Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 19 spurt og svarad Lesendaþionusta MORGUNBLAÐSINS SKATTAMÁL HÉR FARA á eftir spurningar, sem lesendur Morgunblaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svaraö um skattamál, og svörin við þeim. Pjónusta þessi er í því fólgin, að lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins, 10100, klukkan 10 til 12 virka daga nema laugardaga og borið upp spurningar sínar um skattamál. Mbl. leitar síðan svara hjá ríkisskattstjóra og birtast þau í þessum þætti að nokkrum dögum liðnum. Vottar Je- hova halda 2 daga mót Á MORGUN og á sunnudag halda vottar Jehóva á Islandi tveggja daga mót í safnaðarheim- ili sínu við Sogaveg í Reykjavík. Einkunnarorð mótsins eru „Flekklausir Ijósberar meöal rangsnúinnar kynslóðar" og mun dagskráin leggja megináherslu á að kristnum mönnum beri að boða öðrum trú sína bæði í orði og verki. Einnig verður á dagskrá sýn- ishorn af ræðuþjálfunarskóla sem starfandi er í öllum söfnuð- um votta Jehóva um heim allan, en þeir eru um 45.000 talsins í nálega 200 löndum. Dagskrá þessa móts verður flutt í formi erinda, viðtals- þátta og margs konar sýni- kennslu eins og venja er á þess- um mótum, en buist er við að á þriðja hundrað manns muni sækja það. Aðalræðuna flytur Bjarni Jónsson kl. 14.00 á sunnudag og nefnist hún: „Lif- um af kynslóð myrkursins." (Króttatilkynning.) Safnaðarheimili votta Jehóva við Sogaveg í Reykjavík. Hvernig er tekið tillit til rýrnandi rauntekna við ákvörðun fyrirframgreiðslu „Jón l>órarinsson, Háaleitis- braut 52, spyr: Hvernig er tekið tillit til rýrn- andi rauntekna einstaklings milli ára við ákvörðun fyrir- framgreiðslu skatta? Svar: Gjaldendur geta sótt um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda til skattstjóra ef þeir telja að rauntekjur hafi rýrnað milli ára. Skattstjóri tekur að jafnaði ekki til greina umsókn gjald- anda nema rauntekjur hans hafi lækkað svo mjög milli áranna 1981 og 1982 að tekjuskattsstofn á tekjuárinu 1982 sé meira en 25% lægri en tekjuskattsstofn hans var á tekjuárinu 1981, eftir að síðarnefnd fjárhæð hefur ver- ið hækkuð um 50%. Frá þessari reglu má skattstjóri víkja ef sér- staklega stendur á að mati hans, enda hafi fjölskylduástæður gjaldanda breyst eða aðrar að- stæður skert gjaldþol hans veru- lega. Skattstigi og persónufrádráttur „Friðgeir Ágústsson, Álfhólsvegi 30 spyr: Get ég fengið skattstigann uppgefinn? Svavar Halldórsson, Vest- mannaeyjum, spyr: T5r búið að ákveða skattstiga og persónufrádrátt?" Svar: Af fyrstu 107.1600 kr. greiðist 25% Af umfram 98.040 greiðist 35% Af umfram 205.200 kr. greiðist 50% Persónuafsláttur, sem dregst frá reiknuðum tekjuskatti, er 17.315 kr. Hvernig á að reikna út hagnað af íbúðarsölu? „Hallgrímur Magnússon, Reyni- mel 62, spyr: Hvernig á að reikna út hagnað af íbúðarsölu, sem er seld innan fimm ára frá því hún var keypt og væri hægt að skýra það með dæmum.“ Svar: Skattskyldur hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis í eigu manns er mismunur söluverðs þegar sölukostnaður hefur verið dreginn frá og kostnaðarverðs eða kaupverðs þess, framreiknað samkvæmt verðbreytingarstuðli. Dæmi: Ibúðarhúsnæði er keypt á árinu 1978 fyrir 90.000 kr. en selt á árinu 1982 fyrir 500.000 kr. Kostnaðarverðið er framreiknað með stuðlinum 5,3205, en upplýs- ingar um margföldunarstuðla vegna eigna, sem skattaðili eign- aðist á árunum 1964—1981 (en seldi á árinu 1982), er að finna i leiðbeiningum ríkisskattstjóra á bls. 16. Söluhagnaður reiknast þannig: SoluverA kr. WKI.IHIO + sölulaun kr. 10.000 kr. 490.000 Kostn.verð 90.000 kr. x 5,3205 = kr. 478.H45 SoluhagnaAur kr. 11.155 Akureyri: Sieglinde Kahmann og Sigurður Björns- son á tónleikum TA verð • URVALS-kjör ÓPERUSÖNGVARARNIR Sieglindc Kahmann, sópran, og Sigurður Björns- son, tenór, halda tónleika í Borgarbíói laugardaginn 5. febrúar nk. kl. 17.00. IJndirleik annast Agnes Löwe píanóleikari. Þetta eru aðrir áskriftartónleik- ar Tónlistarfélags Akureyrar á vetrinum. Söngvararnir taka bæði þátt í flutningi Töfraflautunnar í Reykjavík þessa dagana og í leikskránni er þessar upplýsingar að finna: Sieglinde Kahmann er fædd í Dresden, en nam söng við Tónlist- arháskólann í Stuttgart. Hún var um árabil fastráðin söngkona við Ríkisóperuna í Stuttgart, en síðar í Kassel, Graz, í Vín og Múnchen. Hún hefur sungið viða um Evrópu, þ.á m. á tónlistarhátíðunum í Edinborg og Salzburg. Óperuhlut- verk hennar skipta tugum. Sieg- linde fluttist til Islands árið 1977, og hefur sungið hér fjölda tónleika. Með Sinfóníuhljómsveit íslands hefur hún sungið hlutverk Desde- mónu í Óþelló og titilhlutverkið í Aídu eftir Verdi. í Þjóðleikhúsinu hefur hún sungið titilhlutverkið í Kátu ekkjunni og hlutverk Mimi í La Boheme. Sieglinde starfar nú sem kennari við Tónlistarskólana í Reykjavík og Keflavík. Sigurður Björnsson er Hafnfirð- ingur, en stundaði fiðlu- og söng- nám við Tónlistarskólann í Reykja- vík og lauk þaðan burtfararprófi í söng. Til frekara náms fór hann til Múnchen og nam þar um sex ára skeið. Árið 1962 varð hann söngv- ari við Ríkisóperuna í Stuttgart; hinn 22an október síðastliðinn átti hann tuttugu ára söngafmæli. Síð- ar starfaði Sigurður í Kassel, þá í Graz og Vínarborg og loks í Múnchen. Meðal hlutverka hans eru flest stærstu tenórhlutverk í óperum Mozarts: Belmonte í Brottnáminu úr kvennabúrinu, Don Ottavio í Don Giovanni, Ferr- ando í Cosi fan tutte, Tamino í Töfraflautunni og Titus í Náð Tit- usar. 1977 fluttist Sigurður til ís- lands og gerðist framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands. Síð- ustu hlutverk hans eru Schubert í Meyjaskemmunni og Tískumaður í Silkitrommunni í Þjóðleikhúsinu. 1 Borgarbíói er boðið upp á fjöl- breytta efnisskrá að þessu sinni. Einsöngslög eftir íslenska höf- unda og eftir Hándel, Brahms og Schumann og aríur og dúettar eftir m.a. Mozart, Nicolai og Bizet. Aðgöngumiðar fást í Bókabúð- inni Huld og við innganginn. (Frétlalilkynning.) Ferðakynning Úrvals Hótel Loftleiðum (kvikmyndasal) laugardaginn 5. febrúar kl. 15°° (3 e.h.) SUMARÁÆTLUNIN 1983 Myndir frá Mallorca og Ibiza, starfsfólk Urvals á staðnum KAFFI Á KÖNNUNNI Kynning ffyrir alla fjölskylduna URVAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.