Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 5 Nemendaleikhúsið frum- sýnir í dag „Sjúka æsku“ NEMENDALEIKHÚSIÐ frumsjnir í dag leikritið „Sjúk æska“ eftir Ferdin- and Briickner í Lindarbæ. Þetta er annað verkefni Nemendaleikhússins í vetur. Fyrsta verkefnið var Prestsfólkið eftir finnsku skáldkonuna Minnu ('anth undir leikstjórn Ritvu Siikala. Prestsfólkið var sýnt fyrir fullu húsi þar til það þurfti að víkja fyrir næsta verkefni. Leikritið „Sjúk æska“ gerist í Vínarborg árið 1923 og fjallar um ungt fólk á eftirstríðsárum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Ferdinand Brúckner (1891 — 1958) var austurrískt leikritaskáld og leikhúsmaður að atvinnu; snemma á þriðja áratugnum varð hann leikhússtjóri í Berlín en varð að flýja þaðan undan nasistum og bjó mestan hluta valdatímabils þeirra í Ameríku. Eftir seinni heimsstyrjöldina settist hann aftur að í Þýskalandi og starfaði þar til dauðadags. Nokkur verka hans öðl- uðust frægð á tímabilinu milli styrjaldanna, þar á meðal „Sjúk æska“. Leikritið hefur nýlega vakið aftur áhuga fólks og hefur undan- farin ár verið tekið til sýningar í Austurríki, Þýskalandi og víðar. Aðstandendur Nemendaleik- hússins í vetur eru Edda Heiðrún Backman, Eyþór Árnason, Helgi Björnsson, Kristján Franklín Magnús, María Sigurðardóttir, Sig- urjóna Sverrisdóttir og Vilborg Halldórsdóttir. Leikstjóri „Sjúkrar æsku“ er Hilda Helgason, þýðandi Þorvarður Helgason, leikmynda- teiknari Sigrid Valtingojer, lýsing er í höndum Lárusar Björnssonar, leikmyndasmíði og tæknilega að- stoð annast Valur Júlíusson og búningasaum Anna Guðrún Líndal. Meðfylgjandi myndir tók Ragnar Axelsson af leikendunum í „Sjúkri æsku“ eftir lokaæfinguna í gær. Um 55.500 manns hafa séð myndina „Með allt á hreinu“ UM mánaðamótin janúar/febrúar höföu 55.500 manns sótt myndina MED ALLT Á HREINU að sögn þeirra Bjarmalandsmanna, sem að myndinni standa, þar af um 43 þús- und í Reykjavík og vísar sú tala sem nefnd er í Morgunblaðinu í gær til þess. Aðstandendur Bjarmalands sögðu að þeir væru ánægðir með þessa aðsókn og þess utan ætti eftir að sýna myndina á smærri stöðum úti á landi, auk nokkurra stærri staða sem aðsóknartölur væru ekki enn komnar inn fyrir. Metaðsókn hefði verið að mynd- inni á Egilsstöðum og í Vest- mannaeyjum og það liti út fyrir það sama á ísafirði, en myndinni hefði verið mjög vel tekið úti á landi. Sögðu þeir að þetta áé óneit- anlega góður byr fyrir kvik- myndagerðina í landinu. Þá sögðu þeir Bjarmalands- menn aðspurðir að platan með tónlistinni í myndinni hefði verið vel tekið og væri nú uppseld hjá forlaginu. Morgunblaðið/ÓI.K.M. Sjöunda og síðasta sýn- ing Herranætur í kvöld SÍÐASTA og jafnframt 7. sýning Herranætur á Prjónastofunni Sól- inni eftir Halldór Laxness verður í kvöld í Hafnarbíói og hefst sýningin klukkan 20.30. Að sögn aðstandenda sýningar- innar hefur aðsókn verið ágæt, en um 40 nemendur Menntaskólans í Reykjavík taka þátt í sýningunni. Til þess að minna á sýninguna efndu aðstandendur hennar til uppákomu á Lækjartorgi í gær og tók ljósmyndari blaðsins þá þessa mynd. vetrar sem er í 6 verzlunum samtímis afsláttur STÓRKOSTLEGT VÖRUÚRVAL LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTt 22 LMttMgrM. Slmi tri tkiittibortj Í50SS. Austurstræti 22 Sími frá skiptiboröi 85055.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.