Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 32
djP-in-L ■■ 1 —
^/Vskriftar-
síminn er 830 33
^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
FOSTUDAGUR 4. FEBRUAR 1983
1050 farþega ferja
í íslandssiglingar í
sumar f stað Smyrils
I>órshöfn í Færeyjum, 3. febrúar, frá Jögvan Arge, fréttaritara Mbl.
FÆREYSKT einkafyrirtæki hef-
ur ákveðið, með stuðningi hins
opinbera að kaupa sænsku farþeg-
aferjuna Gustav Vasa til siglinga
milli Færeyja, íslands, Danmerk-
ur og Noregs. Kemur skip þetta í
stað Smyrils og mun hefja ferðir
strax í sumar. Það tekur alls 1050
Afgreiðslu
Keldna-
samnings
frestað
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gærkveldi að fresta afgreiðslu
samnings borgarstjóra og
menntamálaráöherra um mál-
efni Keldna og Keldnaholts og
um landaskipti Reykjavíkur-
borgar og ríkisins og um stöðu
stofnana ríkisins á svæðinu.
Var ákveöið á fundinum að af-
greiöa málið á sérstökum auka-
fundi í borgarstjórn sem hald-
inn verður næstkomandi
fimmtudag.
Tillaga um þetta efni kom fram
við umræður utan dagskrár í
borgarstjórn, en Sigurjón Péturs-
son hóf hana og óskaði frestunar
og nefndi m.a. þau rök fyrir frest-
un, að samkomulagið væri yfir-
gripsmikið og þyrfti nánari skoð-
unar við. Aðrir fulltrúar minni-
hlutans í borgarstjórn tóku í sama
streng og Sigurjón og studdu
frestunartillögu hans.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði við umræðurnar að mál
þetta hefði verið lengi í umfjöllun
í borgarkerfinu og öll meginatriði
þess væru ljós. Jafnframt væri
tími naumur og þær frestunar-
ástæður sem fram hefðu verið
bornar skiptu ekki sköpum. Hins
vegar sagði Davíð að fyrst allir
fulltrúar minnihlutans óskuðu
frestunar væri rétt að verða við
henni og lagði hann til að málið
yrði afgreitt á aukafundi næsta
fimmtudag og var það samþykkt.
farþega, þar af 800 í kojur og
ennfremur tekur það rúmlega 300
bíla. Gustav Vasa kostar 120
milljónir danskra króna eða um
260 milljónir íslenzkra króna með
nauðsynlegum breytingum.
Ríkisfyrirtækið „Strandfarar-
skip landsins", hefur rekið Smyril
á fyrrgreindum siglingaleiðum
síðan 1975. Flutningar á fólki og
bílum hafa aukizt stöðugt og nú er
fyrirsjáanlegt að Smyrill er orð-
inn of lítill og auk þess of gamall.
Með nýju skipi er ætlunin að
einkafyrirtæki taki við siglingun-
um. Skipverjar á Smyrli standa
þar fremstir í flokki undir forystu
Oli Hammer skipstjóra. Stofnfé er
12 milljónir danskra króna og
Landsstjórnin mun leggja fram
2,4 milljónir.
Kaup á nýju skipi í stað Smyrils
hefur verið hitamál í færeyskum
stjórnmálum um nokkra hríð. T.d,
hefir fiskveiða- og samgöngu-
málaráðherrann Olaf Olsen sagt
af sér vegna málsins.
Landsbankinn kaupir íscargó-vél á 120 þús. kr.
LANDSBANKl íslands keypti í
gær DC-6 flugvél Iscargo á nauð-
ungaruppboði á Reykjavíkurflug-
velli. Var bankanum slegin vélin á
120 þúsund krónur eftir að Guðjón
Sigurgeirsson flugvirki og lögfræð-
ingur bankans höfðu skipst á að
bjóða í vélina.
Samkvæmt veðbókarvottorði
flugvélarinnar og upplýsingum
uppboðshaldara hvfldu á vélinni
veðskuldir að upphæð 5,3 milljóna
króna.
Meðfylgjandi mynd var tekin
við uppboðið í gær. Sjá nánar á bls.
3.
MorgunhlaAið/ Kristján Kinarsson.
Stjómin hafiiar kröfii Hjör-
leife um einhliða hækkun
Iðnaðarráðherra áskilur sér rétt til frumvarpsflutnings á Alþingi
HJORLEIFUR Guttormsson
iðnaðarráðherra áskildi sér, á
ríkisstjórnarfundi í gær, rétt til
þess að flytja frumvarp á Al-
þingi þess efnis að raforkuverð
til álversins í Straumsvík verði
hækkað einhliða. Hjörleifur
hefur farið fram á ríkisstjórn-
arsamþykkt þess efnis, en því
er alfarið hafnað af ráðherrum
úr röðum sjálfstæðismanna og
Framsóknarflokks. Steingrím-
ur Hermannsson lagði fram
gagntillögur við tillögum Hjör-
leifs, þess efnis að sezt verði
að samningaborði með Alu-
suisse-mönnum þar sem sam-
hliða umræðum um hækkun
raforkuverðsins verði fjallað
um stækkun álversins og hugs-
anlega fleiri eignaraðila, eins
og Alusuisse hefur boðið uppá,
en Hjörleifur lýst sig andvíg-
an.
Ríkisstjórnarfundurinn, sem er
sá 300. í röðinni, hófst kl. 10 ár-
degis og lauk ekki fyrr en kl. 14 og
fór mestur hluti hans í umræður
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins í hvalveiðimálum:
Engin hótun í bréfinu til ís-
lenzka utanríkisráðherrans
Frá (íunnari Pálssyni, fréllarilara Mor|runblaA.sins í Washington, 3. fvbrúar.
MORGUNBLAÐID talaói í dag við
ungfrú Ulaudiu Kendrew, sem sér
um alþjóóahvalveióimál í banda-
ríska utanríkisráóuneytinu. Aðspurð
um þaó, hvort tilboð Dams utanrík-
isráóherra þess efnis að leyfa íslend-
ingum veiðar í lögsögu Bandaríkj-
anna, ef þeir mótmæltu ekki hval-
veióibanninu, stæói ennþá eftir aó
íslenska þingió heföi snúió við
ákvöróun ríkisstjórnarinnar, kvaóst
hún ekki hafa heimild til aó tjá sig
um trúnaóarmál, sem varða bréfa-
vióskipti bandaríska og íslenska
utanríkisráóuneytisins.
Kendrew sagðist hins vegar
vilja taka það fram, að það væri
misskilningur, að nokkur hótun
eða tilraun til að hafa bein áhrif á
ákvörðunartöku íslensku ríkis-
stjórnarinnar varðandi hvalveiði-
málið, hefði komið fram í bréfi
Kenneth Dams.
Sem betur fer, sagði hún, eru
samskipti landa okkar sem best
má vera og okkur var fullkomlega
ljóst, að hér var um mjög erfiða
ákvörðun að ræða fyrir íslensku
stjórnina. Að sjálfsögðu erum við
mjög ánægð með þá ákvörðun sem
tekin var og höfum fullan hug á að
hafa gott samstarf við íslensk
stjórnvöld, hvort sem um verslun
eða önnur viðskipti er að ræða.
Aðspurð um það, hvort ákvörðun
íslensku ríkisstjórnarinnar á móti
hvalveiðibanninu og síðan
ákvörðun þingsins að bera þá
ákvörðun ofurliði kýnni að hafa
áhrif á innihald orðsendinga
Kenneth Dams til Ólafs Jóhann-
essonar, svaraði Kendrew því til,
að ákvörðunin sjálf og hvernig
hún bar að, væri íslenskt innan-
ríkismál sem hún gæti ekki lagt
dóm á, en lét þess jafnframt getið,
að sér þætti ólíklegt að slík minni-
háttar atriði hefðu í grundvallar-
atriðum áhrif á sambúð Banda-
ríkjanna og íslands.
Sjá fleiri fréttir og leiðara
um hvalveióimálió í miðopnu.
um þetta mál. Hjörleifur hefur
ítrekað farið fram á, að ríkis-
stjórnin taki sjálf einhliða
ákvörðun um hækkun raforku-
verðsins, en aðrir ráðherrar telja
meinbugi vera á því lagalega. Þeir
segja hér um að ræða samning ís-
lenzka ríkisins við erlendan einka-
aðila, en ekki beinan milliríkja-
samning, og lagalegar afleiðingar
slíkrar ákvörðunar því ófyrirséð-
ar.
I tillögum Steingríms kemur
m.a. fram að hann telur, eins og
ráðherrar, aðrir en Alþýðubanda-
lagsins, að reyna eigi til þrautar
samningaleiðina og að rétt sé að
koma til móts við Alusuisse eins
og að framan greinir. Hjörleifur
heldur því á móti fram, að hann
komist ekki lengra í samningsátt
með frekari viðræðum við Alu-
suisse. Steingrímur leggur og til
að skipuð verði viðræðunefnd, sem
í eigi sæti fulltrúar allra
stjórnmálaflokkanna. Þá kom
fram í umræðunum ákveðinn vilji
til þess að skipuð verði ráðherra-
nefnd sem í eigi sæti fulltrúar
allra stjórnaraðila, til að vera að
baki viðræðunefndar, eins og það
var orðað.
Ljóst var í lok fundarins, sam-
kvæmt heimildum Mbl., að langt
er í land með að tillögur Hjörleifs
hljóti hljómgrunn í ríkisstjórn-
inni, en Hjörleifur vildi ekki tjá
sig um málið, er Mbl. ræddi við
hann í gærkvöldi. Ekki náðist í
Steingrím Hermannsson.
Viðmælendur Mbl. reiknuðu
með, að til frekari umfjöllunar
kæmi í ríkisstjórn, áður en iðnað-
arráðherra gripi til þess að fara
með málið inn á Alþingi í eigin
nafni, en ljóst að hann myndi gera
það fyrir þinglok, ef staðan innan
ríkisstjórnarinnar breytist ekki.