Morgunblaðið - 06.02.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
Rósa Andrésdóttir
Hólmum Minning
Móðursystir mín, Rósa Andr-
ésdóttir, fædd 19. marz 1890 á
Hemlu í Landeyjum, var jarð-
sungin að Krossi í Austur-Land-
eyjum, föstudaginn 28. janúar.
Margar góðar minningar á ég
tengdar henni og af alhug þakka
ég fyrir samfylgdina með henni.
Rósa var 10 árum yngri en móðir
mín, en samt var hún eins og önn-
ur móðir mín, því allt frá bernsku
var ég mikið í samvistum með
henni. Hún bjó á Hemlu í Land-
eyjum, en ég bjó ásamt foreldrum
mínum á næsta bæ. Oft saumaði
Rósa handa mér föt og gaf mér, en
það sem var mest um vert í fasi
hennar var hlýjan, góðvildin og
glaðværðin.
Árið 1917 giftist Rósa Guðna
Magnússyni, miklum dugnaðar-
manni og sérstöku prúð- og góð-
menni. Þau bjuggu í Hólmum í
Austur-Landeyjum. Þangað fluttu
þau 1924 og bjuggu þar til 1960 er
þau hættu að búa og fótursdóttir
þeirra, Gerður Emilsdóttir, og
maður hennar, Kristján Ágústs-
son, tóku við búinu, en þau Rósa
og Guðni dvöldu þar til ársins
1967 er þau fluttu að dvalarheim-
ilinu á Hellu. Þar fengu þau litla
íbúð út af fyrir sig og undu hag
sínum. Guðni dó 1978 og þá fór
Rósa í íbúð með yngri ekkju sem
var henni stoð og stvtta seinustu
árin. Hún heitir Olafía Sigur-
þórsdóttir og er mjög þakkarvert
hve vel hún reyndist Rósu, sem
síðustu árin varð að vera í hjóla-
stól. Ef einhver kom í heimsókn sá
Ólafía um kaffið og það var hlý-
legt og heimilislegt að koma til
þeirra.
Rósa og Guðni áttu 4 börn, Jón,
Andrés, Kristrúnu og Magneu, en
að auki ólu þau upp Gerði fóstur-
dóttur sína. Oft var barnmargt
hjá þeim hjónum að auki við
þeirra eigin börn og það þótti ekk-
ert tiltökumál til dæmis þegar þau
tóku að sér eina dóttur mína í 5 ár
á kreppuárunum þegar víða var
þröng í búi.
Þau Rósa og Guðni voru mesta
dugnaðar og fyrirmyndarfólk og
oft ferjaði Rósa fólk yfir Þverá,
ýmist á hestum eða bát ef á þurfti
að halda. Rósa var mikil hann-
yrðakona og dugnaðarforkur að
hverju sem hún gekk að og var
heimili þeirra traust og gott í alla
staði. Frá því að ég man eftir mér
fylgdi Rósu alltaf mikil lífsgleði.
Hún var ávallt glaðlynd, há, grönn
og ljóshærð og hún bar glæsileika
með sér. Ég hlakkað alltaf til að
fara að Hemlu, þegar hún var þar
af því að hún var alltaf svo góð við
mig, og þessi tilhlökkun hélzt alla
tíð þegar von var á samverustund-
um með henni.
Það lýsir þessari merku konu þó
líklega hvað bezt að á gullbrúð-
kaupsafmæli þeirra Rósu og
Guðna sagði bóndi hennar að þessi
hálfa öld í hjónabandi hefði verið
eins og sólskinsdagur.
Lilja Jónsdóttir.
25
17. JÚNÍ1983
Borgaryfirvöld hafa ákveöið aö fela Æsku-
lýösráöi Reykjavíkur dagskrárgerö og
framkvæmd á hátíöarhöldum vegna þjóö-
hátíöardagsins 17. júní.
Æskulýðsráð auglýsir hér meö eftir hug-
myndum og tillögum borgarbúa um
dagskráratriöi og aöra þætti er snerta 17.
júní hátíöarhöldin nú í ár.
Vinsamlegast sendiö tillögur og hug-
myndir til Æskulýösráös Reykjavíkur, Frí-
kirkjuvegi 11, fyrir 11. mars nk.
Æskulýðsráö Reykjavíkur
FERÐA
MIÐSTODIIXI
Samvinnuferdir - Landsýn
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
FERDASKRIFSTOFA
FERÐASKRIFSTOFA
FIB
VEKJARAKLUKKAN
BCR LIKA FRI
Þegar siglt er með m/s Eddu til Englands
eða meginlands Evrópu er engin þörí d
að haía vekjaraklukku meðíerðis.
í notalegum kdetum skipsins md
lúra eins lengi og hvern einn lystir, og þar
er gott að njóta samveru í nœði.
Morgunhanar þuría samt ekki að lóta
sér leiðast. Sundsprettur í lauginni örvar
matarlystina, og drbítur í veitingabúðinni
bragðast þd enn betur d eítir.
Oían þilja er hrein unun að teyga tœrt
sjóvarloítið og lóta sólina sleikja sig,
hvenœr sem hún skín blessunin.
í setustofunni eða krdnni hittast kunningjar
og nýr kunningsskapur myndast.
Mörgum íinnst vöruverðið í írihöfninni
eflaust íorvitnilegt. Sumir eiga erindi
í bankann eða d símstöðina, en
aðrir taka lífinu með ró og fara í sauna.
Kvöldverðinn snœðum við d veitinga-
húsi skipsins, eða í veitingabúðinni
ef við kjósum það íremur og viljum
hlífa buddunni.
Að kvöldverði loknum er margt hœgt
að gera. Setjast inn í reyksal, rölta
d milli baranna, hlusta d
hljómsveit skipsins, íd sér snúning
og enda svo kvöldið i diskótekinu
og nœturklúbbnum.
Aí bílnum höfum við engar dhyggjur.
Hann hvílir sig enn um stund
í bílageymslu skipsins og saínar kröít-
um fyrir allar þœr aíbragðs brautir
sem bióa hans handan haísins,
- því lúxussigling er bara byrjunin.