Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 14 Myndir Evu Braun seldar á uppboði Birmint'ham, 3. febrúar. Al*. MYNDAALBÚM sem var í eigu Evu Braun, vinkonu Adolfs Hitl- ers, var i gær selt á uppboði fyrir 2.700 pund í Birmingham. Albúmið var selt konu nokk- urri sem bauð í það gegnum síma og ekki vildi láta nafns síns getið. Engar myndir munu hafa verið af Evu sjálfri í albúminu, en nokkrar myndir voru af ungum nasistaforingja, sem talið er að hafi verið elskhugi hennar á laun. Haft var eftir starfs- mönnum á uppboðinu að al- búmið hafi verið geymt í læstu bankahólfi í Suður-Afríku frá því síðari heimstyrjöldinni lauk, en fyrri eigandi óskaði einnig nafnleyndar. Bréf frá Hinckley selt á 330 dollara Boston, 3. febrúar. Al*. HANDSKRIFAÐ bréf frá John Hinckley, sem reyndi að ráða Reagan Bandaríkjaforseta af dögum 30. mars 1981, var í dag selt á uppboði fyrir 330 dollara. Bréfið sendi hann til kunn- ingja síns og fer þar fram á að fá senda áritaða mynd af leikkonunni Jody Foster. Bréfið er dagsett 14. júlí 1982 og er sent frá St. Eliza- beth-sjúkrahúsinu, þar sem hann hefur dvalið til meðferð- ar síðan hann var úrskurðaður ósakhæfur vegna geðveilu sinnar. Rændi barni úr örmum móðurinnar Miami, 3. febrúar. Al*. KONA nokkur, sem var klædd eins og hjúkrunarfræðingur, rændi í dag tveggja daga gömlu barni úr örmum móður sinnar á sjúkrahúsi, samkvæmt heimild- um yfirvalda. Móðirin, sem ekki gerði sér grein fyrir að brögð væru í tafli, réíti konunni barnið eftir að hafa fætt það og klætt, en konan kvaðst ætla að halda á því fyrir hana á meðan hún snæddi morgunverð. Þegar enginn kom síðan með morg- unverð tók móðurina að gruna að ekki væri allt með felldu, en þá var konan horfin á braut með barnið. Ekkert hefur til hennar spurst síðan. E1 Salvador: Skæruliðar yfirgefa bæinn Berlín San Sahador, 3. fcbrúar. Al*. VINSTRI sinnaðir skæruliðar hurfu í gær hægt og hægt út úr borginni Berlín í El Salvador, en >að var stærsta borgin þar í landi, sem þeir hafa nokkru sinni náð á sitt vald í þeirri •riggja ára borgarastyrjöld, sem staðið hefur yfir í landinu. Leyniútvarp skæruliða hef- ur viðurkennt, að skæruliðar hafi yfirgefið borgina og látið undan síga undan sívaxandi íunga stjórnarherliðsins, sem sótti inn í borgina. Símamynd AP. Með járnvilja Charles Johnson, liðsforingi í gæslusveitum Bandaríkjamanna í Líbanon skýrir hér frá því á fréttamannafundi, hvernig hann stöðvaði framrás þriggja ísraelskra skriðdreka með því að bera skammbyssu að höfði sér og hóta að skjóta sig til bana ef þeir sneru ekki þegar í stað við. Wiesenthal fái friðarverðlaun Nóbels 1983 Osló, 3. febrúar. AP. AUSTURRÍKlSMAÐrRINN Simon Wiesenthal, sem áratugum saman hefur unn- ið að því að leita uppi stríðsglæpamenn nazista og kalla þá til ábyrgðar gerða sinna, hefur nú í fyrsta sinn verið tilnefndur sem hugsanlegur verðlaunahafi að friðarverðlaunum Nóbels. Norska friðarverðlaunanefndin staðfesti þetta í dag. Yfir 75 einstaklingar og stofnanir hafa þegar verið tilnefnd sem friðar- verðlaunahafar 1983, en ritari verð- launanefndarinnar, Jakob Sverdrup, skýrði svo frá í dag, að allir þeir, sem kynnu að hafa verið tilnefndir eða stungið upp á í þessu skyni fyrir 1. febrúar, kæmu til greina sem frið- arverðlaunahafar. Þess vegna gætu tillögur enn verið á leiðinni og slíkar tillögur fullnægðu tímaskilyrðum, svo framarlega sem þær hefðu verið póstlagðar fyrir 1. febrúar. Þess vegna gæti farið svo að uppástungur um friðarverðlaunahafa yrðu enn fleiri en í fyrra, en þá urðu þær 79 og hafa aldrei verið fleiri. Samkvæmt viðtekinni hefð þá hef- ur Sverdrup neitað að gefa upp nöfn þeirra, sem stungið hefur verið upp á til þess að hljóta friðarverðlaunin. Hins vegar hefur hann staðfest nöfn þeirra sem upplýsingar hafa fengizt um eftir öðrum leiðum. Wiesenthal hefur lengi veitt for- stöðu stofnun, sem vinnur að upp- ljóstrunum um fyrrverandi nazista. Fyrir skömmu tilkynnti hann, að upplýsingar væru fyrir hendi um, að dr. Josep Mengele, stríðsglæpamað- ur, sem lengi hefur verið leitað að, væri fundinn í skógum Paraguay. Wiesenthal er ekki eini aðilinn á þessum vettvangi, sem stungið hefur verið upp á til þess að hljóta friðar- verðlaun Nóbels, næst þegar þeim verður úthlutað. Jakoþ Sverdrup hefur staðfest, að Eli Wiesel, rithöf- undur af bandarískum og rúmensk- um uppruna, sem mikið hefur látið til sín taka í baráttunni fyrir ýmsum mánnúðarmálum, hafi einnig hlotið uppástungu sem hugsanlegur friðar- verðlaunahafi. Hann er formaður bandarísku nefndarinnar, sem vinn- ur að uppljóstrunum á nazistum og glæpaverkum þeirra og þá fyrst og fremst gyðingamorðunum. „Wiesenthal er nýr á lista þeirra, sem stungið hefur verið upp á“, sagði Sverdrup við fréttamenn í dag. „En það hefur verið stungið upp á Eli Wiesel mörgum sinnum í þessu skyni og það er skoðun mín, að helm- ingur þingmanna Bandaríkjaþings standi að baki tillögunnar um, að Wiesel hljóti friðarverðlaun Nóbels“. Atvinnulausum fjölgar mjög í Vestur-Evrópu Metatvinnuleysi í V-Þýzkalandi eftir stíð Osló og iAtndon, 3. febrúar. Al*. ATVINNULEYSI í Noregi var 60% meira í janúarlok en á sama tíma fyrir einu ári. Fjöldi atvinnulausra er nú 67.600 eða 4% allra vinnufærra manna. í janúarlok í fyrra var fjöldi atvinnulausra í Noregi 42.100 eða um 2,5% af vinnuafli landsins. Atvinnulausum fjölgaði talsvert frá því í desember sl., en þá voru þeir 62.900 og 3,9% vinnufærra manna. Fjöldi atvinnulausra í Vestur- Þýskalandi náði nýju hámarki, eftir stríð, í síðasta mánuði, en þá voru þeir 2.407.100 eða 10,2% af vinnuafli landsins. Hafði atvinnu- lausum fjölgað um 1,1 % frá því í desember sl. eða um 263.700 manns. Fjöldi atvinnulausra í janúar í fyrra var 8,2% af vinnu- aflinu. Fjöldi atvinnulausra í Vestur- Þýzkalandi eftir stríð hefur áður verið mestur í febrúar 1950 og var þá 2,2 millj. manna. Atvinnuleysi í Bretlandi jókst enn í janúar og hefur aldrei verið meira frá því á árunum eftir 1930. Eru nú 3.224.715 manns atvinnu- lausir í landinu eða 13,8% af öll- um vinnufærum mönnum. Hafði þeim fjölgað úr 3.096.997 í des- ember sl. sem þá var 13,3%. Atvinnulausum fjölgaði enn í Belgíu í janúar um 13.294 manns og eru þeir nú um hálf milljón manna í landinu eða um 11,9% af vinnuaflinu öllu. í janúarlok í fyrra voru atvinnulausir 439.447 eða um 10,6% af vinnufærum mönnum í landinu. Sovétríkin: Fundur Reagans með Afgönum veldur reiði Moskvu, 3. febrúar. Al*. FIINDUR Ronalds Rcagan Banda- ríkjaforseta með sex afgönskum uppreisnarmönnum hefur vakið mikla reiði í Sovétríkjunum og TASS-fréttastofan birti í dag frétt þar sem hún segir heimsóknina sýna aukinn áhuga Bandaríkjamanna á stuðningi við skæruliða. Reagan tók í gær á móti sex Afgönum á skrifstofu sinni og lýsti þeim sem baráttumönnum fyrir friði, sem komnir væru langt að til að lýsa því sem gerist bak við lukt tjöld heimalands þeirra, þar sem Sovétmenn eru með meira en 100.000 hermenn. START-viðræður hafnar á ný START-viðræðurnar um fækkun langdrægra kjarnorkueldflauga hófust að nýju eftir tveggja mánaða hlé í Genf í gær. Bush, varaforseti Bandaríkjanna, sem nú er á tólf daga ferð um Evrópu, mun ræða við samningamenn á morgun. Viktor P. Karpov aðalsamningamaður Sovétríkjanna í viðræðunum hefur tilkynnt að hann muni svara hverri þeirri spurningu sem Bush leggi fyrir hann, en verði ekki með neinar nýjar tillögur. Hve mikið étur selurinn? Norðmenn hyggjast kortleggja Barents- hafið með tilliti til fæðuöflunar selsins Osló, 3. febrúar. Krá Jan Erik Eauré, fréltaritara Morjfun- blaósins. NORSK stjórnvöld hyggjast nú láta kortleggja Barentshafið með tilliti til sela og finna það út, á hvers konar fisktegundum og sjáv- ardýrum öðrum selurinn lifir og hvernig hlutfollín eru á milli þeirra í fæðu selanna. I þessu skyni verður norskur leiðangur sendur til Barents- hafsins næsta haust. Verða margir vísindamenn á meðal leiðangursmanna, sem eiga að framkvæma kortlagninguna og önnur rannsóknarverkefni sam- fara henni. Ætlunin er m.a. að komast að raun um, í hve mikl- um mæli vaxandi selastofn við Grænland höggvi í þær fiskiteg- undir, sem maðurinn nýtir sér. Þessar rannsóknir eiga að fara fram í samvinnu við Sovétmenn. Iæiðangurinn á að standa yfir í fjórar vikur og verða fjórir norskir vísindamenn með í þess- um leiðangri. Könnun þessi á að standa yfir í mörg ár eða allt til ársins 1987. Er áformað að veiða marga seli, þar sem þeir eru við fæðuöflun í hafinu og verður magainnihald þeirra síðan rann- sakað nákvæmlega. Varkár áætlun 1,5 millj. tonn. Rannsóknir af þessu tagi hóf- ust strax á árinu 1981, en árang- urinn af þeim reyndist ekki sér- staklega mikill. Varkár áætlun er fyrir hendi þess efnis, að sela- stofninn við Grænland éti að minnsta kosti 1,5 millj. tonn af fiski og öðrum sjávardýrum á einu ári. Þessi tala er álitin vera sízt of ýkt og byggist sú skoðun á háttum selsins á vatnabúrum. Eru þessi vatnabúr aðeins tveir metrar á dýpt. Þegar selirnir eru hafðir í búrum, sem eru 15 metra djúp, étur hann þrisvar sinnum meira. Norskir vísindmenn, sem lagt hafa stund á rannsóknir á lifn- aðarháttum selsins, eru því þeirrar skoðunar, að selurinn éti miklu meira en 1,5 millj. tonn af fiski á ári hverju. Af fyrri rann- sóknum er það vitað, að selurinn lifir á m.a. þorski, loðnu, laxi, smokkfiski og rækjum. Nú vilja vísindamenn finna það út, á hvaða sjávardýrum selurinn lifir helzt og hvað hann étur minnst. Til samanburðar þessum töl- um, sem hér hafa verið nefndar, skal þess getið, að Norðmenn og Rússar veiða samanlagt um 3 millj. tonn á ári. Telja norskir vísindamenn, að bann við sel- veiðum kunni að hafa í för með sér röskun á jafnvægi lífskeðj- unnar í hafinu og að fái selurinn að tímgast, án þess að nokkuð sé að gert, þá muni hann blátt áfram „hreinsa" hafið af fiski.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.