Morgunblaðið - 23.02.1983, Side 1

Morgunblaðið - 23.02.1983, Side 1
56 SIÐUR 44. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fjöldamord í Assam Á myndinni hér að ofan sést hvar verið er að undirbúa fjöldagröf fyrir börn, sem létu lífið í fjöldamorð- unum í Assam-fylki á Indlandi fyrir helgina. Lík barrianna sjást í röðum til hægri á myndinni. Sjá nánar um fjöldamorðin á bls. 14—15. Áframhaldandi óvissa í deilunni um olíuverð Rivdah, 22. rebrúar. AP. OLIUMÁLARÁÐHERRA Saudi Arabíu tilkynnti í dag, að þjóð sín gæti ekki lækkað verð á olíu meira en þegar hefði verið gert. Yrði þróunin áfram í þá átt, sem nú stefndi, sæju Saudi Aarabar sér ekki annað fært en að grípa til ráðstafana til þess að vernda eigin hagsmuni. í útvarpsfrétt frá Saudi Ara- bíu sagði, að verið væri að neyða olíuframleiðsluríki við Persa- flóa til verðlækkunar. Reynt yrði til hlítar að bjarga því sem bjargað yrði, eins og það var orðað í fréttinni. Litið er svo á, að frétt þessi túlki sjónarmið allra olíuríkjanna við Persaflóa. Mana Saeed Oteiba, olíumála- ráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, sagði í dag, að ljóst væri að 34 dollara viðmið- unarverð OPEC-ríkjanna væri nú endanlega úr sögunni. Sagði hann nauðsynlegt fyrir framtíð allra aðildarríkja OPEC, að þau kæmu sér saman um nýtt við- miðunarverð. Sprenging á skattstofunni Stokkhólmi, 22. febrúar. AP. ELDRI KONA lét lífið og nokkrir slös- uðust þegar mjög öflug sprenging varð laust eftir hádegiö á aðalskattstofunni í Stokkhólmi i dag. Skrifstofan er á sjöundu hæð í 24 hæða byggingu og urðu miklar skemmdir á húsnæðinu. Talin er mildi, að ekki fór enn verr því titringurinn af völdum sprengj- unnar fannst um alla bygginguna. Engin skýring hefur enn fundist á því hvers vegna sprengjunni var komið fyrir á skrifstofunni og eng- inn hefur enn lýst ábyrgð á hendur sér. Alsír fór í gær fram á skyndi- fund OPEC-ríkjanna, og í dag bárust þaðan fréttir þess efnis, að fundurinn gæti hugsanlega orðið á fimmtudag. Alsír fór fram á þennan sérstaka fund samtakanna til þess að reyna að afstýra hugsanlegu verðstríði við olíuframleiðsluríki utan þeirra. Mikill ótti ríkir nú í Al- sír vegna þess orðróms, að olíu- ríkin við Persaflóa hyggist lækka olíuverð sitt um 7-8 doll- ara. Þá hvatti Pravda, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, OPEC-ríkin í dag til þess að snúa bökum saman og verjast þrýstingi frá Vesturlöndum. Sagði í Pravda, að verðstríð gæti haft ófyrirsjáanlegar af- leiðingar í för með sér fyrir samtökin. Sovétmenn eru sjálfir mestu olíuframleiðendur heims. Nýjar friðartil- lögur Reagans Washintílon. 22. febrúar. AP. REAGAN Bandarfkjaforseti sagði í stefnuræðu sinni í utanríkismálum í dag, að Bandaríkjamenn væru reiðubúnir að gera þær ráöstafanir er nauðsyn krefði til þess að tryggja öryggi við landamæri ísraels og Líbanon ef ísraelar drægju herlið sitt frá Líbanon. Um leið hvatti forsetinn Arabaþjóðir til að viðurkenna tilverurétt ísraela og leyfa Jórdönum að semja um framtíðar- lausn Vesturbakkans. Shamir, utanríkisráðherra ísra- els, tók boði Reagans með jafnað- argeði og sagði ísraela aldrei hafa farið fram á tryggingu af einu eða öðru tagi frá Bandaríkjamönnum. Útlagaþing Palestínumanna í Algeirsborg lýsti sig í kvöld and- vígt friðartillögum Reagans í Mið- austurlöndum á þeim forsendum, að þar væri ekki að finna neina frambúðarlausn á samskiptavandamálum ísraela og Araba, en gekk ekki svo langt að hafna þeim alfarið. Litið er á ákvörðun þingsins sem staðfest- ingu á völdum Arafats innan PLO. Reagan sagði einnig ljóst, að takmark Sovétmanna væri að neyða þjóðir Evrópu til þess að sætta sig við stefnumörkun sína með þeirra eigin skilyrðum. Bandaríkjamenn hefðu ætíð lýst sig reiðubúna til viðræðna um gagnkvæma fækkun vopna, en hins vegar væru hverri þjóð örlög sín í sjálfsvald sett. Andropov „hættu- lega frjálslyndur u Lundúnum, 22. febrúar. AP. TÉKKNESKI andófsmaðurinn Kar- el Kyncl sagði í dag, að þó Tékkar væru í einu og öllu háðir Sovét- mönnum, væri farið að bera á mikilli óánægju meðal þarlendra ráða- raanna með stefnu Yuri Andropovs. Sagði Kyncl Husak, leiðtoga tékk- neska komúnistaflokksins, og aðra háttsetta embættismenn, telja stefnu Andropovs „hættulega frjáls- lynda.“ Kyncl vann í 23 ár, sem frétta- skýrandi við tékkneska útvarpið og dvaldi m.a. fjögur ár í Wash- ington. Eftir innrás Sovétmanna 1968 var honum tvívegis varpað í fangelsi, síðast í fyrra. Honum var fyrir nokkrum dögum leyft að fara til Bretlands til að sækja um póli- tískt hæli þar í landi. Skýrði Kyncl frá því, að mál- gagn tékkneska kommúnistafl- okksins væri hætt að birta lang- lokugreinar upp úr Pravda, og aldrei væri nú orðið getið um breytingar í röðum háttsettra embættismanna í Sovétríkjunum. Slíkt hefði áður verið daglegt brauð. Sagði Kyncl þessa breyttu af- stöðu tékkneskra ráðamanna koma verulega á óvart þar som ljóst væri að þeir gætu ekki stjórnað landinu án hernaðarað- stoðar Sovétmanna. Ræningjarnir að gefa eftir Yalletta. Möltu, 22. febrúar. AP. SVO VIRTIST seint í kvöld, að flug- ræningjarnir á Möltu væru í þann veginn að gefast upp og sleppa 160 gíslum, sem þeir hafa á sínu valdi um borð í líbýskri farþegaflugvél, sem þeir rændu í innanlandsflugi fyrir tveimur solarhringum. Ástandið innan flugvélarinnar er talið vera mjög slæmt, enda allar matar- og vatnsbirgðir uppurnar. Um 30 börn eru á meðal farþeg- anna. Ræningjarnir vilja fljúga til Marokkó, en yfirvöld þar segjast ekki munu heimila þeim lendingu. Yfirvöld á Möltu hafa neitað að láta vott eða þurrt um borð í vélina fyrr en gíslunum verði sleppt. Tala látinna er komin í a.m.k. 55 Beirút, 22. febrúar. AP. BANDARÍSKUM þyrluflugmönnum tókst í dag að bjarga fjórum nauð- stöddum mönnum, sem lokast höfðu inni í bylnum, sem skall á í Líbanon fyrir fjórum dögum. Þrátt fyrir aftakaveður gengu björgunaraðgerðir að óskum, en mennirnir voru iíla haldnir og kalnir. Mennirnir fjórir voru fastir á yf- irráðasvæði Sýrlendinga, en í fyrsta sinni svo vitað er til tókst góð samvinna á milli bandarískra hermanna og sýrlenskra. Þá bjarg- aði líbanski herinn 37 manns til viðbótar í sambærilegum aðgerð- um. Þetta var fyrsti opinberi björg- unarleiðangurinn á vegum banda- rískra hermanna í Líbanon. Tóku þeir síðan til óspilltra mála við að flytja vistir og eldsneyti til af- skekktra þorpa í fjallahéruðum landsins, sem verið hafa gersam- lega sambandslaus við umheiminn. Nær útilokað er að flytja vistir landleiðina, enda snjóhæðin víða tveir metrar. Vitað er um a.m.k. 55 dauðsföll af völdum snjókomunnar, sem skall á um það leyti er nánast stanslausum erjum trúarflokka linnti um stundarsakir í fyrsta sinn um langa hríð. Átta manns fundust í dag látnir í bílum sínum, sem fennt hafði í kaf. Bandarískir hermenn í björgunarleiðangri í Líbanon. Slmamynd AP. «

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.