Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 25 í viðjum blekkinga — eftirJón * Armann Héðinsson Ætla má, að meginþorri íslend- inga hafi ekki lengur í huga orð frelsarans: Sannleikurinn mun gera yður frjálsan. Er svo komið á íslandi í dag, að við lifum í viðjum blekkinga án þess að gera sér það ljóst frá degi til dags? Ég tel svo vera. Þess vegna vil ég setja nokkrar hugleið- ingar á blað, um hvað er á seyði í skugga blekkinga. Tökum til dæmis nýsamþykkt fjárlög frá Alþingi fyrir árið 1983. Hvað segja þau okkur? Er þar allt sem sýnist? Nei, því fer víðs fjarri. Sagt er að samneyslan sé svipuð og áður og jafnvel gert átak á sumum sviðum. Halli er ekki sýni- legur eins og þau eru nú. En hvað er raunhæft í þessu? Því miður aðeins mjög takmarkað hvað varð- ar allar niðurstöður mikilvægustu flokka fjárlaganna. Nú þegar er komin gengisfelling og hrindir hún til hliðar öllum tölum. Eins er augljóst, að sú velferð, sem fjár- lögin eiga að tryggja, er reist á sandi. Sem sagt, blekking. Engin leið er að framkvæma né veita þá þjónustu, sem fyrirhuguð er nema að taka stórfelld erlend lán. Öllum vitibornum mönnum og sann- gjörnum má þó ljóst vera, að út í Jón Ármann Héðinsson „Eins er augljóst, aö sú vel- ferö, sem fjárlögin eiga að tryggja, er reist á sandi. Sem sagt blekking. Engin leið er að framkvæma né veita þá þjónustu, sem fyrirhuguð er, nema að taka stórfelld er- lend lán.“ algjört óefni er komið á þeirri braut. Á þessu ári mun hart nær þriðji hver fiskur fara til greiðslu vegna erlendra lána. Hvað er þá eftir til skipta? Til þess að halda blekkingarleiknum áfram út árið verður að framkvæma gengisfell- ingu eða sífellt gengissig. Áður var það talið neyðarúrræði en nú blikna menn ekki við slíku. Og kommarnir (allaballarnir) sem ár- um saman vildu hvítþvo sig af gengisfellingu (enn ein blekking- in) eru nú mestu gengisfell- ingarmenn á íslandi fyrr og síðar. Mestu ræningjar á sparifé lands- manna. Svo ropa þeir manna hæst um, að þeir einir séu á varðbergi gagnvart launamanninum. Hvílík blekking! Efnahagsstarfsemin nærist á blekkingunni. Menn verða varir við þetta hvar sem vera skal, ef grannt er skoðað. Tökum til dæm- is kostnað við landbúnaðinn. Hvar er birt fyrir almenningi hvað kost- ar að framleiða hina og þessa afurðina? Það er vel vitað en fell- ur bara ekki í kramið að láta það liggja á lausu né fræða sífellt um það. Það gæti haft skaðleg áhrif á afstöðu manna til vissra hluta. Allir þekkja blekkingarnar í út- gerðinni. Engum dettur í hug að birta fullkomlega sundurliðaðan reksturinn á t.d. 20 togurum, og sjá hvernig hann kemur fram. Þetta er þó sanngirniskrafa, þar sem almenningur borgar „brús- ann“. Ekki birta bankarnir vel sund- urliðaðan lista um „risnu“ banka og móttöku erlendra gesta og laxveiðikostnað. Passar það ekki í kramið líka? í lögum um Alþingi og alþing- isrnenn segir að birta eigi hvað hver þingmaður kostar. Þetta hef- ur ekki verið gert svo árum skipt- ir. Hvers vegna? Það er mín skoðun, að réttar upplýsingar muni beina umræðu manna inn á jákvæðari brautir um allan rekstur þjóðarbúsins og leiða gott eitt af sér. Eitthvert brýnasta verkefni stjórnvalda og raunar íslendinga í heild, er að draga mjög úr ónauð- synlegri eyðslu og gera sér glögga grein fyrir ytri sem innri efna- hagslegum aðstæðum. Sem sagt að hætta að lifa í viðjum blekkinga. Einhver verður að byrja. Það ligg- ur beinast við að hefjast handa ofanfrá. Eða er það til of mikils mælst? Hver veit? Nú eru kosn- ingar framundan. Gott að hafa í huga hvora leiðina menn vilja fara: Veg sannleikans eða leið blekkinga. Nokkur orð um stjórnarskrána Lægðafylkingin hélt ísnum Grænlandsmegin MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá hafísrannsóknadeild Veðurstofu íslands: „Útbreiðsla hafíss milli íslands og Grænlands var um sl. mánað- amót minni en í meðallagi. Lægðafylking janaúarmánaðar hefur stuðlað að því að halda ís- num Grænlandsmegin í Græn- landssundi norðvestur af landinu. Kortið sýnir útbreiðslu og þéttl- eika íss i byrjun febrúar 1983. Miðvikudaginn 2. febrúar kannaði Landhelgisgæsla íslands hafsinn úti fyrir Vestfjörðum. Leiðangurs- stjóri var Kristinn Árnason skiph- erra. Komið var að ísbrúninni 82 sjómílur NV frá Straumnesi. Það- an lá hún í SV-læga stefnu og var 75 sml. frá Barða og 80 sml. frá Blakknesi. ísinri sem kannaður var þennan dag var nýmyndaður, mjög þunn- ur og nánast krap á 5—10 sml. belti við jaðarinn, en vax þykkari og traustari eftir því sem innar dró, þéttleiki 7—9 tíunduhlutar hafs. Við gerð meðfylgjandi korts er farið eftir ískorti Landhelgisgæsl- unnar, en að öðru leyti er stuðst við heildarkort daf hafís frá bresku Veðurstofunni. Um þessar mundir stendur yfir könnun Hafrannsóknastofnunar á hita og seitu í sjónum norðan við land.“ — eftir Þórð Halldórsson 19. janúar var í sjónvarpinu fróðlegur þáttur um störf stjórn- arskrárnefndar og árangur þeirra starfa, sem birtist í 83 greinum að nýrri stjórnarskrá. Þar var aðaláhersla lögð á lýð- ræði, persónufrelsi og einstakl- ingsrétt. Eftir að Ingvi Hrafn Jónsson hafði í samvinnu við Gunnar G. Schram lesið og útskýrt hverja grein útaf fyrir sig, mættu til um- ræðna um þessi mál fulltrúar nefndarinnar (einn frá hverjum stjórnmálaflokki), þeir Tómas Tómasson, Jón Baldvin Hanni- balsson, Ragnar Arnalds og Þór- arinn Þórarinsson. Þessar umræður voru mjög gagnlegar og gáfu góðar upplýs- ingar til þjóðarinnar um hvað þessi mál snérust. Lýðræði, per- sónufrelsi og einstaklingsréttur eru að sjálfsögðu hornsteinar hverrar þjóðar sem við lýðræðis- þjóðskipulag vill búa. Um það hafa vonandi allir nefndarmenn verið innilega sammála. Það var því eins og köld vatnsgusa í and- litið að heyra og sjá hvernig einn þessara nefndarfulltrúa gerði sig beran að því að fara í gegnum sjálfan sig. Þórarinn Þórarinsson taldi sig þjóna lýðræðishugsjón- inni best með því að koma með gömlu Framsóknarlummuna um einmenningskjördæmi. Með því mundi gamli framsóknardraum- urinn rætast, að ná meirihluta- aðstöðu á Alþingi með stuðningi eins þriðja eða minna af kjósend- um á bakvið sína þingmenn. Þegar menn eru valdir til starfa að jafn þýðingarmiklu máli sem uppkasti að nýrri stjórnarskrá, sem varðar hvern einasta þegn þjóðarinnar, eru þeir trúlega vald- ir út frá því sjónarmiði að þeir setji ekki eiginhagsmunina ofar öllu, sérstaklega þegar um hag heildarinnar er að ræða. Ég tel að ekki séu mjög skiptar skoðanir um að stjórnarskrármál- inu beri að hraða. Ég get ekki séð að um mörg atriði geti verið að ræða, sem þarfnist langrar kynn- ingar, enda þótt heyra mætti á sumum ræðumönnum að þjóðin yrði að fá nægan tíma til að láta álit sitt í ljós um málið. Sú álykt- un lyktar frekar af óskhyggju um lengda lífdaga núverandi stjórnar. Ég efast ekki um að mikill meirihluti þjóðarinnar óskar eftir því að frumvarp að nýrri stjórn- arskrá nái fram að ganga á yfir- standandi þingi. Rætt var nokkuð um að þing- nefndir ættu að hafa meira valdsvið en nú er. Um það er allt hið besta að segja, en í framhaldi af því hefði gjarnan mátt fylgja, að þingmönnum væri óheimilt að gegna öðrum embættum samhliða þingstörfum. Þeir eru, eins og þjóð veit, komnir á föst árslaun, og þau all þokkaleg, auk ferðapeninga um kjördæmi sín oft á ári. Húsaleigu- peninga í Reykjavík (þeir sem eru heimilisfastir úti á landi) á meðan þing stendur yfir o.fl. o.fl. Með þessu móti eru þeir orðnir fastir starfsmenn þjóðarinnar allt árið. Þing stendur að venju ekki nema 6—7 mánuði á ári hverju. Aukin nefndarstörf ættu því að vera þeim næg verkefni hinn tím- ann. Þeir ættu því ekki að hafa leyfi til að vera að vasast í búskap og öðrum einkarekstri, því að það erum við skattgreiðendurnir sem greiðum þeim árslaunin. Mér finnst einnig vanta í þetta stjórnarskáruppkast skýr ákvæði um kjör forseta lýðveldisins. Að ekki skuli viðhaft forkjör og síðan kosið á milli tveggja efstu manna er nánast hneisa. Með því fyrirkomulagi sem nú er gæti sú staða komið upp t.d. að tíu aðilar sæktu um stöðuna og einn kæmist inn í þetta embætti með 11% þjóðarinnar á bak við sig. Vonandi verður komið í veg fyrir slíka háðung. Síðast þegar biskup var kosinn var forkosning viðhöfð og síðan kosið á milli 3ja efstu manna. Ég fæ ekki séð að forsetaembættið þurfi að vera á lægra plani. Það er von mín að frumvarp að stjórnarskrá verði samþykkt á yf- irstandandi þingi og þá sérstak- lega ákvæði um kosningar til Al- þingis með jafnréttisvægi at- kvæða. Annað er ekki lýðræði. Virðingarfyllst, XEROX LEIÐANDI MERKI í LJÓSRITUN NON HF. Síöumúla 6, S:84209 - 84295 RANK XEROX umboöiö Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum! J*lor0nnViIntiií>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.