Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.02.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 + Móöir okkar, GUÐRUN BJARNADÓTTIR, Mýrargötu 14, Reykjavík, lést í Landspítalanum að morgni 2. febrúar. Fyrir hönd ættingja okkar, Unnur Thomson, Sigurlaug Kristjánsdóttír. Eiginmaöur minn, faðir okkar og sonur, EGGERT Þ. BRIEM, læknir. er látinn. Halldóra Bríem og börn, Þóra og Gunnlaugur Briem. Eiginnnaöur minn, t AÐALSTEINN JÓNSSON frá Vaðbrekku er látinn. Ingibjörg Jónsdóttir. t Móðir okkar, SIGRÍOUR JÓNA GUNNLAUGSDÓTTIR fró Stúfholti, Holtum lést í Landakotsspítala 2. febrúar. Sóley E. Sturlaugsdóttir, Sigurlaug Sturlaugsdóttir, Magnús S. Fjeldsted, Gunnar S. Fjeldsted. t Systir okkar, ÞÓRDÍS JÓHANNA JÓNSDÓTTIR KRINGS, 1715 Empire Avenue, Loveland, Colorado, Bandaríkjunum, lést í spitala i Loveland 2. febrúar. Arnþrúður Jónsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Snjólaug Guðrún Jónsdóttir, Kristín Friðrika Jónsdóttír, Egill Jónsson, Jón Frímann Jónsson, Þórhalla Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir Austford. t Útför eiginmanns míns, föður, fósturfööur og afa, RAGNARS G. GUÐJÓNSSONAR, Laufskógum 17, Hveragerði, sem lést 31. janúar, verður gerð frá Hverageröiskirkju laugardag- inn 5. febrúar kl. 14.00. Guðrún Magnúsdóttir, Ragnar Gunnsteínn Ragnarsson, fósturbörn og barnabörn. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðor og amma, GUÐNÝ ELLA SIGURDARDÓTTIR, yfirkennari, Háaleitisbraut 117, verður jarðsett frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagiö. Örnólfur Thorlacius, Sigurður Thorlacius, Sif Eiríksdóttir, Elín Margrét og Örnólfur, Arngrímur Thorlacius, Arnþrúöur Einarsdóttir, Magnús og Baldur, Birgir Thorlacius, Rósa Jónsdóttir, Alda og Sigrún, Lárus Thorlacius. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóöur og ömmu, MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR, Fagradal, Mýrdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands fyrir góöa umönnun i veikindum hennar. Jónas Jakobsson, Jónína Jónasdóttir, Erlendur Sigurþórsson, Elsa Jónasdóttir, Baldur Skúlason, Guðrún Jónasdóttir, Grétar Óskarsson og barnabörn. Asta Guðjónsdótt- ir - Minningarorð Fædd 7. október 1901 Dáin 22. janúar 1983 í dag fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík útför Ástu Guð- jónsdóttur, sem dó þ. 22. janúar sl. Ásta var fædd í Reykjavík þ. 7. október 1901 og var því 81 árs, er hún andaðist. Foreldrar hennar voru Guðlaug Eyjólfsdóttir frá Másbúðum í Miðneshreppi og Guðjón Brynjólfsson, verkamaður frá Svarfhóli í Árnessýslu. Þau bjuggu öll sín búskaparár í Reykjavík. Ásta var því borinn og barnfæddur Reykvíkingur og hér ól hun allan sinn aldur. Reykjavík var henni kær. Árið 1926 giftist Ásta Hallgrími Benediktssyni, prentara, en hann var sonur Benedikts Ásgrímsson- ar, gullsmiðs hér í bæ. Þau Ásta og Hallgrímur eignuðust fimm börn, Eitt barnið, Bergína dó á fyrsta aldursári, en hin eru: Gest- ur, prentari, sem starfar hjá Reykjavíkurborg, Ingigerður, hús- móðir í Reykjavík, Halla búsett í Kaliforníu og Margrét, sem enn- fremur býr þar vestra. Hallgrímur dó fyrir aldur fram þ. 18. nóvem- ber 1940. Fjölskyldutengsl voru milli okkar Ástu, því að Hallgrímur maður hennar, var föðurbróðir minn. Þau tengsl rofnuðu aldrei og margra ánægjustunda er að minnast af fjölskyldufundum, því að hvar sem Ásta kom var hún hrókur alls fagnaðar. Hún hafði óvenjulega kímnigáfu, sagði frá á sérstakan og skemmtilegan hátt og var alltaf hress og kát á mannamótum og geislaði af henni. Ásta Guðjónsdóttir var mjög ákveðin í stjórnmálum. Hún fylgdi Sjálfstæðisflokknum og í þeim efnum eins og öðrum var hún mjög ákveðin í skoðunum og hreinskiptin. Hún var ein af stofn- endum Hvatar, félags sjálfstæð- iskvenna í Reykjavík fyrir 45 ár- um og sótti jafnan fundi í félag- inu. Hún átti oft sæti í stjórn fé- lagsins, í varastjórn 1941—43 og 1944—46 og í stjórn 1955—68. Þegar Hvöt átti 45 ára afmæli fyrr í vetur, kom út sérstakt af- mælisrit og þar birtist m.a. viðtal við Ástu sem einn af frumherjum félagsins. Þar er þetta m.a. eftir henni haft: „Öll þessi 45 ár hef ég verið í Hvöt og haft gagn og ánægju af því og ætla að vera það þangað til ég dey. Þótt maður sé kannski ekki alltaf ánægður með allt, menn og málefni, þá hvika ég ekki frá því að sjálfstæðisstefnan, sú stefna að fólk fái að gera það sem það sjálft kýs þjóðfélaginu til heilla sé ákaflega mikils virði fyrir einstaklingana og fyrir okkar þjóð“. Af þessum ummælum má sjá að þrátt fyrir háan aldur lét hún ekki deigan síga. Hún var sönn og traust allt til dauðadags. Við Sonja sendum börnum Ástu og öðrum aðstendendum hennar bestu samúðarkveðjur. Birgir ísl. Gunnarsson Látin er eftir langa ævi móður- systir mín og vinur, frú Ásta Guð- mundína Guðjónsdóttir. Hún fylgdi nær öldinni, náði 81 árs aldri, var lengst af hress og lét sig hvergi vanta, hitti hana síðast á förnum vegi á leið á spilamót, sem nú er kallað félagsvist, en gamla nafninu gleymt, það var hennar yndi. Hún fæddist í Reykjavík gamla tímans á Grund- arstíg 7, 7. október 1901, elzt þriggja dætra. Foreldrar hennar, Guðjón Brynjólfsson og Guðlaug Eyjólfsdóttir, höfðu þá nýhafið búskap, fyrst á Kröggólfsstöðum við Framnesveg í Vesturbænum, en fluttust fljótlega á Grundar- stíginn. I því hverfi ólust þær dætur upp við þau landlægu kjör sem heyrði verkamannafjölskyldu þeirra tíma, nánast ekkert til nema soðn- ingin, en allur samanburður við nútímann er auðvitað afstæður, fagurt mannlíf hefur alla tíð blómgast. Fjölskyldan fluttist síðar á Bergstaðastræti 21 og enn síðar á nr. 17 en þar var Ásta fermd og átti heima öll unglingsárin. En um það bil sem hún fór að búa, 25 ára gömul, hafði fjölskyldan flutzt á nr. 57, enn við sömu götu. Skóla- gangan var að þeirra tíma hætti, t Innllegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför bróöur okkar, GUDMUNDAR GÍSLASONAR frá Kambsnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness fyrir frábaera umönnun í veikindum hans. Ásta og Guöfinna Gísladætur. t Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og vin- arhug vegna fráfalls FRIÐRIKS GUÐNASONAR, fulltrúa, Lindargötu 44b. Helga Þorsteinsdóttir, Kjartan Frióriksson, Auöur Friðriksdóttir, Jón Gíslason og barnabörn. t Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför RAGNARS GUDMUNDSSONAR, Korpúlfsstööum. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og alls starfsfólks viö deild 4A, Borgarspítalanum. Sigríöur Einarsdóttir, Kristín Ragnarsdóttír, Stefán Már Stefánsson, Ingíbjörg Ragnarsdóttir, Arne Nordeide, Þórunn Ragnarsdóttir, Snorri Egilson, Málfríöur Ragnarsdóttir, Einar Ragnarsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Guömundur Ragnarsson, Kristín Ingileifsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Miðbæjarskólinn hjá Morthen Hansen, en eftir fermingu var hún í unglingaskóla Ásgríms á Berg- staðastræti 3 og í nokkur ár við nám í kjólasaumi, en það beindist að því að fólk gæti unnið sjálf- stætt að almennum heimilissaumi heima eða í húsum. Það átti eftir að koma henni til góða seinna á lífsleiðinni þótt ekki yrði það nú, því eigin búskapur tók við. Ásta giftist nú Hallgrími Bene- diktssyni prentara og kaupmanni, og hófu þau búskap enn við sömu götu nr. 19, en það hús átti Hall- grímur ásamt hornhúsi nr. 15 þar sem hann stundaði matvöruverzl- un um skeið. Fjögur Björn eignuðust þau síð- an, sem upp komust: Margrét fædd 1926, Ingigerður 1927, Halla 1928 og Gestur 1929. Allt þetta fólk' er gift og búandi, Ingigerður og Gestur í Reykjavík en Margrét og Halla í Bandaríkj- unum og barnabörnin fjölmörg. Allan fjórða áratuginn bjuggu þau þarna ásamt börnum sínum ungum í góðu mannlífi og góðum efnum, en fluttust í stríðsbyrjun á Suðurgötu 34 sem þau keyptu, en þar dó Hallgrímur skömmu síðar. Ásta var mikil félagskona og mannblendin, áratugum saman starfaði hún í Hvöt innan um sitt sjálfstæðisfólk innan flokks og utan, stundaði stíft briddsinn með þeim öðlingum Maríu Maack og Guðrúnu á Birninum og ekki alltaf hávaðalaust því enginn lét sinn hlut auðveldlega. Raungóð var hún og hvers manns hjálparhella ef þurfti. Ávallt sýndi hún mér hlýju og glaðværð og á fyrstu búskaparár- um okkar hjóna vorum við leigu- liðar hennar á títtnefndu stræti nr. 19. Stóð hún betur en ekki að baki okkar og við tengdumst sterkum böndum. Sló hún seinna á ævinni oft á þráðinn bara til að ræða málin við „minn elskulega systurson" sem hún kallaði svo. Þannig skulda ég henni þakkir fyrir leiðina, þakkir fyrir að gleðja einu sinni unglingskvikindi, lána því allar plöturnar sínar í eld- gamla daga, sem ekki voru nú margar og hún aldrei fékk aftur. Síðan má ég ekki heyra „Zwei Hertzen in drei/viertel Takt" nefnt. Eftir lát Hallgríms bjó hún með börnum sínum unz þau tíndust að heiman að sinna öðru kalli. Þá brá hún aftur búi, seldi Suðurgötuna og flutti aftur í hús sitt á Berg- staðastræti 19. Á þessum árum tók hún aftur upp fyrri iðju og vann við fatagerð um fjölda ára og fram á áttræðis- aldur. Hún var um tíma nágranni okkar og ók ég henni í vinnu vetr- arpart og sá ég þá vel, að alda- mótafólkið lét ekki deigan síga. Hún bjó síðast í Laugarásnum ein í góðri íbúð og undi þar hag sínum eftir aðstæðum, vinirnir gömlu margir horfnir og þróttur- inn dvínandi, en hún einangraði sig aldrei, sótti félagsskap sem gafst og bliknaði hvergi nema dauðanum. Og slíku fólki var gam- an, gott og hollt að kynnast og fari frænka mín vel. Hreggviður Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.