Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Blikksmiðir Blikksmiðir óskast til starfa. Rásverk, blikksmiðja, Kapaihrauni 17, Hafnarfirói. Sími 54888 og 52760. Mosfellssveit Blaðbera vanta í Holta- og Tangahverfi. Uppl. hjá afgreiöslunni. Sími 66293. Prjónamaður Óskum eftir aö ráða prjónamann. Upplýsingar í síma 31960. Rammaprjón, Súðavogi 50.
Vana háseta vantar á netabát sem rær frá Vestfjörðum. Upplýsingar í síma 94-2590.
Sendill Iðnaðarráðuneytið óskar að ráða sendil til starfa hálfan daginn, fyrir hádegi. Upplýsingar í iðnaðarráðuneytinu, Arnar- hvoli. Keflavík Blaðberar óskast strax. Uppl. í síma 1164.
Skrifstofustarf Starfskraftur óskast til símavörslu, vélritunar og skrifstofustarfa hjá fyrirtæki í Hafnarfirði. Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist augl.deild Mbl. fyrir 8. febrúar nk. merkt: „Björg — 3846“.
Deildarstjóri íslenskur markaður hf. óskar aö ráöa í starf deildarstjóra póstverslunar. Verslunar- eða stúdentspróf áskiliö. Mjög góö hæfni í ensku og enskum bréfaskriftum nauðsynleg, ásamt vélritunarkunnáttu. Góð kunnátta í öðrum tungumálum svo sem þýsku og frönsku æskileg. Umsóknum sé skilað til íslensks markaöar hf. Keflavíkurflugvelli, fyrir 10. þ.m. Með allar umsóknir veröur farið sem trúnaðarmál. Félagsmálastjóri Starf félagsmálastjóra á Sauðárkróki er laust til umsóknar. Umsækjandi þarf aö geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur um starfið er til 15. febrúar nk. Umsóknir skulu stílaðar á bæjarstjórann á Sauöárkróki sem jafnframt gefur allar nánari upplýsingar um starfið. Bæjarstóri.
Tækniteiknari Verkfræðistofan Rafteikning hf., óskar að ráða tækniteiknara til starfa. Reynsla í raflagnateikningum æskileg. Nánari uppl. á skrifstofunni. Rafteikning hf„ Borgartúni 17, sími 28144.
Skáksveit Búnaðarbankans sigursæl:
Sigraði sveit AMRO-bankans
í Amsterdam með yfírburðum
SKÁKSVEIT Búnaðarbanka íslands
sigraöi nýverið skáksveit hollenska
hankans AMRO í Amsterdam með
I6V2 vinningi gegn 3'/2. Tefldar voru
tvær umferðir.
AMRO-bankinn er stærsti
banki Hollands og starfa í honum
um 27.000 manns. Þetta er í fjórða
skipti sem skáksveit Búnaðar-
bankans keppir við erlendan
banka og hefur hún sigraði þá
alla.
Sigur Búnaðarbankans vakti
mikla athygli í Hollandi og sagði
Björn Sigurðsson, einn af skák-
mönnum Búnaðarbankans, að
keppnin hefði vakið mikla athygli
í Hollandi og hefðu þeir notið
vinsælda Friðriks Olafssonar.
Björn sagði að móttökurnar í
Hollandi hefðu verið mjög góðar.
Teflt var á Hilton Hotel í Amst-
erdam. Skáksveitin hlaut í vinning
bikar, sem Arnarflug gaf til
keppninnar, einnig fengu þeir
bókagjafir frá AMRO-bankanum.
Tefldar voru tvær umferðir,
eins og fyrr segir, og fara úrslitin
hér á eftir:
Guðrún Guðmunds-
dóttir níræð í gær
Níræðisafmæli átti í gær, hinn
3. þ.m., Guðrún Guðmundsdóttir.
Hún er nú ein eftirlifandi af börn-
um Guðrúnar Jónsdóttur og Guð-
mundar Arngrímssonar, sem
bjuggu á Eyri við Ingólfsfjörð í
Árneshreppi. Þessi elskuleg börn
voru vel að guði gerð, falleg, góð
og vel gefin. Ég, sem þetta skrifa,
var tekin nokkurra vikna gömul í
fóstur af foreldrum Guðrúnar. Þar
naut ég ástar og umhyggju þeirra
allra. Og ekki síst minnar góðu
fóstursystur Guðrúnar.
Lífið var ekki alltaf dans á rós-
um hjá þeim á uppvaxtarárunum.
Það þurfti mikið að vinna til að
hafa til hnífs og skeiðar.
Guðrún fór ung að árum vestur
til ísafjarðar. Þar giftist hún þeim
góða glæsilega manni, Guðmundi
Magnússyni, skipstjóra, lengst af
á Hermóði. Ég man að ég var ung
þegar ég sá þau fyrst saman, hún
falleg með sitt síða hár, hann fas-
mikill og myndarlegur.
Þau bjuggu lengst af í Reykja-
vík, á Bræðraborgarstíg 4. Þar var
mikill gestagangur, og veitt af
rausn, þótt efnin væru ekki alltaf
mikil. En hjartarýmið var alltaf
nægt. Þar komu bræður og systir
saman til samræðna og spila-
mennsku. Þar var hún veitandinn
og húsbóndinn hrókur alls fagnað-
ar.
Sex börn eignuðust þau Guðrún
og Guðmundur. En sorginni og
missinum fóru þau ekki varhluta
af. En trúin á Guð hefur verið
leiðarljós frá móður okkar, sem
kenndi börnum sínum og fóstur-
börnum trúna á það góða.
Guðrún mín, ég veit, að öll þín
elskulegu börn og barnabörn leiða
þig og vernda. Á því bjarta og
góða dvalarheimili, Sólvangi,
vefja þig allir ást og blíðu.
Guð blessi þig systir mín.
Ó.S.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á i miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aöra daga. I
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaöur. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaösins.
Ilandrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línuhili.
AMRO-bank Búnaðarbanki íslands
(Amsterdam-Roterdam-bank)
Wolthuis 0 — Jóhann Hjartarson 1
Buurman 0 — Bragi Kristjánsson 1
van der Meyden 0 — Jón Kristinsson 1
Jansen 0 — Hilmar Karlsson 1
de Lange 0 — Guðmundur Halldórsson 1
Vos 0 — Stefán Þ. Guðmundsson 1
Bypost Vi — Guðjón Jóhannsson ‘/2
Laar 1 — Kristinn Bjarnason 0
Lohmann 0 — Björn Sigurðsson 1
Plynaar 0 — Árni Þ. Kristjánsson 1
Fyrri umferð: 1V4 — 8'h
Wolthuis 0 Jóhann Hjartarson 1
Hensbergen 0 — Bragi Kristjánsson 1
van der Mayden 0 — Jón Kristinsson 1
Jansen 0 — Hilmar Karlsson 1
de Lange lh — Guðm. Halldórsson '/4
Vos 0 — Stefán Þ. Guðmundsson 1
Bypost >/2 — Guðjón Jóhannsson '/2
Bennink — Kristinn Bjarnason Vi
Lohmann 'h — Björn Sigurðsson Vi
Boomsma 0 — Árni Þ. Kristjánsson 1
Seinni umferð: 2 — 8
Samtals:
AMRO-bank 3'h — Búnaðarbanki íslands 16'Á
Hin sigursæla skáksveit Búnaðarbankans. í efri röð, talið frá vinstri: Jón
Kristinsson, Guðmundur Halldórsson, Guðjón Jóhannsson, Bragi Kristjáns-
son, Stefán Þormar Guðmundsson og Björn Sigurðsson. Neðri röð frá vinstri:
Kristinn Bjarnason, Árni Kristjánsson, Jóhann Hjartarson og Hilmar Karls-
son.