Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
23
Tónlist-
in á að
hugga
og sefa
segir Connie Bryan
píanisti frá Jamaica
sem leikur undir borð-
um á Hótel Holti
„Friður, ást og samræmi, er
það sem ég trúi á í lífinu, og
þetta eru þær tilfinningar sem ég
revndi að vekja hjá hlustendum
mínum," segir Connie Bryan pí-
anisti frá Jamaica, en hún er nú
stödd hér á landi og leikur Ijúfa
tónlist undir borðum á Hótel
Holti.
Connie hefur feröast til 85
landa og leikið á píanó á mat-
sölustöðum, og hér á ísiandi er
hún stödd í annað sinn, en hún
lék á Hótel Holti í 4 mánuði árið
1966.
„Ef mér líkar vel við lönd
sem ég heimsæki, kem ég yfir-
leitt alltaf aftur," sagði Connie
þegar hún var spurð þess hvers
vegna hún kæmi aftur til ís-
lands. „Og mér líkar vel við
landið ykkar, þótt ég verði að
játa það að snjór og rigning er
ekki í neinu sérstöku uppá-
haldi hjá mér. Þegar ég var
hérna '66 var ekki svo mikið
um snjó. En núna, maður lif-
andi, ég ætlaði ekki að trúa
mínum eigin augum þegar ég
sá þessa hvítu breiðu úr flug-
vélinni."
Connie hefur leikið á píanó
frá 6 ára aldri og hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir leik sinn.
Og hún hefur ákveðnar skoð-
anir á tónlist, ákveðinn smekk
sem hún ræktar og mótar sinn
stíl út frá.
„Þegar ég spila þá kem ég
ekki fram eins og konsertpían-
isti sem er eins og hengdur upp
á þráð í tvo tíma á meðan hann
spilar frammi fyrir fullum sal
áheyrenda sem gera ekkert
annað en að hlusta. Mín músík
er bakgrunnsmúsík, sem á að
vera mjúk og róandi. Hún á að
vekja hjá hlustandanum til-
finningu hvíldar og afslöppun-
ar. Hún á að hugga og sefa.
Þegar ég spila í huggulegum
veitingasal, þar sem fólk er að
borða við kertaljós, talar sam-
an í hálfum hljóðum, er með
öðrum orðum ánægt og kyrr-
látt, þá fyllist ég sjálf ein-
hverri innri tilfinningu friðar
og ástar sem hefur svo aftur
áhrif á leik minn. Ég kæri mig
ekkert um klapp og húrrahróp
frá hlustendum mínum, mér
nægir þögul ánægja þeirra og
vellíðan."
Haukur og Hörður við eitt verka sinna.
Gallerí Lækjartorg:
Haukur og Hörður
sýna verk sín
TVÍBURABRÆÐURNIR Haukur og
Hörður opnuðu í gær, laugardag,
sýningu á grafíkmyndum sínum í
Gallerí Lækjartorgi.
Verkin sem þeir bræður sýna
eru unnin á síðustu sex árum og
segir í frétt frá Galleríinu að þar
komi fram. sú þróun sem átt hafi
sér stað í listsköpun þeirra.
Fæst verkanna hafa verið sýnd
áður, en um er að ræða svonefnt
„mícró relíf“-þrykk og skúlptúr-
grafík. Sýningin stendur til 13.
febrúar og er opin daglega frá
klukkan 14—18, nema fimmtu-
daga og sunnudaga, þá til kl. 22.
afeláttur á afelátt
enn lækkar vönivc
Nií um K )% til viobótar
vioútsöíu afeláttirm.