Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 2

Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 Læknaþjónusta hækk- ar á bilinu 20—30% HEILBRIGÐIS- og tryggingamála- ráðuneytid hefur ákveðið breytingar á greiðslum sjúkratryggðra til sam- lagslækna, greiðslum sjúkratryggðra á sérfræðingshjálp, á rannsóknum og röntgengreiningu og greiðslum almannatrygginga á lyfjakostnaði. í stað 12 króna skal nú greiða samlagslæknum 15 krónur fyrir hvert viðtal á stofu, sem er 25% hækkun. f stað 25 króna skal greiða 30 krónur fyrir hverja vitj- un læknis til sjúklings, sem er 20% hækkun. Fyrir hverja sérfræðihjálp skal í stað 50 króna greiða 64 krónur, þ.e.a.s. fyrir hverja komu til sér- fræðings, fyrir hverja rannsókn hjá rannsóknastofu eða sérfræð- ingi og fyrir hverja röntgengrein- ingu, sem er 28% hækkun. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða hálft gjald, eða 32 krónur. Fyrir hverja afgreiðslu lyfja samkvæmt lyfjaverðskrá I og af innlendum sérlyfjum skal sam- lagsmaður greiða 26 krónur í stað 20 króna, sem er 30% hækkun, og fyrir hverja afgreiðslu samkvæmt Lyfjaverðskrá II, erlend sérlyf, 64 krónur í stað 50 króna áður, sem er 28% hækkun. Elli- og örorkulíf- eyrisþegar greiða hálft gjald eða, 13 og 32 krónur. Greiðsluupphæðum var síðast breytt 15. marz 1982. 49 af 60 fylgjandi NATO — segir forsætisráðherra MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi bréf frá forsætisráó- herra, Gunnari Thoroddsen: Til ritstjóra Morgunblaðsins. í forystugrein í Morgunblaðinu í dag er vitnað til fréttar, sem birst hefur í blaðinu um að ég hafi sagt á blaðamannafundi í Kaupmanna- höfn, að 60% alþingismanna styddu aðild okkar að Atlants- hafsbandalaginu. Fréttin er röng. Á þessum blaðamannafundi sagði ég, að á Alþingi íslendinga ættu sæti 60 alþingismenn. Væru 11 þeirra andvígir aðild íslands að bandalaginu, en hinir 49 fylgjandi. Þar sem þessi villandi frétt hef- ur nú birst í forystugrein blaðsins og af þeim orsökum flutt í útvarpi, verð ég að beiðast þess, að hún verði leiðrétt með jafn áberandi hætti. Gunnar Thoroddsen Aths. ritstj.: Bréf forsætisráð- herra er birt með jafn áberandi hætti og fréttin. Sjá ennfremur forystugrein Morgunblaðsins á morgun, fimmtudag. Jón Pálsson, fyrrum sundkennari, látinn JÖN Pálsson, fyrrum sundkennari í Keykjavík, lézt í Landakotsspítala síð- astliðinn mánudag 88 ára að aldri. Jón var fæddur 6. júní 1904 á Efra-Apavatni í Árnessýslu. For- eldrar hans voru Páll Erlingsson, sundkennari í Reyjavík og kona hans Ólöf Steingrímsdóttir. Hann nam ungur sund hjá föður sínum og tók síðan námskeið fyrir sundkennara við fþróttaháskólann í Berlín 1936. Jón var aðstoðarkennari föður síns í sundlaugunum í Reykjavík 1919 til 1921 og síðan sundkennari þar frá 1921 til 1937. Frá árinu 1937 kenndi hann sund við Sundhöll Reykjavíkur og var um árabil yfirsundkennari við gagnfræða og sérskóla landsins. Jón var einn af stofnendum íþróttafé- lagsins Gáins, var í stjórn þess frá 1920 til 1927 og þjálfaði einnig fé- lagsmenn. Hann var í stjórn sundfé- lagsins Ægis frá stofnun 1927 til 1942 og þjálfari þess. Þá þjálfaði hann einnig sundflokka annarra íþróttafélaga. Jón fór oft utan með sundflokka til keppni, meðal annars á Alheims- íþróttamót K.F.U.M. í Kaupmanna- höfn 1927, á Olympíuleikana í Berlín 1936, á Evrópumót í London 1938, á Jón Pálsson Olympíuleikana í London 1948 og á Norðurlandamót í Álaborg 1952. Jón samdi meðal annars kennslu- bók í sundi og flutti útvarpserindi um sund. Hann var kvæntur Þórunni Sigurðardóttur frá Árnanesi í Hornafirði. Þannig er gengið frá þaki hússins. Ofan við steypt loft er bárujárn- ið neglt á grind. MorgunblaAið/ Emilia. Nokkur húsanna við Hamraberg í Breiðholti. Tuttugu húseigendur í Breiðholti stefna ríkissjóði: Krefjast 2ja millj. kr. HÚSEIGENDUR við Hamraberg og Háberg í Breiðholti hafa ákveðið að stefna ríkissjóði vegna galla á húsum, sem byggð voru af framkvæmda- nefnd byggingaáætlunar fyrir nokkrum árum. Gallar hafa komið fram í húsunum og fara húseigendur fram á 100 þúsund krónur í bætur hver, að meðaltali, eða samtals um 2 milljónir króna, en þeir sem stefna eru 20 talsins. Hilmar Ingimundarson rekur mál húseigendanna í parhúsunum við fyrr- nefndar götur og sagðist hann í gær vera að leggja lokahönd á stefnurnar 20. Hilmar sagði að þak fyrir ofan steypt loft í húsunum væri óeinangrað og óklætt, járnið hefði aðeins verið neglt ofan á grind. Þarna uppi slagaði og hrfmaði og hefði það valdið húseigendum miklu tjóni. Auk þess læki þakið er vindur stæði af ákveðnum áttum. Tjón húseigendanna væri yfirleitt mjög svipað. Þá sagði Hilmar, að „parkett" á gólfi væri stórgallað. Það hefði verið lagt ofan á sand, sem gengi upp í gegnum gólfið og það hefði gengið til og sigið. Hann sagði, að árið 1981 hefði verið byrjað að vinna að þessu máli. Engar bætur hefðu verið boðnar af hálfu ríkis- ins og sáttaumleitanir ekki borið árangur. Ákveðið hefði verið að láta meta tjónið og kostnað við endurbætur og hefði það tekið ár. Er það lá fyrir síðasta haust var hafist handa við málshöfðun, sem nú er á næsta ieyti að sögn Hilm- ars. Ríkharð Steinbergsson hjá Framkvæmdanefnd bygginga- áætlunar sagði að fyrir tveimur árum hefðu eigendur þessara húsa við Hamraberg og Háberg kvartað yfir þökum. Ekki hefði náðst samkomulag um á hVern hátt standa skyldi að viðgerðum á þakinu og eigendur ekki verið ánægðir með það sem Fram- kvæmdanefndin bauð. Síðan hefði ekkert gerzt í málinu. Varð- andi gólf sagði Hilmar, að það mál hefði komið upp við mats- gerðina og ekki verið sérstaklega rætt við húseigendur. Verðlagsyfirvöld krefjast sölu afsláttarmiða SVR: Lýsi undrun á endurteknum ofsóknum í garð borgarinnar — segir í yfirlýsingu borgarstjóra VERÐLAGSSTOFNUN hefur krafist þess að borgaryfirvöld hefji sölu af- sláttarkorta Strætisvagna Reykjavíkur og „skulu afsláttarmiðar vera komnir í sölu eigi síðar en 1. mars nk., en að öðrum kosti mun Verðlagsstofnun grípa til viðeigandi aðgerða", að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá stofnuninni. Þar kemur og fram að stofnunin hafi samþykkt þann 9. febrú- ar að heimila hækkun á fargjöldum SVR um 25%, ef ósk um það bærist, en það hafi ekki gerst, en einhliða hækk- un tilkynnt. í yfirlýsingu sem Morgunblaðinu barst í gær frá borgarstjóranum í Reykjavík segir að samþykkt Verð- lagsráðs frá 9. febrúar hafi aldrei Sólmundur Einarsson fiskifræðingur: Stórfellt smánskadráp togara á Þverálssvæðinu — eftirlitsmenn hreinlega teknir úr umferð „ÞAÐ er augljóst mál að undanfarna daga hefur stórfellt smáfiskadráp átt sér stað hjá togurum á Þverálssvæð- inu, vestan og sunnan við Kögurhólf- ið. Okkur er kunnugt um það, að allt að fjórðungi afla úr hali hefur verið hent, þrátt fyrir að það sé skýrt tekið fram að koma skuii með allan afla að landi. Svæðinu var því lokað í morgun eftir að varðskipsmenn höfðu kannað afla þriggja skipa, en af honum var allt upp í helmingur undir 53 senti- metrum, en leyfilegt hámark þorsks undir 53 sentimetrum er 25%,“ sagði Sólmundur Einarsson, fiskifræðingur, sem nú stjórnar eftirliti með veiðum af hálfu Hafrannsóknastofnunar, í samtali við Mbl. í gær. „Við töldum okkur hafa sent eftir- litsmann á svæðið. Hann fór vestur til ísafjarðar og fór þar um borð í togarann Guðbjörgu. Þegar hann var kominn um borð var honum sagt, að togarinn fari á skrap, sem þýðir að hann fari víðs fjarri þorskaslóð og áðurnefndum miðum. Þetta hafa togaramenn leikið áður, þeir hafa ekki látið neitt uppi um fyrirætlanir sínar fyrr en þeir eru komnir út úr höfninni og þá er oft erfitt fyrir okkar menn að snúa við. Þannig eru eftirlitsmennirnir hreinlega gerðir óvirkir. Við vissum því ekkert hvað var að gerast á svæðinu fyrr en við fengum upplýs- ingar um það frá skipverja á einum togaranna, sem þarna voru á veið- um. Þá hafði ég þegar samband við Landhelgisgæzluna, sem brást vel við og fór þegar á staðinn og fóru menn hennar um borð í þrjú veið- iskip á svæðinu. Afli tveggja þeirra var mjög smár eða upp í helmingur undir 53 sentimetrum, eða helmingi meira en leyfilegt er. Þetta fengum við að vita í morgun og lokuðum svæðinu nánast strax. Áður hafði Gæzlan beðið togarana að fara af svæðinu en það hunzuðu þeir al- gjörlega. Gæzlan fór síðan inn á ís- afjörð, tók eftirlitsmann þar um borð og er hann nú við athuganir á þessu svæði. Það var stór floti búinn að hafa þarna frítt spil í minnsta kosti þrjá fjóra daga. Enginn hefur haft sam- vizkubit vegna smáfiskadrápsins og séð ástæðu til að láta vita af þessu og það finnst mér hvað verst, að enn skuli ekki vera orðinn vísir að hug- arfarsbreytingu. Útgerðin og að- stæður í landi pressa skipstjórn- armenn endalaust til að skila afla á land og það er eins og allt verndun- arsjónarmið sé fyrir bí. Þetta hefur viðgengist allt of lengi," sagði Sól- mundur. verið tilkynnt borgaryfirvöldum og hafi verðlagsstjóri neitað embættis- mönnum borgarinnar um afrit af nefndri fundargerð. Vitað sé að Verðlagsráð hafi haldið fund 21. febrúar, en ekki hafi komið fram að þar hafi verið gerð ályktun um mál- efni SVR, a.m.k. hafi borgaryfirvöld- um ekki verið tilkynnt um slíkt. Síðan segir borgarstjóri: „Það er ekki í verkahring „verðlagsyfir- valda" að ákveða hallarekstur Strætisvagna Reykjavíkur í því skyni að falsa verðbótavísitöluna í landinu. Verðlagsstofnun hefur margsýnt og sannað, að hún kýs ekki að starfa ekki eftir þeim lögum, sem um stofnunina gilda. I sjónvarps- þætti 11. janúar sl. lét verðlagsstjóri m.a. að því liggja, að taprekstur SVR mætti að hluta rekja til afsláttar- fargjalda, sem borgaryfirvöld hafi sjálf tekið ákvörðun um. Verða þau ummæli ekki skilin öðruvísi en svo, að það sé á valdi borgaryfirvalda að fella niður slík fargjöld, og var það gert í kjölfar lögbannsaðgerða verð- lagsstjóra." Þá er í yfirlýsingunni vakin at- hygli á því að í Kópavogi gildi ekki afsláttarfargjöld og hafi Verðlags- stofnun ekki krafist þess að þau verði tekin upp þar. Fargjöld full- orðinna séu hin sömu í Reykjavík og í Kópavogi, en fargjöld barna helm- ingi lægri í Reykjavík. Síðan segir í yfirlýsingu borgar- stjóra: „Reykjavíkurborg fordæmir þá tilraun, sem gerð er af opinberum aðilum til að brjóta niður almenn- ingsvagnasamgöngur í borginni og lýsir yfir undrun á endurteknum ofsóknum stofnunar, sem lýtur póli- tísku forræði ríkisvaldsins, í garð höfuðborgarinnar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.