Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983
3
Flugvélin sem Landsbankinn eignadist í g*r, Myndin var tekin í fyrravetur þar sem hún stóð skammt frá athafnasvæði Arnarflugs, en nú stendur
vélin skammt frá athafnasvæði Landhelgisgæ^innar. Morgunblaðið/ Kristján Kinarsson.
Landsbankanum slegin
íscargó-vél á 120 þús.
Rúmar 5 milljónir áhvflandi á flugvélinni,
sem verið hefur óflugfær frá í desember 1980
LANDSBANKANUM var slegin í
gær flugvélin TF-HIB, sem ádur var
í eigu íscargó, á 120 þúsund krónur
á nauðungaruppboði, sem fram fór
viö flugvélina á Reykjavíkurflug-
velli í gær. Flugvélin er af gerðinni
DC-6A, smíðuð 1954, en skráð hér á
landi í maí 1974, keypt hingað frá
Noregi. Samkvæmt veðbókarvott-
orði flugvélarinnar hvfldu á henni
4,8 milljónir króna, en auk þess átti
Gjaldheimtan í Reykjavík upp-
boðskröfu í vélina að upphæð 508
þúsund krónur rúmar vegna van-
goldinna gjalda íscargó.
Á uppboðinu voru mættir auk
fulltrúa Borgarfógetaembættisins,
þeirra Jónasar Gústafssonar og
Ingólfs Sigurz, fulltrúar handhafa
veðréttar, þ.e. Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna, Landsbankans,
Arnmundar Backmann hdl., og
fulltrúi íscargó.
Uppboðið tók skamma stund.
Það var Guðjón Sigurgeirsson
flugvirki sem reið á vaðið og bauð
105 þúsund krónur í flugvélina
þegar Jónas lýsti eftir boðum.
Stefán Pétursson lögfræðingur
Landsbankans bauð betur, 110
þúsund. Þá hækkaði Guðjón sig í
115 þúsund, en Stefán bauð enn
fimm þúsundum hærra fyrir
bankann og þá dró Guðjón sig í
hlé. Sló Jónas bankanum því vél-
ina á 120 þúsund krónur.
Samkvæmt veðbókarvottorði
flugvélarinnar hvíldi á henni
rúmlega 21 þúsund króna skuld
við Lífeyrissjóð verzlunarmanna,
35.800 króna skuld við Arnmund
Backmann hdl. og 250.000 dollara
skuld við Landsbanka íslands.
Ásamt kröfu Gjaldheimtunnar
hvíldu því á vélinni rúmlega 5,3
milljónir króna.
Lofthæfisskírteini flugvélarinn-
ar rann út 20. desember 1980, og
hefur henni ekki verið flogið síðan.
í loftfaraskrá fyrir 1983 er hún
skráð eign Gulfstream American
Corporation í Kaliforníu, fyrir-
tækisins sem á sínum tíma seldi
Iscargó Electruna, sem riú er í eigu
Arnarflugs. Samkvæmt heimild-
um Mbl. mun TF-IUB þó hafa ver-
ið í eigu Iscargó þar til í gær, þar
sem fyrirhuguð skipti á henni við
Jónas Gústafsson mundar hamarinn og slær Landsbanka íslands flugvél
íscargó á 120 þúsund krónur. Ingólfur Sigurz færir boðin inn í bók
uppboðshaldara.
kaup Electrunnar gengu til baka.
„Vélin var í flughæfu ástandi
við fyrra uppboðið í fyrrasumar,
en síðan hefur hún skemmzt
eitthvað, við vitum ekki hve mikið,
en okkur er sagt að það sé ekki
mjög alvarlegt," sagði Stefán Pét-
ursson lögfræðingur Landsbank-
ans í samtali við Mbl. í gær.
„Við vorum þarna aðeins að
gegna skyldu okkar sem veðhaf-
ara, að gera peninga úr þessum
veðum, ef unnt er. Við höfum þær
uppiýsingar að flugvélin standi
fyllilega fyrir því sem við höfum
boðið og töluvert meira en það,
þótt hún verði seld til niðurrifs.
Vélar af þessari gerð, komnar til
Bandaríkjanna, eru nálægt eitt-
hundrað þúsund dollara virði,
samkvæmt okkar heimildum, en
til niðurrifs yrði upphæðin veru-
lega lægri. En þá er spurningin
hvort hægt er að fljúga þessari
vél,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að bankinn væri
tryggður fyrir skuld Iscargó á
aðra vegu en með veðinu í vélinni.
„Á þessu stigi teljum við okkar
skuldir fulltryggðar þótt þetta sé
ekki nema hluti af því sem við er-
um að innheimta," sagði Stefán.
APPLE COMPUTER
TILKYNNIR KOMU
SUPER APPLE
99
99
Apple jje — tekur nú við af fyrirrennara
sínum — hinni heimsþekktu Apple //+ og
tryggir áframhaldandi stöðu Apple í hroddi
fylkingar!
ENGIN ÖNNUR TÖLVA í HEIMINUM ER NOTUD Af^HW
MÖRGUM VID JAFN MARGVÍSLEG VERKEFNI OG APPLE.
,Super Apple er 64K og stœkkanleg i I28K. Vélin er htíin stöðluðu
fs/ensku lyklaborði með stórum og litlum stöfum og hægt er með einu
handtaki að skipta milli íslensks og erlends leturs á skjá. Apple //<?
notar sömu forrit og Apple 11+, en meira en 1000 fyrirtœki hafa
skrifað meira en 16000 forrit fyrir Apple — engin önnur einkatölva
nýtur slíks stuðnings. Apple fe er með innhyggt Applesoft forritun-
armál en getur auk þes notað Pascal, Fortran. Cobol, Forth. Logo og
fleiri tölvumál. Vélin er með innhyggt sjálfsprófunarkerft (self-test), 16
lita kerft, Lo-res og Hi-res grafík, og er hönnuð með VISI, sem gerir
hana einstaklega örugga í rekstri.
Að baki Apple tölvunum stendur stærsti framleiðandi míkró-
tölva í heiminum — Apple Computer Inc. Nú þegar hafa
verið seldar meir en 750.000 Apple tölvur (40.000 í desember
ntánuði sl.). Apple leggur áherslu á gæðitv hver Apple tölva
er prófuð í samfleytt 48 klst. áður en húnfer úr verksmiðj-
unni og vélarnar eru seldar með árs ábyrgð.
Apple — aðalsmerkið
f|cippkz computcr
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
Tölvudeild