Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983 y**** „#**<* - Frá hvalveidistöð Norðmanna á Eskifirði. Hvalskurðarmennirnir hafa raðað sér upp á hið gríðarstóra dýr. r A hvala- slóóum í norður- höfum Norska hvalveiðiskipið „Nordenskjöld" á Eskifirði um 1910. Frá veiðum Norðmanna hér við land laust eftir síðustu aldamót. Hvalur á skurðarpalli á Seyðisfirði. Ellefsen er lengst til hægri. kálfarnir voru orðnir allvænir og Arnfirðingar þóttust vita, að hval- irnir yfirgæfu fjörðinn, hrundu þeir á flot þeim bátum, er sér- staklega voru smíðaðir til hval- veiða, og skutluðu kálfana. — Þeg- ar Norðmenn hófu veiðar hér, hurfu hvalkýr Arnfirðinga." íslendingar höfðu lítinn hagnað af hvalveiðum Norðmanna enda fór gróðinn af hömlulitlum veið- um þeirra úr landi. Á þeim tíma voru íslendingar ekki þess um- komnir að stunda þessar veiðar á sama hátt og Norðmenn gerðu. Ekki er þess þó getið að til fjandskapar hafi dregið milli ís- lendinga og Noðrmanna vegna umsvifa þeirra síðarnefndu. En að því kom þó að íslensk yfirvöld töldu sig knúin til að stöðva veiðar Norðmanna vegna greinilegrar ofnýtingar stofnanna. Árið 1915 setti Alþingi bann við öllum veið- um stórhvala við strendur íslands. Þess má geta, að árið áður hófu íslendingar hrefnuveiðar á smá- bátum og hafa þær veiðar verið við lýði hér á landi síðan, en þessi minnsta hvalategund hér við land er jafnan veidd með köldum skutli, sem ekki hefur sprengju í oddinum. Hvalstööin í Tálkna- firði og Hvalur hf. Árið 1935 hófust hvalveiðar aft- ur hér við land og var hvalstöðin staðsett í Tálknafirði. Veiðarnar stunduðu tveir til þrír bátar og var þeim haldið áfram til ársins 1939, en lögðust niður á stríðsár- unum. Að undanteknu fyrsta ár- inu, þar sem ef til vill var um ein- hverja byrjunarörðugleika að ræða, var ársveiðin á bát á milli 40 til 50 hvalir og var greinilegt að stofninn hafði rétt allmikið við á þeim 20 árum, sem hann var frið- aður af íslendinga hálfu. Norð- menn höfðu hins vegar í millitíð- inni hafið hvalveiðar frá móður- skipum í Norður-Atlantshafi og stóðu þær veiðar frá árinu 1929—1934 er þær lögðust niður. Heildarveiði íslendinga á árunum 1935 til 1939 nam alls 469 hvölum, af því voru 30 steypireyðar og 375 langreyðar. Hvaiveiðar hér við land lögðust svo niður á stríðsárunum en hóf- ust að nýju árið 1948 með starf- semi hvalstöðvar Hvals hf. í Hvalfirði. Með þessu tímabili hefj- ast veiðar á sandreyði í allnokkr- um mæli og búrhval, en veiðar hans hafa nú verið bannaðar á Norður-Atlantshafi. Af öðrum tegundum sem veiddar hafa verið á þessu tímabili frá 1948 má nefna steypireyði og hnúfubaka þar til þær tegundir voru friðaðar en langreyður hefur verið langmikil- vægasta tegundin þetta tímabil. Ekki er ástæða til að fjölyrða hér um starfsemi Hvals hf. enda er sú saga öllum kunn sem á ann- að borð láta sig varða atvinnumál þjóðarinnar. Ber flestum sem til þekkja saman um að þessi þáttur í íslenskri atvinnusögu hafi verið þjóðinni til hagsbóta og rekstur fyrirtækisins með miklum ágæt- um. En nú hefur með óvæntum hætti verið bundinn endi á starf- semi fyrirtækisins og bendir allt til að hvalskipafloti þess verði seldur í brotajárn. Lokaþátturinn Lokaþátturinn í sögu hvalveiða á íslandi er nú hafinn og hófst raunar á fundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins sl. sumar þar sem sam- þykkt var stöðvun hvalveiða tengdum iðnaði (Commercial whaling) frá og með árinu 1986. íslendingar stóðu þá frammi fyrir því að taka ákvörðun um hvort þeir ættu að mótmæla banninu og halda veiðunum áfram eða hlíta niðurstöðum ráðsins og • leggja niður þessa atvinnugrein. Alþingi íslendinga ákvað á sögulegum fundi, miðvikudaginn 2. febrúar sl., að mótmæla ekki banninu og greiddu því atkvæði 29 þingmenn gegn 28 atkvæðum þeirra, sem vildu halda veiðunum áfram. Þrír þingmenn voru fjarverandi. Það er athyglisvert, að þessi niðurstaða varð ofan á þrátt fyrir yfirlýsingar vísindamanna um að veiðar íslendinga stefndu hvala- stofnum hér við land ekki í hættu, en í skýrslu Jóhanns Sigurjóns- sonar sjávarlíffræðings hjá Haf- rannsóknrstofnun, til sjávarút- vegsráðherra, vegna þessa máls segir orðrétt: — „Til þess að tryggja hæfilega nýtingu hvala- stofna heims er mikilvægt að haga veiðum með tilliti til ástands hvers einstaks stofns. Allsherj- arbann við hvalveiðum getur ekki skoðast sem vísindaleg nauðsyn eins og nú er háttað veiðum í heiminum, þótt deila megi um réttmæti einstakra veiðikvóta. Þetta á við um veiðar íslendinga jafnt sem flestra annarra þjóða heims. Þótt þörf sé á auknum hvalarannsóknum hér á landi, virðist engan veginn vera vísinda- leg réttlæting fyrir stöðvun veið- anna hér.“ Þrátt fyrir þetta tók meirihluti Alþingis þá ákvörðun að hætta veiðum í samræmi við bann Al- þjóðahvalveiðiráðsins. Ekki skal dregið í efa að náttúruverndar- sjónarmið hafi ráðið atkvæðum margra alþingismanna við at- kvæðagreiðsluna þótt sá grunur læðist óneitanlega að mönnum að þar hafi einnig spilað inn í hræðsla þingmanna við að skaða viðskiptahagsmuni íslendinga í Vesturheimi. Andstæðingar þess- ara málalykta segja hins vegar að hér hafi verið farið inn á óheilla- vænlega braut með því að láta undan „hótunum amerískra te- boðskerlinga, sem aldrei hafa þurft að velta því fyrir sér hvaðan þær hafa lífsviðurværi sitt“, eins og það var orðað. Kristján Lofts- son, forstjóri Hvals hf. sagði í samtölum við blaðamenn að þetta væri fyrsta atlaga erlendra þrýsti- hópa að íslenska lýðveldinu og óttaðist hann afleiðingarnar ef framhald yrði á slíkum aðgerðum. En það var von að tvær grímur rynnu á suma alþingismenn í þessu máli þar sem helst mátti skilja af fréttapistlum frá Banda- ríkjunum að öll bandaríska þjóðin væri staðráðin í að láta sverfa til stáls með íslendingum mótmæltu þeir banninu. Aðrir hafa dregið 4>etta stórlega í efa og benda á að almenningur í Bandaríkjunum hafi ekki haft hugmynd um það fjaðrafok sem þetta mál olli á ís- landi. Við atkvæðagreiðsluna á Al- þingi gerðu margir þingmenn grein fyrir atkvæði sínu og komu þar ýmis sjónarmið fram. Það sem vakti hvað mesta eftirtekt voru ummæli Garðars Sigurðssonar, þingmanns Alþýðubandalagsins, en hann sagði að málið snerist ekki um náttúruverndarsjónarmið heldur viðskiptahagsmuni íslend- inga í Bandaríkjunum, sem ættu á hættu að bíða tjón vegna hefndar- aðgerða þarlendra þrýstihópa. — „Þess vegna neyðist ég til að segja já.“ — Þessi yfirlýsing er sjálfsagt einsdæmi í þingsögu lslendinga og segir ef til vill meira en allt annað sem fram hefur komið í umræðum um þetta mál. Ákvörðun Alþingis táknar þá ekki aðeins þáttaskil í sögu hvalveiða á íslandi heldur hefur einnig verið brotið blað í sögu Alþingis íslendinga. Sv.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.