Morgunblaðið - 04.02.1983, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.02.1983, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 Að móta steftiu í áfengismálum — eftir Arna Gunnarsson, alþm. Um langt árabil hefur það verið helsti Þrándur í götu þeirra manna, sem barist hafa gegn ofneyslu áfengis, að hér á landi hefur hið opinbera enga stefnu mótað í áfengismálum. Þar hafa félög og einstaklingar tekið frum- kvæðið, en ríkið ekki viðurkennt þá ábyrgð, sem það ber, í tengslum við einkasölu sína á áfengum drykkjum. Samtök bindind- ismanna hafa unnið virðingarvert starf, en hin síðari árin hefur mest borið á baráttu SÁÁ, sem hafa náð umtalsverðum árangri og tekist að opna augu almennings fyrir þeim gífurlega vanda, sem við er að etja. Ýmis alþjóðleg samtök hafa í mörg ár beitt sér fyrir því, að bar- átta gegn áfengisneyslu yrði aukin að mun, en oftar en ekki talað fyrir daufum eyrum. Hinir gífur- legu hagsmunir áfengisframleið- enda hafa ósjaldan borið ofurliði tilraunir af þessu tagi. Stjórnvöld hafa ekki lagt fram nægilegt fjár- magn til að vega upp á móti áróðri framleiðendanna, sem hafa úr gíf- urlegum fjármunum að spila. Við setningu ársþings Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf haustið 1978 gerði Halfdan Mahler, aðalforstjóri stofnunarinnar, áfengisvandamál- ið að sérstöku umræðuefni. Hann taldi það einn mesta vanda heil- brigðismála í heiminum. Hann beindi þeim tilmælum til ríkja, sem aðild eiga að stofnuninni, að þau settu lög er stuðluðu að minni áfengisneyslu. Hann benti á, að tiltæk ráð væru hærra áfengis- verð, minni framleiðsla, innflutn- ingshömlur og fækkun dreif- ingarstaða áfengis. Hann taldi, að þegar í stað yrði að hefjast handa, afleiðingar hiks yrðu bæði dýrar og alvarlegar. Þessi afstaða Mahlers þótti nokkrum tíðindum sæta, þar eð áður hafði höfuðáherslan verið lögð á hverskonar fræðslustarf. En sérfræðingar Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar höfðu komist að þeirri niðurstöðu, að í áfengismálastefnu yröi að taka mið af nauðsyn á ýmis konar hömlum. Sérfræðingarnir voru sammála um, að aðgerðum yrði að beina gegn áfenginu sjálfu, en ekki aðeins ofneyslu þess. Þetta kemur heim og saman við niður- stöður rannsókna á undanförnum árum, sem sýna svo ekki verður um villst, að tjón af völdum áfeng- isneyslu margfaldast ef heildar- neyslan eykst. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á það, að af- staða almennings til áfengis skipti sköpum um hve alvarlegt tjónið verður. Þannig hafa t.d. bandarísk heil- brigðisyfirvöld viljað draga úr tjóninu með því að beita ákveðn- um hömlum. Þau hafa bent á eft- irfarandi atriði: Að halda áfengis- verði háu, m.a. með skattlagningu, — að fækka vínveitingahúsum og áfengisútsölum, — að draga úr styrkleika áfengis, — að auka eft- irlit með áfengisauglýsingum, — að hækka lögaldur vegna áfengis- kaupa, og að setja reglur um ritun viðvarana á áfengisflöskur. Fjöldi vísindamanna er alfarið þeirrar skoðunar, að beint sam- band sé á milli áfengismagns, sem þjóð eða annar tiltekinn hópur drekkur, og fjölda ofdrykkju- manna og drykkjusjúklinga. Það sé heiidarmagn hins hreina vín- anda, sem skipti máli, en ekki hvort áfengisins sé neytt í formi öls, víns eða sterkra drykkja. Svo náið samband telja þeir vera þarna á milli, að þeir hafa mótað einfalda reglu. Ef áfengisneysla þjóðar tvöfaldast verða „ofneyt- endur" fjórum sinnum fleiri. Ef hún þrefaldast verða þeir níu sinnum fleiri. — Þess má geta, að allir norsku þingflokkarnir eru sammála um, að áfeng- ismálastefna, þar sem tilteknum hömlum sé beitt, sé hin eina er samrýmist niðurstöðum nýrra rannsókna austan hafs og vestan. Þetta kemur einnig fram í rann- sókn, sem gerð var hér á landi, en um niðurstöður þeirrar rannsókn- ar segir dr. Tómas Helgason m.a.: „Þeir, sem bjuggu í þéttbýli, þar sem hægara var að nálagst áfengi en í dreifbýlinu, höfðu 13% líkur til að verða drykkjusjúkir og nærri 20% líkur til þess að verða ofdrykkjunni að bráð. En aðeins 4% karla, sem voru búsettir í Bráðabirgðayfirlit Seðlabanka um þróun greiðslujafnaðar og gjaldeyrisstöðu á árinu 1982: Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 3.500 millj. kr. á síðasta ári, eða um 11 % af þjóðarframleiðslu MORGUNBLAÐINU barst í vikunni eftirfarandi bráða- birgðayfirlit Seðlabankans um þróun greiðslujafnaðar og gjaldevrisstöðu á árinu 1982: Nú liggja fyrir ýmsar upplýs- ingar, sem varpa ljósi á þróun greiðslujafnaðar og gjaldeyris- mála á árinu 1982 og stöðu þeirra um sl. áramót. Hér á eftir verða birtar tiltækar tölur um helstu þætti þessara mála og samanburð- ur gerður við árið 1981. Tölur um 1982 eru að jafnaði bráðabirgða- tölur, þótt það sé ekki sérstaklega tekið fram. Viðskiptajöfnuður Fyrstu bráðabirgðatölur um innflutning og útflutning benda til þess að vöruskiptajöfnuður á ár- inu 1982 hafi orðið óhagstæður um 1.900 m.kr. á f.o.b. grundvelli eða um 6% af þjóðarframleiðslu. Árið 1981 nam halli á vöruskiptajöfn- uði 315 m.kr. reiknuðu á gengi 1982 og var það nálægt 1% af þjóðarframleiðslu. Samkvæmt beinum inn- og útflutningstölum reiknuðum á gengi 1982 hefur vöruskiptajöfnuður 1982 orðið ná- lægt 1.600 m.kr. óhagstæðari en árið áður. Þessi óhagstæða þróun vöruskiptajafnaðar á fyrst og fremst rætur að rekja til sam- dráttar í útflutningi, en gjaldeyr- isverðmæti vöruútflutnings rýrn- aði um 20% miðað við árið áður, og var rýrnunin mest á seinni hluta ársins. Á fyrra helmingi ársins nam samdráttur útflutn- ings 8,4% miðað við sama tíma árið áður, en á seinni helmingi ársins nam samdrátturinn nálægt 27%. Hér fór saman minnkandi framleiðsla og allmikil birgða- söfnun einkum í skreið og áli. í heild er áætlað, að útflutnings- vörubirgðir hafi aukist um 900—1.000 m.kr., og fer það að nokkru eftir matsverði skreiðar- innar, en aukning skreiðarbirgða nemur um % hlutum af heildar- aukningunni. Fyrstu bráðabirgða- tölur sýna, að heildarinnflutning- ur á árinu 1982 hafi dregíst saman um 4% miðað við árið áður. Á fyrstu mánuðum ársins jókst innflutningur allmikið og kom í beinu ftamhaldi af þróun fyrra árs, en þá var aukning innflutn- ings mikil, einkum síðustu mánuði ársins. Á fyrra helmingi ársins 1982 jókst heildarinnflutningur um 8% miðað við sama tíma árið áður, en dróst saman um 11% á síðara helmingi ársins, og mestur varð samdrátturinn í desember- mánuði 38%. Samkvæmt þeim bráðabirgða- tölum, sem fyrir liggja um þjón- ustujöfnuð, reyndist hann hafa orðið óhagstæður um 960 m.kr. á tímabilinu janúar—september 1982. Á árinu í heild má ætlað, að þjúnustujöfnuður verði óhagstæð- ur um 1.500—1.600 m.kr. eða 5% af þjóðarframleiðslu á móti 4% árið áður. Samkvæmt því sem áð- ur er sagt um vöruskiptajöfnuð, má áætla að viðskiptajöfnuður ársins 1982 muni verða óhagstæð- ur um nálægt 3.500 m.kr., sem er rúmlega 11% af þjóðarfram- leiðslu, en hallinn 1981 nam 5% metið á sama hátt. Fjármagnsjöfnuður Af hinum ýmsu þáttum fjár- magnshreyfinga eru nú fyrir hendi fyrstu bráðabirgðatölur um hinn mikilvægasta, erlendar lán- tökur til langs tíma og afborganir þeirra. Alls er talið, að innkomin löng lán hafi numið 3.550 m.kr. og afborganir 1.270 m.kr., þannig að nettó aukning langra lána hafi numið 2.280 m.kr. á meðalgengi ársins á móti 1.720 m.kr. 1981 reiknað á sama gengi. Ætla má, að aðrir liðir fjármagnshreyfinga, og þá einkum ýmsar skammtíma hreyfingar, hafi skilað nettó- innstreymi um 56 m.kr. og nettó- innstreymi á fjármagnsjöfnuði í heiid því orðið um 2.336 m.kr. Að frádregnum áætluðum halla á viðskiptajöfnuði kemur það heim við 1.164 m.kr. óhagstæðan jöfnuð á gjaldeyrisviðskiptum bankanna. Samkvæmt bráðabirgðatölum nam staða langra lána í árslok 1982 reiknað á árslokagengi 19.600 m.kr., sem fært til meðalgengis 1982 er um 14.700 m.kr. eða nálægt 47'/z% af áætlaðri þjóðarfram- leiðslu, en samsvarandi skulda- hlutfall var 37,3% í árslok 1981. Er þetta önnur mesta hækkun skuldastöðuhlutfalls á einu ári og hæsta hlutfall, sem verið hefur. Greiðslur afborgana og vaxta af löngum lánum námu samtals ná- lægt 3.100 m.kr., sem er um 24,5% af áætluðum útflutningstekjum. Greiðslujöfnuður við útlönd 1 millj. króna 1981 Bráóabirgóa áætlun 1982 Vöruskiptajöfnuður -315 -1900 Þjónustujöfnuður -1307 -1600 Viðskiptajöfnuður -1622 -3500 F'jármagnsjöfnuður 2322 2336 Heildargreiðslujöfnuður 700 -1164 Gjaldeyrisstada bankanna Eftirfarandi yfirlit sýnir gjaldeyrisstöðu bankanna í árslok 1982, og eru samsvarandi tölur í árslok 1980 og 1981 tilgreindar á sam- bærilegu gengi, þ.e. gengi í árslok 1982. GjaldeyrisstaÁa bankanna í millj. króna Seðlabanki Gjaldeyrisforði 2793 3760 2441 Gjaldeyrisskuldir 470 498 948 Nettóstaða Seðlabankans 2323 3262 1494 Viðskiptabankar, nettó 153 98 180 Gjaldeyrisstaða bankanna, nettó 2475 3360 1673 Slaða í árslok 1980 1981 1982 Broytinj; 1981 1982 967 28 939 -55 885 1.686 -1319 449 -1768 82 -1686 m.kr. á Gjaldeyrisstaða bankanna hefur því rýrnað um árinu 1982 reiknað á gengi í árslok, en hafði batnað um 885 m.kr. 1981 reiknað á sama gengi. Er þetta hæsta greiðslubyrðar- hlutfall sem verið hefur til þessa, en þetta hlutfall hefur áður kom- hæst í 16,7% á árinu 1969 og 16,4% 1981. Greiðslujöfnuður Á grundvelli þess sem að framan er sagt, er hér á eftir sýnd sam- andregin bráðabirgðaáætlun um greiðslujöfnuð ársins 1982 og til samanburðar sýndar tölur fyrir 1981 umreiknaðar til sambærilegs gengis, það er meðalviðskipta- gengis 1982. Gengisþróun í ársbyrjun 1982 var almenn gengisskráning felld niður og gengi ekki aftur skráð fyrr en 14. janúar. Gengi krónunnar hafði þá með nýrri skráningu lækkað að meðaltali um 12% frá síðustu skráningu, en það samsvarar 13,6% meðalhækkun á gengi er- lendra gjaldmiðla. Fyrst í stað eft- ir gengisbreytinguna var gengi krónunnar tiltölulega stöðugt, var meðalgengi febrúar aðeins 0,9% lægra en meðalgengi janúar. í byrjun mars hófst nokkuð hratt gengissig, sem nam 3—4% á mán- uði, og hélst til ársloka 1982, að undanskildum ágústmánuði, en þá var gengisskráning felld niður hinn 12. ágúst og hófst ekki aftur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.