Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983
Annríki er á verk-
stæðum Flugleiða
Á ÞEIM ársd'ma sem minnst er um
flug og flutninga er jafnan mest
annríki í viðhaldsdeild Flugleiða.
Eftir að jólaumferð lýkur hefjast
hinar árlegu skoðanir á flugvélum,
sem framkvæmdar eru á verkstæð-
um félagsins í Reykjavík og Kefla-
vík. Þessar upplýsingar koma fram í
„Félagspóstinum“, fréttabréfi
starfsmanna Flugleiða.
Um þessar mundir stendur yfir
svokölluð C-skoðun á flugvélinni
TF-FLM Fokker MK200. C-skoðun
er framkvæmd á 2000 flugtíma
fresti, og stendur í tvær til þrjár
vikur. I kjölfarið mun síðan Fokk-
er TF-FLN verða tekin í þriggja
vikna skoðun. Að því loknu hefst
skoðun á TF-FLI, Boeing 727-200
þotunni, sem stendur í tvær vikur,
og þar á eftir verður TF-FLG
Boeing 727-100C tekin til í skoðun-
ar. Báðar Boeing-vélarnar fara í
gegnum C-skoðun, sem gerð er á
2400 flugtíma fresti, en ennfremur
INNLENT
er framkvæmdur hluti af svokall-
aðri D-skoðun.
I viðhalds- og verkfræðideild
Flugleiða starfa samtals 153
starfsmenn, þar af eru 84 flug-
virkjar sem vinna beint við skoð-
anirnar.
*
Agúst Einars-
son genginn í
Bandalag jafn-
aðarmanna
ÁGÚST Einarsson fyrrverandi gjald-
keri Alþýðuflokksins er einn af
stofnfélögum aðildarfélags að
Bandalagi jafnaðarmanna í Reykja-
vík, en það var stofnað í fyrrakvöld.
Ágúst var kjörinn í fímm manna
undirbúningsnefnd að starfsemi fé-
lagsins.
Eins og komið hefur fram í
fréttum sagði Ágúst Einarsson sig
úr framkvæmdastjórn Alþýðu-
flokksins fyrir skömmu, ásamt
Garðari Sveini Árnasyni fyrrum
framkvæmdastjóra Alþýðuflokks-
ins. Garðar Sveinn var ekki á
stofnfundinum í fyrrakvöld.
MorgunblaAið/ Kristján Kinarsson.
Lengstu þakplötur á Islandi
ÞESSA dagana er verið að leggja þakplötur á Þjóðar-
bókhlöðu okkar íslendinga, og það engar smáræðis
lengjur, tæplega 23 metra langar, eða rétt mátulegar
til að ná frá mæni niður á þakbrún. Manfreð Vil-
hjálmsson arkitekt Þjóðarbókhlöðunnar sagðist hafa
fengið hugmyndina að þessari lausn á sýningu úti í
Þýskalandi, en þaðan eru plöturnar komnar. „Það er
sérstakt við þessar plötur að það gengur enginn nagli
í gegnum þær, heldur eru þær læstar saman með
sérstökum lásum. Tilgangurinn er auðvitað sá að
reyna að fyrirbyggja leka með þessu móti. Plöturnar
eru úr áli og á þeim er sérstök lakkhúð. Þær eru
rauðar á lit og breidd hverrar plötu er 40 cm,“ sagði
Manfreð um þessar athyglisverðu plötur. Þá gat
Manfreð þess að í sumar er meiningin að tvær efstu
hæðirnar verði klæddar og einangraðar að utan með
sérstökum álskjöldum í sama lit og þakið. Á neðstu
hæðinni verður hins vegar steinsteypan ein látin mæta
veðrum og vindum, en önnur hæðin verður að mestu
úr gleri.
„Talsverður árang-
ur af söfnuninni“
— segir Sigurður Helgason um söfnun
til leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins
„ÞEGAR Ijóst var í kjölfar lands-
söfnunarinnar, að enn vantaði tölu-
vert fé til byggingar leitarstöðinni,
var sett á laggirnar nefnd manna í
viðskiptalífinu, til að reyna að leita
eftir frekari fjárframlögum," sagði
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, í samtali við Mbl., en hann er
formaður nefndarinnar.
„Þessi söfnun hefur síðan staðið
áfram frá því í nóvember sl. og
hefur orðið talsverður árangur af
henni. Hins vegar vantar enn
nokkuð á, að endar náist saman og
söfnunin heldur því enn áfram um
sinn,“ sagði Sigurður Helgason
ennfremur.
Sigurður Helgason gat þess, að
til hliðar við þessa söfnun væri
ennfremur í gangi samskonar
starfssemi í gangi hjá samvinnu-
félögunum, auk þess sem hug-
myndin væri, að fram færi sams-
konar söfnun innan verkalýðs-
hreyfingarinnar.
„Höfum
auknum
„ÞEIR, sem standa að kynningu ís-
lands hér í Englandi, og allir þeir
íslendingar, sem ég hef haft spurnir
af, hafa látið stórkostlega ánægju í
Ijósi með þennan þátt,“ sagði Jó-
hann Sigurðsson, forstöðumaður
skrifstofu Flugleiða í Lundúnum, er
Morgunblaðið ræddi við hann í gær.
Þátturinn um ísland, sem Jó-
hann vísar til hér að ofan, birtist
á rás 1 hjá breska sjónvarpinu,
BBC á sunnudag í þættinum
„Holiday Hour“, sem verður á
dagskrá vikulega út mars. Sam-
kvæmt könnun BBC horfa að
meðaltali 11 milljónir manna á
þáttinn hverju sinni. Fjallar hann
um ferðamál og ferðamöguleika.
Kynningin á íslandi stóð yfir í
rúmar 10 mínútur og var sýnd
mynd, sem 6 starfsmenn BBC
tóku hér á landi í júlí á síðasta ári
undir leiðsögn Jóhanns. Þáttur
þessi er rétt rúmar 10 mínútur að
lengd, en er mjög vel unninn og
kemur miklu til skila á ekki lengri
tíma.
Morgunblaðsmenn sáu hann á
myndbandi I gær og óhætt er að
segja, að fsland hafi hlotið geysi-
legt lof fréttamannsins, sem
hingað kom. Ekki spillti fyrir að
hópurinn virðist hafa verið ein-
staklega heppinn með veður þegar
myndataka fór fram. Sýndar voru
myndir frá Reykjavík, Akureyri,
Air India-samningurinn framlengdur
breyttur í einn mánuð:
Flugleiðir manna
vél á móti Cargolux
CARGOLUX hefur nú fengið helm-
inginn af hinum svokallað „Air
India-samningi", en samkvæmt hon-
um hafa 12 áhafnir Flugleiða flogið
tveimur DC-8 þotum vöruflutninga-
félagsins Flying Tigers undanfarin
misseri. Hinn breytti samningur nú
er til eins mánaðar og alls er óvíst
um framhaldið.
„Cargolux kemur inn með eina
flugvél og áhafnir og við munum
síðan manna aðra vél,“ sagði Sig-
urður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, í samtali við Mbl.
Sigurður Helgason sagði að 12
áhafnir hefðu séð um þetta flug.
það þyrfti hins vegar fleiri áhafn-
ir til að reka eina vél og það mætti
búast við, að 7 áhafnir Flugleiða
myndu vera á þessari einu vél, en
það eru 21 flugliði, 14 flugmenn og
7 flugvélstjórar.
Ekki náðist samband við Cargo-
luxmenn í gærdag, en gera má ráð
fyrir, að þeir þurfi einnig 7 áhafn-
ir til að manna sína vél.
Enn lækka olíur og
benzín í Rotterdam
OLÍUVERÐ lækkaði nokkuð
á Rotterdammarkaði í janú-
armánuði samkvæmt upplýs-
ingum Mbl. Mest var lækk-
Utvarp-sjónvarp:
Auglýsingar
hækka um 20%
AUGLÝSINGAR í útvarpi og sjón-
varpi hækkuðu 1. febrúar sl. um 20%
aó meðaltali samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem Morgunblaðið fékk í
auglýsingadeild Ríkisútvarpsins.
Hver mínúta í sjónvarpi kostaði
fyrir hækkunina 11.900 krónur, en
kostar eftir hana 14.300 krónur,
sem er 20,17% hækkun.
Algengt orð í auglýsingum út-
varps, eins og t.d. í verzlunaraug-
lýsingum, kostaði fyrir hækkun-
ina 31 krónu, en kostar nú 37
krónur, sem er 19,35% hækkun.
unin á gasolíu, en síðan
minni á svartolíu og bensíni.
í ársbyrjun kostaði hvert tonn
af benzíni 289,25 dollara, en þegar
meðalverðið var lægst á síðasta
ári í marzmánuði kostaði hvert
tonn af benzíni 273,31 dollara. 31.
janúar sl. kostaði hvert tonn af
benzíni 274,75 dollara og hafði
lækkað um 5% frá áramótum.
Hvert tonn af gasolíu kostaði í
ársbyrjun 287,75 dollara, en þegar
meðalverðið var lægst í marz-
mánuði á síðasta ári kostaði hvert
tonn 262,32 dollara. Verðið á
hverju tonni af gasolíu í janúar-
lok sl. var 245,50 dollarar, og hafði
því lækkað um 14,7% frá áramót-
um.
Hvert tonn af svartolíu kostaði
í ársbyrjun 169,75 dollara, en þeg-
ar meðalverðið var lægst í ágúst á
síðasta ári kostaði hvert tonn
154,61 dollara. í lok janúarmánað-
ar sl. kostaði hvert tonn af svart-
olíu 157,50 dollara og hafði því
lækkað frá áramótum um 7,3%.
Að sögn Jóns Júlíussonar,
deildarstjóra í viðskiptaráðuneyt-
inu, er ein skýringin á hinni miklu
lækkun á gasolíuverði sú, að veð-
urblíða hefur verið með afbrigð-
um mikil í Evrópu á síðustu vik-
um, sem hefur haft það í för með
sér, að gasolíunotkun er mun
minni, en hún hefur verið á þess-
um árstíma. Síðan kemur til auk-
ið framboð, eins og á við um benz-
ínið og svartolhina.
fundið fyrir stór-
áhuga á
— segir Jóhann
Sigurðsson eftir
vel heppnaðan
kynningarþátt
um fsland í BBC
Gullfossi og Geysi, Námaskarði
og Mývatni og víðar.
„Við höfum fundið fyrir stór-
Islandi“
auknum áhuga á fslandi fyrir til-
stilli þessa kynningaþáttar, jafnt
frá ferðaskrifstofum og einstakl-
ingum, sem hafa sýnt mikinn
áhuga á að ferðast til íslands.
Upp úr þessu höfum við tekið
niður mikinn fjölda bókana, bæði
fyrir vorið og sumarið. Það ætti
því að verða umtalsverður
straumur ferðamanna frá Bret-
landi heim til íslands á þessu ári,“
sagði Jóhann.
Hópurinn frá BBC vinnur hér að myndatöku í Eyjafírði. Akureyri í
baksýn.