Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 11 Hrakfallabálkurinn Ah Q niöurlægingu og einsemd hinnar fársjúku sálar. Elisabeth Stepanek gerir ótrúlega hluti í aðalhlutverkinu og leikstjórnin er ákveðin, hörð og ósveigjanleg. Hún hlífir hvergi, örmagnar áhorfandann. f Vitfyrrt eru atriði sem seint gleymast sökum ljótleika þeirra, hún er einkum fyrir þá sem sjá hana sem hlekk í sögu leikstjór- ans og endurreisnar Vestur- þýskrar kvikmyndalistar. Leikstjórn: Caen Fan. Kvik- myndataka: Chen Zhenxiang. Aðalhlutverk: Yen Xuenkai, Wang Kuya. Kínversk frá 1981, 125 mín. Sagan af Ah Q, er undirrituð- um sjálfsagt minnisstæðust fyrir að vera fyrsta kínverska myndin sem hann sér um árabil. Og er líklegast eina kvikmyndin sem sýnd hefur verið hérlendis frá hinu fjarlæga stórveldi um langa hríð. Þó ekki væri nema þess vegna, á hún þarft erindi til okkar. Allmargir eiga að kannast við söguþráð myndarinnar sem byggður er á ævintýri sem kom út í bókinni Mannabörn eftir Lu Xun, í þýðingu Halldórs Stef- ánssonar. Hún gerist í smábæ í kringum byltinguna 1911 og seg- ir frá raunum klaufsks sveita- manns á grátbroslegan hátt. Sagan af Ah Q er í rauninni ekki ýkja mikil bógur, (séð með augum Vesturlandabúans), enda hefur henni sjálfsagt aldrei verið ætlað að vera það. Grunar mig að hér sé á ferðinni dæmigerð kín- versk afþreyingarmynd, létt skemmtiefni. Annars er undirr. ófróður um kínverska kvikmyndasögu og -hefðir, utan nokkrar línur í upp- sláttarbókum, að skyn3amlegast er að segja sem fæst. Sagan af Ah Q er laglegasta ævintýri, bros- legt sveipað dásamlega framandi sögustíl og fjarlægu andrúms- lofti og ég hefði ekki fyrir nokk- urn mun viljað missa af henni. Hún vekur þá von í brjósti að fá nokkra kínverska kvikmynda- daga. Ég held miklu fremur að rekja megi lítt trúverðug viðbrögð bifvélavirkjans til handritsins sem Roger Andrieux byggir á samnefndri bók Yves Danger- field. Ef Andrieux hefði tekist að halda þeirri spennu sem ríkti í fyrrihluta myndarinnar og helg- aðist af því að þar fylgdist áhorfandinn agndofa með klækj- um stúlkubarnsins — er ég viss' um að uppgjöf bifvélavirkjans hefði orðið sannfærandi. Þess í stað lætur Andrieux stelpuna hoppa uppí rúm hjá blessuðum manninum án nokkurs fyrirvara eða sjáanlegrar ástæðu. Það er helst að manni detti í hug að blessuðum manninum hafi þótt svona gott að láta strjúka á sér fæturna. Ég læt til skýringar á þessum lokaorðum mínum með mynd af einni fótstrokusenunni, en þar er bifvélavirkinn einmitt að tala í síma við kærustuna. Telpuskjátan situr auðvitað á gólfinu hundsleg og undirgefin einsog „litla hafmeyjan" en „prinsinn" húkir í stólnum. Einsog menn sjá hlýtur ástin að hafa gert þau skötuhjú staur- blind. Allt var með hlýjum svip Bókmenntír Jóhann Hjálmarsson Valdimar Hólm Hallstað: TVÆR SLÓÐIR í DÖGGINNI Kvæði. Þjóðsaga 1982. Eitthvað kannast maður við nafnið Valdimar Hólm Hallstað. Þegar betur er að gáð er hér komið skáldið sem orti söngljóð handa börnum: Hlustið þið krakkar (1944), önnur útgáfa (1967), Syng- ið sólskinsbörn (1949) og Sagan af Loðinbarða og önnur kvæði (1967). Auk þessara bóka hefur Valdimar gefið út æskuljóð sín, Komdu út í kvöldrökkrið (1933). Valdimar Hólm Hallstað á létt með að yrkja eins og eftirfarandi vísa sannar, ort 1976. Hún sýnir tengsl við tvö skáld: Stefán frá Hvítadal og Goethe, en er ekki verri fyrir það: Yarir dvyjandi dagsins hvísla um draum sinn og þrár líkt og vögguljód vidkvæmt út í víðreðmin hlá. Ilreiðist hjúfrandi hlýja yfir hljóönandi byggó. Blessar einveru andi hina eilífu tryggð. Ljóð Valdimars Hólm Hallstað eru ekki alveg samkvæmt lagi nú- tímans, hann yrkir háttbundin saknaðarljóð um hið liðna, æsku og ástir. Óg hann yrkir mikið um fólk sem er horfið, eftirmæli um vini sína. Ekkert af þessu kemur á óvart. Það stendur heldur ekki til. En án efa hafa þessi ljóð verið einhvers virði á þeirri stundu sem þau voru ort og þeim sem til þekkja hafa þau vonandi sagt eitthvað, að minnsta kosti ekki orðið þeim til ama. Brotið skip nefnist eitt ljóðanna í Tvær slóðir í dögginni. Það er eins konar ævisaga, örlagaljóð. Úttekt skáldsins er ekki þess eðlis að fögnuðurinn einn ríki, en þetta er karlmannleg umfjöllun sem margir eiga sameiginlega: A örlillum granda hér yst vió hafió var æslia mín mótuó og skírð. Ilér lék ég mér ungur í grænu grasi og gladdist af himinsins dýró. Ilér hvíslaöi hlærinn svo ör viö eyra og allt var með hlýjutn svip. Já. hér fyrir landi meó sólhlik í seglum svifu mín draumaskip. Svo kvaddi ég heima á klidmjúku vori og hvarf inn í hláan draum. Snemma var haráttan blandin kvíöa við hylgjur og þungan straum. Kg gleymdi mér stundum í gleði minni í glampa af nýrri von. í mildu skini frá mömmu og pahha vakti minning um týndan son. Sumir lúta þeim örlögum einum aó erja sín heimalönd. Aðrir flakka í friólausum trega um framandi vonarströnd. Kinn fær aó lifa í Ijóma vorsins og lesa hvert ga*fublóm. Meó annars hamingju heyrist ganga haustió á frosnum skóm. I dag kom ég heim eftir áranna eril einmanna og fótasár. Kg hef farió um víða vegu velkst meir en fimmtíu ár. I tsærinn gnauóar hjá ystu skerjum, þaó er alvara í dagsins svip. ilin hausthleika jöró fagnar farandskáldi. — I fjörunni er brotið skip. — Tónleikar og ljóðalestur Tonlist Jón Ásgeirsson Musica Antica stóð fyrir skemmtilegu listakvöldi á sal Menntaskólans í Reykjavík, sl. þriðjudagskvöld. Camilla Söderberg, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Snorri Örn Snorrason léku tónlist frá 16. og 17. öld og Kristín Anna Þórarins- dóttir og Óskar Halldórsson lásu is- lensk og erlend kvæði frá sama tíma. Því hefur oft verið haldið fram að ljóð lifi ekki sem bókfellspár, að þá fyrst sé ljóð lifandi list að flutt sé, enda stutt frá ljóði í lag. Sú kenning er til, að ljóð hafi fyrrum ávallt verið tónuð en lestur þeirra sé mun yngri íþrótt og að þá sé lestur ljóða góður, að tóngervi orðanna sé nærri söngtónun en köldu og tón- lausu tali. Lestur ljóðanna var mjög góður og var þar slegið á ýmsa strengi allt frá léttri gamansemi de Vega, f þýð- ingu Helga Hálfdanarsonar, gall- blönduðu gamni Staðarhóls-Páls og séra Sigfúsar á Stað í Köldukinn og þýðingu Jóns Helgasonar á Corneille og reis hæst í raunsæu kvæði Villon, Raunatölur gamallar léttlætiskonu. Eftir hlé var svo Hallgrímur Pét- ursson þýðing Jóns Helgasonar á Játvarðskvæði og þar á eftir fylgdu vísur Fiðlu-Bjarnar og ljúflingadilla en Páll Vídalín, Eggert Ólafsson og Bjarni Gissurarson voru síðastir á þessari skemmtilegu Ijóðavöku. Inn á milli ljóðanna var leikin tónlist eftir Milan, Mundarra, Dowland, Ballard, van Eyck, Hotteterre, Marais og de Visée. Allt falleg og vel viðeigandi tónlist og vel flutt. Sér- staklega skal þó geta leiks Snorra, sem flutti nokkur einleiksverk á lútu mjög fallega. Þeim, er misstu af þessum skemmtilegu ljóða-tónleikum, skal bent á að gamanið verður endurtek- ið á laugardaginn kemur kl. 4, á sal Menntaskólans í Reykjavík. Jón Asgeirsson. Bullworkerþ jáltuiil SKJÓT OG ÖRUGG AÐFERÐ TIL AÐ BYGGJA UPP VÖÐVASTÆLTAN LÍKAMA. Aðeins 5 mínútna markviss þjálfun á dag og árangur er tryggður! / Líkamsþjálfunartækiö BULLWORKER hefur náð vinsældum al- mennings í öllum aldursflokkum. Þaðtelsttil aðalkosta tækisins að það hentar fólki sem hefur lítinn tíma til íþrótta- og leikfimisiðkana, og það hefur jafnframt vakið verðskuldaða hrifningu þeirra, sem gefist höfðu upp á öllu öðru en að láta reka á reiðanum og héldu sig óhæfa til að ná nokkrum árangri í líkamsrækt. Það sem Bullworker æfingar hafa komiðtil leiðar hjá öðrum geta þær líka áorkað hjáþér. í hverri æfingu njóta slakið vöðvar góðs af auknu blóðstreymi, sem flytur með sér súrefni og sópar burt eiturefnum. Allur líkaminn hlýtur ábata af að aukakílóin brenna upp og líðanin stórbatnar Þér er boðið að kaupa Bullworker gegn skilatryggingu. Ef þú vilt ekki halda tækinu einhverra hluta vegna, er þér frjálst að skila því ásamt veggspjaldinu og bókinni innan 1 4 daga frá móttöku þess. Litprentað veggspjald og æf- ingakerfi á íslensku, ásamt 96 síðna æfingabók fylgja með hverju tæki! Pöntunarsími 44440 Póstverzlunin Heimaval, box 39, Köpavogi. ^Sendiö mér stk. Bullworker tæki á kr. 1 090 - ♦ póstkostnaður 1 Innbyggður aflmælir sýnir þér frá degi til dags að þór vex afl og þróttur með Bullworker. NAFN: HEIMILl: STAÐL’R: PÓSTNR: -J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.