm
raðhús á 4 pöllum sem skiptist í
5 svefnherb., stórar stofur.
Mjög vönduð eign. 30 fm bíl-
skúr. Verð 2,8 millj.
Þórðargata, Borgarnesi 150 fm
raðhús á 2 hæðum, ca. 60 fm
bílskúr. Verð 1,4 millj. Möguleg
skipti á 4ra herb. íbúð á Reykja-
víkursvæðinu.
Langamýri 6 herb. 188 fm á 2
hæðum, 42 fm bílskúr. Verð 2,6
millj.
Eignanaust, Skipholti 5,
Þorvaldur Lúövíksson hrl
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐBÆR-HÁALEITISBRAUT58-60
SÍMAR 35300 & 35301
Viö Sóleyjargötu
4ra—5 herb. íbúð 120 fm á 1.
hæð. Nýtt gler.
Við Þinghólsbraut
2ja herb. íbúð á jarðhæð. Sér
inng. Sér hiti.
Viö Álfheima
4ra herb. glæsileg íbúö á 4.
hæð. Suður svalir. Nýtt teppi.
Geymsluris yfir íbúð. Laus fljót-
lega.
Viö Hvassaleiti
4ra herb. mjög góð íbúð á 3.
hæð með bílskúr. Laus fljót-
lega.
Við Hraunbæ
4ra herb. íbúð á 2. hæð. Ný
eldhúsinnrétting. Ný tæki á
baði. Laus fljótlega.
Viö Drafnarstíg
3ja til 4ra herb. íbúð á 1. hæð.
Við Biönduhlíð
137 fm sér efri hæö. Skiptist í 3
stór svefnherb., stofur, skála og
eldhús. Ný innrétting í eldhúsi.
40 fm bílskúr.
Viö Austurbrún
Sér efri hæð 140 fm skiptist í 2
stofur og 3 svefnherb. Stórt
eldhús, gestasnyrting. Þvotta-
hús á hæðinni. Bílskúr.
Við Skeiðarvog
Endaraðhús tvær hæðir og
kjallari meö bílskúr. I kjallara er
sér 2ja herb. íbúð.
Við Langholtsveg
Einbýli — tvíbýli í steinhúsi.
Bílskúr.
Við Hjallaveg
Einbýlishús hæð og kjallari meö
bílskúr. Laust nú þegar.
í Garðabæ
Glæsiiegt einbýlishús hæö og
kjallari. í kjallara innbyggöur
tvöfaldur bílskúr. Fallega rækt-
uð lóð. (Flatir).
Frakkastígur — Einbýli
Mjög fallegt, endurnýjað timb-
urhús. Skiptist í hæð, ris og
kjallara. Nýtt gler og gluggar.
Ný harðviðareldhúsinnrétting.
Grunnflötur hússins er ca. 70
fm. Eignarlóð.
Við Heiðarás — einbýli
Glaesilegt fokhelt 300 fm éin-
býli á 2 hæðum. Gler og
opnanleg fög nýkomið. Til afh.
strax. Möguleiki að taka 5 herb.
ibúð upp í kaupverð.
Fjarðarás
Einbýli á 2 hæðum. Innbyggður
60 fm bílskúr.
í Smíöum
Við Brekkutún, Kóp.
Einbýlishús fokhelt hæö og ris.
Steypt bilskúrsplata fylgir með.
Teikn. á skrifstofunni.
Fasteignaviðskipti
Agnar Ólafsson,
Arnar Sigurðsson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Selfoss — Hveragerði
— Þorlákshöfn
Selfoss, einbýlishús viö Hlaðavelli um 140 fm aö
stærö á tveim hæöum ásamt 30 fm bílskúr.
Selfoss, 4ra herb. íbúö viö Eyrarveg um 100 fm ásamt
50 fm bílskúr.
Selfoss, 2ja herb. íbúö viö Háukinn.
Hveragerði, einbýlishús um 130 fm aö stærö.
Þorlákshöfn, einbýlishús 94 fm ásamt 40 fm bílskúr.
Þorlákshöfn, viölagasjóöshús ásamt 70 fm bílskúr.
Þorlákshöfn, fokheld einbýlishús og raöhús í bygg-
ingu.
Þorlákshöfn, vantar 2ja og 3ja herb. íbúöir.
Þorsteinn Garöarsson,
viðskiptafrœðingur. Kvöld og helgarsími 99-3834.
fmmm^^mmmmmmmmmm^mi^^mmm
m U [ðbilk
Áskriftarsíminn er 83033