Morgunblaðið - 06.02.1983, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.02.1983, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983 38 Minning: Ragnar G. Guðjóns■ son - Hveragerði Fæddur 31. janúar 1910 Dáinn 31. janúar 1983 Ragnar G. Guðjónsson, fv. bankagjaldkeri í Búnaðarbanka- útibúinu í Hveragerði er allur. Hann varð bráðkvaddur sl. mánu- dag og var jarðsunginn í Hvera gerðiskirkju í gær. Með hon- um er fallinn mætur maður, sem átti drjúgan þátt í að móta bæj- arbrag í ört vaxandi byggðarlagi og setti svip sinn á bæinn. Ragnar kom „að vestan", eins og sagt var um hann og fleiri ísfirð- inga, er settust að í Hveragerði. Hann var fæddur 31. janúar 1910, og voru foreldrar hans Ingibjörg Þórólfsdóttir og Guðjón Sigurðs- son bóndi á Þiðriksvöllum og í Sunndal í Strandasýslu. Hann var yngstur átta systkina og var hon- um ungum komið í fóstur hjá Brynjólfi Benjamínssyni, bónda á Kleppustöðum í Hrófbergshreppi við Steingrímsfjörð, og konu hans. Margréti M. Jónsdóttur. Með þeim hjónum fluttist hann til ísafjarð- ar á árinu 1921, 12 ára gamall. Á árunum 1926—1928 stundaði hann nám í Menntaskólanum á Akur- eyri og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Á ísafirði stundaði Ragnar ýmis störf, m.a. hjá Rafveitu ísa- fjarðar, tók þátt í ýmsum félags- málum, átti m.a. sæti í stjórn Verkalýðsfélagsins Baldurs og sat á Alþýðusambandsþingum sem fulltrúi félagsins. Hann kvæntist árið 1936 Guðrúnu J. Magnúsdótt- ur Hannibalssonar, skipstjóra á ísafirði. Á árinu 1946 fluttust þau hjónin til Hveragerðis og þar eignaðist hann og rak ásamt öðrum verzlun- ina Reykjafoss. Þar vann hann jöfnum höndum við afgreiðslu, bókhald og fjármálastjórn. Við þá verzlun var hann jafnan síðan kenndur. Reykjafoss var þá önnur af tveimur aðalverzlunum byggð- arlagsins, og eins og víðar miðstöð daglegra samskipta og kynna. Þar nutu sín líka vel eðliskostir hans. Hann var traustur sem klettur, en jafnari lipur og ljúfur við hvern sem var, gáskafullur og gaman- samur og sá ávallt bjartar hliðar á hverju máli. Þegar Sparisjóður Hveragerðis og nágrennis var stofnaður snemma á sjöunda áratugnum, gerðist Ragnar starfsmaður hans, og dafnaði stofnunin vel. Þegar Búnaðarbanki íslands yfirtók starfsemi sparisjóðsins, varð Ragnar aðalgjaldkeri bankans, og gegndi hann því starfi, unz hann kaus að hætta vegna aldurs. Ragnar tók snemma þátt í fé- lagslífi Hvergerðinga. Mun hann þar hafa notið reynslu sinnar frá Isafirði. Hann var lengi í stjórn Leikfélags Hveragerðis, og sá jafnan um fjármál þess. Liðtækur þótti hann og á fjölun- um, og er mörgum eftirminnilegur í alþekktum gamanhlutverkum, er hann fór vel með. Þá var hann í forustu deildar Norræna félagsins í Hveragerði, sem lengi hefur starfað með blóma, í Sjálfsbjörg og í Lionsklúbbi Hveragerðis. Hann átti um skeið sæti í hrepps- nefnd Hveragerðis og starfaði í ýmsum nefndum á vegum hrepps- ins, s.s. í rafveitunefnd, stjórn ÞREK- miðstöðin Alhliöa íþróttamiöstöö meö fjölbreytta starf- semi. Viö bjóöum: \ Dalshrauni 4, Hafnarfiröl JANE FONDA leikfimi mánudaga kl. 21.20, þriöju- daga kl. 9.15, miövikudaga kl. 21.20, fimmtudaga kl. 9.15. Kennari: Oddgeröur Oddgeirsdóttir. Almenn kvennaleikfimi: mánudaga, miövikudaga og föstu- daga kl. 9.15. Kennari: Elísabet Brand. Mánudaga og miðvikudaga kl. 18.10, 19.50 og 20.40. Kennari: Anna Karolína Vilhjálmsdóttir. Karlaleikfimi: þriöjudaga og fimmtudaga kl. 17.20, 19.00 og 20.40. Kennari: Heimir Bergsson. Salur til leigu: Ljósalampar, nudd, þolpróf, heitir pottar úti. Fjölbreyttar skokkleiöir merktar á korti. Aögangur: Mánaöarkort, 12 tímakort, 10 tíma Ijósakort, 10 tíma nuddkort, stök skipti. Ódýrara á milli kl. 13 og 16 virka daga. • Ath. okkar lága verö og góöu þjónustu. • Þú borgar aðeins fyrir þaö sem þú færö. • Frjáls komutími. Hver bíöur betur? Athugaðu máliö Fyrir börnin: litabækur, myndabækur, púsluspil, Þrekmiðstöðin Sími 54845 Dalshrauni 4. Hafnarfiröi. sjúkrasamlags og f bókasafns- nefnd, og nýlega hafði hann verið kjörinn formaður í sameiginlegri bókasafnsstjórn Hveragerðis- og Ölfushrepps. Þegar Félag aldraðra borgara var stofnað í Hveragerði fyrir nokkrum vikum, þótti mál- efnum félagsins bezt borgið með því, að Ragnar yrði formaður. Hin síðustu misserin vann hann að því að koma á félagsstarfi aldraðra. Bæði á ísafirði og í Hveragerði starfaði Ragnar að félagsmálum Alþýðuflokksins, var varabæjar- fulltrúi á ísafirði á árunum 1942—1946, í stjórn Alþýðuflokks- félags Hveragerðis og sat á flokks- þingum. Þeim hjónum Ragnari og Guð- rúnu varð ekki barna auðið. En þau ólu upp fósturson, Braga Kristjánsson, og tóku síðar kjör- son, Gunnstein, sem nú býr á Hallormsstað, og hjá þeim hjón- um voru um skeið frændsystkini hans tvö. Þeir, sem lengst unnu með Ragnari G. Guðjónssyni og þekktu hann bezt, kveðja hann með sökn- uði og votta eiginkonu hans Guð- rúnu og fjölskyldu innilega samúð við svo skyndilegt og óvænt fráfall Ragnars. Að slíkum manni er söknuður og mikill sjónarsviptir. Unnar Stefánsson t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, KARL KRISTÓFER STEFÁNSSON, Haukshólum 2, verður jarösunginn þriöjudaginn 8. febrúar kl. 1.30 frá Fossvogs- kapellu. Bryndís Karlsdóttir, Reynir Albertsson, Baldur Karlsson, Halldóra Karlsdóttir, Ragnar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför, ÞÓRARINS KRISTJÁNSSONAR, frá Dalvík. Vandamenn. + Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför konu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ÁSDÍSAR INGÓLFSDÓTTUR, Hraunbæ 23. Guójón Eymundsson, Ingólfur A. Guðjónsson, Susan M. Guöjónsson, Áslaug Sif Guðjónsdóttir, Karl F. Garöarsson, Kolbrún Guöjónsdóttir, Jón Saevar Jónsson, Bergljót Guöjónsdóttir, Helgi B. Ingólfsson, Höröur Guöjónsson og barnabörn. + Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vegna and- láts og útfarar, SIGRÚNAR EDDU STEINÞÓRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á lyflækningadeild II,B. Landspít- alanum. Kristján Helgason, Ruth P. Sigurhannesdóttir, Siguröur St. Bjarnason, Steinþór Sigurösson, Erna Guómarsdóttir, Anna Oddsdóttir, Helgi Ormsson, Hulda Sveinsdóttir, systkini, annað tengdafólk og vinir. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- 0{í minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með KÓðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einniggetið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.